Tíminn - 10.08.1989, Síða 20

Tíminn - 10.08.1989, Síða 20
NÚTIMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 'Oz0Ó- oq, , , SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. PÓSTFAX TÍMANS 687691 9 rimiiui FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1989 Skaftá nagar stöðugt af túnunum og grónu landi „Okkur sem búum í næsta nágrenni við þessar náttúruhamfarir finnst að fjölmiðlar fjalli mikið og vel um sjálfar hamfarirnar eins og Skaftárhlaupið á dögunum, en missi síðan áhugann þegar látunum linnir. Þá er sjaldnast vikið orði að afleiðingum sjálfra hamfaranna, landeyðing- unni og gróðurspjöllunum, en sífellt klifað á því hver skaðvaldur sauðkindin sé gróðurríkinu,“ sagði Valur Oddgeirsson bóndi í Úthlíð í Skaftártungum. Valur sagði að mestu gróður- skemmdir sem sæjust í Skaftár- tungu væru beinlínis vegna Skaft- árhlaupa og væri um að ræða verulega gróðureyðingu og landspjöll. Ekki væri aðeins að hlaupin ryddust yfir og skoluðu burt grónum ræktar- og beitar- löndum heldur gengju þau yfir sléttlendi og gróið hraun og víðar, vatn flæddi ofan í lautir og gil- skorninga þar sem jökulleirinn botnfélli og yrði eftir þegar hlaup- ið sjatnaði. Að sögn Vals er oft um að ræða botnfall sem er um fet að þykkt og þegar þornaði fyki það um og syrfi og eyðilegði enn frekar gróið land á stórum svæðum. Þessa mætti sjá glögg merki víðast hvar meðfram Skaftá í byggðinni og þaðan allt inn að Vatnajökli. „Hér er um þess konar náttúru- hamfarir að við þær verður ekki nema að litlu leyti ráðið. Þó mætti reyna að stemma stigu við því að eins víða flæddi og raunin er. Slíkt er þó ekki á færi einstaklinga. Það mætti reyna að mynda nógu mikla fyrirhleðslu í Skaftá og láta fram- burðinn botnfalla og reyna að stilla eitthvað þessa framrás, en sjálfsagt eru engir fjármunir til- tækir til slíks,“ sagði Valur. Hann sagði að sama sagan endurtæki sig í hverju hlaupi og stöðugt bættist við lahdspjöllin. Sem dæmi mætti nefna að við kirkjustaðinn Ása í Skaftártungu hefði á sínum tíma verið hlaðið 'fyrir svonefndar Ásakvíslar og vatninu veitt í Eldvatn. Þarna væri áin stöðugt að rífa út farveg- inn og fyrir fáum árum síðan gróf undan brúnni á Ásavatni. Mikið landbrot ætti sér stað neðan við Ásabæinn og þar bryti af túninu og gróðurtorfunni og væri kirkju- garðurinn í mikilli hættu af þess- um sökum. í hlaupinu um daginn hefði Skaftá flætt út á hraunið við Ása og þar hefði nú að myndast stór sandleira sem illa liti út með og búast mætti við miklu foki úr þegar hún þornar. Þegar það ger- ist muni verða spjöll á gróðri í hrauninu á stóru svæði. Við Svína- dal sagði Valur að verið hefði áveituengi sem nú væri algerlega horfið undir jökulleðju og heita mætti að Hvammshraun væri nú orðið samfelld sandauðn. „Mér finnst það skjóta skökku við að fjölmiðlar skuli ekkert minnast á þessa miklu gróðureyð- ingu en á hinn bóginn klifa stöðugt á skaða af völdum lífsbjargar okkar, sauðkindarinnar. Sann- leikurinn er sá að annar gröður hér, sem ekki er í hættu af völdum vatnagangs hefur stórlega sótt í sig veðrið og valda þar að mínu mati gerbreyttir búskaparhættir. Sauðfé er ekki sleppt á heiðalönd lengur fyrr en gróður er kominn vel af stað í stað þess að áður var fé beitt mun lengur fram á vetur og rekið miklu fyrr á fjall að vorinu en nú er gert,“ sagði Valur. „Samkvæmt lögum heyrir land- brot af völdum fallvatna undir Landgræðslu ríkisins en fjárveit- ingar vegna slíks eru þó takmark- aðar. í hverri sýslu starfa mats- nefndir sem fara yfir umsóknir um aðgerðir vegna landbrots. Reynt er að raða þeim niður eftir hversu þörf á aðgerðum er talin mikil og síðan farið í að hlaða varnargarða eftir þvf sem hægt er. Þegar stór- skaðar verða svo sem gerist af völdum Markarfljóts og fleiri fljóta þá kemur auk þess til kastai Viðlagatryggingar," sagði Stefánl H. Sigfússon fulltrúi landgræðslu- - stjóra. Stefán sagði að landeyðing af völdum Skaftárhlaups nú hefði ekki komið til kasta Landgræðsl- unnar en sagði það vel geta komið til greina. Þar sem jarðvegur hefði á annað borð ekki skolast burt hlyti að borga sig að hreinsa burt stórgrýti af ræktuðu landi og sá síðan á ný þar og dreifa áburði. Einnig mætti bera á gróið land sem spillst hefði af vatnagangi. Slíkt borgaði sig fyllilega þar sem hlaup kæmu á þetta tíu- fimmtán ára fresti. -sá Vírar slengdust í þotunaviðflugtak