Tíminn - 14.09.1989, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 14. september 1989
MINNISALAI
HUSGOGNUM
Samdráttur hefur orðið í húsgagnaverslun í ár. Versiunar-
eigendur segja að þetta þurfi ekki að koma neinum á óvart
því að síðustu 2-3 ár hafi verið fádæma góð í þessari
verslunargrein sem og ýmsum öðrum. Þessu góðæri er hins
vegar lokið og nú halda menn að sér höndum.
Nokkuð hefur verið rætt um að
samdráttur hafi orðið í verslun á
þessu ári. Meðal þess sem hefur
verið bent á í því sambandi er
samdráttur í verslun með húsgögn.
Tíminn hafði samband við nokkra
verslunarstjóra í húsgagnaverslun-
um og spurði þá hvort þeir hefðu
orðið varir við minnkandi sölu.
Flestir svöruðu því játandi. Þó virð-
ist sem þetta sé eitthvað mismunandi
milli verslana. Menn bentu þó á að
sfðustu tvö til þrjú ár hefði verið
fádæma góð og sala á húsgögnum
hefði þá aukist mjög mikið frá því
sem áður var. Það væri því að ýmsu
leyti villandi að tala um samdrátt á
þessu ári, nær væri að segja að sala
væri eins og í meðalári.
„Það er mjög villandi að bera árið
í ár saman við árið í fyrra eða
hittiðfyrra og segja að sala hafi
minnkað," sagði einn verslunarstjóri
í samtali við Tímann. „Við getum
alveg eins borið febrúarmánuð sam-
an við desember og sagt að sala hafi
minnkað. Hvort tveggja er rétt en
segir í sjálfu sér ekki mikið.“
Flestar húsgagnaverslanir hafa
reynt að taka tillit til minnkandi sölu
og pantað minna inn en áður. „Það
er ekki klókur bissnesmaður sem
reiknar með sömu sölu í ár og í
fyrra. Ef menn hafa reiknað með
samdrætti held ég að útkoman ætti
að vera viðunandi.“
Húsgagnaverslunum hefur eitt-
hvað fjölgað á síðustu árum. Óvíst
er hvort nýjar verslanir í greininni
eða þær sem hafa staðið í fjárfesting-
um muni þola umræddan samdrátt í
sölu. Það mun væntanlega koma í
ljós á næstu mánuðum. -EÓ
Bankar lækkuðu
vexti um 2%-4%
Sýningarbás Bókasambands íslands og Norræna hússins á bóka og
menningarþinginu í Gautaborg sem nýlega er lokið.
Bóka og menningarþingi 1989 lokið:
ísland viðfangs-
efni næsta þings
Vextir lækkuðu síðastliðinn mánudag um 2-4%. Iðnaðar-
bankinn hækkaði þó sína innlánsvexti og kjörvexti á verð-
tryggðum útlánum. Ótrúlegt þykir að vextir muni lækka
mikið meira á næstunni því Seðlabankinn spáir því að
lánskjaravísitala muni hækka á næstu mánuðum.
Meðaltal vaxta á almennum
skuldabréfum lækkaði úr 30.3% í
27.5%. Þar munar mest um að
Landsbankinn lækkaði sína kjör-
vexti úr 30% í 26% sem þýðir að
algengasta vaxtaformið hjá bankan-
um lækkaði úr 31% í 27%. Útvegs-
bankinn lækkaði sína kjörvexti úr
30% í 28%. Iðnaðarbankinn lækk-
aði sína kjörvexti úr 30% í 26,5%.
Algengustu vextir í Iðnaðarbankan-
um lækka því úr 31,5% í 28%.
Samvinnubankinn lækkaði sína
kjörvexti úr 29% í 26% og algeng-
ustu vexti úr 30% í 27%. Þessar
vaxtabreytingar voru ákveðnar 1.
september en tóku ekki gildi fyrr en
á mánudaginn.
