Tíminn - 01.09.1989, Blaðsíða 15

Tíminn - 01.09.1989, Blaðsíða 15
Föstudagur'1. september 1989 Tíminn 15 .................. ............. 1 .............' ............................1 i'iiiiiiiiiiiiiiii.! :n;iiiiiiiiiniiii' • ..................................... ............. .................................... aiiiiiiiiiii/T!ii!iiiiiiiiii:n Handknattleikur: Kanar í heimsókn - A-Þjóðverjar koma í næstu viku Bandaríska landsliðið í hand- knattleik leikur um helgina landsleik gegn liði íslands, en bandaríska liðið mun dvelja í tvær vikur hér á landi við æfingar og keppni. Leikurinn verður á sunnudag í hinu nýja íþróttahúsi á Seltjarnar- nesi kl. 20.00. Þetta verður í fyrsta sinn sem landsleikur fer fram í húsinu. í næstu viku leikur bandaríska liðið þrjá leiki gegn íslenska ungl- ingalandsliðinu U-21 árs, en liðið býr sig nú undir úrslitakeppni heims- meistaramótsins á Spáni. Á mánu- dag verður leikið í íþróttahúsinu á Keflavíkurflugvelii íd. 20.00 en bandaríska liðið mun dveljast á vellinum og æfa í íþróttahúsinu þar. Á þriðjudag leika liðin í Digranesi kl. 20.00 og á fimmtudag verður leikið í fyrsta sinn í nýja íþróttahús- inu í Garðabæ kl. 18.00. Sá leikur verður forleikur að landsleik íslendinga og A-Þjóð- verja. Daginn áður leika A-Þjóð- verjar fyrri leik sinn í heimsókninni á Akureyri kl. 20.00. Landsliðshópurinn fyrir þessa leiki er þannig skipaður: Knattspyrna: Ólafur og Kristinn með gegn Finnum - sem eldri leikmenn Á þriðjudaginn kemur Ieika fslendingar gegn Finnum í undankeppni Evrópumóts landsliða 21 árs og yngri. Leikurinn fer fram á Akureyr- arvelli og hefst Id. 19.00. Guðni Kjartansson þjálfari liðsins hefur valið eftirtalda leikmenn til þátttöku ■ leikn- um. Markverðir: Ólafur Gottskálksson . . . í A Adólf Óskarsson......ÍBV Aðrir leikmenn: Einar Páll Tómasson . . Val Steinar Adólfsson .... Val Eyjólfur Sverrisson . UMFT Alexander Högnason . . . f A Haraldur Ingólfsson . . . . f A Kjartan Einarsson .... ÍBK Baldur Bjarnason . . . Fylki Þórhallur Víkingsson . . FH Ólafur Kristjánsson . . . FH Þorsteinn Halldórsson . KR Heimir Guðjónsson . . . KR Jóhann Lapas.......... KR Ólafur Þórðarson . . Brann Kristinn R. Jónsson . . Fram BL Knattspyma: Forsala á HM - leikinn Forsala aðgöngumiða á landsleik íslendinga og A- Þjóðverja í undankeppni HM í knattspyrnu, sem leikin verður á Laugardalsvelli á miðvikudag kl. 18.00 hefst í dag. Selt verður í dag í Austur- stræti og Kringlunni kl. 12-19. Á morgun verður selt í Kringl- unni kl. 10-16 og á mánudag og þriðjudag í Austurstræti og á Laugardalsvelii kl. 12-18. Á miðvikudag verða miðar seldir frá kl. 11 á Laugardalsvelli. Sú nýbreytni hefur verið tek- in upp að fólk utan af landi getur pantað miða í síma 91- 84444 á sunnudaginn Id. 14-19. Sækja verður pantanir fyrir lok forsölu kl. 18 á þriðjudag. Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson . . . FH Hrafn Margeirsson.......Víkingi Gísli Felix Bjarnason ...... KR Aðrir leikmenn: Guðmundur Guðmundss. . Víkingi Bjarki Sigurðsson ......Vfiringi Jakob Sigurðsson ............Val Valdimar Grímsson............Val Þorgils Óttar Mathiesen .... FH Geir Sveinsson.......Granollers Birgir Sigurðsson.......Vflringi Skúli Gunnsteinsson . . Stjömunni Gunnar Gunnarsson........Ystad Brynjar Harðarson ...........Val Jón Kristjánsson.............Val Kristján Arason ............Teka Alfreð Gíslason..........Bidasoa Atli Hilmarsson .... Granollers Óskar Ármannsson .............FH Guðjón Árnason................FH Gunnar Beinteinsson...........FH Margt smátt Brussel. BelgarogHollendingar hafa í hyggju að sækja sameiginiega um að fá að halda úrslitakeppni Evrópumóts landsliða 1998. Gert er ráð fyrir að keppnin verði haldin í 5 belgískum og 5 hollenskum borgum. Búist er við því að formleg umsókn verði lögð fram á næsta ári. San Juan, Puerto ríco. ai- þjóðaólympíunefndin fundar þessa dagana í Puerto Rico. Lyfjamál eru mjög ofarlega á baugi á fundinum og komið hefur fram að nauðsynlegt sé að ný alþjóðareglugerð um lyfjamál verði samin. Þá hefur það einnig komið fram á fundinum að Peking, höfuðborg Kína mun á næsta ári sækja um að fá að halda Ólympíu- leikana árið 2000. Þá hefur og komið fram að borgaryfirvöld í Berlín hafa sýnt því áhuga að haldá leikana árið 2004. Viðræður standa yfir milli yfirvalda í vestur og austurhluta borgarinnar um sameiginlega um- sókn um leikana. Boston. Evrópubikarmeistarar Jugoplastika í körfuknattleik hafa höfðað mál gegn NB A-liðinu Boston Celtics, fyrir að bera víurnar í lands- liðsmanninn Dino Radja. Radja sem enn er samningsbundinn júgóslavn- eska liðinu, hefur gert eins árs samning við Celtics. New York. Þrettán leikmenn í bandarísku NFL atvinnumanna- deildinni í fótbolta, hafa verið dæmdir í eins mánaðar leikbann fyrir notkun stera lyfja. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem bandarísk atvinnumannadeild refsar leikmönn- um fyrir notkun steralyfja. Samtök leikmanna í NFL- deildinni fóru fram á lögbann á þessar aðgerðir, en beiðni þeirra var hafnað. ÍSÍ með námskeið Fræðslunefnd ÍSÍ mun í septem- ber standa fyrir leiðbeinanda og fræðslunámskeiðum. 1.-3. september verður haldið námskeið þar sem Grunnstig ÍSÍ verður kennt. Kennarar verða Olga Lísa Garðarsdóttir og Anton Bjamason. A-stig ÍSÍ, samræmdur bóklegur hluti verður námsefnið á námskeiði helgina 16.-17. september. Aðal- kennari á því námskeiði verður Guð- mundur Ólafsson íþróttakennari. Námskeið fyrir byrjendur í íþróttasálarfræði verður haldið 29. september til 1. október. Kennari verður dr. A. Morgan Olsen prófess- or við íþróttháskóla Noregs. Skrán- ing og nánari upplýsingar fást á skrifstofu ÍSÍ. 1x2 1x2 1x2 1x2 1x2 Get-raunir!!! Enginn var með 12 rétta í 34. leikviku getrauna um síðustu helgi. Þar að auki voru aðeins 2 með 11 rétta. Þeir fengu hvor í sinn hlut 56.747 kr. Fyrsti vinningur 264.839 kr. bætast því við 1. vinning nú um helgina og verður potturinn því tvöfaldur. Úrsiitin um síðustu helgi voru nokkuð óvenjuleg fyrir þær sakir að jafnteflin fleiri en gengur og gerist. Fjórir heimasigrar, sjö jafntefli og einn útisigur er skipting sem ekki sést um hverja helgi. Þegar skipting getrauna- merkjanna er á þessa lund er varla von á því að nokkur nái 12 réttum. Hópleikur getrauna ligg- ur niðri um þessar mundir. Millibilsástand rfkir nú, þar sem nýr hópleikur hefst 9. september. Fjölmiðla- keppnin liggur einnig niðri, en nýr leikur hefst einnig þann 9. september. Tveir nýir miðlar taka þátt í fjöl- miðlakeppninni í vetur, Al- þýðublaðið og Hljóðbylgj- an á Akureyri. Fylkir var söluhæsta fé- lagið í síðustu viku með 9,857% áheita, Fram kom næst með 8,256% og KR hafði 6,547%. Leikimir á seðlinum um helgina, sem mun vera 35. leikvika, em úr 2. deild ensku knattspyrnunnar og 1. deildinni hér á Fróni. Sölukerfið lokar kl. 13.55 á laugardag. 