Tíminn - 10.08.1989, Side 17
Fimmtudagur 10. ágúst 1989
Tíminn 17
GLETTUR
- Segöu þeim aö við þurfum ekki á neinum
aukaleikurum aö halda í dag.
- Það er stórgott að komast burt úr
völundarhúsi hins daglega lífs öðru hvoru.
- Ef eyrun á þér væru stærri væri betra að
stýra.
- Bíddu meðan ég gái, en ég er nokkurn
veginn viss um að hún er farin frá mér.
- Það er engin afsökun til fyrir mengun frá
iðnaði, svo að ég verð að finna einhverja.
naateer
&
Docfge
GOOOjfizAR
I
bíuío^oS °9 A"i9°" S""'h '°'“ 9°6" Vl"" Þ°9a'
niTrriVf^M
Brooke
Shields
á mótor-
hjóli
í>ó hin fræga kvikmynda-
stjama, Brooke Shields, hafi
verið Ijósmyndafyrirsæta frá
barnæsku, þá er óvanalegt að
sjá svo glannalega mynd af
henni, eins og við sj áum hér.
Vanalega er Brooke í hlut-
verki fallegu, góðu, ungu
stúlkunnar í myndunum sem
hún hefur leikið í, en nú
skiptir heldur betur um. f
myndinni „Backstreet
Strays“, sem fjallar um flæk-
inga og töffara í öngstrætum
stórborgar, er hún með lýst
hár og glyðrulega klædd, svo
sem sjá má.
Brooke sagðist skemmta
sér vel við að ieika þessa
„hörkuskvísu".
Brooke Shields tekur sig vel
út á „töffara-mótorhjólinu"
BARNAASTIR
RIFJAÐAR UPP
Þau Ricky Schroder og
Allison Smith voru sem böm
orðin fræg fyrir að leika í
sjónvarpsþáttum, Ricky í .
hinum vinsælu „Silver
Spoons“ (Silfurskeiðar) og
Allison Smith í þáttum sem
kallaðir em „Kate & Allie“.
Þáu Ricky og Allison hafa
síðan haldið áfram á frægðar-
brautinni, og nú þegar þau
em bæði 19 ára, em þau
þekkt nöfn í kvikmynda-
bransanum.
Ricky og Allison kynntust
þegar þau vom 10 ára og kom
þá mjög vel saman og höfðu
sömu áhugamál. Þau fóru í
afmælisboð saman og í bíó, -
en mömmur þeirra vom alltaf
með þeim.
Fyrir um 6 ámm fékk Ricky
svo Allison til að leika gesta-
leik í einum þætti Silfurskeið-
anna, og þá gekk á ýmsu hjá
þeim. Sem þrettán ára kom
þeim ekki eins vel saman og
þegar þau vom 10 ára, og
samvinnan endaði með rif-
rildi.
En svo var það fyrir nokkr-
um vikum, að Ricky og Alli-
sdn hittust við kappaksturs-
mót í Indianapolis. Þau voru
nú orðin 19 ára, en hálffeimin
í fyrstu, því að þau höfðu
ekki talast við síðan í missætt-
inu, þegar þau voru 13.
En fljótlega kom í ljós að
þeim leist býsna vel hvort á
annað. Bæði voru „á lausu“
og ástin blómstraði hjá unga
fólkinu. Reyndar sagðist
Ricky hafa verið ástfanginn
af Allison allan tímann, en
hún sagðist hafa verið skotin
í honum þegar hún var 10
ára, en Ricky hefði verið
andstyggilegur 13 ára strákur.
Svo kom að því að dvölinni
í Indianapolis Iauk og þau
urðu að skilja, því að Allison
býr í New York - þar sem
„Kate & Allie“ - þættirnir
eru teknir upp og Ricky þurfti
a() fara til Los Angeles, þar
sem hans vinna er.
Allison fór með Ricky til
Kaliforníu í heimsókn, en
svo kallaði starfið hana heim
til New York. Þau hafa nú
ákveðið að reyna að fá eitt-
hvað sameiginlegt verkefni
þar sem þau geti bæði unnið
saman og verið líka saman í
frítímanum.
I