Tíminn - 25.08.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 25. ágúst 1989
RSK
Frá ríkisskattstjóra
Á síðastliðnu vori voru samþykkt á Alþingi lög nr.
51, 1. júní 1989. Samkvæmt þeim lögum er gerð
breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og
eignarskatt, sem felur það í sér að þeim sem hafa
misst maka sinn er veittur réttur til eignarskattsá-
lagningar eins og hjá hjónum í fimm ár eftir lát
maka.
Við álagningu eignarskatts árið 1989 nær réttur
þessi til þeirra eftirlifandi maka sem sitja í óskiptu
búi í árslok 1988, en hafa misst maka sinn árið
1984 eða síðar.
Vegna þess hve stuttur tími var fram að álagningu
frá því að umrædd lagabreyting var samþykkt á
Alþingi var af tæknilegum ástæðum ekki unnt að
haga álagningu eignarskatts á árinu 1989 í
samræmi við framangreind lög hjá þeim rétthöfum
sem misstu maka sinn á árunum 1984 til og með
árinu 1987.
Eignarskattsálagningu á þá sem misstu maka sinn
á árinu 1988 var hinsvegar unnt að framkvæma í
samræmi við framangreind lög og er hún því rétt.
Skattstjórar vinna nú að því að leiðrétta eignarskatt
þeirra sem hafa vegna þessa máls fengið ranga
eignarskattsálagningu. Stefnt er að því að þeim
leiðréttingum verði lokið í næsta mánuði.
Reykjavík 21. ágúst 1989
Ríkisskattstjóri.
Fiskvinnslustörf
Óskum eftir vönu starfsfólki í snyrtingu og pökkun.
Mikil vinna framundan. Nægur kvóti til. Fæði og
húsnæði á staðnum.
Fiskiðjuver KASK,
Höfn, Hornafirði,
sími 97-81200.
Ahugavert starf
Hjá Sauðfjárveikivörnum á tilraunastöðinni á Keld-
um vantar starfsmann strax.
Búfræði- eða líffræðimenntun æskileg en ekki
skilyrði.
Allar upplýsingar um starfið veitir Sigurður Sigurð-
arson, dýralæknir í síma á daginn 82811 og
985-21644, eftir lokun 82876 og 82896. Umsókn-
um skal skila til skrifstofu Sauðfjárveikivarna.
Sauðfjárveikivarnir
Rauðarárstíg 25
150 Reykjavík.
LEKUR ER HEDDIÐ
BLOKKIN? SPRUNGID?
Viögerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir - rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar geröir bifreiöa.
Viðhald og viögeröir á iönaöarvélum - járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110
Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra:
Er Garri ólæs?
Tímanum hcfur borist eftirfarandi
athugasemd frá Jóni Sigurðssyni,
viðskipta- og iðnaðarráðherra:
Þess eru dæmi, að menn hafi verið
læsir, en ekki skrifandi. Engin dæmi
þekki ég um hið gagnstæða fyrr en ég
las pistil huldumannsins Garra í
Tímanum hinn 23. ágúst s.l. undir
fyrirsögninni: „Nýr bílaskattur".
Þar er rætt um ákvæði frumvarps,
sem fjallar um meðferð brotamálma
og skilagjald af ökutækjum, en frum-
varpið kynnti ég á Alþingi á síðasta
vori og hef nú að nýju lagt það fyrir
ríkisstjórn og þingflokka hennar að
fengnum umsögnum ýmissa aðila.
Garri hefur væntanlega kynnst frum-
varpinu hjá þingflokki Framsóknar-
flokksins.
Frumvarpið er í meginatriðum
byggt á áliti nefndar, sem fyrrver-
andi iðnaðarráðherra skipaði hinn
18. nóvember 1987 og gera átti
tillögur um endurvinnslu nýtanlegra
úrgangsefna sem til falla hér á landi
og fyrirkomulag á söfnun þeirra.
Það er rétt í grein Garra, að gert
er ráð fyrir að innheimt verði sérstakt
endurvinnslu- og skilagjald af öku-
tækjum og að gjald af venjulegri
bifreið verði 10 þúsund krónur.
Síðan verði helmingur gjaldsins
endurgreiddur þegar bifreið er færð
á söfnunarstað og hún afskráð, en eftir
1. janúar 1995 verði % hlutar gjalds-
ins endurgreiddir.