11 Valur-Þór: 1 Með nýjan þjálfara mæta Valsmenn galvaskir til leiks og þrátt fyrir mikla baráttu Þórsara fyrir stigi í botnbar- áttunni þá reynast Vals- menn sterkari aðilinn. Kefiavík-Vflringur: 2 Þjálfari Keflvíkinga hefur einnig látið af störfum. Staða liðsins er vonlítil og lánið er ekki með þeim í þessum leik. Víkingar hirða öll stigin. FH-Akranes: x FH-ingar töpuðu stórt fyrir Skagamönnum f Krikanum í bikarkeppninni og sú út- reið verður þeim ofarlega í 1 huga í þessum leik. Þeir ná þó aðeins jafntefli gegn frískum Skagamönnum. KA-Fylkir: 1 | Lið KA stendur best að vígi í efsta sæti 1. deildar. Margt bendir til þess að liðið kræki í sinn fyrsta íslandsmeist- aratitil í sumar og Fylkis- menn verða þeim ekki til trafala. Minnugir fyrri leiks liðanna mæta KA-menn mjög ákveðnir til leiks. Bradford-Portsmouth: 1 Leikmenn Bradford verða að teljast mun sigurstrang- legri aðilinn í þessum leik og ekki skemmir heima- völlurinn fyrir. Brighton-Port Vale: 1 Öruggur heimasigur í þess-. um leik, þar sem nýliðarnir í 2. deild reyna að krækja í dýrmæt stig, en liðið hefur það ekki að sigra á útivelli það sem af er deildarkeppn- innar. Hull-West Ham: x West Ham verður í topp- baráttu í 2. deild í vetur, svo mikið er víst. Þeir ná þó aðeins einu stigi gegn Hull á útivelli. Ipswich-Bournemouth: 1 Sömu sögu er að segja um Ipswich og West Ham. Lið- ið verður í toppbaráttunni í vetur, en lið Bournemouth kann mun betur við sig á heimavelli en úti og það gegn svo sterku liði. Middlesbr.-Sheff. Utd.: x Lið Sheffield er sterkt um þessar mundir og líklegt til þess að blanda sér í barátt- una um 1. deildarsæti. Middlesboro liðið er hins vegar sterkt á heimavelli og því er jafntefli ekki svo fjarri lagi. Stoke-Leeds: 1 Þrátt fyrir nýja leikmenn hefur lið Leeds ekki náð að standa undir þeim vonum sem til liðsins voru gerðar. Ósigur gegn Stoke verður ekki til þess að bæta úr skák. Watford-Leicester: 1 Öruggur sigur hjá Watford í þessum leik. Liðið hefur staðið sig vel það sem af er og Leicester-liðið sem vænt- anlega mun sætta sig við jafntefli í leiknum, heldur heim á leið án stiga. WBA-Sunderland: 2 Lið WBA er neðst í 2. deild með 1 stig úr þremur leikj- um. Liðið var nálægt því að tryggja sér 1. deildarsæti í vor, en brást á örlaga- stundu. Er WBA nú á leið niður í 3. deild, eða Sunder- land á leið upp í 1. deild. FJÖLMIÐL ASPÁ iá'E-ite.iíi áEiKJ&r fmis 1 ' 1 LEIKIR 2. SEPT. ’89 ~l co 2 > Q Z Z 2 F Z 3 1 2 [ DAGUR e Q. tt •=J </} 2 œ 9 M 1 z < z CL 1 SAVTALS | 1 X 7? 