Tíminn - 28.06.1989, Page 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISS^IP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 w $ SAMVINNUBANKi iSLANDS Hf. ÞRðSTUR 685060 VANIR MENN • PÓSTFAX TÍMANS 687691
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ1989
TímamyndíÁmi Bjama
Frá blaðamannafundi fjármálaráðherra f.v. Ólafur Ragnar Grímsson, Lárus Ögmundsson og Ásmundur Vilhjálmsson.
Framkvæmdastjóri Hagvirkis segist ekki gera ráö fyrir aö ákvöröun um bótakröfu á hendur ríkinu verði breytt
Jóhann í mál við Ólaf
Hagvirki hefur ásamt tveimur öðrum fyrirtækjum verið opnað aftur
og veitt frestur til að greiða söluskatt þar til ríkisskattanefnd hefur
úrskurðað um ágreiningsatriði varðandi söluskattsgreiðslur. Jóhann
G. Bergþórsson framkvæmdastjóri Hagvirkis segist ekki gera ráð fyrir
öðru en fyrri ákvörðun um að leggja fram bótakröfu á hendur
ríkissjóði vegna lokunarinnar verði haldið til streitu. Ef úrskurður
nefndarinnar fellur fyrirtækinu í óhag verður hann einnig kærður.
Þremur fyrirtækjum hefur verið veittur
frestur á greiðslu söluskatts þar sem mál
þeirra eru að sögn Ólafs Ragnars Gríms-
sonar á lokastigi umfjöllunar ríkisskatta-
nefndar. Fresturinn er veittur gegn því að
forráðamenn fyrirtækjanna ábyrgist að
ekkert verði gert í sambandi við rekstur
þeirra er stefnt geti skattakröfum ríkis-
sjóðs í hættu. Varðandi ábyrgðir getur
bæði verið um bankaábyrgð eða annað að
ræða. Umrædd fyritæki eru Hagvirki,
Trésmiðjan Borg á Húsavík og Þorvaldur
og Einar sf. í Vestmannaeyjum, en þeim
hafði öllum verið lokað.
Framkvæmdastjóri Hagvirkis sagði
Tímanum að hann gerði ekki ráð fyrir
öðru en að bótakröfu á hendur ríkissjóði
vegna lokana fyrirtækisins yrði haldið til
streitu. „Það hefur orðið verulegt tap á
þeim tíma sem fyrirtækið var lokað.
Tjónið hefur samt sem áður orðið minna
en ef við hefðum lagt niður rófuna eins og
sjálfsagt var ætlast til. Það er einnig vitað
að þetta hefur skapað mikinn taugaóstyrk
og angist og þar með ómælt tjón á
tilfinningalífi manna sem verður ekki
metið til fjár. Það er alvarlegt ef fyrirtæki
og almenningur eiga að búa við aðgerðir
sem þessar út frá mannréttindasjónarmið-
um. Ég tel ljóst, í kjölfar breyttra for-
senda, að aðgerðir undanfarinna daga eru
ekki í takt við eðlilegan framgangsmáta
og okkur þykir vænt um að menn hafa
átta sig á stöðunni. Ef svo ólíklega fer að
úrskurður ríkisskattanefndar fellur okkur
í óhag munum við að sjálfsögðu kæra
málið,“ sagði Jóhann. Hann sagði að
miðað við þingræður sem fluttar voru er
söluskattslögin voru sett og álit ýmissa
sérfróðra manna, telji forráðamenn Hag-
Fógetaúrskurður í skuldamálj Landsbankans gegn Olís í gær:
Enn haf nar f ógeti
beiðni OLÍS-manna
Borgaríógeti hafnaöi í dag þeirri
beiöni Olís að benda á eignir félagsins
víða um land til tryggingar skuldum
þcss við Landsbankann að upphæð 230
milljónir sem enn vantar tryggingar
fyrir.-Félagið hefur einnig bent á ýntsar
eignir, einkum ýmislegt lausafé, þar á
mcðal bíla sem félagið á og rekur.
