Tíminn - 29.06.1989, Page 11

Tíminn - 29.06.1989, Page 11
10 Tíminn Tíminn 11 Fimmtudagur 29. júní 1989 Fimmtudagur 29. júní 1989 stykki m m finnast engin Eftir Stefán Ásgrímsson Þjóðleikhúsið stendur nú í verulegu basli og hefur fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, sagt að endurtekinn fjárhagsvandi stofnunarinnar sé að hluta til rekstrar- og stjórnunarlegs eðlis. Að tilhlutan ráðherrans hefur verið skipuð fimm manna nefnd til að fara ofan í saumana á rekstri Þjóðleikhússins og tók hún til starfa í síðustu viku. Nefnd þessari er ætlað að taka út alla rekstrarþætti ieikhússins og sitja í henni Gísli Alfreðsson Þjóðleikhússtjóri, ívarGuðmunds- son fjármálastjóri leikhússins, Sigrún Val- bergsdóttir frá menntamálaráðuneytinu og Friðrik Friðjónsson, en formaður nefndarinn- ar er Haukur Ingibergsson skrifstofustjóri hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun. Nefndinni er ætlað að skila skýrslu sinni og tillögum til úrbóta í ágústmánuði og vænta má þess að hún eigi mikið og erfitt verk fyrir höndum. Hún hefur þegar kastað sér út í viðamikla efnisöflun. Áttatíu milljónir framyfir fjárlög Þjóðleikhúsið hefur um langt skeið farið verulega fram úr þeim fjárveitingum sem til stofnunarinnar eiga að renna samkvæmt fjár- lögum hverju sinni og eru skuldir við ríkissjóð og fleiri aðila nú taldar vera að nálgast skuggalega þrjú hundruð milljónir króna. Ástand sjálfrar leikhúsbyggingarinnar er sagt svo bágborið og eigi að gera það í stand og breyta því í takt við kröfur tímans þá muni það kosta milljarð, en málefni byggingarinnar sjálfrar heyra undir sérstaka byggingarnefnd vonir væru bundnar við og þá mætti vænta þess að fé kæmi í kassann þannig að í raun yrði leikhúsið ekki gersamlega fjárvana í haust þrátt fyrir að fjárveiting fjárlaga yrði þá búin eins og nú lítur út fyrir. Þá sagði Gísli að í fjármálaráðherratíð Alberts Guðmundssonar hefði þess verið kraf- ist að fjárhagsáætlanir ríkisstofnana yrðu betur unnar og raunhæfari en áður hefði verið. Jafnframt yrði meira tillit tekið til áætlananna en fyrr hefði verið og aukafjárveitingar yrðu þar með úr sögunni. Stjómendur Þjóðleikhússins hefðu síðan sótt námskeið í gerð fjárhagsáætlana og síðan hefðu áætlanir stofnaninnar að fullu staðist. Hins vegar Jjefði við fjárlagagerð aldrei verið tekið tillit til þeirra fremur en fyrrum og því væri fjárhagsvandinn enn hinn sami og munaði um 30- 40% á tillögum stjórnenda Þjóðleik- hússins og jafnframt því sem kostaði að reka húsið, og framlagi áfjárlögum. Þessi mismunur væri síðan afgreiddur sem skuld Þjóðleikhúss- ins við ríkissjóð. Erfitt að söðla um þegar sýningar eru komnar af stað Þjóðleikhússtjóri sagði síðan: „Þegar fjárlögin koma fram er leikhúsið. þegar búið að skuldbinda sig allt árið; búið að skipuleggja leikárið og erfitt að breyta því til að fara að fjárlögum, sem við auðvitað teljum að hverri stofnun beri að gera. Þegar svo er komið sem nú, er eina lausnin í sjónmáli að hefja stórfelldar uppsagnir og loka leikhúsinu — i um tíma á hverju ári.“ Gísli sagði að ofannefnd hugmynd um uppsagnir og lokun hafi verið viðruð við tvo ráðherra áður og ekki væri ljóst hvort gripið yrði til þessa nú. Þessi hugmynd var samkvæmt heimildum til umræðu á fundi Þjóðleikhúsráðs í gær. Framlag ríkissjóðs til leikhússins hefur að sögn Gísla lengstum numið um 60-65% af rekstrarkostnaði en eigið aflafé verið 35-40%. Hann sagði að þetta þætti leikhúsfólki á Norðurlöndum mikið undur, - að hægt væri að reka atvinnuleikhús með þessu móti. Þar næmu framlög frá opinberum aðilum til at- vinnuleikhúsa 85-95% af reksturskostnaði. „Það væri gaman í þessu þjóðfélagi ef allt væri í fína lagi að öðru leyti en því að fjárlögin væru of naumt skömmtuð. Ég vil annars ekkert tjá mig um þetta. Það er nefnd að skoða þessi mál og ég vísa