Aðrar vaxtabreytingar eru þær að
Iðnaðarbankinn hækkar vexti á Bón-
Kvenfélagið Vorhvöt sendir frá sér fréttatilkynningu:
Allar konur í
litgreiningu
í tilefni af frétt í Tímanum
föstudaginn 8. sept. sl. um lit- og
vaxtargreiningarnámskeið fyrir
kennara vill Kvenfélagið Vorhvöt
greina frá eftirfarandi:
Kvenfélagið Vorhvöt hefur á
undanfömum vikum staðið fyrir
lit- og vaxtargreiningamámskeið-
um fyrir félagskonur sínar með
einstökum árangri.
Fenginn var sérlærður greining-
arsérfræðingur sem greindi kon-
umar og fræddi þær um mikilvægi
þess að geta litað og klætt af sér
ýmsa áskapaða og/eða áunna útlits-
galla.
Ekki svo að skilja að konur í
Vorhvöt hafi verið einhverjar 72ja
kílóa neðanmittis konur, hvað þá
leggstuttar, læramiklar búklengjur
eða skreflangar, brjóstalausar bol-
stubbur með valbrá eða skegghýj-
ung. Síður en svo og öðm nær.
Tilgangurinn með þessum nám-
skeiðum var' einvörðungu sá, að
sýna fram á að lengi getur gott útlit
batnað og umfram allt að veita
meðfæddri fegurðarþrá einstakl-
ingsins holla útrás.
Kvenfélagið Vorhvöt hefur sótt
um viðurkenningu á þessu námi til
menntamálaráðuneytisins, þannig
að hver kona útskrifuð úr slíku
námskeiði fái a.m.k. þann punkta-
fjölda að dugi til launaflokkshækk-,
unar í hverju því starfi sem hún
kann að hafa með höndum.
Bindur félagið miklar vonir við
velvilja og skilning ráðherra, því
varta getur honum fremur en öðr-
um blandast hugur um gildi háþró-
aðrar tískuvitundar í nútíma sam-
félagi, þar sem stöðugt em gerðar
meiri kröfur um aukna menntun,
hærri laun og andlega líkamsvel-
sæld almenningi til handa. Einkum
þó til handa konum.
Nú hafa allar konurnar í Kven-
félaginu Vorhvöt farið á umrætt
námskeið og má þar með fullyrða
að hvar sem greind kona fer, þar
sé sönn Vorhvatarkona á ferð.
Sú vellíðan sem nú fyllir hug og
hjörtu Vorhvatarkvenna er slík að
ekki verður við það unað að öðmm
gefist ekki kostur á hinu sama.
Samstaða er nefnilega sú vog á
lóðarskálina sem öllu skiptir í bar-
áttu kvenna fyrir betra lífi.
Því krefst Kvenfélagið Vorbvöt
þess að allar íslenskar konur verði
greindar hið fyrsta.
Kvenfélagið Vorhvöt.
us innlánsreikningi um 0,25% sem
þýðir að ársávöxtun breytist úr 2,5%
í 2,75%. í samræmi við þessa hækk-
un hefur Iðnaðarbankinn hækkað
kjörvexti úr 6.25% í 6,5% sem þýðir
að algengasta verðtryggða formið
hefur hækkað úr 7,75% í 8%. Þessi
vaxtahækkun Iðnaðarbankans er í
ósamræmi við þær almennu vaxta-
lækkanir sem hafa orðið í samfélag-
inu undanfama mánuði.
Margt virðist benda til að þessu
vaxtalækkunarskeiði sé lokið og
framundan sé tími óbreyttra vaxta
eða vaxtahækkana. Sé miðað við
heilt ár hækkaði lánskjaravísitala
um 13% f júlí. Spáin fyrir næstu
mánuði er sú að hækkunin verði
16% í september og 22% í október.
Það er því ólíklegt að vextir lækki á
næstu vikum ef markaðsöflin eru
látin ráða. -EÓ
Ákveðið hefur verið að ísland
verði aðal viðfangsefni á bóka og
menningarþinginu sem fram fer í
sjötta sinn dagana 13. til 16. sept-
ember á næsta ári.
Bóka og menningarþingi þessa
árs lauk á sunnudag. Eitt Norður-
landanna er sérstaklega kynnt á
hverju ári og var Danmörk við-
fangsefni þingsins að þessu sinni.
