Tíminn - 14.09.1989, Síða 1

Tíminn - 14.09.1989, Síða 1
Forsætisráðherra telur að takast megi að takmarka kindakjötshækkunina við 7% og sölu- skatt af mjólkurhækkuninni um mánaðamotin á að nota til að lækka verð a mjólkurvörum: Stjórnin hemur hækkun matvöru Steingrímur Hermannsson hefur svarað fyrirspurnum verkalýðs- hreyfingarinnar um hvað líði efndum loforða sem gefin voru í tengslum við síðustu kjarasamninga. Þar kemur meðal annars fram að í verðlagsmálum hefur ríkisstjórnin gert sitt og vel það. Hvað varðar hækkun á mjólkurvörum og kjöti sérstaklega er nú unnið að því að draga úr þeim hækkunum, þó verðlagning á þessum vörum sé ekki ríkisstjórnarákvörðun. Fyrirsjáanlegt var að verð á dilkakjöti myndi hækka um talsvert á annan tug prósenta á næstunni en Steingrímur segir að eftir viðræður hans og landbúnaðarráðherra við forystumenn bænda standi vonir til að hækkunin verði mun minni, jafnvel innan við 7%. Þá hefur verið ákveðið að verja þeirri hækkun söluskattstekna sem kom til vegna hækkunar á mjólkurvörum um síðustu mánaðamót til að greiða þær niður. £ Baksíða Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra Harðar deilur vegna hugmynda um nýja heilbrigðisstétt: Heilsuliðar auki afköst hjá læknum Sjúkraliðar leggjast gegn því að ófaglærð stétt heilsuliða, sem yrðu nýliðar í hópi heil- brigðisstétta, taki upp störf á heilsugæslustöðvum. Segja sjúkraliðar að þeir geti ann- ast þau störf sem heilsulið- um eru ætluð, en sú nýja stétt á m.a. að vera læknum innan handar til að auka af- köst þeirra. Sjúkraliðar vinna hins vegar undir stjórn hjúkrunarfræðinga, auk þess sem ekki er í lögum gert ráð fyrir sjúkraliðum á heilsugæslustöðvum. • Blaðsíða 5 Flókið kerfí verkaskiptingar er í gildi meðal heilbrigðisstéttanna og er deilt um hvernig ný hellbrigðlsstétt kæmi inn f þá verkaskiptingu. Sambandið sendir bankayfirvöldum bréfvegna lausmælgi Lúðvíks: Krafa umað lögin verði látin gilda W • Blaðsíða 5 ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.