Ástæðan fyrir þessari tilhögun er
sú, að ætlunin er að endurgreiða
gjaldið til eigenda allra ökutækja,
sem fyrir eru í landinu, þegar þeim
er skilað á söfnunarstað og þar með
einnig þeim, sem ekki hefur verið
innheimt skilagjald af, þegar þau
voru flutt til landsins. Er þetta gert
til þess að hvetja eigendur eða
umráðamenn ónýtra bíla, sem víða
liggja, til þess að skila þeim á
söfnunarstað. Endurgreiðslur verða
því í fyrstu fleiri en greiðslur frá
kaupendum nýrra bíla, en þegar
fram líða stundir mun hér komast
jafnvægi á.
Þá er gert ráð fyrir að heimilt sé
að greiða rekstraraðila söfnunar-
stöðvar styrk til að kosta flokkun og
endurvinnslu ónýtra ökutækja.
Það er alkunna, að víða um land
liggja bílflök og brotamálmar í
óhirðu. Hér er því um brýnt um-
hverfisverndunarmál að ræða. En
einnig er hér verið að stuðla að
uppbyggingu endurvinnsluiðnaðar á
íslandi, sem veitt getur atvinnu og
breytt úrgangi, sem menn hafa hing-
að til að mestu hent, í verðmæti.
Þá kem ég að ólæsi Garra. Hann
fullyrðir nefnilega í grein sinni, að
ætlunin sé að stofna „kratafyrirtæki"
með „krata“ sem forstöðumanni og
síðan er lagt út af þeim fullyrðingum
með stirðu geði. Þetta bendir til þess
að Garri sé ekki læs, þótt hann sé
skrifandi. Væri hann læs á frumvarp-
ið, hefði hann séð, að það er alls
ekki ætlunin að stofna fyrirtæki und-
ir handarjaðri ríkisins í þessu skyni
og afskiptum ráðherra af málinu
lýkur að mestu með lögfestingu
frumvarpsins.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
sveitarfélög reki söfnunarstöðvar
fyrir brotamálma ýmist ein sér eða í
samvinnu og að einkaaðilar geti
einnig komið slíkum stöðvum á fót.
Ónýtum ökutækjum og öðrum
brotamálmum verði safnað á þessar
stöðvar og síðan sjái þær um sölu á
brotamálunum til endurvinnslu
innanlands eða til útflutnings. And-
virði málmanna rennur til rekstrar
söfnunarstöðvanna.
Þá er gert ráð fyrir að komið verði
á fót sérstökum Endurvinnslusjóði.
Hlutverk hans er að stýra endur-
greiðslum á gjaldinu, sem lagt verð-
ur á ökutæki, en ekki verður þar um
neina varanlega sjóðmyndun að
ræða, þar eð reiknað er með því að
'tekjur sjóðsins fari jafnóðum í
endurgreiðslur og að einhverju leyti
til styrkveitinga til söfnunarstöðva.
Gert er ráð fyrir að stjórn sjóðsins
verði skipuð fimm mönnum og jafn-
mörgum til vara. Skulu tveir stjórn-
armanna skipaðir skv. tilnefningu
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
einn stjórnarmaður skv. tilnefningu
Félags ísl. iðnrekenda og einn
stjórnarmaður skv. tilnefningu Fé-
lags ísl. bifreiðaeigenda. Fimmti
stjórnarmaðurinn skal skipaður án
tilnefningar og yrði hann jafnframt
formaður stjórnarinnar.
Um þátt „krata“ í þessu stjórnar-
samstarfi skal fátt fullyrt fyrirfram,
en vissulega myndu afgreiðslur
stjórnarinnar bera merki jafnaðar-
stefnunnar, eftir að yfirgnæfandi
meirihluti þjóðarinnar hefur snúist
til fylgis við Alþýðuflokkinn eins og
vafalaust mun verða í framtíðinni.