alfarið til hennar," sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra í gær. Meðalaðsókn Gísli Alfreðsson Þjóðleikhússtjóri segir að aðsókn að sýningum leikhússins hafi gengið í bylgjum og til dæmis hafi hún fallið mjög þegar Sjónvarpið tók til starfa en aukist smám saman aftur. Enn hafí hún fallið þegar litsjónvarpsút- sendingar hófust og enn þegar útvarps- og sjónvarpsrekstur var gefinn frjáls. Aðsóknin væri eftir það aftur að aukast og hefði á síðasta leikári aukist um 13% frá því fyrra og hefðu ríflega 78 þúsund sótt sýningar hússins. Það þýddi 63% sætanýtingu sem teldist í meðal- lagi. Gísli sagði að áhrif sjónvarps á aðsókn að leikhúsum hefðu ætíð reynst tímabundin og ástæða væri til að ætla að hún ykist aftur. Nú væri unnið að verkefnaskrá næsta leikárs og þegar byrjað að vinna að fjórum verkefnum og væri eitt þeirra mikill söngleikur; Oliver, eins og áður hefur verið sagt, en hann byggist á sögu Dickens; Oliver Twist, en frá fyrirhugaðri uppfærslu hans hefur verið greint í fjölmiðlum. Þá væri byrjað að undirbúa þrjár aðrar sýning- ar sem hefjast eiga í haust. Gísli sagðist ekki sammála því sem fram hefur komið hjá fjármálaráðherra að vandi Þjóðleikhússins sé bæði rekstrar- og stjórnun- arlegs eðlis. Mesti vandi Þjóðleikhússins væri fjársvelti. Leikhúsinu hefði um langt skeið verið haldið í spennitreyju rekstrarfjárskorts og það skapaði vissulega bæði rekstrar- og stjórnunarlegan vanda. „Það er ekki grínlaust að vita sig hafa aðeins tveggja afarkosta völ ef ekki eigi að fara Iangt fram úr fjárlögum; annaðhvort að segja upp fjölda fólks, þar á meðal þekktustu listamönn- um þjóðarinnar, eða fá verulega aukafjárveit- ingu. Veglegt Þjóðleikhús eða ekkert Þjóðleikhús „Ég vonast til að rekstrarþættir Þjóðleik- hússins verði vandlega skoðaðir núna og að þeirri niðurstöðu verði komist að reka skuli veglegt Þjóðleikhús sem ekki berst í bökkum með þessum hætti. Mér finnst þetta niðurlægj- andi fyrir þjóðina að þetta ástand skuli vara árum saman. Það þarf að komast á skilningur milli leikhússins og þeirra sem fjalla um fjárveitingar til þess,“ sagði Þjóðleikhússtjóri. „Þetta hefur verið margra ára vandi og er ekkert sem er nýtilkomið,“ sagði Þuríður Pálsdóttir formaður Þjóðleikhúsráðs. Hún sagði að búið væri um margra ára skeið að ræða þessi mál fram og til baka. Stór hluti vandans væri að fast starfslið væri fjölmennt og launakostnaður verulegur, eða nálægt 85% af rekstri stofnunarinnar. Þar af væru leikarar ekki dýrasta starfsfólkið og það væri ennfrem- ur meir en að segja það að segja upp leikurum eins og margir virtust telja að væri hið mesta þjóðráð. Þuríður sagði að hún teldi að afar erfitt væri að spara í sýningum hússins frekar en gert hefur verið. Launakostnaðurinn vegi þyngst í rekstri hússins eins og áður sagði en þar um réðu mestu kjarasamningar einstakra stéttar- félaga sem starfsfólk hússins tilheyrir og geti stjóm hússins þar engin áhrif haft. Hún sagði að uppi væru hugmyndir meðal stjórnenda leikhússins og Þjóðleikhúsráðs um ákveðna hagræðingu við sýningar sem hafa myndu sparnað í för með sér og yrði greint frá þeim síðar. „Auðvitað er hægt að halda rekstrinum innan fjárlaga með fjöldauppsögnum og tíma- bundnum lokunum. En hvernig á að fara að því? Við getum ekki misst tækniliðið, ekki ljósamennina, ekki smiðina, förðunarfólkið né annað starfsfólk. