Tíminn - 28.06.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 28. júní 1989
rkvrmgg i «r»r
Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið var í Vorhappdrætti Framsóknarflokksins 9. júní. Vinnings-
númer eru sem hér segir:
1. vinningur númer 17477
2. vinningur númer 36272
3. vinningur númer 33471
4. vinningur númer 37116
5. vinningur númer 38156
6. vinningur númer 27174
7. vinningur númer 8313
Vinningsmiðum skal framvlsa á skrifstofu Framsóknarflokksins í
Nóatúni 21, Reykjavik.
Ógreiddir miðar eru ógildir.
Vinninga skal vitja innan árs frá útdrætti.
Allarfrekari upplýsingar í síma 91-24480.
Framsóknarflokkurinn
Landsþing L.F.K. á Hvanneyri
8.-10. september 1989.
4. landsþing L.F.K. verður haldið að Hvanneyri dagana 8.-10.
september n.k.
Dagskrá þingsins verður tilkynnt síðar.
Framsóknarkonur eru hvattar til að fjölmenna eins og á undanfarin
þing.
Stjórn L.F.K.
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, verðurfrá
og með 1. júnf n.k. opin alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
SIMI: 681500 - ARMULA 11
IfeSS
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
Sigríður G. Kristinsdóttir
Grensásvegi 58, Reykjavík
verður jarðsungin frá Skálholtskirkju fimmtudaginn 29. júní kl. 14.00.
Jarðsett verður í Haukadal.
Rútuferð verðurfráB.S.Í. kl. 12.00 meðviðkomu í Fossnesti, Selfossi.
Alfreð Jónsson
Arnleif Alf reðsdóttir Jón Þór Ásgrímsson
Aðalheiður Alfreðsdóttir Halldór Borgþórsson
og barnabörn.
Töskurnar tvær sem þjófurinn hrifsaði af konunni
Tímamynd Ámi Bjama
Þreif peningatöskur af afgreiðslukonu frá SVR:
„Sjálfsagt verið
einhver dópisti“
Roskin kona var rænd tveim peningatöskum sem hún var
að fara með frá biðskýlinu á Hlemmi, yfír Laugarveginn og
inn í hús SVR, undir miðnætti á föstudagskvöld. „Ég var að
fara með töskurnar út, þegar þessi maður, sem ég get ekki
gert mér grein fyrir hvernig lítur út, hrifsaði af mér
töskurnar,“ sagði konan sem starfar í miðasölu SVR á
Hlemmi.
Konan sagði að hún hefði verið
rétt komin út fyrir dyrnar á biðskýl-
inu, þegar hann vindur sér að henni,
sparkar í fótinn á henni og þreif af
henni töskurnar. Hún féll í götuna
og handleggsbrotnaði. Aðspurð
sagði hún að þó nokkuð af fólki hafi
verið bæði fyrir utan og í biðskýlinu
þegar maðurinn réðst að henni, en
enginn komið til hjálpar. „Það er
kannski ekki nema von, þetta bar
svo snöggt að, að fólk hefur eflaust
ekki áttað sig á hvað var að gerast,“
sagði konan. Hún sagði að þegar
hún hefði farið inn í skýlið aftur
hefði stúlka sem þar var sagt henni
að hún hefði setið við hliðina á
manninum á bekk fyrir utan. „Árás-
armaðurinn hljóp vestur fyrir hornið
á biðskýlinu, síðan sá ég hann ekki
meir,“ sagði konan.
Konan taldi víst að í töskunum
hafi verið um 200 þúsund krónur.
Að sögn Ragnars Þorgrímssonar hjá
SVR eru töskurnar komnar í ieitirn-
ar. Hann sagði að aðeins hefði tekist
að opna aðra töskuna, sem í hafi
verið um 10 til 20 þúsund krónur og
eitthvað af farmiðum. „Þetta hefur
sjálfsagt verið einhver dópisti sem
hlaupið hefur til og gripið töskumar
hjá konunni," sagði Ragnar. Hann
sagði að reglan ætti að vera sú að þau
sem vinna í miðasölunni hringi í
varðstjórana í SVR húsinu, gegnt
Hlemmi, áður en farið er yfir með
peningana og miðana. „Það hefur
verið farið að trassa það að hringja
enda ekkert gerst, eða vandræði í
meir en 10 ár,“ sagði Ragnar. Hann
sagði að lögð yrði áhersla á að
samband verði haft við verðina áður
en farið er af stað með töskurnar.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um að
haft verður upp á manninum, enda
margirsem sáu hann,“ sagði Ragnar.
-ABÓ
Beyglaðar dósir í endurvinnslu
Iðnaðarráðuneytið hefur sent frá
sér svohljóðandi tilkynningu varð-
andi Endurvinnsluna hf:
„Af gefnu tilefni vill ráðuneytið
ítreka það að í bráðabirgðakerfi því,
sem Endurvinnslan hf. mun koma
upp síðar í sumar mun verða tekið
við samanbrotnum, beygluðun
áldósum. Síðar meir, þegar kerfi
verður komið í endanlega myn<
verða gerðar strangari kröfur ui
ástand dósanna. Mun það verc
rækilega auglýst þegar þar a
kemur.“ G!