Tíminn - 01.07.1989, Page 10
20
HELGIN
Laugardagur 1. júlí 1989
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAM,
Tveir menn á bíl neyddu hana til að aka
út af veginum, brutu upp bíl hennar og
drógu hana burtu. Síðan hefur ekkert til
hennar spurst.
Unnusti Shelley Sikes var orðinn
áhyggjufullur um eittleytið aðfara-
nótt 24. maí 1986. Shelley hafði
hringt til hans af vinnustað sínum,
sem var veitingastaður við sjóinn á
Galveston-eyju í Texas. Síðan var
klukkutími og hún ætti að vera
komin. I>au ætluðu að fara út og
ræða brúðkaup sitt sem átti að vera
eftir mánuð. Það ætti ekki að taka
Shelley meira en hálftíma að aka
þessa leið.
Unnustinn hringdi til foreldra
Shelley í Texas-borg en þeir höfðu
ekki heyrt frá henni síðan hún fór til
vinnu. Þá sagði hún þeim að hún
ætlaði til unnusta síns eftir vinnu og
kæmi að líkindum seint heim.
Er hann hringdi til veitingahússins
sagði ræstingafólk að Shelley væri
farin þaðan og löngu búið að loka.
Af ótta við að bíll Shelley kynni
að hafa bilað, fór unnustinn af stað
á sínum bíl til að svipast um eftir
bláa Pintónum. Hann fór alla leið að
veitingahúsinu án þess að koma
auga á bílinn. Á leið heim aftur sá
hann þó bílinn, þar sem hann stóð á
litlum afleggjara sem hallaði bratt
niður af veginum. Framhjólin voru
á kafi í pytti.
Þegar pilturinn kom að bílnum sá
hann að Shelley var ekki í honum en
rúðan bílstjóramegin var brotin og á
henni var kám sem gat verið blóð.
Hann kallaði og leitaði í grenndinni
en fann Shelley hvergi.
Af ótta við að hún kynni að hafa
slasast í umferðarslysi, hringdi unn-
ustinn úr. næsta almenningssíma til
lögreglunnar í Galveston-sýslu.
Þangað hafði ekki borist nein til-
kynning um umferðarslys en talið
mögulegt að farið hefði verið með
Shelley upp á meginlandið. Lofað
var að athuga málið og senda menn
til að skoða bílinn.
Þegar þeir komu á staðinn sögðu
þeir að ekki hefði verið tilkynnt um
nein slys á þessum vegi. Við rann-
sókn á bílnum fundust leifar af
rauðu lakki í beyglu á frambrettinu
og gat það bent til að annar bíll hefði
rekist í hann og valdið því að hann
ók út af og niður í pyttinn. í
aftursætinu lágu fötin sem Shelley
hafði ætlað að fara f heima hjá
unnusta sínum áður en þau færu út,
svo og veskið hennar sem lá á
gólfinu við framsætið.
Numin á brott
Af rúðubrotinu að dæma var svo
sem rúðan hefði verið brotin utan
frá. Þar sem aðstæður þóttu mjög
svo óvenjulegar var svæðið girt af og
morðdeild lögreglunnar kölluð til.
Það var farið að birta af degi þegar
rannsóknarlögreglumennimir
Tommy Hansen og Wayne Kessler
komu á vettvang. Þeir höfðu spurst
nánar fyrir hjá lögreglunni um um-
ferðarslys en einskis orðið vísari.
Við nákvæma rannsókn á um-
hverfi bílsins mátti sjá votta fyrir
fótsporum eftir allstóran karlmann.
- Mig grunar að einhver hafi
brotið rúðuna og skorið sig við það
en síðan dregið stúlkuna út og haft
hana á brott með sér, sagði Kessler.
- Það lítur helst út fyrir það,
samsinnti Hansen.
Unnusti Shelley sagði að hún
hefði alltaf gætt þess að læsa bílnum
að sér þegar hún var ein á heimleið
seint um kvöld. Þó hún hefði verið
neydd út af veginum hefði hún að
Gerald Zwarts sag&lst hafa verift
f öðrum heimi af bjór og mariju-
ana me&an vinur hans myrti
Shelley.
