Tíminn - 14.09.1989, Síða 2

Tíminn - 14.09.1989, Síða 2
2 Tíminn Fimmtudagur 14. september 1989 MINNISALAI HUSGOGNUM Samdráttur hefur orðið í húsgagnaverslun í ár. Versiunar- eigendur segja að þetta þurfi ekki að koma neinum á óvart því að síðustu 2-3 ár hafi verið fádæma góð í þessari verslunargrein sem og ýmsum öðrum. Þessu góðæri er hins vegar lokið og nú halda menn að sér höndum. Nokkuð hefur verið rætt um að samdráttur hafi orðið í verslun á þessu ári. Meðal þess sem hefur verið bent á í því sambandi er samdráttur í verslun með húsgögn. Tíminn hafði samband við nokkra verslunarstjóra í húsgagnaverslun- um og spurði þá hvort þeir hefðu orðið varir við minnkandi sölu. Flestir svöruðu því játandi. Þó virð- ist sem þetta sé eitthvað mismunandi milli verslana. Menn bentu þó á að sfðustu tvö til þrjú ár hefði verið fádæma góð og sala á húsgögnum hefði þá aukist mjög mikið frá því sem áður var. Það væri því að ýmsu leyti villandi að tala um samdrátt á þessu ári, nær væri að segja að sala væri eins og í meðalári. „Það er mjög villandi að bera árið í ár saman við árið í fyrra eða hittiðfyrra og segja að sala hafi minnkað," sagði einn verslunarstjóri í samtali við Tímann. „Við getum alveg eins borið febrúarmánuð sam- an við desember og sagt að sala hafi minnkað. Hvort tveggja er rétt en segir í sjálfu sér ekki mikið.“ Flestar húsgagnaverslanir hafa reynt að taka tillit til minnkandi sölu og pantað minna inn en áður. „Það er ekki klókur bissnesmaður sem reiknar með sömu sölu í ár og í fyrra. Ef menn hafa reiknað með samdrætti held ég að útkoman ætti að vera viðunandi.“ Húsgagnaverslunum hefur eitt- hvað fjölgað á síðustu árum. Óvíst er hvort nýjar verslanir í greininni eða þær sem hafa staðið í fjárfesting- um muni þola umræddan samdrátt í sölu. Það mun væntanlega koma í ljós á næstu mánuðum. -EÓ Bankar lækkuðu vexti um 2%-4% Sýningarbás Bókasambands íslands og Norræna hússins á bóka og menningarþinginu í Gautaborg sem nýlega er lokið. Bóka og menningarþingi 1989 lokið: ísland viðfangs- efni næsta þings Vextir lækkuðu síðastliðinn mánudag um 2-4%. Iðnaðar- bankinn hækkaði þó sína innlánsvexti og kjörvexti á verð- tryggðum útlánum. Ótrúlegt þykir að vextir muni lækka mikið meira á næstunni því Seðlabankinn spáir því að lánskjaravísitala muni hækka á næstu mánuðum. Meðaltal vaxta á almennum skuldabréfum lækkaði úr 30.3% í 27.5%. Þar munar mest um að Landsbankinn lækkaði sína kjör- vexti úr 30% í 26% sem þýðir að algengasta vaxtaformið hjá bankan- um lækkaði úr 31% í 27%. Útvegs- bankinn lækkaði sína kjörvexti úr 30% í 28%. Iðnaðarbankinn lækk- aði sína kjörvexti úr 30% í 26,5%. Algengustu vextir í Iðnaðarbankan- um lækka því úr 31,5% í 28%. Samvinnubankinn lækkaði sína kjörvexti úr 29% í 26% og algeng- ustu vexti úr 30% í 27%. Þessar vaxtabreytingar voru ákveðnar 1. september en tóku ekki gildi fyrr en á mánudaginn. Aðrar vaxtabreytingar eru þær að Iðnaðarbankinn hækkar vexti á Bón- Kvenfélagið Vorhvöt sendir frá sér fréttatilkynningu: Allar konur í litgreiningu í tilefni af frétt í Tímanum föstudaginn 8. sept. sl. um lit- og vaxtargreiningarnámskeið fyrir kennara vill Kvenfélagið Vorhvöt greina frá eftirfarandi: Kvenfélagið Vorhvöt hefur á undanfömum vikum staðið fyrir lit- og vaxtargreiningamámskeið- um fyrir félagskonur sínar með einstökum árangri. Fenginn var sérlærður greining- arsérfræðingur sem greindi kon- umar og fræddi þær um mikilvægi þess að geta litað og klætt af sér ýmsa áskapaða og/eða áunna útlits- galla. Ekki svo að skilja að konur í Vorhvöt hafi verið einhverjar 72ja kílóa neðanmittis konur, hvað þá leggstuttar, læramiklar búklengjur eða skreflangar, brjóstalausar bol- stubbur með valbrá eða skegghýj- ung. Síður en svo og öðm nær. Tilgangurinn með þessum nám- skeiðum var' einvörðungu sá, að sýna fram á að lengi getur gott útlit batnað og umfram allt að veita meðfæddri fegurðarþrá einstakl- ingsins