Þrátt fyrir orð Garra um væna bitl-
inga verður að viðurkennast að
stjórnarmenn fengju þrátt fyrir at-
orku og viturlegar ákvarðanir seint
sambærileg stjórnarlaun við þau,
sem greidd hafa verið hjá verktökum
við varnarliðsframkvæmdir.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir að
samið verði við Bifreiðaskoðun fs-
lands hf. um að sjá um endurgreiðslu
endurvinnslu- og skilagjaldsins til
eigenda ökutækja um leið og þeir
framvísa vottorði frá söfnunarstöð
um afhendingu þeirra og bifreiðin er
afskráð. Að öðru leyti munu inn-
heimtumenn ríkissjóðs sjá um inn-
heimtu gjaldsins og viðeigandi ríkis-
stofnanir um varðveislu fjár, bók-
hald og endurskoðun.
f stuttu máli er gert ráð fyrir afar
einföldu og skilvirku fyrirkomulagi
til þess að hreinsa landið af þeim
ófögnuði sem bílhræ og brotamálm-
ar eru allt of víða. Nöldurskrif Garra
eru algjörlega tilefnislaus.
Að lokum vil ég geta þess að vinir
mínir og samstarfsmenn hafa reynt
að finna aðrar skýringar á skrifum
Garra en ólæsi og andúð á umhverf-
isvernd, en ekki tekist. Sjálfur vona
ég að Garri skýri málið, þótt síðar
verði, því hvorugt vil ég eigna hon-
um fyrr en fullreynt er.
Grundarkjör kaupir lager þrotabús Kjöt-
kaupa í Hafnarfirði:
Grundarkjör í
Hafnarfirði
í gær opnaði ný verslun í Hafnar-
firði. Það er Grundarkjör sem hefur
keypt verslunina Kjötkaup eða
Kostakjör eins og hún hét áður.
Afskipti bæjarfógetaembættisins í
Hafnarfirði hafa verið mikil af þeim
verslunum sem reknar hafa verið á
þessum stað. Það er von manna þar
á bæ að þeim afskiptum linni með
nýjum eigendum.
Mikið hefur verið um eigenda-
skipti á þessari verslun á undanförn-
um árum. Eftir að Kostakaup var
tekið til gjaldþrotaskipta seldi fyrir-
tæki að nafni Hagskipti h/f Kjöt-
kaupum h/f verslunina á kaupleigu-
samningi. Kjötkaup varð gjaldþrota
eftir fárra mánaða rekstur. Ástæða
gjaldþrotsins var að söluskatti var
ekki skilað. Lagerinn var eina eign
þrotabús Kjötkaupa. Verið er að
ganga frá samningum milli búsins og
Jens Ólafssonar hjá Grundarkaup-
um um hann.
Grundarkaup sem nú hefur versl-
un í Hafnarfirði rekur fyrir tvær
verslanir á Reykjavíkursvæðinu.
-EÓ
Elísabet í opin-
bera heimsókn
í tilkynningu frá embætti forseta
segir að Elísabet II. og maður
hennar, Philip prins, hafi þekkst boð
frú Vigdísar Finnbogadóttur, um að
koma í opinbera heimsókn.
Þau hjón munu heiðra landið með
nærveru sinni í júní á næsta ári.
Frekari línur hafa ekki verið lagðar
að dagskrá heimsóknarinnar, enn
sem komið er. JBG.
Lafontaine til íslands:
Kanslaraefni
í boði krata
Alþýðuflokksmenn munu fagna
góðum gesti dagana 27.-30. ágúst
nk., er Oskar Lafontaine, for-
sætisráðherra Saar-lands og vara-
formaður þýskra jafnaðarmanna,
sækir þá heim.
Ferill Lafontaines í þýskum
stjórnmálum hefur verið óvenju
glæsilegur. Þessi 46 ára gamli
eðlisfræðingur sagði fljótlega
skilið við fræði sín og hóf afskipti
af stjórnmálum. Hann varð borg-
arstjóri í Saarbrucken 1974 og
hófst þaðan til embættis forsætis-
ráðherra Saarlands, 11 árum
síðar. 1987 varð hann varafor-
maður þýska jafnaðarmanna-
flokksins og er talinn líklegur
sem kanslaraefni flokksins í
næstu kosningum.
Á heimavelli hefur Lafontaine
beitt sér fyrir auknum markaðs-
búskap, endurskoðun skattakerf-
is, sveigjanlegri vinnutíma og
auknum barnabótum, svo eitt-
hvað sé nefnt. Frægastur er hann
þó líklega fyrir hugmyndir sínar
um ráðstafanir gegn atvinnuleysi
með styttingu vinnuviku í 35
stundir, án þess þó að þeir, er
mest bæru úr býtum, fengju
kjaraskerðingu sína að fullu
bætta. Þá hafa kenningar hans
um nauðsyn aðlögunar jafnaðar-
stefnunnar að breyttum tímum
vakið athygli. JBG.