Hér sést hluti skemmda sem urðu á vélinni. Tímamynd: Pjetur Það óhapp varð á Keflavíkurflug- velli í gær að Boeing 727-200 þotu Sterling flugfélagsins hlekktist á í flugtaki. Óhappið varð með þeim hætti að lendingarvírar slengdust upp í aftasta hluta vélarinnar þegar flugstjórinn hugðist nota óvenju langa vegalengd til að ná hraða fyrir flugtak. Hluti af svokölluðu stéldragi rifnaði af, rifa kom á aftasta land- ganginn, auk annarra skemmda sem ekki höfðu áhrif á flughæfni vélar- innar. Flugmennirnir ákváðu að lenda aftur og fóru farþegarnir af landi brott snemma í morgun. Flugvélin var á leiðinni frá Kaup- mannahöfn til Toronto í Kanada og millilenti í Keflavík til að taka eldsneyti. Þegar vélin var tilbúin til brottferðar að nýju var henni ekið út á brautarenda þriggja kílómetra langrar flugbrautar, sem telst vera óvenjulöng braut. Vélin var mjög þung vegna mikils eldsneytis og þess að hvert sæti var skipað. Flugstjór- inn ætlaði því að nýta óvenju stóran hluta af flugbrautinni til að vera kominn á mjög mikinn hraða fyrir flugtakið sjálft. Um þrjúhundruð metra frá brautarendanum er strengdur svokallaður lendingarvír sem er notaður við neyðarstöðvanir orustuþotna hersins. Þegar vélin nálgaðist vírinn lyfti flugstjórinn nefi hennar en aðalhjólin runnu yfir vírinn og við það virðist hann hafa slengst upp í aftasta hluta vélarinnar með fyrrnefndum afleiðingum. Flugvélin var á flugi nokkra stund og voru yfir 30 þúsund lítrar af eldsneyti losaðir í hafið til að létta þotuna fyrir lendinguna sem gekk vel og engan sakaði. Ekki er talið að farþegarnir, 191 að tölu, hafi verið í hættu. Enginn Islendingur var um borð í vélinni. Þotan telst ekki í flughæfu ástandi og fær ekki leyfi til að fara héðan fyrr en gert hefur verið við hana til bráðabirgða og fer hún þá án farþega. Loftferðaeftirlitið rannsóknar- nefnd flugslysa mun rannsaka orsak- ir óhappsins, en fremur óvenjulegt er að flugmenn á þessari tegund flugvéla noti allan hluta flugbrautar- innar þegar farið er á loft. Lendingarvírarnir sem um ræðir og slengdust upp í vélina liggja rétt ofan við brautina, í um 5 sentimetra hæð en þeir eru öryggisatriði fyrir orustuþotur varnarliðsins en í þá er krækt ef fyrirséð er að þotan fari annars fram af brautinni. SSH (sfirðingar duglegir við að ná sér í aukapening fyrir dósasöfnun: Einn skilaði 6000 dósum Eftir að skilagjald var sett á einnota umbúðir hafa bæði ein- staklingar og félagasamtök verið iðin við að hirða upp og safna tómum öl- og gosdósum, ásamt öðrum umbúðum sem skilagjald er grcitt fyrir. Túnanum hafa borist spurnir af því að ísfirðingar séu á undanförnum mánuðum búnir að vera mjög iðnir við söfnun og á þriðjudaginn skilaði t.d. einstakl- ingur á ísafirði inn 6.000 dósum. Maður þessi, Ásgeir Vilhjálms- son, vinnur hjá hreinsunardcild bæjarins og hefur undanfarna mán- uði notað tækifærið og safnað ein- nota umbúðum, um leið og hann hreinsar göturnará ísafirði. Ásgeir skilaði af sér fyrsta daginn sem Endurvinnslan hf. tók á móti skila- gjaldsskildum umbúðum, 6.000 þúsund stykkjum og fckk 30.000 kr. fyrir ómakið. En Ásgeir er ekki einn hreinsunarnianna urn að hirða tómar gosflöskur, öldósir og annað sem lil fellur við þrif á götum ísafjarðar. Kollegi hans Sigfús Valdimarsson hefur cinnig verið ötull við söfnun og segja heima- menn að hann hafi ef eitthvað er safnað meira rnagni en Ásgeir. Sigfús er hins vegar ckki enn búinn að skiia af sér og er ekki iaust við að spenna ríki á meðal bæjarbúa eftir því að sjá hvor hafi náð að safna meiru. Er haft var samband við Sigfús í gær sagðist hann ætla að skila söfnuninni af sér í dag, en hingað til hefði hann ekki haft tök á að flytja alit þetta magn til móttöku- staðar. Aðspuröur kvaðst hann ekki vita nákvæmlega hversu mörgum dósum og flöskum hann hefði safnað, en taldi þó ekki óiíklegt að magnið væri eitthvað meira en hjá vinnufélaga sínum Ásgeiri. Sigfús sagði ekki vandræði með geymslupláss hjá sér, en hann hefur aðstöðu í húsnæði hvítasunnumanna á Isafirði, enda rennur allur ágóði af söfnuninni til þess að endurbæta og byggja við hvítasunnuhúsið. Metið í söfnun einnota umbúða á ísafirði eiga samt skátar þar í bæ, en þcir hafa safnað tæplega 50.000 dósum það sem af er. Skátahreyf- ingin er móttökuaðili fyrir einnota umbúðir á Isafirði. - ÁG

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.