Tíminn - 10.08.1989, Side 5
* .* * rxj !, V' » f t i
Fimmtudagur 10. ágúst 1989
rnrm i f
Tíminn 5
Umhverfi við verslunarmiðstöðina við Eddufell er nú allt annað og betra eftir að unglingar í Breiðholti hættu að krota á veggina en máluðu þá í staðinn. Timamynd: Pjetur
Unglingar í Breiöholti hætta að brjóta rúður en taka til við að mála lögreglustöð:
Verslanir „kaupa“
sér lögregluvernd
Á morgun verður opnuð hverfa-Iögreglustöð í Eddufelli í
Breiðholti. Verslunareigendur í Eddufelli voru orðnir lang-
þreyttir á skemmdarstarfsemi unglinga á eignum þeirra en
skemmdir voru með allra mesta móti síðastliðinn vetur.
Verslunareigendur hafa útvegað lögreglunni húsnæði og
breytt því og bætt á eigin kostnað. Unglingar sem hafa staðið
í því að brjóta rúður í verslunum hafa unnið að endurbótum
á húsnæðinu. Árangurinn Iætur ekki standa á sér því að rúða
hefur ekki verið brotin í Eddufelli í margar vikur.
„Ástandið hefur lengi verið mjög
slæmt en í vetur keyrði algerlega um
þverbak. Þessi ólæti hafa haft veru-
leg áhrif á verslun hjá okkur,“ sagði
Jón Kristjánsson hjá Bókabúðinni
Emblu. Verslunareigendur við
Eddufell hafa mátt þola miklar bú-
sifjar af völdum unglinga sem hafa
brotið rúður og fælt frá viðskiptavini
með ýmis konar ólátum. Verslunar-
eigendur eru ekki þeir einu sem hafa
haft áhyggjur af hátterni ungling-
anna. Það er mál margra íbúðaeig-
enda að þetta ástand hafí haft áhrif
á fasteignaverð í hverfinu. Vegna
ólátanna í vetur mynduðu verslunar-
eigendur starfshóp með lögreglu,
félagsmálastofnun, tryggingafélög-
um og fleirum. Böðvar Bragason
lögreglustjóri í Reykjavík bauð í
framhaldi af þessu að setja niður
lögreglustöð í hverfinu. Lögreglan
hafði aftur á móti ekkert húsnæði og
enga fjármuni til að leggja í slíka
framkvæmd en lengi er búið að
standa til að reisa lögreglustöð í
Mjóddinni. Lóð sem lögreglunni var
ætlað þar hefur nú verið lögð undir
bílastæði. Verslunareigendur í
Eddufelli buðu því lögreglunni hús-
næði sem Iðnaðarbankinn á með því
fororði að verslanaeigendur myndu
sjá um endurbætur á því, innrétting-
ar og greiðslu á leigu í 6 mánuði.
Myndaður var hópur unglinga sem
hafa unnið skemmdir í Eddufelli og
haft nágrenni verstananna sem sinn
helsta samkomustað. Þessir ungling-
ar hafa síðan unnið í 5 vikur hjá
Reykjavíkurborg við að mála og
laga húsnæði væntanlegrar lögreglu-
stöðvar. Þeir sem hafa séð til ung-
linganna hafa rekið upp stór augu
þegar þeir hafa séð krakka sem vanir
eru að hanga aðgerðalausir við ein-
hverja slæma iðju taka ærlega til
hendinni við að bæta og fegra vænt-
anlega lögreglustöð. Kona ein
klökknaði þegar hún sá þá jákvæðu
breytingu sem orðin er á hegðun
unglinganna. Að sögn verslunareig-
enda er hér um tilraun sem fram að
þessu hefur tekist mjög vel og ætti
því að geta verið öðrum til eftir-
breytni. -EÓ
Björn Gunnarsson frá pósti og sínia, Jónas Hallsson varðstjóri og Börkur
Skúlason lögreglumaður voru að ganga frá fyrir opnunina í dag.
Timamynd: Pjetur
Hluti þátttakenda í fyrra.
Árleg sumarferð framsóknarmanna í Reykjavík á laugardaginn:
A milli fimmtán og
tuttugu rútu ferðir
Hin árlega sumarferð Framsókn-
arfélaganna í Reykjavík verður farin
næsta laugardag. Að þessu sinni
verður ekið upp í Grímsnes, að
Geysi f Haukadal og þaðan á leið inn
Kjöl og er áætlað að koma inn að
Hveravöllum laust eftir miðjan dag.
Þaðan verður ekið í Kerlingarfjöll
og frá Kerlingarfjöllum aftur til
Reykjavíkur.
Sumarferðir framsóknarmanna
hafa á undanfömum árum verið
einhverjar fjölmennustu innanlands-
ferðir félagasamtaka og hefur þurft
á bilinu 15-20 rútur til þess að flytja
þá sem skrá sig í ferðimar. Að sögn
Finns Ingólfssonar formanns full-
trúaráðs Framsóknarfélaganna í
Reykjavík, er það viðtekin venja að
þegar ákveðið er hvert skuli farið ár
hvert, að tekin sé stefna á leiðir sem
fólk kemst ekki alla jafna á venjuleg-
um fólksbflum. „Okkur finnst það
líka vera mjög við hæfi að fara
eitthvað úr byggð, upp á hálendi
landsins og skoða þá náttúrufegurð
og sérstöðu sem þar gefur að líta,“
sagði Finnur. - ÁG
Mörður ráðinn sem
upplýsingaful Itrúi
Fjármálaráðherra, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, hefur ráðið Mörð
Ámason fyrrum ritstjóra Þjóðvilj-
ans upplýsingafulltrúa fjármála-
ráðuneytisins frá og með 1. ágúst
1989.
Ráðning Marðar er í tengslum
við viðamikið kynningarstarf sem
ráðuneytið mun standa að vegna
grundvallarbreytinga á skattkerf-
inu um næstu áramót. Jafnframt er
fyrirhugað að auka upplýsinga-
streymi og efla umræðu um veiga-
mestu þætti tekjuöflunar og út-
gjalda ríkisins.
1 tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að upptaka virðisaukaskatts
verði umfangsmesta skattkerfis-
breyting um árabil hérlendis, og
hafi í för með sér ný vinnubrögð
hjá þúsundum fyrirtækja og ein-
staklinga. Í undirbúningi er einnig
ný löggjöf um skattlagningu fjár-
magnstekna og samstarf við al-
menning um aukið aðhald við inn-
heimtu skatta.
Auk þessa upplýsingastarfs á
sviði skattamála hefur verið ákveð-
ið að efna til vfðtækrar kynningar
á þróun ríkisútgjalda og skiptingu
þeirra milli einstakra málefna-
þátta. í tilkynningunni segir að
slíkt kynningarstarf sé forsenda
efnislegra umræðna um ráðstöfun
fjármuna úr hinum sameiginlega
sjóði landsmanna.
Auk þess að annast skipulagn-
ingu fyrrnefndra verkefna mun
Mörður Ámason aðstoða fjölmiðla
og almenning við upplýsingaöflun
af vettvangi fjármálaráðuneytisins
og þeirra stofnana sem því
tengjast. SSH