Tíminn - 01.07.1989, Side 11

Tíminn - 01.07.1989, Side 11
Laugardagur 1. júlí 1989 HELGIN 21 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAK/ á hverjum fermetra á eynni. - Við finnum lausnina ef við höfum augun opin fyrir henni, sagði Kessler sannfærandi. - Við leysum þetta fyrr eða síðar þó það verði okkar síðasta verk. - Lausnin kom frá mjög svo ólíklegum stað. Það var þegar rann- sóknarlögreglumaðurinn Curtis Flynn í E1 Paso hringdi til Kesslers og spurði hvort hann kannaðist við nafnið John Robert King. Kessler hugsaði sig um en minntist einskis í því sambandi. Samviskukvalir - Því spyrðu? vildi hann vita og Flynn svaraði því til að þeir í E1 Paso hefðu undarlegt mál í höndunum og vissu ekki enn um hvað það snerist en skildist helst að um væri að ræða stúlku sem rænt var og hún síðan myrt í Galveston fyrir ári eða svo. - Er það Shelley Sikes? næstum hrópaði Kessler. - Við vitum ekki nafnið, svaraði Flynn og Kessler benti Hansen að hlusta á símtalið í öðrum síma. Flynn rifjaði upp að hringt hefði verið frá Galveston. Maðurinn í símanum sagði að ættingi sinn talaði um að fyrirfara sér af því hann gæti ekki lengur lifað með það á samvisk- unni að hafa rænt stúlku og kannski myrt hana. Lögreglumenn fóru á hótelið sem hringt var frá og komu þar að manni sem skorið hafði á úlnliðsslagæðar sínar með rakvél og útbúið henging- aról úr skóreimum. Hann var fluttur á sjúkrahús. Læknar sögðu sárin ekki alvarleg og bjuggu um þau en maðurinn var síðan handtekinn fyrir sj álfsmorðstilraunina. - Hafi hann ætlað að stytta sér aldur, tókst honum það einkar klaufalega, sagði Flynn og bætti við að hann og félagi hans hefðu farið aftur á hótelið þar sem þessi John Robert King hafði dvalið. Hótel- stjórinn sagði hann hafa verið þar í viku. f herberginu fundust tvö bréf til ættingja. í þeim harmaði King að valda þeim vandræðum en hann gæti ekki lifað lengur vegna þess að hann og félagi hans sem hefðu verið drukknir og undir áhrifum mariju- ana hefðu rænt stúlku, myrt hana og grafið. - Stóð nafnið Shelley Sikes hvergi í bréfunum? spurði Kessler? - Nei, svaraði Flynn. - Við höfum ekki yfirheyrt hann ennþá því okkur skortir upplýsingar sem þið gætuð haft þama. - Vonandi að svo sé, sagði Kessler. - Láttu náungann ekki fara neitt. Við komum eins fljótt og við getum. Lofaði að vísa á líkið Um leið og Hansen og Kessler komu til E1 Paso var hinn 29 ára gamli John Robert King leiddur fyrir þá. Hann vildi ekki neyta réttar síns en bauðst til að segja allt sem hann vissi. Hann skýrði svo frá að hann og félagi hans, Gerald Peter Zwarts hefðu verið á ströndinni í Galveston yfir helgi sem var sama helgin og Shelley Sikes hvarf á laugardags- kvöldið. Þeir hefðu drukkið bjór allan daginn og reykt marijuana þar til þeir urðu kolruglaðir. Þeir ákváðu að fara um miðnættið og þegar þeir fóru inn í bílinn sáu þeir stúlku fara inn í annan bíl skammt frá. King sagði að Zwarts hefði ekið og stungið upp á að þeir skemmtu sér með dúfunni, eins og hann orðaði það. Þeir óku fast á eftir bláa Pintónum hennar sem stefndi út á eiðið að meginlandinu. Þeir reyndu að stöðva hana með því að aka upp að hlið hennar og kalla að annað afturljósið vantaði en þegar hún •vildi ekki stansa, þvinguðu þeir bíl hennar út af svo hann festist í leðjunni. John Robert Klng reyndi að stytta sér aldur vegna samvlskukvala yfir því sem hann hafði teklð þátt í. Þá sagði King að Zwarts hefði farið út og hlaupið niður að bílnum. Stúlkan neitaði að opna bílinn og þá braut hann rúðuna með krepptum hnefanum og dró síðan stúlkuna út úr bílnum. - Hann slengdi henni yfir öxlina á sér eins og baunasekk og fleygði henni svo inn í bílinn til mín, sagði King. Hann kvaðst ekki muna nema óljóst hvað síðan gerðist en