Tíminn - 10.08.1989, Qupperneq 17

Tíminn - 10.08.1989, Qupperneq 17
Fimmtudagur 10. ágúst 1989 Tíminn 17 GLETTUR - Segöu þeim aö við þurfum ekki á neinum aukaleikurum aö halda í dag. - Það er stórgott að komast burt úr völundarhúsi hins daglega lífs öðru hvoru. - Ef eyrun á þér væru stærri væri betra að stýra. - Bíddu meðan ég gái, en ég er nokkurn veginn viss um að hún er farin frá mér. - Það er engin afsökun til fyrir mengun frá iðnaði, svo að ég verð að finna einhverja. naateer & Docfge GOOOjfizAR I bíuío^oS °9 A"i9°" S""'h '°'“ 9°6" Vl"" Þ°9a' niTrriVf^M Brooke Shields á mótor- hjóli í>ó hin fræga kvikmynda- stjama, Brooke Shields, hafi verið Ijósmyndafyrirsæta frá barnæsku, þá er óvanalegt að sjá svo glannalega mynd af henni, eins og við sj áum hér. Vanalega er Brooke í hlut- verki fallegu, góðu, ungu stúlkunnar í myndunum sem hún hefur leikið í, en nú skiptir heldur betur um. f myndinni „Backstreet Strays“, sem fjallar um flæk- inga og töffara í öngstrætum stórborgar, er hún með lýst hár og glyðrulega klædd, svo sem sjá má. Brooke sagðist skemmta sér vel við að ieika þessa „hörkuskvísu". Brooke Shields tekur sig vel út á „töffara-mótorhjólinu" BARNAASTIR RIFJAÐAR UPP Þau Ricky Schroder og Allison Smith voru sem böm orðin fræg fyrir að leika í sjónvarpsþáttum, Ricky í . hinum vinsælu „Silver Spoons“ (Silfurskeiðar) og Allison Smith í þáttum sem kallaðir em „Kate & Allie“. Þáu Ricky og Allison hafa síðan haldið áfram á frægðar- brautinni, og nú þegar þau em bæði 19 ára, em þau þekkt nöfn í kvikmynda- bransanum. Ricky og Allison kynntust þegar þau vom 10 ára og kom þá mjög vel saman og höfðu sömu áhugamál. Þau fóru í afmælisboð saman og í bíó, - en mömmur þeirra vom alltaf með þeim. Fyrir um 6 ámm fékk Ricky svo Allison til að leika gesta- leik í einum þætti Silfurskeið- anna, og þá gekk á ýmsu hjá þeim. Sem þrettán ára kom þeim ekki eins vel saman og þegar þau vom 10 ára, og samvinnan endaði með rif- rildi. En svo var það fyrir nokkr- um vikum, að Ricky og Alli- sdn hittust við kappaksturs- mót í Indianapolis. Þau voru nú orðin 19 ára, en hálffeimin í fyrstu, því að þau höfðu ekki talast við síðan í missætt- inu, þegar þau voru 13. En fljótlega kom í ljós að þeim leist býsna vel hvort á annað. Bæði voru „á lausu“ og ástin blómstraði hjá unga fólkinu. Reyndar sagðist Ricky hafa verið ástfanginn af Allison allan tímann, en hún sagðist hafa verið skotin í honum þegar hún var 10 ára, en Ricky hefði verið andstyggilegur 13 ára strákur. Svo kom að því að dvölinni í Indianapolis Iauk og þau urðu að skilja, því að Allison býr í New York - þar sem „Kate & Allie“ - þættirnir eru teknir upp og Ricky þurfti a() fara til Los Angeles, þar sem hans vinna er. Allison fór með Ricky til Kaliforníu í heimsókn, en svo kallaði starfið hana heim til New York. Þau hafa nú ákveðið að reyna að fá eitt- hvað sameiginlegt verkefni þar sem þau geti bæði unnið saman og verið líka saman í frítímanum. I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.