Tíminn - 29.06.1989, Side 20
v
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300 ■■■■—- ■■ 1 " 'if '■ ' ' —
RÍKISsÍciP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnarhusinu v/Tryggvagölu, S 28822 L ‘G&0#- SAMVINNUBANKI ISLANDS HF. ÞROSTUR 685060 VANIR MENN . PÓSTFAX TÍMANS 687691
T
Iímliiii
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ1989
Skýring fundin á sýkingunni í sundlauginni í Grímsey:
Of lítill klór
var í lauginni
Skýringar á sýkingunni sem upp kom í sundlauginni í
Grímsey liggja nú fyrir og var uppruna sýkingarinnar að
rekja til bakteríutegundarinnar Pseudomonas Aerugi-
nosa sem er að finna nokkuð víða í umhverfinu.
Bakterían þrífst vel í raka og tekur að fjölga sér mjög
hratt við slíkar aðstæður og í Grímsey gerðist það að
klórinn í sundlauginni var ekki nægilegur og því fór sem
fór.
Eins og Tíminn hefur greint frá
þá hefur stór hluti Grímseyinga
þjáðst af útbrotum og sviða frá því
um miðjan mánuðinn en þeir sem
sýktust eru nú óðum að ná sér.
Ólafur Oddsson héraðslæknir á
Akureyri sem á sínum tíma tók
sýni úr útbrotum eyjaskeggja og
hefur rannsakað þau, sagði í sam-
tali við Tímann í gær að umrædd
baktería gæti- verið í vatni og
jarðvegi en einnig á fólki sem
eðlilegt fyrirbrigði og væntanlega
hafi það gerst í sundlaug Grímsey-
inga að bakterían náði að fjölga
sér í nokkra daga vegna of lítils
klórs í vatninu.
Ólafur sagðist ekki vita til þess
að faraldur af þessu tagi hefði
komið upp hérlendis áður. En
erlendis hefðu faraldrar af þessu
tagi komið upp í tengslum við
sýkingar í nuddpottum og smærri
Sundlaugin í Grímsey.
sundlaugum.
Ein skýringin á því að slíkar
uppákomur eru algengari erlendis
getur verið sú að gegnumrennsli í
laugum hérlendis er mun meira
vegna þess að nóg er af heita
vatninu. Erlendis þarf að hita
vatnið og þar sem það er mjög
dýrt er komið á hringrás og slíkt
_kerfi er í sundlaug Grímseyinga.
Ólafur sagði ennfremur að
sundlaugin í Grímsey væri mjög
góð hvað hreinlæti varðar og í
þessu tilfelli hefði verið um vissa
byrjunarörðugleika að ræða, með-
al annars vegna þess hve aðsóknin
var mikil að lauginni. En þessir
örðugleikar eiga nú að vera úr
sögunni.
Laugin hefur nú verið opnuð
aftur en hún var tekinn í notkun á
sumardaginn fyrsta, en formleg
vígsla fer fram næstkomandi
sunnudag. SSH
Rússar eru líkast til óvanir því að vera boðinn „bónus“ fyrir að kaupa mikið af einhverju, enda grípa margir þeirra
tækifærið til að fá 4. skóparið frítt eftir kaup á þrem pörum.
Áhöf n Maxim Gorki
reifarakaup
gerði
„Það komu t.d. hingað tugir
Rússa af Maxim Gorki og keyptu
60-70 pör af skóm á lága verðinu,“
sagði Ólafur’Sigurmundsson í Skó-
verslun Reykjavíkur. Honum varð
því hugsað til þeirra sem keypt
höfðu alla þessa skó þegar fréttir
bárust af því að Maxim Gorki væri
að sökkva. En bæði skipi og þar með
skóm var síðan bjargað sem kunnugt
er. Tímamanni hafði komið nokkuð
á óvart, að ódýrasta skótilboðið í
búðinni var skrífað á rússnesku auk
móðurmálsins - 390 kr. parið og 4.
parið ókeypis.
„Ég fékk þetta skrifað á rússnesku
vegna þess að Rússarnir versla svo
mikið hérna,“ svaraði Ólafur. Hann
sagði rússneska viðskiptavini ekki
aðeins úr sendiráðinu, heldur komi
oft fjöldi þeirra af verksmiðjuskip-
um og skemmtiferðaskipum - t.d.
Maxim Gorki og öðru slíku skömmu
áður.
Ólafur sagði Rússa t.d. koma á
allar janúarútsölur, og sjái þeir
eitthvað sem þeir telja góð kaup í
bendi þeir fleirum á það.
Spurður um rússnesku auglýsing-
una sagðist hann hafa orðið var við
að kona í einum hópnum talaði
íslensku og hann hefði því beðið
hana að skrifa hana fyrir sig á
rússnesku. Ólafur sagði það mjög
skemmtilegt að eiga viðskipti við
Rússana, þótt ekki sé, af eðlilegum
ástæðum, um mjög stórar upphæðir
að ræða.
