Tíminn - 20.07.1989, Blaðsíða 18
“18 Tíminn ^ftnfmfodáþiih 20: “júfí' 1989
llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR ^
Norðurlandsmót
Sigurður þriðji
Sigurður Einarsson varð þriðji á
„Grand Prix“ móti sem fram fór á
Ítalíu í gærkveldi. Kastaði Sigurður
rúma 78 metra sem verður að teljast
mjög góður árangur á svo sterku
móti.
Steinn Jóhannsson bætti persónu-
legan árangur í 800 metra hlaupi er
hann hljóp vegalengdina á 1:52,5
mínútum á frjálsíþróttamóti sem
fram fór í Hamborg á þriðjudaginn.
Á þessu sama móti hljóp Gunnlaug-
ur Skúlason 3000 metra hlaup á
8:44,4 mínútum sem er einnig pers-
ónulegt met. KHG.
Sigurvegarar í tölti fullorðinna. F.v.: Eiður Matthíasson á Hrímni, Elvar Einarsson á Þresti, Bjami P. Vilhjálmsson
á Krumma, Jens Óli Jespersen á Pólstjömu og Þórarinn Arnarsson á Blossa.
segir formaður félagsins Corrado Ferlaino
Frá Erni Þórarinssyni íþróttafréttaritara Tímans
í Fljótum.
Norðurlandsmót í hestaíþróttum
fór fram í Hólum í Hjaltadal um
síðustu helgi. Fimm hestamannafé-
lög úr fjórum sýslum sendu kepp-
endur til mótsins sem var nú haldið
í fjórða sinn. Auk þess að vera
einstaklingskeppni var mótið stiga-
keppni milli félaganna.
I stigakeppninni sigraði hesta-
mannafélagið Léttir frá Akureyri
með 1160 stig, hestaíþróttadeild
Skagafjarðar hlaut 1120 stig, hesta-
mannafélagið Hringur frá Dalvík
hlaut 1077 stig, Héraðssamband
Suður-Þingeyinga 807 stig og hesta-
íþróttadeild Austur-Húnvetninga
518 stig.
Mótið hófst á laugardag og þá
fóru fram undanrásir. Á sunnudag
var síðan keppt til úrslita. Keppend-
ur fengu prýðis veður báða dagana.
Mótsstjóri var Magnús Lárusson og
yfirdómari var Ólafur Guðmunds-
son. Hestaíþróttadeild Skagafjarðar
sá um framkvæmd mótsins.
Hindrunarstökk
1 Ingólfur Helgason Skagafirði á
Gjafari.
2. Einar Hólm Stefánsson Hring á
Niku.
3. Birgir Árnason Léttfeta á Viský-
Brún.
Hlýðnikeppni
1. Magnús Lárusson Skagafirði á
Þokka.
2. Jarþrúður Þórarinsdóttir Léttfeta
á Grána.
3. Rafn Sigurbjörnsson Hring á
Tvisti.
Tölt fullorðinna
1. Eiður Matthíasson Léttfeta á
Hrímni.
2. Elvar Einarsson Skagafirði á
Þresti.
3. Bjarni Vilhjálmsson HSÞ á
Krumma.
Tölt unglinga
1. Sigrún Brynjarsdóttir Léttfeta á
Snerru.
2. Arnar Grant Létti á Stjörnufák.
3. Hilmar Símonarson Skagafirði á
Mollí
Fjórgangur fullorðinna
1. Bjarni Vilhjálmsson HSÞ á
Krumma.
2. Jens Óli Jespersen HSÞ á Pól-
stjörnu.
3. Jóhann Magnússon Skagafirði á
Dropa.
það samsvarar um 1.450 milljónum
íslenskra króna. Maradona lét hafa
eftir sér í síðustu viku að 40% líkur
væru á því að Napoli léti hann fara.
Ferlaino sagði ennfremur að hann
gæfi þessar yfirlýsingar nú til þess að
aðdáendur liðsins vissu nákvæmlega
stöðuna í máli Maradona. Hann
bætti svo við: „í hverju ættum við að
fjárafesta fyrir alla þessa peninga
sem við fengjum fyrir Maradona".
Maradona sjálfur hefur gefið út
mismunandi yfirlýsingar um málið.
3. júní sagði hann að hann væri ekki
að fara til Marseille eða til nokkurs
annars liðs, ekki aðeins vegna þess
að samningur hans við Napoli væri
til ársins 1993, heldur vegna þess að
hann væri ánægður í Napoli og hann
langaði til að vera þar áfram.
En 11. júlí var komið annað hljóð
í strokkinn. Þá sagði Maradona við
brasilískt fréttablað að hann langaði
til þess að fara til Marseille vegna
fjölskyldunnar.
Sala ársmiða hjá Napoli liðinu
fyrir næsta keppnistímabil hefur
aldrei verið eins lítil síðan Maradona
gekk til liðs við félagið árið 1984.
Kenna menn því eingöngu um að
óljóst hefur verið með framtíð Mara-
dona hjá Napoli. KHG.
Fjórgangur unglinga
1. Sigrún Brynjarsdóttir Léttfeta á
Snerru.
2. Hilmar Símonarson Skagafirði á
Mollí.
3. María Jespersen HSÞ á Hálegg.
Fimmgangur fullorðinna
1. Jóhann Skúlason Skagafírði á
Prins.
2. Stefán Friðgeirsson Hring á
Fjöður.
3. Ragnar Ingólfsson Létti á Orra.
Gæðingaskeið
1. Einar Hólm Stefánsson Hring á
Stefaníu.
2. Magnús Lárusson Skagafirði á
Maríu.
3. Stefán Friðgeirsson Hring á
Stefni.
Sigrún Brynjólfsdóttir með farandgripinn sem Léttisfélagar fengu fyrir sigur
á mótinu.
Formaður Napoli, knattspyrnufé-
lagsins italska, Corrado Ferlaino
sagði á miðvikudaginn var að hann
myndi aldrei leyfa það að Maradona
yrði seldur til Marseille, hversu mik-
ið sem franska knattspyrnufélagið
myndi bjóða.
Farlaino sagði í viðtali við ítalskt
sportblað að Marseille hefði ekki
hafið neinar formlegar viðræður við
þá í Napoli, enda væri það sama
hvernig Marseille liðið myndi nálg-
ast þá, Maradona yrði aldrei látinn
fara.
Heyrst hefur að Marseille liðið
hafi boðið 25 milljón dollara fyrir
argentíska landsliðsfyrirliðann en
Knattspymumaðurinn snjalli, Diego Maradona.
Maradona fær ekki
að fara frá Napoli
Hestaíþróttir:
í hestaíþróttum