Tíminn - 10.08.1989, Síða 2
• s *
2 Tíminn
Fimmtudagur 10. ágúst 1989
Leigubílar hafa nú undanþágu til að nota strætóakrein á
miðju Bankastrætis en vilja einnig aka um Aðalstrætið að
hætti strætó. Haraldur Blöndal formaður umferðarnefndar:
FETAIFOT-
SPOR SVR
Fyrir nokkru samþykkti bor-
garráð að tillögu umferðar-
nefndar borgarinnar að leigubfl-
um skyldi leyft að nota miðakr-
einina í Bankastræti sem sér-
staklega er ætluð strætisvögnun-
um. Þannig þurfa leigubflar ekki
lengur fremur en strætisvagn-
arnir að fylgja annarri umferð
niður Bankastrætið heldur geta
ekið meðfram bflaröðinni sem
oft myndast á vinstri akreininni
í götunni og tekið vinstri beygju
inn í Lækjargötuna eins og
strætisvagnamir.
Haraldur Blöndal hæstaréttarlög-
maður er formaður umferðarnefnd-
ar borgarinnar og sagði hann í gær
að þetta fyrirkomulag væri leyft til
reynslu ótímabundið. Þannig
áskildu borgaryfirvöld sér í raun rétt
til að afturkalla þetta leyfi fyrirvara-
lítið ef ástæða þætti til.
„Almennt talað er ég afskaplega
íhaldssamur með að veita undanþág-
ur frá umferðarmerkjum. Ég tel því
að almennt séð sé ekki víst að það
sé af hinu góða að leigubílarnir hafi
fengið þessa undanþágu,“ sagði Har-
aldur.
Hann sagði að leigubílstjórar
hefðu sótt um fleiri undanþágur til
að fá að aka að hætti strætisvagna.
Fastast væri sótt eftir því að þeir
fengju að aka inn í Aðalstrætið frá
Kirkjustræti og Túngötu móti annar-
ri umferð á sama hátt og strætisvagn-
arnir gera nú.
Leigubílstjórar sæktust eftir þess-
ari undanþágu vegna veitingahúsar-
eksturs og annarrar starfsemi í Aðal-
strætinu. Hættan af slíkum undan-
þágum væri þó sú að þegar aðrir
ökumenn sæju leigubíla aka móti
umferðarmerkjum þá eltu þeir leig-
ubílana og þannig gæti fljótt stefnt f
óefni.
Því hefði umferðamefndin skrifað
embætti lögreglustjórans í Reykj-
avík og spurt hvort lögreglan treysti
sér til að fylgjast með, ef aðrir
ökumenn fæm að aka eins og leig-
ubílar og strætisvagnar um Aðal-
strætið, yrði slík undanþága veitt.
„Það er oft verið að skamma
mann fyrir að gera ekki nóg til að
draga úr slysum en ljóst er að allar
undanþágur frá meginreglum um-
ferðarlaga auka slysahættu," sagði
Haraldur. Þá sagði hann að reynsla
af undanþágum í umferðinni væri
ekki góð. Sem dæmi nefndi hann að
við Fálkabakka í Breiðholti hefði
verið sérleið fyrir strætisvagna sem
ætlast hefði verið til að aðrir ekki
ækju. Hins vegar hefði verið þar slík
umferð annarra farartækja að ekki
hefði þótt annað fært en að gera
götuna að almennri umferðargötu.
Undanþágubeiðni leigubílstjóra
um akstur inn Aðalstræti að hætti
strætisvagnanna verður að líkindum
tekin fyrir í umferðamefnd undir
lok þessa mánaðar. -sá
Hreindýrin geta verið róleg um stundarsakir, en viðbúið er að fljótlega Ieggi veiðimenn leið sína á fjöll.
Hreindýravertíðin
fer rólega af stað
Svo sem kunnugt er, hófst hreindýraveiði-tímabilið 1. ágúst
síðastliðinn og stendur fram til 15. september næstkomandi.
Ekki fást neinar krassandi veiðisögur hjá hreindýraskyttum
eystra, enn sem komið er, enda hafa búendur um annað að
hugsa, enn um sinn.