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér almennt grein fyrir því hversu mikið fvrirtæki leikhús í rauninni er,“ sagði Þuríður. Þuríður sagðist hafa heyrt það sagt að verkefnaval stofnunarinnar væri að nokkru handahófskennt. Þess bæri þó að gæta að Þjóðleikhúsið hefði hlutverk sem að nokkru væri skilgreint í lögum og meðal annars væru þar ákvæði um óperuflutning, ballettsýningar, þjóðlega alþýðuleiki sem stundum væru nefnd- ir svo og um framúrstefnuleiklist og flutning klassískra leikverka. Á þessu leikári hefði leikhúsið sinnt öllum þessum skyldum sínum eftir bestu getu og af metnaði. Sem dæmi að nefna hefði sýningin Stór og smár verið framúrstefnuverk sem vandað hefði verið til af miklum metnaði þótt hún hefði ekki gengið. Aðspurð um hvernig á því stæði að leikhúsið hefði ekki sinnt óperuflutningi betur en verið hefur, þrátt fyrir að aðsókn að óperusýningum er undanatekningarlítið afar góð sagðist hún ekki geta svarað því að þessu sinni. Þjóðleikhúsráð kom saman til fundar í gær til meðal annars að ræða alvarlega stöðu stofnunarinnar. Þuríður sagði eftir fundinn að riallað hefði verið um málin af hreinskilni. Ymsar hugmyndir væru uppi og yrði gefin út yfirlýsing frá ráðinu snemma í næsta mánuði um til hvaða aðgerða mætti grípa í vanda Þjóðleikhússins. og mun því fimm manna nefndin ekki fjalla um þau mál, heldur eingöngu um þau er lúta að stjórn og rekstri leikhússins. Þessi sérlega úttekt sem fjármálaráðherra gengst nú fyrir er liður í því að spara í ríkisrekstri en ljóst er talið að ekki gangi lengur að reka leikhúsið á sama hátt og verið hefur, það er að segja með miklum mannskap, bæði leikurum og öðru starfsfólki og senda síðan reikninga í fjármálaráðuneytið fyrir það sem upp á vantar. Framlag til leikhússins á þessu ári er 170 milljónir og hefur hækkað um 30% milli ára. Hins vegar stefnir í að rekstur hússins muni kosta um 80 milljónir til viðbótar. Það þykir því mörgum það vera undarleg stjórnviska sem felst í því að þrátt fyrir að framlag sé ekki hærra á fjárlögum til leikhússins, sé samt lagt út í dýrar sýningar; meðal annars sýningu sem þegar stendur í þrjátíu milljónum og þó ekki séu öll fjármál þessarar einu sýningar að fullu upp gerð enn. Þá hafi húsið verið rekið áfram með fullum mannskap þrátt fyrir að augljóst mætti vera að fjárveiting fjárlaga dygði engan veginn fyrir umsvifum af því tagi sem verið hefur. Þegar stjórnun leikhússins sé með þessum hætti þá hljóti eitthvað meira en lítið •að vera að. Þrátt fyrir mikil fjármálaleg umsvif þá er ljóst að leikhúsinu hefur langt í frá tekist að vera vaxtarbroddur leiklistar í landinu og álit almennings á leikhúsinu og sýningum þess er almennt lítið og áhugi á því hefur farið hraðminnkandi síðustu árin. Sýningar eru ekki taldar takast vel, mikið er um að verk falli, kassastykki hafa verið sárasjaldgæf, verkefna- val heldur lítið spennandi og áhorfendahópur- inn harðfullorðið fólk. Menningaráhugafólk sem rætt var við í gær sagði undantekningarlaust að um langt skeið hefði áhugavert leikhús á íslandi verið að finna alls staðar annars staðar en í Þjóðleikhúsinu. Við þessu hafi stofnunin ekki kunnað að bregðast síðustu árin öðru vfsi en að auka verulega fjölda boðs- og afsláttarmiða þannig að tekjur af miðasölu hafi stórminnkað enda þótt tekist hafi að sýna fram á sæmilegar aðsóknartölur. Ekki hafi tekist, eða verið áhugi fyrir að breyta á einhvern hátt um listræna stefnu og stíl og höfða meir til áhorfenda eða afla nýrra áhorfendahópa, t.d. meðal yngra fólks, - hópa sem kæmu sjálfvilj- ugir í leikhúsið af því að sýningar höfðuðu á einhvern hátt til þeirra. Fjárveiting uppurin á haustmánuðum Heyrum hvað Þjóðleikhússtjóri; Gísli Al- freðsson, segir um málefni stofnunarinnar: „Þessi mál eru auðvitað afleit. Þannig hefur verið um áratugaskeið að Þjóðleikhúsið hefur aldrei fengið á fjárlögum það sem kostar að reka leikhúsið. Á árum áður var þetta afgreitt með aukafjárveitingu að hausti, eða um það ieyti þegar fjárveiting fjárlaga var uppurin í október- nóvember. Nú lítur út fyrir að sama verði ofan á, fjárveiting fjárlaga verði búin á haustmánuðum." Gísli sagði síðan að, í haust yrði væntanlega byrjað að sýna söngleikinn Oliver sem miklar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.