Tíminn - 20.07.1989, Blaðsíða 19

Tíminn - 20.07.1989, Blaðsíða 19
‘Firrtmtudagur.20. júlí 1989 Tíminn 19 llllllllllllllllllllllllllll IÞROTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ Tímamynd: Pjetur Bjöm Rafnsson í einu af færam sínum í leiknum en Valsmennirnir Þorgrímur Þráinsson og Bjarai Sigurðsson tii varnar. Bikarkeppni Dregið var í fjögurra liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gærkveldi. Vest- mannaeyingar fá KR-inga í heim- sókn en í Keflavík eigast við Iið Keflavíkur og Fram. Vestmannaey- ingar eru eina liðið sem er ekki í 1. deild. lestunaráíetluni Skip Sambandsins munu ferma til fslands á næstunni sem hér segir: Árhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla miðvikudaga Varberg: Alla fimmtudaga Moss: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell.......31/7 Gloucester/Boston: Alla þriðjudaga New York: Alla föstudaga Portsmouth/Norfolk: Alla sunnudaga Lestunarhafnir innanlands: Reykjavík: Alla miðvikudaga Vestmannaeyjar: Alla föstudaga Húsavík: Alla sunnudaga Akureyri: Alla mánudaga ísafjörður: Alla þriðjudaga lig* SKIPADEILD ^kSAMBANDSINS Sambandshúsinu, Kirkjusandi 105, Reykjavlk, sími 698300 .lillllAA. !AKM ItfAlJSIKA ILUININC.A KR-ingar komnir áfram í bikarnum KR-ingar gerðu sér lítið fyrír í gær og slógu út efsta liðið í fyrstu deild í Mjólkurbikarkeppninni. KR-ingar léku án sinnar helstu stjörnu, Péturs Péturssonar, en hann meiddist ein- mitt í leik Vals og KR í Hörpudeild á föstudaginn var. Lið Vals var þó ekki heldur alveg fullskipað því að Ath' Eðvaldsson er meiddur í baki og gat ekki spilað þennan þýðingar- mikla leik. Það voru Valsmenn sem hófu leikinn í gærkveldi og mátti búast við að leikurinn yrði erfiður fyrír KR-inga þar sem Valsmenn léku á heimavelli og höfðu bikar til að verja. Valsmenn eru eins og flestir vita núverandi bikarmeistarar. Fyrri hálfleikur var frekar tíðinda- lítill, mikið um baráttu á miðjunni og misheppnaðar sendingar. KR- ingarnir voru þó öllu ákveðnari en bæði liðin vantaði smá neista í sóknina til þess að skora mörk. Á 30. mínútu komst KR-ingurinn Bjöm Rafnsson þó í gott færi er hann óð upp að Valsmarkinu. Þor- grímur Þráinsson elti hann uppi og tókst að koma í veg fyrir að Bimi tækist að skora, þó þannig að KR- ingum þótti ástæða til að dæma víti á Þorgrím en dómarinn lét leikinn halda áfram. Stuttu seinna var Bjöm aftur á ferðinni er hann komst inn í sendingu frá varnarmönnum Vals- manna. Björn náði þó ekki að skora úr góðu færi heldur skaut í hliðarnet- ið á markinu. Má segja að þessi tvö færi hafi verið þau einu í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur var mun líflegri en sá fyrri. Það var auðvitað KR-ing- urinn Bjöm Rafnsson sem fékk fyrsta hættulega færið í leiknum en Bjami Sigurðsson markvörður Valsmanna náði að verja fast skot hans meistaralega. Á 72. mínútu skoruðu KR-ingar svo sigurmarkið í leiknum. KR-ingar fengu beina aukaspyrnu um 20 metra frá marki Valsmanna. Heimir Guðjónsson KR-ingurinn efnilegi var eitthvað að vappa í kringum knöttinn en skyndi- lega hljóp hann að knettinum og þrumaði honum í mark Valsmanna. Glæsilegt mark hjá þessum unga pilti. En Heimir leikur einmitt í staðinn fyrir Pétur Pétursson og má það með sanni segja að strákurinn hafi staðið fyrir sínu í þessum leik. Eftir markið fóm Valsmenn að sækja í sig veðrið og vom sóknarlot- ur þeirra oft þungar upp við Vals- markið. Tveimur mínútum fyrir leikslok munaði ekki miklu að Vals- menn jöfnuðu leikinn þegar þrjú þrumuskot dundu á KR markinu. En allt kom fyrir ekki og KR sigraði eins og áður sagði með einu marki gegn engu. KR-ingar eiga hrós skilið fyrir góða frammistöðu í leiknum, þó sérstaklega vömin en Valsmenn fengu varla nein færi í leiknum. Þá var Bjöm Rafnsson góður og átti hann eiginlega öll bestu færin í leiknum. Heimir Guðjónsson skilaði einnig sínu hlutverki með prýði. Hjá Valsmönnum var Þorgrímur Þráins- son bestur. KHG. NÝ ÖLKRÁ í Skipholti 37 — sími 685670 Veríð velkomin. ~ Ölbatinn ~ Opið frá kl. 18.00. Bikarkeppni KSÍ: Pízza dagsins og lasagne hrásalat VERIÐ VELKOMIN K----->"skiphoIti 37 "------> Simi 685670 Opiðalladagafrá’kl. 18.00-23.30.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.