Tíminn - 28.06.1989, Side 3

Tíminn - 28.06.1989, Side 3
f^libvikúdágur 28. júní 1989________________________________________________________________________________ Stóraukin notkun á smokkum á íslandi síðustu ár hefur skilað árangri: Tíminn 3 Fækkun fóstureyðinga og færri smitast af lekanda Á tveggja ára tímabili jókst fjöldi gúmmíverja sem íslendingar keyptu um tæp tvö hundruð þúsund stykki. Nú er svo komið að hver íslendingur kaupir að meðaltali rúmlega tvo smokka á ári. Aukin notkun hefur einkum skilað sér í fækkun kynsjúk- dómatilfella og fækkun fóstureyð- inga í yngstu aldurshópunum. Árið 1985 keyptu íslendingar 308 þúsund gúmmíverjur, ári síðar var fjöldinn kominn upp í 459 þúsund og 1987 voru keyptar 501 þúsund verjur þessarar tegundar. „Þetta er öllu betri árangur en við áttum von á vegna þess að salan hefur ekki dottið niður aftur. Bráðabirgðatölur fyrir árið 1988 benda til að um mjög svipaða sölu sé að ræða og árið áður,“ sagði Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir í samtali við Tímann. Eins og Haraldur Briem læknir benti á, þegarTíminn hafði samband við hann, er ekki vitað hve mikið af verjunum var notað til þeirra hluta sem þær eru ætlaðar, en miðað við sölutölur má slá því föstu að um verulega aukningu á notkun sé að ræða. Guðjón sagði að óttast hefði verið að skýra mætti fjölgunina með fjölg- un sölustaða fyrst eftir að svokölluð smokkaherferð hófst árið 1985. „Það var óttast að birgðir lægju hjá sölu- stöðum en með söluaukningu ár eftir ár verður að ætla að notkunin hafi aukist,“ sagði Guðjón. Hann sagði áhrifin einkum hafa skilað sér í fækkun tilvika kynsjúkdóma. „Á milli áranna ’86 og ’87 varð fækkun tilvika sérstaklega á lekanda og á milli ’87 og ’88 virðist vera um áframhaldandi lægri tölur að ræða. Fóstureyðingum hefur jafnframt heldur farið fækkandi í yngstu ald- urshópunum," sagði Guðjón. Landlæknisembættið hefur látið gera könnun meðal fólks á aldrinum 18 til 45 ára sem einnig sýnir að um verulega aukningu á notkun smokka sé að ræða. Spurt var hvort menn hefðu gert ráðstafanir til að draga úr hættu á að þeir sýktust sjálfir af alnæmi. Flestir sem því svöruðun játandi, sögðust vanda betur val á bólfélögum og um fjórðungur sagð- ist hafa aukið notkun á smokkum. „Sú fræðsla sem við höfum staðið fyrir virðist hafa verið einkar vel tekið. En áhættuhópa vegna alnæmis er fyrst og fremst að finna meðal þess aldurshóps sem könnunin nær til,“ sagði Guðjón. Varðandi útbreiðslu alnæmis og það hvort aukin notkun smokka hefði breytt einhverju þar um, sagði Guðjón aftur á móti að ætla mætti að smokkur væri ef til vill ekki notaður einmitt við þau kynmök þar sem mest ástæða væri til. Hann sagði að með haustinu og sérstaklega fyrir verslunarmanna- helgina þætti ástæða til að taka aftur til við að minna á notkun smokka og mikilvægi þeirra. jkb Ferðamálafræðingar leiðbeina sóldýrkendum á Spáni í framtíðinni: íslenskur ferða- málaskóli á Spáni Með samstarfi sem tekist hefur milli íslenskra aðilja og spænskra ferðayfirvalda verður starfræktur ís- lenskur ferðamála- og fararstjóra- skóli 30.október til 20.desember næsta vetur í Palma á Mallorca. Þar verða kennd ýmis undirstöðuatriði almennrar ferðaþjónustu, svo sem farseðlaútgáfa og hótelstörf, auk spænsku, sögu Spánar og menningar Miðjarðarhafslanda, leiðsagnar ferðamanna á Spáni og margra fleiri greina. Náminu lýkur með prófum og fá nemendur skírteini til staðfest- ingar á þátttöku sinni á námsárangri. Skólastjóri verður Örnólfur Áma- son, og sagði hann ástæðuna fyrir því að skólinn er