í úrskurði fógeta er komið til móts
við kröfu Landsbankans unt að Olís
verði að bcnda á fasteignir sem stað-
settar cru innan lögsagnarumdæmis
Reykjavíkur fyrst áður en bent verður
á fasteignir út um land.
Úrskurðurinn í gær er því cnn cinn
úrskurðurinn sem fellur í vil Lands-
bankanum og staða Olts í tnálinu
þrengist nú mjög og hefur félagið að
undanförnu talið vcrðmæti eigna þeirra
sem það hefur bent á í fógetarétti, mun
meira en bankinn hefur viljað fallast á,
eða fógeti.
Eignir þær og iausafé sem félagið
hefur bent á verða metnar í dag og
máiið síðan tekið aftur fyrir f fógeta-
rétti á morgun. Lögfróðir nienn telja
að senn megi fara að vænta úrslita af
einhverju tagi enda sé svigrúin Olís í
stöðunni orðið harla lítið. 1 ljósi um-
niæla stjórnenda Oiís um blómlcgan
rekstur sé í raun skynsamlegast fyrir
félagið að greiða af þessum skuldum
sem bankinn eigi sannanlega útistand-
andi í stað þess að standa í frekari
málavaafstri.
virkis sinn málsstað tryggan.
Fjármálaráðherra vildi ekki meina að
um mismunun fyrirtækja væri að ræða,
með opnun fyrrgreindra fyrirtækja. Hann
sagði starfsmenn fjármálaráðuneytisins
hafa athugað stöðu allra mála sem eru til
umfjöllunar ríkisskattanefndar og í eng-
um öðrum tilvikum en framangreindum
hafi málin verið komin á það stig að hægt
væri að fresta lokunaraðgerðum. Auk
þess hefði ríkisskattanefnd verið falið að
flýta úrskurðum sínum í þessum tilvikum,
þannig að þeir liggi fyrir, í síðasta lagi,
innan rúmra tveggja vikna.
Ólafur gaf í gær út reglugerð þess efnis
að ef ágreiningur um söluskatt bíður
úrskurðar ríkisskattanefndar er inn-
heimtumanni heimilt að fresta innheimt-
uaðgerðum, þar á meðal lokun, gegn
bankaábyrgð. í reglugerðinni er jafnframt
ítrekað svokallað grundvallaratiði sölu-
skattslaganna, að áfrýjun á skattskyldu
skapi ekki greiðslufrest. En falli dómur á
þá leið að fyrirtæki beri ekki að greiða
skattinn skal þegar endurgreiða hann.
Varðandi þau fyrirtæki sem selja stein-
steypu og ekki hefur verið lokað, þrátt
fyrir söluskattsvanskil, segir í tilkynningu
fjármálaráðherra að ástæðunnar sé að
leita í mati á álagningu, sem ríkisskatt-
stjóri hefur ekki lokið enn sem komið er.
Varðandi þau fyrirtæki sem eru til með-
ferðar hjá Atvinnutryggingarsjóði og
Hlutafjársjóði liggur fyrir að ríkissjóður
mun ekki beita innheimtuaðgerðum gagn-
vart fyrirtækjum sem eru í opinberri
skuldaskilameðferð. En ríkissjóður tekur
þátt í þeim skuldaskilum.
f síðustu viku var samtals 198 fyrirtækj-
um lokað á landinu öllu og hafa 142 þeirra
verið opnuð aftur. Á einni viku innheimt-
ust samtals 205 milljónir á móti 48
milljónum í vikunni áður en aðgerðirnar
hófust. f lögsagnarumdæmum tíu sýslu-
manna hafa öll fyrirtækin greitt upp allar
sínar skuldir. Ólafur sagði vera um þá
stefnubreytingu að ræða, að nú hafi
framkvæmd innheimtu verið hagað í sam-
ræmi við það sem söluskattslög kveða á
um og svo verði framvegis.
jkb