Tíminn - 10.08.1989, Side 19
Fimmtudagur 10. ágúst 1989
Tíminn 19
llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^
Þorsteinn Bjamason markvörður Keflvikinga, fyrir miðri mynd, varð að hirða knöttinn fjórum sinnum úr marki sín í gærkvöld þegar Fram vann ÍBK 4-3 ■
undanúrsiitum bikarkeppninnar. Tím«mynd pjetnr.
Mjólkurbikarkeppnin \ knattspyrnu:
Markaregn í lokin þegar
Fram sigraði Keflvíkinga
- Enn einu sinni leika Framarar til úrslita í keppninni:
Frá Margrétí Sanders íþróttafréttamanni Tímans
á Suðumesjum:
Framarar sigruðu ÍBK 4-3 í
undanúrsiitum Mjólkurbikarkeppn-
innar í knattspyrnu í Keflavík í
gærkvöldi. Staðan þegar 5 mín. voru
til leiksloka 3-0 fyrir Fram, en
markaregn í Iokin breytti stöðunni í
4-3.
Jafnræði var með liðunum í
Guðmundur Steinsson skoraði
þrennu fyrir Fram í gærkvöld.
í kvöld:
IR og Víðir
í Mjóddinni
t kvöld verður einn leikur í 2.
deild í knattspyrnu. ÍR-ingar fá Víð-
ismenn í heimsókn á malarvöllinn í
S-Mjódd. Hér er um breytingu að
ræða þvi upphaflega átti leikurinn
að fara fram á Valbjarnarvelli.
Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir
bæði Iiðin, Víðismenn eru í toppbar-
áttunni í deildinni, en ÍR-ingar berj-
ast við falldrauginn. Leikurinn hefst
ld. 20.00. BL
byrjun, en Framarar voru hættulegri
aðilinn. Strax á 3. mín. komst Guð-
mundur Steinsson einn innfyrir vörn
ÍBK en skaut framhjá fyrir opnu
marki. Ragnar Margeirsson skoraði
síðan á 9. mín. eftir þvögu í vítateig
ÍBK. Framarar bættu síðan öðru
marki við á 21. mfn. Ómar Torfason
átti hörkuskot að marki, sem Þor-
steinn varði, en boltinn barst til
Guðmundar Steinssonar sem skor-
aði. Stuttu síðar komst Freyr Sverr-
isson einn inn fyrir vöm Framara, en
vippaði boltanum yfir markið. Fleiri
urðu færin ekki í fyrri hálfleik, en
baráttan var mikil.
Keflvíkingar komu mjög daufir til
sfðari hálfleiks og voru sem Ieikföng
í höndum Framara þar til á sfðustu
mín. Þriðja mark Framara kom á 57.
mín. þá var Guðmundur Steinsson
aftur á ferðinni eftir gott skot Péturs
Amþórssonar. Á 68. mín. komst
Guðmundur síðan enn í gott færi en
Þorsteinn varði vel og sfðan 76. mín.
átti Valþór Sigþórsson góðan skalla
að marki Fram eftir homspyrnu
Kjartans Einarssonar, en Birkir
Kristinsson varði vel.
Á 85. mín. hófst markaregnið.
Kjartan átti skot að marki Fram,
sem Birkir varði, en Kristján Geirs-
son fylgdi vel á eftir og skoraði 1-3.
Keflvíkingar vom enn að fagna þeg-
ar Framarar skoruðu fjórða mark
sitt og enn var það Guðmundur
Steinsson sem hamraði boltanum í
netið eftir að hafa fengið góða
sendingu frá Pétri Ormslev. Keflvík-
ingar minnkuðu síðan muninn á 86.
mín. Valþór Sigþórsson skoraði þá
ágætt mark og á sfðustu mín. leiksins
bætti Kjartan Einarsson við þriðja
marki Keflvíkinga 3-4.
Enginn skaraði fram úr í jöfnu liði
Fram, sem lék mjög vel í síðari
hálfleik og hjá Keflvíkingum var
Freyr Sverrisson góður í fyrri hálf--
leik, en í síðari hálfleik voru Keflvík-
ingar slakir. MS/BL
Mjólkurbikarkeppnin:
KR-ingar sluppu með
skrekkinn í Eyjum
- Heimamenn sóttu stíft undir lok leiksins
KR-ingar tryggðu sér rétt til þess
að leika til úrslita í Mjólkurbikar-
keppninni í knattspyrnu í gærkvöld
er þeir báru sigurorð af Vest-
mannaeyingum 3-2 í Eyjum. Sigur-
inn hefði allt eins getað fallið
heimamönnum í skaut, þeir áttu
mjög góðan leik og sóttu stíft að
marki KR undir lok leiksins. KR-
ingar voru því fegnir þegar Þor-
varður Björnsson dómari flautaði
til leiksloka.
Sigurður Björgvinsson varnar-
maður KR náði forystunni á 4.
mín. Iciksins og Sæbjörn Guð-
mundsson bætti öðru marki við
stuttu síðar, eða á 16. mín. Reikn-
uðu þá flestir með því að eftir-
leikurinn yrði KR-ingum auðveld-
ur, en annað átti eftir að koma á
daginn.
Sigurlás Þorleifsson minnkaði
muninn fyrir heimamenn á 31.
mín. og þannig var staðan í
leikhléinu. í upphafi síðari hálf-
leiks skoraði Sæbjörn öðru sinni
fyrir og kom þeim í 3-1. En Sigurlás
minnkaði muninn fyrir Eyjamenn
10 mín. fyrir leikslok og fleiri urðu
mörkin ekki þrátt fyrir að heima-
menn gerðu harða hríð að marki
gestanna allt þar til leiknum lauk.
BL
Margt smátt
Bonn. Einn leikur var í fyrra-
kvöld í v-þýsku 1. deildinni í knatt-
spymu. Eintracht Frankfurt vann
Fortuna Diisseldorf á útivelli 1-2.
Bueskens gerði mark Diisseldorf en
þeir Andersen og Binz skomðu fyrir
Frankfurt.
Stokkhólmur. Portúgalska
liðið Benfica hefur fest kaup á
sænska landsliðsmanninum Jonas
Thern frá Malmö FF. Talið er að
kaupverðið sé um 1 milljón dala og
Them fái í sinn hlut um 400 þúsund
dali. Framkvæmdastjóri Benfíca er
Svíinn Sven-Göran Eriksson og fyrir
er hjá liðinu framherjinn Mats
Magnusson. Them er 22 ára gamall
miðvallarleikmaður.
faÍSc=f== !==}==
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell..........25/8
Gioucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
Lestunarhafnir innanlands:
Reykjavík:
Alla miðvikudaga
Vestmannaeyjar:
Alla föstudaga
Húsavík:
Alla sunnudaga
Akureyri:
Alla mánudaga
ísafjörður: ~
Alla þriðjudaga
SKJPADEILD
T^SAMBANDSINS
Sambandshúsinu, Kirkjusandi 1
105, Reykjavík, sími 698300
. Á A A A Á A l i
IÁKN TRAUÍfRA ILUTNINGA