Að sögn veiðimanna í Nesjum
reikna þeir ekki með stórum hluta
kvótans í sinn hlut, aðeins um 10
dýrum, enda langt að sækja til veiða
og erfitt að flytja skrokkana til
byggða öðmvísi en úrbeina þau
fyrst. Skyttur í Nesjum og Bæjar-
hreppi hefðu stundum fengið auka-
leyfi til veiða, eftir að hinum tilskilda
veiðitfma væri lokið, er dýrin væm
komin nær byggð. Eftir mestu sé
hins vegar að slægjast út ágústmán-
uð, áður en fengitíminn hæfist. Þá
væri helst von til að ná törfunum.
Hornfirðingar kváðu hinar nýju
reglur menntamálaráðuneytis ekki
breyta neinu í veiðum þar eystra.
Nær útilokað væri, hvort eð er, að
koma vélknúnum ökutækjum að við
veiðar og stæði enginn í slíku þar.
Aftur töldu menn að ákvæðið, er
bannar skyttum að særa dýrin án
þess að drepa þau, ætti fullan rétt á
sér, og sögðu dæmi þess að menn
rækjust á særð dýr. Sagðist einn
viðmælandi okkar hafa orðið vitni
að því að gestur á dýmm veitinga-
stað í Reykjavík hefði tínt högl úr
hreindýrasteikinni sinni. Eftir-
grennslan, um hvaðan kjötið væri
mnnið, bar engan árangur.
Hreindýraskyttur austur á Héraði
em heldur ekki teknar að hugsa sér
til hreyfings og var ekki á mönnum
að heyra að mikils fengs væri von.
Héraðsmenn hreppi lítinn hluta
kvótans - um 35 dýr - og dýrin hefðu
komið fremur rýr undan vetri. Egill
Gunnarsson á Egilsstöðum, sem er
með fróðari mönnum um hreindýr
eystra, sagði þá skoðun sína, að
fjöldi dýra er leyft væri að veiða í ár
- 353 - væri alltof mikill. Sjálfur
hefði hann gert það að tillögu sinni
fyrir fjómm ámm, að veiðar yrðu
bannaðar með öllu árlangt. Nýmæli
ráðuneytis töldu Héraðsmenn ekki
breyta miklu, helst væri ástæða til að
stemma stigu við fjórhjólaflandri
inn á heiðar og hvað særð dýr
áhrærði, væri undantekning að rek-
ast á þau. Hins vegar væri ekki hægt
að svara fyrir rjúpnaskyttur, er sum-
ar fímðu á allt kvikt.
í ráði er að leggja fram nýtt
fmmvarp á Alþingi í haust, um
friðun hreindýra.
JBG. .
Dagur og Dagsprent fengu þriggja mánaða greiðslustöðvun í gær.
Hörður Blöndal framkvæmdastjóri:
Dagsprent og POB
verða nú sameinuð
Skiptaráðandi á Akureyri veitti í gær Útgáfufélagi Dags
og Dagsprenti á Akureyri heimild til greiðslustöðvunar í
þrjá mánuði frá og með gærdeginum en félögin höfðu farið
fram á hana í bréfí sem dagsett var þann fjórða þessa
mánaðar.
„Úrskurðurinn gerir það að
verkum að nú geta menn einbeitt
sér að sameiningu Dagsprents og
Prentverks Odds Björnssonar og
fjárhagslegri endurskipulagningu.
Þá fæst nú svigrúm til að setja
saman fjárhag beggja fyrirtækj-
anna enda í raun lítið annað eftir (
en að reka endahnútinn á samein-
ingu fyrirtækjanna," sagði Hörður
Blöndal framkvæmdastjóri Dags-
prents við Tímann í gær.
Ástæða beiðni um greiðslustöðv-
un er fyrst og fremst erfið lausa-
fjárstaða Dags og Dagsprents
vegna mikilla og þungra fjárhags-
skuldbindinga sem stafa af miklum
framkvæmdum sem ráðist var í á
uppgangsárunum 1986-1987. Áætl-
anir sem þessar framkvæmdir
byggðust á hafa ekki staðist vegna
almenns samdráttar í íslensku
efnahagslífi og mikils fjármagns-
kostnaðar.
í fréttatilkynningu frá stjórnum
félaganna segir að rekstur Dags og
Dagsprents standi ekki undir fjár-
magnskostnaði vegna þeirra fram-
kvæmda sem ráðist var í á upp-
gangsárunum og því sé nauðsyn á
greiðslustöðvun svo ráðrúm fáist
til að létta fjárskuldbindingum af
fyrirtækjunum og selja eignir.
