Tíminn - 10.08.1989, Síða 18

Tíminn - 10.08.1989, Síða 18
18 Tíminn Fimmtudagur 10. ágúst 1989 llllllllllllllllllllllll IÞROTTIR Mjólkurbikarkeppnin:______________________________________________________________ ÞRIÐJI ÚRSLITALEIKUR FRAMARA OG KR-INGA Nú er Ijóst að það verða KR og Fram sem mætast í úrslitaleik Mjólk- urbikarkeppninnar í knattspymu sunnudaginn 27. ágúst n.k. en bæði þessi lið hafa sett mark sitt á sögu keppninnar frá því hún fór fyrst fram árið 1960. KR-ingar léku til úrslita í bikar- keppninni 8 af fyrstu 9 árunum sem keppnin var haldin. í þessi 8 skipti hafa KR-ingar sigrað í 7 úrslitaleikj- um. Aðeins 1965 voru KR-ingar ekki í úrslitum, en þá mættust Skaga- menn og Valsmenn í úrslitaleiknum. Síðan b-lið KR mætti Vestmanna- eyingum í bikarúrslitunum 1968, og fil! IKiÉ tapaði 1-2, hafa KR-ingar þurft að láta sér nægja að vera áhorfendur á bikarúrslitaleikjum, þar til nú að vesturbæjarliðið tryggir sér rétt til að leika í úrslitum keppninnar eftir 21 árs bið. J>að má því segja að blað sé nú brotið í sögu KR og bikar- keppninnar. Framarar eru komnir í úrslit bika- rkeppninnar í 14. sinn. Þeir hafa 6 sinnum orðið bikarmeistarar nú síð- ast 1987 er liðið vann Víði 5-0. Fram lék einmitt gegn KR í tvö fyrstu skiptin sem liðið komst í úrslit keppninnar. Árið 1960 tapaði Fram 2-0 fyrir vesturbæjarliðinu og tveim- ur árum síðar vann KR Fram 3-0 í úrslitaleiknum. Síðan hafa þessi lið ekki mæst í úrslitaleiknum. Fram varð í fyrsta sinn bikarmeistari 1970 er liðið sigraði ÍB V 2-1 í úrslitaleikn- um. Síðustu 10 ár hafa Framarar náð mjög góðum árangri í bikarkeppn- inni, leikið 7 sinnum til úrslita og þar af sigrað 4 sinnum. Þriðji bikarúr- slitaleikurinn milli Fram og KR er nú í sjónmáli. Sannkallaðurdrauma- úrslitaleikur Reykvíkinga, þar sem þessi sögufrægu lið mætast. BL Framarar hlaupa sigurhring með bikarinn 1987, en í ár mæta þeir KR-ingum sem ekki hafa unnið bikarinn í 21 ár. Timaniynd pjeiur. Knattspyrna: Jafntefli Knattspyrna: Atli til Tyrklands Umboðsmaður — Akureyri Tíminn óskar eftir að ráða umboðsmann á Akureyri. Allar upplýsingar gefur umboðsmaður blaðs- ins Jóhannes Þengilsson í síma 96-22940. Framkvæmdastjóri blaðsins er staddur á Akur- eyri og svarar fyrirspurnum í síma 96-22940. TÍMINN gegn Dönum íslenska drengjalandsliðið í knatt- spymu gerði í gærkvöld 2-2 jafntefli gegn Dönum á opna Norðurlanda- mótinu sem haldið er í Englandi þessa dagana. íslenska liðið komst í 2-0 með mörkum þeirra Guðmundar Bene- diktssonar og Þórðar Guðjónssonar, en Danir náðu að jafna. I fyrsta leik sínum i mótinu gerði íslenska liðið 3-3 jafntefli gegn Finn- um eftir að hafa verið 3-0 yflr. Síðan vann liðið Englendinga 3-2, en tap- aði síðan fyrir Norðmönnum 1-2. íslenska liðið hefur 4 stig og á enn mögulcika á sigri. Á morgun leikur íslenska liðið síðasta leik sinn á mótinu, gegn Svíum. BL - leikur meö Genclerbirligi næstu 2 árin Landsliðsfyrirliðinn í knatt- spymu Atli Eðvaldsson hefur gert tveggja ára samning við tyrkneska 1. deildarliðið Genclerberligi frá Ankara höfuðborg Tyrklands. Atli sem er 32 ára gamall lék í 9 ár sem atvinnumaður í V-Þýska- landi með Dortmund, Dusseldorf og Uerdingen. Það er lið Uerding- en sem á söluréttinn á Atla og tyrkneska liðið þarf aðeins að greiða um 50 þúsund mörk fyrir Atla, eða um eina og hálfa milljón króna. Atli hefur verið meiddur í baki að undanförnu og því ekki getað leikið með Valsmönnum, en hann er á batavegi. Valsmenn munu njóta krafta kappans út íslands- mótið, en þann 1. október heldur Atli til Tyrklands. BL Atli Eðvalsson leikur í Tyrk- landi næstu 2 árin. Tímamynd Pjefur. wippfó hér Tíminn □ ER ÁSKRIFANDI □ NÝR ÁSKRIFANDI Dags.: n VISA □ □ K Kortnr.: □□□□□□□□□□□□□□□□ Gildirút: 1111 Nafnnr.: I I 1 I I - í > I i I ÁSKRIFANDI:.............................. HEIMILI:................................. PÓSTNR. - STAÐUR:.................. SÍMI:. MILLIFÆRSLU ÁSKRIFT'ARGJ ALDS Ég undirrituö/aður óska þess að áskriftar- gjald Tlmans verði mánaðarlega skuld- fært á greiðslukort mitt. UNDIRSKRIFT. SENDIST AFGREIÐSLU BLAÐSINS LYNGHÁLSI 9. 130 REYKJAVÍK Frjálsar íþróttir: Siguröur vann Einar Sigurður Einarsson spjótkastari úr Ármanni sigraði helsta keppinaut sinn Einar Vilhjálmsson UÍA, í fyrsta sinn í keppni i fyrrakvöld er þeir kappar tóku þátt í Grand Prix móti í Búdapest í Ungverjalandi. Sigurður kastaði 81,84 m og varð í 3. sæti í mótinu. Einar Vilhjálmsson kastaði 81,32 m og hafnaði í 4. sæti. Sigurvegari varð Bretinn Steve Backley sem kastaði 85,86 m sem er breskt met og næst lengsta kast ársins. Backley hefur nú forystu í stigakeppninni Grand Prix mótanna í spjótkasti með 46 stig. Sovéski spjótkastarinn Viktor Yevsjukov varð í 2. sæti í Búdapest, kastaði 82,18 m. Óvænt úrslit urðu í 100 m hlaupi karla á mótinu. Fyrrum heimsmet- hafi Calvin Smith frá Bandaríkjun- um varð á eftir landa sínum Andre Cason í mark, en Cason er heims- meistari ungiinga í greininni. BL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.