Tíminn - 20.07.1989, Page 17

Tíminn - 20.07.1989, Page 17
Tíminn 17 Fimmtudagur 20. júlí 1989 GLETTUR - Mér fannst þú ganga óvenjulega hratt í dag. - Mér er sama þó þú hafir tekið að þér að vera sálnahirðir hjá fótboltaliði... þú tekur strax af þér þetta höfuðfat! - Aðeins góður arkitekt gæti verið svona rómantískur... - Hvernig tilfinning ætli að það sé, að vera í baði og svo hringir síminn? ■ ------------------------------------------------ Joan Collins um ítalska leikarann Antonio Zequila: „Nei, hann er alls ekki kærasti minn!“ Roseanne sækir um skilnað Roseanne Barr hefur sótt um skiinað frá manni sínum William Pentland. Roseanne Barr sem íslend- ingum er af góðu kunn úr sjónvarpsþáttum, hefur nú sótt um skilnað við mann sinn eftir fimmtán ára hjónaband. Roseanne vísar til þess að óbrúanlegur ágreiningur ríki í hjónabandinu og krefst hún þess að fá fullan umráðarétt yfir börnum sínum þremur. William Pentland eigin- maður Rseanne segir að Roseanne sé allsendis óhæf móðir og hefur krafist þess að fá yfirráðarétt yfir börnum sínum. William segir að Roseanne hafi átt í erfiðleikum tilfinn- ingaléga og oft á tíðum átt erfitt með að halda skapinu í jafnvægi. Þar að auki segir William að Roseanne hafi haldið fram hjá sér. Roseanne segir hins vegar að Willam hafi skaðað böm sín með harðneskju og and- legri kúgun. Roseanne sótti ekki um meðlög enda budda hennar farin að minna á vöxt hennar sjálfar eftir velgengni sjón- varpsþáttanna. Börn Roseanne búa hjá móður sinni, en nokkuð er um liðið frá því eiginmaður- inn fór út af heimilinu. Fyrir nokkrum mánuðum mátti Iesa í slúðurdálkum blaða í Evrópu, að Joan Coll- ins hefði eignast nýjan kær- asta. Til sannindamerkis birt- ust margar myndir af Joan með ungum (24 ára) ítölskum leikara, Antonio Zequila, og var sagt að þau væm ástfangin og myndu líklega ætla að giftast. Joan Collins, sem er orðin 55 ára, er alltaf eftirsótt, og herrunum þykir mikið varið í að hafa þessa fallegu konu upp á arminn á skemmti- stöðunum. Joan kynntist Antonio í samkvæmi í London, þar sem hún var með George Hamilt- on og „Bungalow-Bill“ Wiggins, en ítalinn ungi bol- aði þeim í burtu og gerði sér mjög títt um Joan. Síðan var eins og hann fylgdist með því hvar leikkon- an héldi sig og alltaf var Antonio á næstu grösum, og ljósmyndararnir vom dugleg- ir að mynda parið. í blaðaviðtali lét svo An- tonio Zequila gamminn geisa og sagðist vera elskhugi leik- konunnar, og hann ætlaði til Ameríku og koma sér áfram í kvikmyndum. Þau myndu gifta sig þegar hún hefði gert að fullu upp sín mál eftir hinn erfiða skilnað við fyrrverandi eiginmann sinn, Peter Holm. Þessi trúlofunarfrétt varð þó endaslepp, því að næst heyrðist það af sambandi þeirra turtildúfanna, að í samkvæmi henti Joan Collin kampavínsglasi í hinn unga ítalska „sjarmör" og sagði honum að fara norður og niður. „Hann er algjör plága,“ sagði leikkonan „hann skilur ekki að ég vil ekkert með hann hafa. Hann er ekki kærastinn minn, og hefur aldrei verið, hann hreinlega skrökvar því að við hafí verið elskendur.“ í London bauð Antonio Zequila Joan út að borða Joan Collins með vinum sínum, þeim Bill Wiggins (t.v.) og George Hamilton ... og í Frakklandi var þessi mynd tekin af þeim „... en við vorum ekki saman,“ sagðl Joan, sem afneitaðl vininum opinberlega skömmu seinna

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.