sagðist alveg viss um að hafa ekki nauðgað stúlkunni. Það næsta sem hann vissi var að þeir Zwarts voru á ströndinni þar sem Zwarts tróð líki stúlkunnar í svartan plastpoka, gróf holu, stakk pokanum í hana og mokaði yfir. King sagði að þegar hann færi með lögreglunni til Galveston skyldi hann vísa á staðinn þar sem líkið væri grafið. Kessler hingdi síðan til lögreglustjórans og fór fram á hand- töku Zwarts sem bjó í Galveston. Nú virtist loks útlit fyrir að hvarf Shelley Sikes upplýstist eftir rúmt ár en sú varð þó ekki raunin. Líkið ffinnst hvergi Þegar komið var með King til Galveston, fengu ættingjar hans honum lögfræðing sem aftók að King sýndi lögreglunni hvar líkið væri. Þegar Zwarts var sýndur fram- burður Kings á myndbandi, staðfesti hann megnið af honum en hélt því fram að King hefði ekið og brotið bílrúðuna og að það hefði verið King sem dró Shelley Sikes út úr bílnum. Sjálfur kvaðst Zwarts hafa verið í hálfgerðu dái og muna það eitt að King hafði tekið stúlkuna úr bílnum þeirra aftur og grafið hana einhvers staðar á strönd. Þar sem ekki fékkst vísað á líkið fóru hundruð sjálfboðaliða til leitar á ströndunum og blóðhundar voru fengnir til aðstoðar svo og tæki sem leitar uppi hluti sem gefa frá sér hita en læknar sögðu að líkið myndi svo mikið rotnað að það gæfi ekki frá sér neina orku lengur. Eftir árangurslausa leit í mánuð varð saksóknari að taka ákvörðum um hvort hann ákærði félagana fyrir morð en fram til þessa var sökin aðeins mannrán. Eftir að hafa ráðg- ast við Hansen og Kessler ákvað Guarino saksóknari að ákæra ekki fyrir morð en fara fyrir rétt með mannránsákæruna eina. Fordæmi mun fyrir morðákæru án þess að lfk fyndist en saksóknari taldi ekki hætt- andi á að ákæra þá King og Zwarts fyrir annað en það sem þeir höfðu játað: Ránið á stúlkunni. - Þegar líkið finnst, er haft eftir saksóknara, - ákærum við aftur og förum fram á dauðadóm. Þar sem hvor kennir hinum um, tökum við enga áhættu á að kviðdómur láti lífstíðarfangelsi nægja. Alls kyns lagaflækjur töfðu nú fyrir og það var ekki fyrr en í apríl 1988 að John Robert King kom fyrir rétt í Beaumont. Kviðdómur 10 manna hlustaði á þá játningu Kings að þeir Zwarts hefðu drukkið bjór og reykt marijuana með „englaryki" saman við, þvingað Shelley út af eiðisveginum og haft hana á burt með sér. Kenndu hvor öðrum um King kom í vitnastúku sjálfum sér til vamar og neitaði að hafa nauðgað stúlkunni eða myrt og að vita hvar hún væri grafin. - Þið verðið að skilja að ég var kolruglaður, sagði hann og lagði áherslu á að Zwarts hefði dregið stúlkuna út úr bílnum og grafið hana einhvers staðar. Það tók kviðdómendur eðeins tíu mínútur að sakfella King og dæma hann í lífstíðarfangelsi og 10 þúsund dollara sekt. Þann 13. júní kom Zwarts fyrir réttinn og fór þar allt á sömu leið, nema hvað í þetta sinn var það King sem rændi stúlkunni. Zwarts þóttist ráma í að King hefði barið hana með skóflu og grafið síðan líkið. Kviðdómur var rúmar þrjár klst. að komast að sömu niðurstöðu og hinn, lífstíðarfangelsi og 10 þúsund dollara sekt. Þó svo langt væri komið, sagði Guarino saksóknari fréttamönnum að málinu væri ekki lokið. Þó King og Zwarts eigi ekki möguleika á náðun fyrr en eftir 15 ár, kvaðst hann sannfærður um að þeir slyppu aldrei úr fangelsi. Hann sagði að hann, ásamt Hansen og Kessler héldu málinu opnu þar til morðingj- arnir sættu fullri refsingu, sem væri dauðadómur. Okkur er gleðiefni að bjóða ykkur velkomin til Fáskrúðsfjarðar í verslun okkar fáið þið flestar þœr vörur sem ykkur kann að vanhaga um á ferðalaginu Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga Fáskrúðsfírði T£T -w*- v>: Ki'*> .V-V>u “i ) -».í 1 /?V 4 FERÐAMENN

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.