Það voru 850 aðilar sem sýndu og
var ísland með sýningarbás í fyrsta
sinn og vakti framlag Islands mikla
athygli, að þvf er segir í fréttatil-
kynningu frá Norræna húsinu. Þar
kynnti Bókasamband íslands ís-
lenskar bækur og íslenska höfunda
og Norræna húsið veitti upplýsing-
ar um fslenska menningu og þjóð-
félag.
Ný málfræðibók
fyrir grunnskóla
Námsgagnastofnun hefur gefið út
bókina Málvísi 1 eftir Indriða Gísla-
son. Bókin kom fyrst út árið 1974 en
hefur nú verið endurskoðuð og má
segja að um nýja bók sé að ræða. 1
bókinni er fjallað um orðflokka og
einkenni þeirra, gerð setninga, mál
í samskiptum manna, merkingar-
breytingar, orðtök og málshætti.
Sérstakur þáttur er í bókinni um
talað mál og mun það vera nýjung í
námsefni fyrir grunnskóla. Málvísi 1
er einkum ætlað að notast við
kennslu í 7. bekk. -EÓ
Flugleiðir hefja aftur flug til Baltimore:
Þriðji viðkomu-
staðurinn í BNA
Stjóm Flugleiða samþykkti nýverið að heQa flug til
Baltimore næsta vor og verður flogið fjórum sinnum í viku.
Gert er ráð fyrir að fyrsta ferðin verði í aprfl. Flugleiðir hafa
áður flogið til Baltimore en þegar rekstur á Norður-Atlants-
hafsflugleiðum var dreginn saman var flugi þangað hætt
tímabundið. Nú verður viðkomustöðum í Bandaríkjunum
fjölgað í 3. Áfram verður flogið til New York og Orlando.
Flugleiðir hafa ákveðið að festa
kaup á tveimur Boeing 757-200 flug-
vélum til flugs á Norður-Atlantshafs-
leiðunum. Þær koma til landsins í
byrjun næsta árs. Með þeim gefst
félaginu færi á að bæta verulega
þjónustu við farþega frá því sem er
með núverandi vélakosti. Flugleiðir
verða þá með einn yngsta millilanda-
flugflota í Evrópu.
Undanfarið hefur fyrirtækið
undirbúið aukna sókn eftir farþegum
í Bandaríkjunum og Evrópu sem
eru reiðubúnir að greiða hærri far-
gjöld fyrir aukna þjónustu. Meðal
annars hefur verið gerð umfangs-
mikil markaðskönnun meðal fyrir-
tækja í Lúxemborg og löndunum
þar í kring sem bcndir til þess að fólk
í viðskiptaerindum sé í vaxandi mæli
reiðubúið til viðskipta við félagið að
gefnum ákveðnum forsendum. Jafn-
framt munu Flugleiðir áfram taka
þátt í samkeppni með lág fargjöld
yfir hafið.
Fyrirtækið telur að ný tæki og
breyttar áherslur í markáðsmálum í
Bandaríkjunum og Evrópu geri
kleift að reka flug til Baltimore með
hagnaði. Um leið og flug til Banda-
ríkjanna er aukið styrkist Evrópu-
flugreksturinn. Verulegur hluti far-
þega í Norður-Atlantshafsflugi kem-
ur frá öðrum ákvörðunarstöðum í
Evrópu en Lúxemborg. Aukið
Ameríkuflug styrkir því flug á mörg-
um Evrópuleiðum og gefur færi á
aukinni tíðni og þar með betri þjón-
ustu. Til dæmis er gert ráð fyrir að
allt að fjórðungur farþega til Balti-
more komi frá Skandinavíu.
Baltimore-flugvöllur er mjög
þægilegur fyrir farþega. Hann þjón-
ar Washington, höfuðborg Banda-
ríkjanna, en opnar auk þess leið til
tengiflugs til 60-70 borga víðsvegar
um Bandaríkin sama dag og Flug-
leiðavélarnar koma þangað. Til
samanburðar má geta þess að frá
Kennedyflugvelli við New York er
mögulegt tengiflug til 19 borga sama
dag og Flugleiðavélar lenda þar.