Tíminn - 10.08.1989, Qupperneq 19

Tíminn - 10.08.1989, Qupperneq 19
Fimmtudagur 10. ágúst 1989 Tíminn 19 llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^ Þorsteinn Bjamason markvörður Keflvikinga, fyrir miðri mynd, varð að hirða knöttinn fjórum sinnum úr marki sín í gærkvöld þegar Fram vann ÍBK 4-3 ■ undanúrsiitum bikarkeppninnar. Tím«mynd pjetnr. Mjólkurbikarkeppnin \ knattspyrnu: Markaregn í lokin þegar Fram sigraði Keflvíkinga - Enn einu sinni leika Framarar til úrslita í keppninni: Frá Margrétí Sanders íþróttafréttamanni Tímans á Suðumesjum: Framarar sigruðu ÍBK 4-3 í undanúrsiitum Mjólkurbikarkeppn- innar í knattspyrnu í Keflavík í gærkvöldi. Staðan þegar 5 mín. voru til leiksloka 3-0 fyrir Fram, en markaregn í Iokin breytti stöðunni í 4-3. Jafnræði var með liðunum í Guðmundur Steinsson skoraði þrennu fyrir Fram í gærkvöld. í kvöld: IR og Víðir í Mjóddinni t kvöld verður einn leikur í 2. deild í knattspyrnu. ÍR-ingar fá Víð- ismenn í heimsókn á malarvöllinn í S-Mjódd. Hér er um breytingu að ræða þvi upphaflega átti leikurinn að fara fram á Valbjarnarvelli. Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði Iiðin, Víðismenn eru í toppbar- áttunni í deildinni, en ÍR-ingar berj- ast við falldrauginn. Leikurinn hefst ld. 20.00. BL byrjun, en Framarar voru hættulegri aðilinn. Strax á 3. mín. komst Guð- mundur Steinsson einn innfyrir vörn ÍBK en skaut framhjá fyrir opnu marki. Ragnar Margeirsson skoraði síðan á 9. mín. eftir þvögu í vítateig ÍBK. Framarar bættu síðan öðru marki við á 21. mfn. Ómar Torfason átti hörkuskot að marki, sem Þor- steinn varði, en boltinn barst til Guðmundar Steinssonar sem skor- aði. Stuttu síðar komst Freyr Sverr- isson einn inn fyrir vöm Framara, en vippaði boltanum yfir markið. Fleiri urðu færin ekki í fyrri hálfleik, en baráttan var mikil. Keflvíkingar komu mjög daufir til sfðari hálfleiks og voru sem Ieikföng í höndum Framara þar til á sfðustu mín. Þriðja mark Framara kom á 57. mín. þá var Guðmundur Steinsson aftur á ferðinni eftir gott skot Péturs Amþórssonar. Á 68. mín. komst Guðmundur síðan enn í gott færi en Þorsteinn varði vel og sfðan 76. mín. átti Valþór Sigþórsson góðan skalla að marki Fram eftir homspyrnu Kjartans Einarssonar, en Birkir Kristinsson varði vel. Á 85. mín. hófst markaregnið. Kjartan átti skot að marki Fram, sem Birkir varði, en Kristján Geirs- son fylgdi vel á eftir og skoraði 1-3. Keflvíkingar vom enn að fagna þeg- ar Framarar skoruðu fjórða mark sitt og enn var það Guðmundur Steinsson sem hamraði boltanum í netið eftir að hafa fengið góða sendingu frá Pétri Ormslev. Keflvík- ingar minnkuðu síðan muninn á 86. mín. Valþór Sigþórsson skoraði þá ágætt mark og á sfðustu mín. leiksins bætti Kjartan Einarsson við þriðja marki Keflvíkinga 3-4. Enginn skaraði fram úr í jöfnu liði Fram, sem lék mjög vel í síðari hálfleik og hjá Keflvíkingum var Freyr Sverrisson góður í fyrri hálf-- leik, en í síðari hálfleik voru Keflvík- ingar slakir. MS/BL Mjólkurbikarkeppnin: KR-ingar sluppu með skrekkinn í Eyjum - Heimamenn sóttu stíft undir lok leiksins KR-ingar tryggðu sér rétt til þess að leika til úrslita í Mjólkurbikar- keppninni í knattspyrnu í gærkvöld er þeir báru sigurorð af Vest- mannaeyingum 3-2 í Eyjum. Sigur- inn hefði allt eins getað fallið heimamönnum í skaut, þeir áttu mjög góðan leik og sóttu stíft að marki KR undir lok leiksins. KR- ingar voru því fegnir þegar Þor- varður Björnsson dómari flautaði til leiksloka. Sigurður Björgvinsson varnar- maður KR náði forystunni á 4. mín. Iciksins og Sæbjörn Guð- mundsson bætti öðru marki við stuttu síðar, eða á 16. mín. Reikn- uðu þá flestir með því að eftir- leikurinn yrði KR-ingum auðveld- ur, en annað átti eftir að koma á daginn. Sigurlás Þorleifsson minnkaði muninn fyrir heimamenn á 31. mín. og þannig var staðan í leikhléinu. í upphafi síðari hálf- leiks skoraði Sæbjörn öðru sinni fyrir og kom þeim í 3-1. En Sigurlás minnkaði muninn fyrir Eyjamenn 10 mín. fyrir leikslok og fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir að heima- menn gerðu harða hríð að marki gestanna allt þar til leiknum lauk. BL Margt smátt Bonn. Einn leikur var í fyrra- kvöld í v-þýsku 1. deildinni í knatt- spymu. Eintracht Frankfurt vann Fortuna Diisseldorf á útivelli 1-2. Bueskens gerði mark Diisseldorf en þeir Andersen og Binz skomðu fyrir Frankfurt. Stokkhólmur. Portúgalska liðið Benfica hefur fest kaup á sænska landsliðsmanninum Jonas Thern frá Malmö FF. Talið er að kaupverðið sé um 1 milljón dala og Them fái í sinn hlut um 400 þúsund dali. Framkvæmdastjóri Benfíca er Svíinn Sven-Göran Eriksson og fyrir er hjá liðinu framherjinn Mats Magnusson. Them er 22 ára gamall miðvallarleikmaður. faÍSc=f== !==}== Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Árhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla miðvikudaga Varberg: Alla fimmtudaga Moss: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell..........25/8 Gioucester/Boston: Alla þriðjudaga New York: Alla föstudaga Portsmouth/Norfolk: Alla sunnudaga Lestunarhafnir innanlands: Reykjavík: Alla miðvikudaga Vestmannaeyjar: Alla föstudaga Húsavík: Alla sunnudaga Akureyri: Alla mánudaga ísafjörður: ~ Alla þriðjudaga SKJPADEILD T^SAMBANDSINS Sambandshúsinu, Kirkjusandi 1 105, Reykjavík, sími 698300 . Á A A A Á A l i IÁKN TRAUÍfRA ILUTNINGA

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.