Tíminn - 25.08.1989, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.08.1989, Blaðsíða 9
8 Tíminn Föstudagur 25. ágúst 1989 Föstudagur 25. ágúst 1989 Tíminn 9 ‘ Bændur og sláturleyfishafar óttast að kjöt af nýslátruðu fari beint í frystigeymsl- urnar og mikils framboðs af ódýru kjöti: Útsölukjöt mettar nú markaðinn rétt fyrir sláturtíð Eftir Egil Ólafsson Margir bændur og sláturleyfis-hafar eru óánægöir meö að efnt skuli til útsölu á kindakjöti svo skömmu fyrir sláturtíð. Nær væri að hafa hana fyrr á árinu. Sumir sláturleyfishafar segja tilgangslaust sé að vera með sumarslátrun því fólk vilji ekki kaupa annað en útsölukjöt. Útsalan á einnig eftir að hafa áhrif á sölu þegar slátrun hefst fyrir alvöru um miðjan september því víða munu frystikistur vera fullar af gömlu kjöti. Það verður alltaf að klára það gamla fyrst „Manni dettur í hug sagan af Ösku- Láka sem Halldór Laxness segir frá í Innansveitarkróniku,“ sagði einn bóndi í samtali við Tímann. „Ósku-Láki var ákaflega sparsamur og kláraði alltaf gamla brauðið áður en hann byrjaði á því nýja. Á hans heimili var því aldrei borðað annað en gamalt og myglað brauð.“ Nokkurrar óvissu gætir um hvernig gengur að selja það kjöt sem er að koma á markað vegna söluátaks á eldra kjöti sem nú stendur yfir. Margir bændur og sláturleyfishafar eru óánægðir með hve þessi útsala er seint á ferðinni. Hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri verður engin sumarslátrun en þar hefur stundum verið byrjað að slátra í ágúst. í fyrra var þrisvar sinnum slátrað í þeim mánuði en kjötið seldist hægt og að endingu varð að frysta hluta af því. Óli Valdimarsson sláturhússtjóri hjá KEA sagði þýðingar- laust að vera að bjóða fólki kjöt sem sé allmiklu dýrara en það útsölukjöt sem í boði er. Fólk meti meira verð gamla kjötsins en bragðgæði þess nýja. Óli sagði að útsalan sem nú stendur yfir hefði haft áhrif á sölu á unnum vörum úr kindakjöti t.d. hefði sala á hangikjöti minnkað um helming í síðasta mánuði. Guðjón Guðjónsson hjá Sláturfélagi Suðurlands sagði að það gengi sæmilega að selja nýja kjötið. Ekki væri þó hægt að segja að það væri rifið út líkt og ætti sér stað með kjötið á tilboðsverðinu. Illa staðið að útsölunni Nokkurrar gagnrýni gætir hjá slátur- hússtjórum á framkvæmd útsölunnar. Þegar loksins var búið að ákveða að fara af stað með hana þurfti allt að gerast með svo miklum hraða að sláturhúsunum var ekki gefinn tími til að undirbúa söluna. Umbúðir og merkimiðar bárust ekki til þeirra fyrir en deginum áður eða jafnvel sama dag og útsalan átti að byrja. Starfs- fólk sláturhúsanna varð að vinna yfir- vinnu við að saga niður og pakka kjöti. Vel hefur hins vegar verið staðið að málum eftir að útsalan komst í gang og mjög góð sala hefur verið í kjötinu. Sú spurning hlýtur að vakna af hverju ekki var hægt að taka ákvörðun um útsölu mörgum mánuðum fyrr svo að hægt væri að gefa sér tíma til að undirbúa hana. í ár var þessi ákvörðun ekki tekin fyrr en í lok júní. Þá vöknuðu stjórnvöld upp við þá staðreynd að í óefni stefndi með birgðir á kindakjöti. „Menn hugsa dæmið alltaf of seint,“ sagði Jóhannes Kristjánsson formaður náð þeim tvíþætta tilgangi sem þau stefndu að en hann var að minnka birgðir og að bjóða neytendum upp á ódýrt kjöt. og ferskt kjöt. Þar með fari fólk á mis við bragðgæði nýja kjötsins en viðurkennt er að kjöt tapar nokkuð af bragðgæðum við frystingu og geymslu. Landssamband sauðfjárbænda lét SKÁÍS gera könnun meðal neytenda til að kanna hvort fólk neyti kjötsins strax eða setji það í geymslu. Niðurstaðan varð að flest fólk neyti þess strax. Sumir telja þó frampart- arnir, sem nú er verið að hefja sölu á, fari beint í frystikisturnar. Einnig að fólk dragi eitthvað að fá sér meira lambakjöt eftir að hafa borðað það í marga mata undanfarnar vikur. Ekki er heldur ólík- legt