Dagsprent og Dagur eru nátengd
fyrirtæki og rekstur þeirra samof-
inn. Eigendur Dagsprents eru rúm-
lega hundrað en stærstan hlut eiga
Kaupfélag Eyfirðinga og Kaffi-
brennsla Akureyrar. Dagur er sjál-
fseignarfélag sem stofnað var árið
1918 og kjósa stjórnir Framsóknar-
félaganna á Akureyri og í Eyjafirði
í stjórn þess. Um 75% tekna
Dagsprents eru til komnar vegna
prentunar Dags, eina dagblaðsins
sem gefið er út utan Reykjavíkur.
Undanfarið hefur verið leitað
sameiningar Dagsprents og Prent-
verks Odds Björnssonar h.f. á
Akureyri. Stjórn Byggðastofnunar
hafa verið boðnar eignir Dags-
prents við Strandgötu til kaups en
stofnunin er einmitt að huga að því
að byggja eða kaupa hús fyrir
starfsemi sína á Akureyri og að
margra hyggju gætu eignimar við
Strandgötu hentað stofnuninni
ágæta vel.
í fréttatilkynningu stjómar Dags
og Dagsprents segir að keypti
Byggðastofnun eignir þessar þá
stuðlaði hún jafnframt að því að
áfram yrði rekin stór og öflug
prentsmiðja á Norðurlandi sem
nauðsynlegt hljóti að teljast fyrir
byggðarlagið.
Hörður Blöndal framkvæmda-
stjóri Dagsprents sagði að menn
væm bjartsýnir á jákvæðar undir-
tektir Byggðastofnunar enda hlyti
það að teljast vafasamt frá byggða-
sjónarmiði að stofnunin réðist í
byggingu stórhýsis á sama tíma og
nægt framboð af slíku húsnæði er
á Akureyri. -sá
Tvö stúlkubörn
heimt úr helju
Sjö og átta ára systmm, þeim
Margréti og Ásthildi Reynisdætrum,
var bjargað mjög naumlega frá
drukknun í Núpsá á laugardag. Þær
voru í bifreið af gerðinni Ford
Bronco ásamt þremur fullorðnum
og vom þau á leið yfir ána. Bifreiðin
fór skyndilega út af vaðinu og
straumurinn bar hana niður í djúpan
hyl, þar sem vatnið náði um 30 sm.
yfir þak bílsins. Þau þrjú fullorðnu
náðu að koma sér úr bílnum af eigin
rammleik en telpurnar urðu eftir í
hylnum. Jón Helgason, stjúpfaðir
stúlknanna, kafaði þá niður eftir
stúlkunum og náði að koma þeim
upp með aðstoð ferðalangs, Sverris
Amar Sigurjónssonar, sem þarna
átti leið fram hjá. Þeim tókst að
blása í stúlkurnar lífi á þaki bílsins
en þær vom hættar að anda og
hjartað var hætt að slá.
Eftir þetta vom mennirnir tveir og
stúlkurnar dregin á þurrt með kaðli.
Á slysstað var staddur Magni
Jónsson, læknir, og veitti hann að-
stoð við aðhlynningu. Til þess að ná
slími úr öndunarfærum stúlknanna
notaði hann slöngu úr rúðusprautu
bifreiðar sinnar.
Eftir þessa giftusamlegu björgun
voru telpurnar fluttar í þyrlu Land-
helgisgæslunnar á sjúkrahús í
Reykjavík ásamt móður þeirra, Sig-
rúnu Magnúsdóttur, sem varð nokk-
uð köld og þrekuð af volkinu. Þau
vom öll útskrifuð af sjúkrahúsi dag-
inn eftir og er líðan þeirra góð. GS
Endurvinnslan:
RÓLEG
BYRJUN
Að sögn Gunnars Bragasonar, fram-
kvæmdastjóra Endurvinnslunnar,
fór fyrsti dagurinn í móttöku um-
búða til endurvinnslu fremur hægt af
stað, enda búið að hvetja almenning
til að forðast örtröð.
Á höfuðborgarsvæðinu var tekið
á móti um 140.000 ílátum í gærdag
og um 40.000 á Akureyri. Gunnar
áætlaði að alls hefðu skilað sér um
250.000 umbúðir á landinu öllu,
þannig að ætla má að einar 1250
þúsund krónur hafi skipt um eigend-
ur í gær.
í ráði er að móttökustöðvar verði
opnarfrá kl. 13 til.18 alla virkadaga.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um
opnunartíma á helgum. JBG.