Tíminn - 20.07.1989, Qupperneq 3
Tírrrinn -3
Fimmtúcíacjur 2Ó.'jfdtí'1983
Fundur með lánardrottnum loðdýraræktarinnar og
fulltrúum ríkisstjórnarinnar í dag:
Beðið eftir við-
brögðum bankanna
í dag munu allir helstu Iánardrottnar loðdýraræktarinnar
koma sarnan til fundar og fara ásamt fulltrúum ríkisstjórnar-
innar yfir stöðu greinarinnar. Þar verða nýjustu aðgerðir
ríkisstj órnarinnar kynntar fyrir forsvarsmönnum banka og
lánastofnana, en til þess að aðgerðimar dugi til haustsins
verður að ná samkomulagi við bankana um skuldbreytingu
skammtímalána loðdýrabænda og ógreiddra afurðalána, í lán
til lengri tíma.
veitinga ríkisábyrgða fyrir loðdýra-
bændur. Fyrir þeim verði að vera
meirihluti á þingi.
Vegna þess að eiginfjárstaða loð-
dýraræktarinnar er neikvæð, eru
ekki til veð fyrir nýjum lánum til
skuldbreytinga og þess vegna verður
ríkið að ábyrgjast lánin, eigi einhver
að gera það. Geti bændur ekki losað
sig við skammtímaskuldir, nægja
ráðstafanirnar sem samþykktar voru
Nú er unnið í landbúnaðarráðu-
neytinu að undirbúningi heildartil-
lagna um björgunaraðgerðir til
handa loðdýraræktinni. f þeim til-
lögum er gert ráð fyrir ábyrgðum
ríkisins vegna skuldbreytinga á lán-
um bænda hjá bönkum og viðskipta-
stofnunum. Haft er eftir Jóni Bald-
vin Hannibalssyni í Alþýðublaðinu í
gær að hvorki fjármálaráðherra né
ríkisstjórnin í heild hafi vald til
í byrjun þessarar viku þeim ekki,
vegna skuldasöfnunar þeirra við fóð-
urstöðvamar. Óinnheimtar fóður-
skuldir em þó mismunandi, bæði
eftir landshlutum og eins á milli
bænda.
Geir Magnússon bankastjóri segir
að burtséð frá stöðu greinarinnar í
heild geri bankamir ekkert skynsam-
legra en að halda áfram að fjár-
magna dýrin þar til að hægt verður
að gera pening úr þeim við slátmn
seinna á árinu. Geir er einn þeirra
aðila sem sitja munu fundinn á
morgun, en hann er fulltrúi Sam-
vinnubankans. Samvinnubankinn
hefur ekki lánað miklar fjárhæðir til
loðdýraræktarinnar, en þar er Bún-
aðarbankinn með mestu umsvifin.
-ÁG
Fræsarinn stóri að störfum á Reykjanesbrautinni.
Tímamynd: Pjetur
Risafræsari
Stærsti malbiksfræsari sem
Reykjavíkurborg hefur leigt er nú
kominn til landsins og byrjað er að
nota hann við að fræsa upp malbik
á Miklubraut. Fræsarinn, sem er
alveg nýr og kostar um 30 milljónir,
er leigður frá Svíþjóð fyrir fimm
milljónir til notkunar í hálfan
mánuð.
Að sögn Inga Ú. Magnússonar,
gatnamálastjóra, borgar sig ekki
að kaupa tækið, þar sem það yrði
nýtt í svo stuttan tfma yfir árið.
Meiningin er að fræsa upp 65
þúsund fermetra af malbiki með
þessu tæki. Byrjað var að vinna við
Miklubraut á þriðjudag, en stærstu
umferðaræðamar verða flestar
fræstar ásamt tengibrautum. f flest-
ar göturnar, m.a. Miklubraut,
verður lagt nýtt slitlag en í öðmm
gerist þess ekki þörf.
Þrír menn vinna samtímis á
tækinu frá klukkan sex að morgni
til níu á kvöldin, en fá frí á
fimmtudögum og föstudögum.
GS.
Rútuslysið. Guðmundur Sigvaldason, fararstjóri:
Okkur líður vel,
þakka þér fyrir
Annar maðurinn af þeim tveim
sem fóm á sjúkrahús eftir rútuslysið
á Möðrudalsöræfum á mánudags-
morgun hefur nú náð sér af meiðsl-
unum og hinn er á góðum batavegi.
Rútan var sem kunnugt er að
flytja norræna jarðfræðinga, 25
talsins, í skoðunarferð um landið. í
gær héldu tuttugu þeirra áfram för-
inni, þar á meðal sá sem lá á spítala.
Fjórir treystu sér ekki til að halda
áfram og héldu til síns heima.
Að sögn Guðmundar Sigvalda-
sonar, fararstjóra, stendur til að
ferðast um Suðurland í þrjá daga og
ljúka síðan ferðinni í Reykjavík.
„Okkur líður öllum vel, þakka þér
fyrir,“ sagði Guðmundur og virðast
jarðfræðingarnir ekki láta óhapp
sem þetta aftra sér frá fræðistörfum.
Það er að frétta af rútunni að
Bifreiðaskoðun íslands hf: hefur far-
ið fram á að fá að skoða hana og leita
orsaka slyssins. GS.