að hækkunin á nýja kjötinu sé enn meira áberandi þegar fólk er búið að vera að kaupa kjöt á tilboðsverði. Nýja kjötið er 10% hærra en skráð verð á kjöti frá því í fyrra en 27% hærra en útsölukjötið. Hjá Afurðasölu Sambandsins fengust þau svör að útsalan í ár væri mánuði fyrr á ferðinni en venjulega. Afurðasalan hefði snemma í vor bent ríkisvaldinu á hvert stefndi með birgðir en engin við- brögð hefðu orðið frá því fyrr en í júlí. Slátrun er hafin hjá þremur sláturhúsum Slátrun er nú hafin á þremur stöðum á landinu. í Borgarnesi var á þriðjudag slátrað 48 lömbum frá tilraunabúi ríkisins að Hesti í Andakílsárhrepp. Meðalvigt var 12,4 kíló sem er tveimur kílóum minna en var í síðustu sláturtíð. Kjötið verður sett á markað í Borgarnesi, Akra- nesi og Reykjavík. Ekki verður slátrað meira hjá KB fyrr en á þriðjudaginn í næstu viku nema að kjötið seljist hraðar en menn eiga von á. Hefðbundin slátrun hefst í Borgarnesi um miðjan september. Á þriðjudaginn í síðustu viku var slátrað um 160 lömbum hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli. Meðalvigt var 13 kíló. Á síðasta þriðjudag var slátrað þar 100 lömbum og var meðalvigt 14,4 kíló. Búvörudeild Sambandsins sér um að koma kjötinu á markað í Reykjavík. Slátrun er einnig hafin hjá sláturhúsinu Ferskar afurðir á Hvammstanga. Þar mun vera búið að slátra um 150 lömbum. Ferskar afurðir er fyrirtæki sem reist er á rústum þrotabús Verslunar Sigurðar Pálmasonar. Verð á kjötinu er um 10% hærra en skráð verð á dilkakjöti frá því í fyrra. Bændur telja sig þurfa að fá þetta hátt verð því þeir eru að farga lömbum sem gætu þyngjast mikið ef dregið væri að farga þeim. Útsalan gengur mjög vel og birgðir verða iitlar Nú lítur út fyrir að birgðir af kindakjöti verði um 2000 tonn 1. september þegar útsölunni líkur. Þetta er um 500 tonnum minna en á sama tíma í fyrra. Birgðir af fyrsta flokks dilkakjöti verða um 800-900 tonn en 1000-1200 tonn eru ærkjöt og mjög feitt kjöt. Ærkjötið fer að mestu í hakk og vinnslu. Það er gömul saga og ný að illa gangi að koma því út. Það verður ekki annað sagt en að salan hafi gengið vel. Búið er að selja milli 800-900 tonn. Stjórnvöld virðast því hafa Staðið verður betur að málum í framtíðinni Viðmælendur Tímans voru sammála um að það væri ríkisvaldinu að kenna að útsalan væri svo seint á ferðinni. Von er þó til þess að nú séu menn loksins búnir að læra af reynslunni og betur verði staðið að málum í framtíðinni. Búið er að stofna nefnd sem á að sjá um að selja lambakjöt í vetur. í nefndinni sitja full- trúar frá fjármálaráðuneyti, landbúnað- arráðuneyti, Stéttarsambandi bænda, Landssambandi sauðfjárbænda og afurðasölu samtökum. Líkur eru á að á næsta ári verði fjórar útsölur. Gert verður sérstakt átak í sölu fljótlega eftir slátur- tíð. Vera kann að neytendur fari þá að læra að kaupa nýtt og ljúffengt lamba- kjöt. Því eins og sælkera vita er fátt betra á bragðið en lambakjöt af nýslátruðu. Landssamtaka sauðfjárbænda. „Auðvit- að ættu þessi tilboð að vera strax í upphafi sláturtíðar. Við höfum margsinn- is ályktað um að reyna að selja sem allra mest af kjöti strax en að vera ekki að geyma það og hlaða á það kostnað fram á haust. Verðlagning á kjötinu er bundin í lögum og við eigum þvf erfitt með að gera neitt sjálfir. Það er ekki fyrr en stjórnvöld taka sínar ákvarðanir sem hægt er að gera svona. Það er aftur á móti annað mál að júlímánuður er að mörgu leiti hentugur tími því þá grillar fólk meira en í öðrum mánuðum. Það þyrfti einnig að gera átak í sölu að vetrinum. Vonandi ná menn betri tökum á þessu í framtíðinni.“ Fólk hamstrar ársgamalt kjöt Margoft hefur verið bent á að rangt sé að vera með kjötútsölur svo skömmu fyrif sláturtíð. Fólk fylli frystigeymslur sínar af gömlu kjöti og en kaupi ekki nýtt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.