„Þeir eru mjög vandlátir - passa
sig vel á því að velja það besta úr því
ódýra. Ef maður er kominn með
æfingu og veit hverju þeir eru að
leita eftir þá er mjög gott að skipta
við þá. Þeir eru t.d. ekki mjög
hrifnir af skæru litunum eða miklu
skrauti.“
Ólafur tók fram að Rússar séu
langt frá einu útlendingarnir sem
eigi við hann töluverð viðskipti og
noti vel tækifæri til kaupa á ódýrum
skóm. f þeim hópi nefndi hann t.d.
Bandaríkjamenn og Svía og aðra
Norðurlandabúa. Óvenjulega mikið
hafi t.d. verið af stúlkum frá Norður-
löndunum hérna í vetur, sem vinna
á heilbrigðisstofnunum og í vistum
og víðar.
Áðurnefnd 60-70 skópör hefur
áhöfnin af Maxim Gorki getað feng-
ið fyrir allt niður í 19-20 þús. kr., eða
dæmigert verð fyrir 5-7 skópör.
Hvort þeir hafa fært konum sínum
og dætrum alla skóna að gjöf vitum
við auðvitað ekkert um.
En miðað við að steinþvegnar
gallabuxur munu nú seldar á um
80-90 rúblur í „frjálsum samvinnu-
búðum“ í Moskvu (samkvæmt nýj-
um Moskvufréttum um verðlækkun
•á þeim markaði) má ætla að ítalska
leðurskó væri leikur að selja fyrir 50
rúblur parið. Rússneskt verðmæti
60-70 para af skóm gæti því verið
a.m.k. um 3.000 rúblur-sem ert.d.
meira en árslaun afgreiðslukvenna
þar í landi. ‘ - HEI
Andlit dugar
ekki lengur
Strangari öryggiskröfur gilda nú
sífellt við heimsóknir erlendra þjóð-
höfðingja og verða því reglur varð-
andi skráningu frétta- og tækni-
manna, við heimsókn spænsku kon-
ungshjónanna er sækja íslendinga
heim þann fimmta til sjöunda júní
næstkomandi, hertar til muna. Éins
og segir í tilkynningu utanríkisráðu-
neytisins munu „andlitin ekki duga
lengur" og geta fréttamenn nú í
ríkari mæli átt von á því að verða
látnir staðfesta „pressukortið" með
blaðamannapassa eða öðrum pers-
ónuskilríkjum.
Jafnframt er farið fram á það við
hina ýmsu tæknimenn að þeir klæði
sig í sunnudagsfötin þegar um er að
ræða myndatökur í stórveislum. En
hádegisverðir skipta minna máli.
Dagskrá heimsóknarinnar liggur
ekki fyrir að öðru leyti en því að á
fimmtudagsmorgun verður farið til
Vestmannaeyja. jkb
Ríkisskattanefnd úrskuröar í ágreiningsmálum:
Keyra á fullu
við afgreiðslur
Ríkisskattanefnd hraðar nú úr-
skurðum sínum í söluskattsmálum
eftir föngum. Hún kvað í gær upp
úrskurð í ágreiningsmálum þriggja
fyrirtækja og ríkisins um sölu-
skattsálögur. Jafnframt voru felldir
niður dráttarvextir og álagður kostn-
aður í nokkrum tilvikum. í öllum
þremur fyrrgreindu tilvikunum var
úrskurður skattstjóra staðfestur.
Mun eitt fyrirtækjanna vera mynd-
bandsfyrirtæki.
Nefndin hefur ennþá ekki fellt
úrskurð í máli Hagvirkis og hinna
tveggja fyrirtækjanna sem voru opn-
uð aftur á þriðjudaginn samkvæmt
leyfi ráðherra þar sem úrskurður
varðandi þeirra ágreining við ríkið
er á lokastigi. Þeirra úrskurða er að
vænta í síðasta lagi þann fjórtánda
næsta mánaðar. jkb
Opinber heimsókn Harri Holkeri:
Lýkur í dag
Harri Holkeri, forsætisráð-
herra Finnlands, og kona hans
Lísa Holkeri fljúga til Finnlands
í dag og Ijúka jjar með opinberri
heimsókn sinni til íslands. f
gærmorgun héldu þeir starfs-
bræður Steingrímur Hermanns-
son og Harri Holkeri áfram veið-
um í Laxá í Kjós til klukkan
ellefu, en þá héldu þeir til Þing-
valla þar sem snæddur var hádeg-
isverður í sumarbústað forsætis-
ráðuneytisins. Eftir hádegisverð-
inn var haldið í skoðunarferð til
Gullfoss og Geysis og komið til
Reykjavíkur um sex leytið. GS.