Jlllllli...y.^l.Ðl..lÍQRN.j.illJlllllllllllllllllllllll Guðmundur Steingrímsson
Beðið eftir laxi í Hofsá
„Það hlýtur að fara að koma lax
upp í ána ef það ætlar einhver lax
að koma upp í þessa á,“ sagði
Sverrir veiðivörður í Hofsá í sam-
tali við Veiðihomið. Veiðimenn í
Hofsá hafa fulla ástæðu til að
andvarpa. Það er ekkert að ánni,
veðrið er gott, kannski of gott, en
það vantar laxinn. Aðeins hafa
veiðst í ánni 150 fiskar. Þó komu
níu á land í gærmorgun, sem er það
mesta sem fengist hefur á einum
morgni í sumar. Smálaxar, 3,5-5
pund, em í áberandi meirihluta.
Sverrir hefur orðið var við mik-
inn lax í ánni og hann er að ganga.
En það þarf fleiri fiska og veiði-
menn binda miklar vonir við næsta
straum, sem er á morgun, og vona
að laxinn láti sig ekki vanta.
efst í ánni. Laugardalsá gaf af sér
501 lax í fyrrasumar.
Að sögn Sigurjóns Samúelsson-
ar, bónda á Hrafnabjörgum í Laug-
ardal, hefur Laugardalsá, eins og
allar ár á Vestfjörðum, verið mjög
vatnsmikil í sumar og verður ef-
laust áfram því mikill snjór er enn
á hálendinu. Að öðm leyti er áin í
fínu lagi, hitastigið er gott og
ágætur litur.
Sigurjón sagðist hafa orðið var
við göngur undanfarna daga og er
þar um að ræða smálax, 4-5 punda.
Á þriðjudag veiddust fimm laxar
og vom þeir lúsugir, eins og flestir
laxar sem komið hafa á land undan-
farið.
Laxá í Aðaldal
öll að koma til
104 úr Laugardalsá
Ekki hefur gengið allt of vel í
Laugardalsá á Vestfjörðum það
sem af er sumri. Á þriðjudag höfðu
104 laxar veiðst í ánni, en veiðin
hófst 12. júní. Veitt er á þrjár
stangir á besta svæði árinnar, þ.e.
því neðra, en ein stöng er leyfileg
Veiði í Laxá í Aðaldal virðist
vera að glæðast eftir slæmt gengi
síðustu vikur. Bændur renndu í
ána á þriðjudag og fengu þá tuttugu
laxa en allt í allt em komnir um 350
laxar á land. Veðrið er glimrandi
gott og þó svo að það veiðist oft
verr í björtu veðri sætta veiðimenn
sig fyllilega við blíðuna.
Kerlingarfjöll. Lengra austur af má greina Kjalfell og
Mynd: Landmælingar íslands
Kjölur. Lengst til hægri sést HofsjökuII og þar fyrir sunnan
lengst til vinstri sést í Langjökul.
Snjóalög á hálendinu
Meðfylgjandi myndir eru
teknar 13. júlí síðastliðinn og
eins og sjá má þá er ótrúlega
mikill snjór á hálendinu þó
komið sé mitt sumar. Á
myndunum sem teknar eru í
18000 feta hæð má sjá fjall-
vegina Kjöl og Sprengisand.
Magnús Guðmundsson landf-
ræðingur hefur undanfarin sjö ár
skipulagt og tekið loftmyndir á veg-
um Landmælinga íslands. Magnús
sagði í samtali við Tímann að snjóa-
lög væm óvenjumikil á hálendinu
miðað við árstíma og það tefði fyrir
Ioftmyndatökunni þar sem ekki er
unnt að taka myndir fyrr en snjó
hefur leyst. Magnús sagði ennfremur
að það væri nokkuð sérstakt hvað
snjórinn er staðbundinn, til dæmis
væri Kjalvegur nokkuð auður en
aðeins austar, nær Kerlingarfjöllum,
væri mjög mikill snjór.
Skipulagðar loftmyndatökur
Landmælinga íslands fara fram á
hverju sumri og hófust þær um
síðustu helgi og munu standa fram
til 5. september. Magnús sagði að
láglendið væri myndað á fimm ára
fresti og hálendið á tíu ára fresti og
væm myndirnar meðal annars not-
aðar við endurskoðun á þeim kort-
um sem til eru af landinu.
Myndir eins og þær sem hér sjást
em teknar í sömu hæð og landið er
myndað reglubundið, en eru öðm-
vísi að því leyti til að þær eru teknar
á ská en ekki beint niður eins og
gerist með ljósmyndir sem notaðar
eru til kortagerðar.
Til gamans má geta þess að til að
þekja landið allt með ljósmyndum
sem teknar eru í þessari sömu hæð,
eða tæpum 5,5 kílómetrum, þarf
12-15000 myndir. SSH
ÞJÓNUSTA VID BÆNDUR
Eins og undanfarin sumur er varahlutaverslun okkar opin laugardaga frá kl. 10:00 til 14:00
BEIN LÍNA —
VIÐ VERSLUN
K0MIÐ EÐA HRINGIÐ!
3 98 11
«BÚNADARDEILD
" SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SlMI 38900