1 Valur - Þór 1 1 1 1 X i 1 1 1 8 1 o i 'if Keflavík - Víkingur 2 1 2 2 1 X 2 X 2 2 2 51 Í F.H. - Akranes 1 1 X 1 X 1 2 1 2 5 2 'í; p K.A. - Fylkir 1 1 1 1 1 1 1 1 1 9 0 0 f i Bradford - Portsmouth 2 1 1 2 X 1 1 1 1 5 2 2 íj 1 Brighton - Port Vale X 1 1 1 1 1 1 1 1 8 1 - * o S | Hull - West Ham 2 2 X 2 2 2 2 X 2 0 2 7 í | Ipswich - Bournemouth 1 1 I? 1 1 1 1 1 1 9 0 0 P 1 Middlesbro - Sheff. Utd. 2 1 X 1 X 2 1 X 2 3 3 3 :i: i Stoke - Leeds 2 2 1 2 2 2 11X 2 2 1 6 ii 1 Watford - Leícester 1 1 1 1 1 2 7[T X 7 1 1 \ 1 W.B.A, - Sunderland 1 Li 2 X 1 7 11 1 7 1 7 Betra seint en aldrei Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig að flauta leik Einherja og Vest- mannaeyja á. Upphaflega átti leikurinn að leikast laugardaginn 15. júlí. Að ósk liðanna var hann færður fram á föstudaginn 14. En svo illa vildi til að Vestmannaeyingar kom- ust ekki til Vopnafjarðar vegna veðurs í Eyjum. Þá var reynt þann 15. en ekki gekk það og heldur ekki þann 16. Þá var brugðið á það ráð að fresta leiknum allt til 29. ágúst. En, viti menn, auðvitað var ófært sem fyrr og var það mál manna að leikur þessi ætti alls ekki að fara fram og var leiknum frestað um einn dag og þá settur á klukkan 18.00 vegna birtuskilyrða. Upp rann 30. dagur ágústmánaðar og skein sól glatt í heiði og Vest- mannaeyingar flugu vígreifir ásamt stuðningsmönnum til Vopnafjarðar. En kálið var ekki sopið þó í ausuna væri komið. Dómaratríóið átti flug klukkan 15.30 sem þótti svona í síðasta lagi vegna ldhgdar flugs. Þegar ganga átti um borð kom í ljós að flugvél þeirra var í lamasessi vegna bilunar og engin vél fékkst í staðinn. Eftir mikla hvatningu frá dómurum leiksins var vélinni tjaslað saman og flogið af stað kl. 17.00 og klukkan 18.40 sagði Egill Már Mark- ússon dómari ieiksins „ Betra seint en aldrei" og flautaði leikinn á. Sparkarar áferð og flugi Næstkomandi keppnistímabil mun keppnisfyrirkomulagi 3. deildar í knattspyrnu verða breytt. í stað tveggja riðla, suðvestur og norðaust- ur, eins og nú er, mun aðeins verða einn riðill með tíu lið innbyrðis. Nú þegar lítið er eftir af íslandsmótinu í knattspyrnu er mjög farið að skýr- ast hvað lið munu skipa hina nýju 3. deild og er niðurstaðan mjög athygl- isverð. Að öllum líkindum verða aðeins þrjú lið frá suðvesturhorni landsins og afgangurinn dreifður um allt land. Ef við lítum á liðin, þá mun deildin líta út sem hér segir: Af suðvesturhominu koma Haukar úr Hafnarfirði, sem koma upp úr fjórðu deild, Þróttur Reykjavík, sem sigldi lygnan sjó í þriðju deild a-riðli og lið ÍK úr kópavogi, sem að öllu óbreyttu tapar baráttunni um 2. deildar sæti fyrir Grindavík. Þá munu í nýrri 3. deild sitja núverandi 3. deildar lið, BÍ frá ísafirði, sem var í a-riðli deildarinnar, Þróttur Neskaupstað, Dalvík og Reynir Árskógsströnd, sem öll vom í b-riðlinum. Þá kemur Akureyrarliðið TBA úr 4. deild. Þá em aðeins eftir þau lið sem falla úr 2. deild en það verða enn ein landsbyggðarliðin, Völsungur frá Húsavík og Einherji frá Vopnafirði. Á þessu má sjá að deildin verður örugglega sú dýrasta á næstkomandi sumri, óteljandi flugferðir fýrir liðin, og að ógleymdum kostnaði við dóm- gæslu og ekki ólíklegt að kostnaður- inn muni ríða einhverjum félögum að fullu, ekki síst þar sem áhorfenda- fjöldi er hverfandi. Með fyrirvara verður 3. deildin sem hér segir árið 1990: ÍK, Haukar, TBA, Reynir Árskógs- strönd, ÞrótturNeskaupsstað, Þrótt- ur Rvík. BÍ, Völsungur, Einherji Dalvík.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.