Tíminn - 29.06.1989, Page 17
Fimmtudagur 29. júní 1989
Tíminn 17
GLETTUR
- Jú, þaö er alveg rétt, hann er alltaf að líkjast meir og
meir honum afa sínum
- Það er bara auglýsingagjaldið sem er 2250 kr., en
bíllinn sjálfur kostar minnst 500.000
- Var það þetta höfuðfat sem þú týndir... ?
- Þið auglýsið að hér bjóðið þið upp á uppáhalds mat
hvers og eins. Uppáhaldsmatur minn er nýveiddur
silungur og steiktar rjúpur...
- Hafðu ekki áhyggjur af mistökum við uppskurðinn...
þér verður ekki kennt um neitt...
John James (Jeff) í DYNASTY
kvænist ástralskri fyrirsætu
„Loksins fann ég hina einu sönnu ást,“ sagði hið fræga
kvennagull
Brúðurín borin yfir þröskuldinn á hótelíbúð nýgiftu hjónanna
Denise var með skrautsokkaband um lærið. Það var fengið að
láni. Sagt er í Bandaríkjunum að brúðurín verði að vera í
einhverju gömlu, einhverju nýju, einhverju sem fengið er að
láni og einhverju bláu (Something old and something new,
something burrowed and something blue) Skoðaðar skyndimyndir frá giftingunni
Brúðhjónin Denise og John James skála fyrir framtíðinni
Dynasty-leikarinn glæsilegi
John James, sem leikur Jeff
Colby í sjónvarpsþáttunum,
er nú genginn í hjónaband.
Denise, eiginkona hans, er
áströlsk. Hún er 27 ára fyrir-
sæta og hefur einnig leikið
smávegis í kvikmyndum.
John er orðinn 33 ára,
þekktur leikari og vel stæður.
ungur maður. Hann bjó í
einbýlishúsi með öllum þæg-
indum, en kvartaði yfir því
að hann væri einmana. Það
þótti þó ótrúlegt, því að mað-
urinn var geysilega eftirsóttur
og dáður af kvenfólki. En
ástamálin höfðu ekki gengið
slétt og fellt hjá John til þessa.
Þau John og Denise hittust
í samkvæmi hjá ABC sjón-
varpsstöðinni, og „það var
ást við fyrstu sýn,“ segja þau
bæði. John sagðist hafa hringt.
í hana morguninn eftir partíið
og þau hafi ekki skilið síðan!
„Ég bað hennar 1. apríl, en
tók fram að það væri í fullri
alvöru," sagði John nýlega í
blaðaviðtali.
Þau giftu sig síðan 20. apríl
í Las Vegas og létu engan
vita. Aðeins bróðir Johns og fara í ferðalag til Evrópu, og
konan hans og tveir vinir jafnframt að halda brúð-
aðrir voru við giftingarat- kaupsveislu fyrir vini og
höfnina. vandamenn áður.
Brúðhjónin hafa hug á að