Tíminn - 01.09.1989, Blaðsíða 13

Tíminn - 01.09.1989, Blaðsíða 13
Föstudagur 1. september 1989 GLETTUR - Bílasalinn ætlar aö endurgreiða okkur 2500 krónur vegna gallaöa öryggisbeltisins - Já auðvitað getur verið að þú heyrir í einhverjum á neðri hæðinni, ... við búum í blokk, bjáninn þinn - Það er svo leiðinlegt þegar snjór er yfir öllu, þá sýnist þvotturinn vera grár - Viltu gjöra svo vel að skrúfa vel frá krananum... - Þegar ég flauta einu sinni, þá á Hallgrímur að koma hlaup- andi, en þegar ég flauta tvisvar þá átt þú, Ingimundur, að koma Tíminn 13 „Spámenn“ í Banda- ríkjunum spá fyrir síðustu mánuði 1989 - Kínamúrinn hrynur, Jane Fonda verður ástfangin af varaforseta Bandaríkjanna og fleiri stórtíðindum er spáð! Ekki eru eftir nema fjórir mánuðir af árinu 1989, en hér kemur smáúrdráttur úr spá- dómum sem gilda eiga fyrir seinni hluta þessa árs og er vitnað til ýmissa af „stærri spámönnunum" í Bandaríkj- unum. Spádómurinn í heild birtist í þekktu vikublaði, sem er kannski ekki álitið tryggasti boðberi sannleik- ans, en hvað um það, sumir hafa gaman af slíkum spá- dómsleikjum. Spáfólkið er nafngreint og greint frá fyrri spádómum þeirra sem hafi kömið fram, svo sem Bcverly Jaegers frá St. Louis, sem hefur leikið sér að því að spá fyrir fjár- málamenn í kauphallarvið- skiptum, Lou Wright í Kínamúrinn stórskemmist af völdum jarðskjálfta Denver, sem sá fyrir árásina á Jóhannes Pál páfa II, Flor- ida-stjörnuspámaðurinn sem sagði fyrir um flugslysið, þeg- ar DC-8 þota fórst og með henni 256 manns o.fl. slíkir spáspekingar. Atburðir síðustu mán- aðaársins1989sem „spámennirnir“ segjast sjá fyrir Það er mikið um það að þetta fólk láti frá sér ýmsar forspár um heimsþekktar persónur, og sumt virðist vera heldur fáfengilegt. T.d. að hin feita og fyrirferðarmikla leikkona Roseanne muni næstum kafna vegna þess að það standi svo í henni brauð- samloka, en John Goodman, „eiginmaður“ hennar í sjón- varpsþáttunum, bjargi henni, því hann hafi lært hjálp í viðlögum. Einnig segir í spádómun- um, að það veki mikla eftir- tekt í Bandaríkjunum þegar Jane Fonda og Dan Quayle varaforseti fara að sjást mikið saman. Hann neiti því að samband þeirra sé alvarlegt, en hún lýsi því yfir að hún sé ástfangin af Quayle! Ein spákonan segir, að Ted Kennedy verði fyrir því að afbrýðisamur eiginmaður, Sagt er að nú loksins á síðustu mánuðum ársins komi fram nýjar sannanir um að dauði Marilyn Monroe hafi verið af mannavöldum Roseanne nærri kafnar við að borða samloku, en „sjón- varps-eiginmaður“ hennar bjargar henni sem var fyrrv. fótboltakappi, berji hann til óbóta. Svo er sagt að það komi svo harður jarðskjálfti í Kína, að hinn forni Kínamúr hrynji á kafla, og hvirfilvindur gangi yfir New Orleans og flóð- bylgja skelli yfir, en ekki verþi mikið manntjón. Talið að þrír drukkni, en óhemju- legar skemmdir verði í hinum gamla hluta borgarinnar. Hvort einhver tekur þessi skrif alvarlega er ekki gott að segja, en blöðin borga víst spáfólkinu mikla peninga fyr- ir birtingu á forspám þeirra. Einn spámaðurinn spáir miklu umtali um leikkonuna Jane Fonda og varaforseta Bandaríkjanna, Dan Quayle

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.