Shelley ætlaði að gifta sig eftir
mánuð. Hún lag&i af stað heim úr
vinnunnl og hvarf.
lfkindum haft læst. Það gæti skýrt
brotnu rúðuna.
Þar sem ekki var hægt að gera
meira á vettvangi, var bfllinn dreg-
inn burtu til nákvæmari rannsóknar.
Leita skyldi að fingraförum og
greina blóðið á rúðunni.
Lýsing á Shelley Sikes var send til
allra lögreglustöðva á svæðinu. Hún
var 19 ára, lágvaxin og grönn, dökk-
hærð og brúneyg. Hún var klædd
vinnufötum veitingastaðarins. Shel-
ley var nýlega útskrifuð úr skóla og
hafði mikinn áhuga á ballet, sem
hún hafði stundað frá barnsaldri en
henni gekk illa að fá hlutverk, þar
sem hún var svo lágvaxin.
Reynt var að grafast fyrir um
hvort nokkur kunnugur hefði getað
rænt Shelley en útilokað þótti að það
hefði verið afbrýðisamur aðdáandi.
Unnusti hennar var sá eini sem hún
hafði nokkru sinni verið með frá
unglingsaldri. Faðir Shelley átti jám-
smíðaverkstæði í Texas-borg en fjöl-
skyldan var ekki auðug, svo útilokað
var að lausnargjalds yrði krafist.
Vitni sá ákeyrsluna
Fjölmiðlar birtu fréttina um brott-
nám ungu stúlkunnar og skömmu
síðar kom maður á lögreglustöðina
sem taldi ekki útilokað að hann
hefði orðið vitni að atburðinum.
Hann kvaðst hafa verið á leið norður
eftir um miðnættið þegar hann ók
fram á tvo bíla sem fór fremur hægt.
Hann hugðist aka fram úr, en hætti
við það af ótta við slys, þegar hann
sá hvers kyns var.
Tveir menn í hvítum og rauðum
jeppa, Blazer eða Bronco virtust
vera að hrella einhvem sem ók á
undan þeim á bláum Pintó. Jeppinn
ók upp að hlið þess bláa og mennim-
ir veifuðu og kölluðu en hægðu
síðan á sér og óku fast á eftir. Þannig
gekk það nokkmm sinnum.
Þegar komið var að afleggjaranum
þar sem bíll Shelley fannst, kvaðst
maðurinn hafa séð að jeppinn ók
greinilega viljandi utan í bláa bílinn
og þvingaði hann út á afleggjarann.
Hann sagðist hafa stansað til að
athuga hvort slys hefði orðið.
Þá stökk maður út úr jeppanum
og kallaði reiðilega til hans að hypja
sig, þetta væri fjölskyldumál sem
honum kæmi ekkeri við. Maðurinn
sagðist ekki hafa vilja flækjast í neitt
svo hann ók leiðar sinnar.
Er hann var spurður um útlit
mannsins, mundi hann aðeins að
hann var hvítur, hár og sterklega
vaxinn, líklega um þrítugt með frem-
ur sítt hár og mjög sólbrúnn.
Besta vísbendingin virtist bíllinn,
rauður og hvítur jeppi. Áreksturinn
við bláa bílinn hefði að líkindum
valdið einhverjum skemmdum á
jeppanum og með það í huga voru
menn sendir á öll viðgerðarverk-
stæði á svæðinu til að athuga hvort
komið hefði verið með slíka beyglu
til viðgerðar.
Veggspjöld með myndum af Shel-
ley voru hengd upp víða og 50
þúsund dollurum heitið þeim sem
fundið gæti Shelley Sikes. Max Tay-
lor lögreglustjóri skipulagði leit
mörg hundruð sjálfboðaliða og enn-
fremur voru þyrlur sendar til leitar.
Vísbending eftir
13mánuði
Helsta vandamál lögreglunnar var
að vita ekki hvar bæri helst að leita.
Ræningjarair gætu sem best hafa
farið með Shelley aftur út í eyjuna
og alveg eins upp á meginlandið.