staðsettur á Spáni vera þá, að nemendur ná mun betra valdi á spænsku og þjálfast í ieiðsögn um Spán á staðnum sjálfum. Einnig fengju nemendur aðgang að spænsk- um fyrirlesurum sem þekktu ferða- þjónustuna, og það sem henni tengdist, mjög vel. Kostnaður á hvem nemanda verð- ur um 240 þúsund krónur, en innifal- ið í því er allt uppihald. Skólinn mun starfa á hóteli sem m.a. hefur sérgæft sig í að hýsa samskonar námskeið annarra þjóða er hafa um árabil menntað fararstjóra sína og ferða- þjónustufólk á hliðstæðan hátt, en Ömólfur sagði að varla þekktist að erlendar ferðaskrifstofur réðu fólk til leiðsögustarfa sem hefur ekki lokið námi í þeim fræðum. Hann sagðist þó ekki geta dæmt um það hverjir starfsmöguleikar útskrifaðra nemenda væm, þar sem ekki væri við neitt að styðjast í þeim efnum, en nefndi að í náminu væm ýmis hagnýt atriði sem gætu nýst fólki vel í öðmm störfum en við ferðaþjón- ustu. LDH- Frá undirritun samnings. Ríkið selur hlut í Kísiliðjunni hf. Nýverið var undirritaður samning- ur milli íslenska rikisins og Manville Corp. um viðauka við aðalsamning sömu aðila um kísilgúrverksmiðju við Mývatn, en sá samningur er frá 1966. Málefni samningsins er að Man- ville, sem er aðalframleiðandi síun- arefna og fyllingarefna úr kísilgúr í heiminum, kaupi 8,7% af hlutafé ríkisins í Kísiliðjunni hf. og eignist þar með 48,6% í félaginu. Hlutur ríkisins er 59,7%, en verður eftir kaupin 51%. Sveitar- og sýslufélög á Norðausturlandi eiga 0,4% hlutafjár í félaginu. Kaupverð hlutarins er 51 millj. og greiðast 12,7 millj. strax en eftirstöðvar með skuldabréfi til fimm ára. Ákvæðum aðalsamningsins er breytt þannig að iðnaðarráðherra beiti sér fyrir því að félaginu verði veitt heimild til að taka þátt í nýrri starfsemi hér á landi en til þessa hefur starfsemin alfarið takmarkast við nám og vinnslu kísilgúrs. Breyt- ing á hlutverki Kísiliðjunnar hf. er háð samþykki Alþingis. Afkoma Kísiliðjunnar hf. hefur verið svo góð á tímabilinu 1983- 1988, að félaginu hefur tekist að greiða niður allar langtimaskuldir og eiginfjárhlutfall er orðið yfir 90%. LDH- Sláttur hafinn undir Fjöllunum: Lítur vel út með heyskap Sláttur er hafinn víða á landinu, og fóru Norðlendingar af stað um síðustu helgi. Undir Eyjafjöllunum voru menn ýmist byrjaðir eða að hefja slátt, og sagði Ölafur Eggerts- son, bóndi á Þorvaldseyri að spretta væri að verða mjög góð. Hann er búinn að ná inn ágætu heyi af um fimm hekturum lands síðan á fimmtudag, en er nú að heyja í vothey, enda þokusuddi á Suður- landinu. Ólafur sagði að hann þyrfti að slá um 85 hektara í sumar og svo færi hann aðra umferð yfir um 25 hektara. Hann sagðist ekki trúa því að sumarið 1989 verði rigningarsum- ar, þrátt fyrir að þjóðsagan segi að ár sem endi á tölunni níu verði votviðrasöm. „Hins vegar tel ég nauðsynlegt að grípa hverja þurrk- stund sem gefst, og þess vegna beið ég ekki með að hefja slátt þótt sprettan hefði ekki náð hámarki,“ sagði Ólafur. Hann sagðist kannast við nokkra bændur undir fjöllunum sem byrjuðu að slá strax á laugardag- inn, um svipað leyti og Norðlending- ar, en Ólafur sagði að þótt spretta hefjist talsvert fyrr fyrir sunnan, þá þurfi ekki nema nokkra sólardaga fyrir norðan þar sem hitinn rýkur upp í tuttugu stig, svo hægt sé að hefja þar slátt. LDH- Góð spretta hefúr verið undir Eyjaljöllunum að undanfömu og em bændur margir hverjir farnir að heyja. Sonur Ólafs Eggertssonar, bónda á Þorvaldseyri, lætur ekki sitt eftir liggja við heyskapinn. Tímamynd: sigurgeir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.