Tíminn - 14.09.1989, Page 1
Forsætisráðherra telur að takast megi að takmarka kindakjötshækkunina við 7% og sölu-
skatt af mjólkurhækkuninni um mánaðamotin á að nota til að lækka verð a mjólkurvörum:
Stjórnin hemur
hækkun matvöru
Steingrímur Hermannsson hefur svarað fyrirspurnum verkalýðs-
hreyfingarinnar um hvað líði efndum loforða sem gefin voru í
tengslum við síðustu kjarasamninga. Þar kemur meðal annars fram
að í verðlagsmálum hefur ríkisstjórnin gert sitt og vel það. Hvað
varðar hækkun á mjólkurvörum og kjöti sérstaklega er nú unnið að
því að draga úr þeim hækkunum, þó verðlagning á þessum vörum
sé ekki ríkisstjórnarákvörðun. Fyrirsjáanlegt var að verð á dilkakjöti
myndi hækka um talsvert á annan tug prósenta á næstunni en
Steingrímur segir að eftir viðræður hans og landbúnaðarráðherra við
forystumenn bænda standi vonir til að hækkunin verði mun minni,
jafnvel innan við 7%. Þá hefur verið ákveðið að verja þeirri hækkun
söluskattstekna sem kom til vegna hækkunar á mjólkurvörum um
síðustu mánaðamót til að greiða þær niður. £ Baksíða
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra
Harðar deilur vegna hugmynda um nýja heilbrigðisstétt:
Heilsuliðar auki
afköst hjá læknum
Sjúkraliðar leggjast gegn því
að ófaglærð stétt heilsuliða,
sem yrðu nýliðar í hópi heil-
brigðisstétta, taki upp störf á
heilsugæslustöðvum. Segja
sjúkraliðar að þeir geti ann-
ast þau störf sem heilsulið-
um eru ætluð, en sú nýja
stétt á m.a. að vera læknum
innan handar til að auka af-
köst þeirra. Sjúkraliðar vinna
hins vegar undir stjórn
hjúkrunarfræðinga, auk
þess sem ekki er í lögum
gert ráð fyrir sjúkraliðum á
heilsugæslustöðvum.
• Blaðsíða 5
Flókið kerfí verkaskiptingar er í gildi meðal heilbrigðisstéttanna og er deilt
um hvernig ný hellbrigðlsstétt kæmi inn f þá verkaskiptingu.
Sambandið sendir bankayfirvöldum
bréfvegna lausmælgi Lúðvíks:
Krafa
umað
lögin
verði
látin
gilda
W • Blaðsíða 5
■