Hefði líki hennar hins vegar verið
fleygt fram af einni af óteljandi
bryggjum þama, var nær útilokað að
það fyndist.
Hansen og Kessler eyddu miklum
tíma í að athuga rauða og hvíta
jeppa vel vitandi að mennimir tveir
og jeppinn gætu sem best verið af
allt öðrum slóðum og komnir til síns
heima.
Þegar mánuðurinn var á enda
hafði ekkeri gerst í málinu og allt var
í sömu sporum og upphaflega. Tím-
inn leið og áhugi fólks minnkaði.
Flestir gerðu ráð fyrir að málið færi
í skúffu með öðrum óleystum.
Undantekningar voru þó unnusti
Shelley, foreldrar hennar og vinir og
auðvitað Hansen og Kessler. Þeir
þóttust sannfærðir um að eitthvað
kæmi fram sem leysti málið.
Þeir leituðu í gögnum upplýsinga-
deildar um giæpamál ef vera kynni
að þar fyndist svipaður glæpur, fram-
inn annars staðar. Það hamlaði þeim
að hafa aðeins óljósa lýsingu á
öðrum mannanna og bílnum.
Þar sem þeir höfðu ekkert til að
leita að lengur, sneru þeir sér að
öðrum málum en varla leið sá dagur
að þeir nefndu ekki mál Shelley
Sikes.
Þegar liðnir voru 13 mánuðir án
þess að fórnarlambið fyndist sagði
Kessler við Hansen: - Ef við bara
fyndum hana gætum við fengið nýjar
vísbendingar.
- Hvar gæti hún verið? spurði
Hansen. - Það er búið að margleita
Kúabændur -
sauðfjárbændur
Með reglugerð nr. 233/1989 um búmark og
fullvirðisrétt til framleiðslu mjólkur verðlagsárið
1988-1989 var ákveðið að greiða fyrir skiptum á
fullvirðisrétti til sauðfjár- og mjólkurframleiðslu
með því að verja 100.000 lítrum mjólkur til skipta
fyrir fullvirðisrétt í sauðfé sem síðan yrði aftur til
skipta fyrir fullvirðisrétt í mjólk, sbr. 2. tl. 12. gr.
reglugerðarinnar.
Hér méð er auglýst eftir umsóknum um slíkt skipti,
bæði frá þeim sem vilja láta af hendi fullvirðisrétt í
sauðfé fyrir fullvirðisrétt í mjólk og öfugt, fyrir
verðlagsárið 1989-1990.
Skriflegar umsóknir, studdar umsögn héraðsráðu-
nauts um að skiptin hafi ekki í för með sér nýjar
fjárfestingar, berist skrifstofu Framleiðsluráðs,
Hagatorgi 1, Reykjavík, fyrir 1. ágúst nk.
Framleiðsiuráolandbúnaðarins......
FRAMBÚMH
BÍLRÚÐUlSETNINGAR .
OG INNFLUTNINGUR
SMIÐJUVEGI 30 S 670675
RÚÐUÍSETNINGAR í
ALLAR TEGUNDIR BIFREÐA
EIGUM FLESTAR RÚÐUR
ÁLAGER
PÓSTSENDUM
NEYÐARÞJÓNUSTA Á KVÖLDIN
OG UM HELGAR
KJARTAN ÓLAFSSON ® 667230
GUNNAR SIGURÐSSON S 651617
Göngum ávallt á
Vnótl akandiumferö þar*
aem ekki er gangstétt,
...»|UMFERtm..-«-
Vrad A
Ritstjóri óskast
Héraðsblaðið Borgfirðingur óskar eftir að ráða
ritstjóra.
Umsóknir berist til Ungmennasambands Borgar-
fjarðar eða Verkalýðsfélags Borgarness fyrir 7. júlí
1989.
Nánari upplýsingar um starfið gefa Svava Krist-
jánsdóttir, síma 93-70004, og Jón Agnar Eggerts-
son, sími 93-71185.
Borgfirðingur
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Afsláttur ef samið er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224 kl. 10-12 eða á kvöldin.