holla útrás. Kvenfélagið Vorhvöt hefur sótt um viðurkenningu á þessu námi til menntamálaráðuneytisins, þannig að hver kona útskrifuð úr slíku námskeiði fái a.m.k. þann punkta- fjölda að dugi til launaflokkshækk-, unar í hverju því starfi sem hún kann að hafa með höndum. Bindur félagið miklar vonir við velvilja og skilning ráðherra, því varta getur honum fremur en öðr- um blandast hugur um gildi háþró- aðrar tískuvitundar í nútíma sam- félagi, þar sem stöðugt em gerðar meiri kröfur um aukna menntun, hærri laun og andlega líkamsvel- sæld almenningi til handa. Einkum þó til handa konum. Nú hafa allar konurnar í Kven- félaginu Vorhvöt farið á umrætt námskeið og má þar með fullyrða að hvar sem greind kona fer, þar sé sönn Vorhvatarkona á ferð. Sú vellíðan sem nú fyllir hug og hjörtu Vorhvatarkvenna er slík að ekki verður við það unað að öðmm gefist ekki kostur á hinu sama. Samstaða er nefnilega sú vog á lóðarskálina sem öllu skiptir í bar- áttu kvenna fyrir betra lífi. Því krefst Kvenfélagið Vorbvöt þess að allar íslenskar konur verði greindar hið fyrsta. Kvenfélagið Vorhvöt. us innlánsreikningi um 0,25% sem þýðir að ársávöxtun breytist úr 2,5% í 2,75%. í samræmi við þessa hækk- un hefur Iðnaðarbankinn hækkað kjörvexti úr 6.25% í 6,5% sem þýðir að algengasta verðtryggða formið hefur hækkað úr 7,75% í 8%. Þessi vaxtahækkun Iðnaðarbankans er í ósamræmi við þær almennu vaxta- lækkanir sem hafa orðið í samfélag- inu undanfama mánuði. Margt virðist benda til að þessu vaxtalækkunarskeiði sé lokið og framundan sé tími óbreyttra vaxta eða vaxtahækkana. Sé miðað við heilt ár hækkaði lánskjaravísitala um 13% f júlí. Spáin fyrir næstu mánuði er sú að hækkunin verði 16% í september og 22% í október. Það er því ólíklegt að vextir lækki á næstu vikum ef markaðsöflin eru látin ráða. -EÓ Ákveðið hefur verið að ísland verði aðal viðfangsefni á bóka og menningarþinginu sem fram fer í sjötta sinn dagana 13. til 16. sept- ember á næsta ári. Bóka og menningarþingi þessa árs lauk á sunnudag. Eitt Norður- landanna er sérstaklega kynnt á hverju ári og var Danmörk við- fangsefni þingsins að þessu sinni. Það voru 850 aðilar sem sýndu og var ísland með sýningarbás í fyrsta sinn og vakti framlag Islands mikla athygli, að þvf er segir í fréttatil- kynningu frá Norræna húsinu. Þar kynnti Bókasamband íslands ís- lenskar bækur og íslenska höfunda og Norræna húsið veitti upplýsing- ar um fslenska menningu og þjóð- félag. Ný málfræðibók fyrir grunnskóla Námsgagnastofnun hefur gefið út bókina Málvísi 1 eftir Indriða Gísla- son. Bókin kom fyrst út árið 1974 en hefur nú verið endurskoðuð og má segja að um nýja bók sé að ræða. 1 bókinni er fjallað um orðflokka og einkenni þeirra, gerð setninga, mál í samskiptum manna, merkingar- breytingar, orðtök og málshætti. Sérstakur þáttur er í bókinni um talað mál og mun það vera nýjung í námsefni fyrir grunnskóla. Málvísi 1 er einkum ætlað að notast við kennslu í 7. bekk. -EÓ Flugleiðir hefja aftur flug til Baltimore: Þriðji viðkomu- staðurinn í BNA Stjóm Flugleiða samþykkti nýverið að heQa flug til Baltimore næsta vor og verður flogið fjórum sinnum í viku. Gert er ráð fyrir að fyrsta ferðin verði í aprfl. Flugleiðir hafa áður flogið til Baltimore en þegar rekstur á Norður-Atlants- hafsflugleiðum var dreginn saman var flugi þangað hætt tímabundið. Nú verður viðkomustöðum í Bandaríkjunum fjölgað í 3. Áfram verður flogið til New York og Orlando. Flugleiðir hafa ákveðið að festa kaup á tveimur Boeing 757-200 flug- vélum til flugs á Norður-Atlantshafs- leiðunum. Þær koma til landsins í byrjun næsta árs. Með þeim gefst félaginu færi á að bæta verulega þjónustu við farþega frá því sem er með núverandi vélakosti. Flugleiðir verða þá með einn yngsta millilanda- flugflota í Evrópu. Undanfarið hefur fyrirtækið undirbúið aukna sókn eftir farþegum í Bandaríkjunum og Evrópu sem eru reiðubúnir að greiða hærri far- gjöld fyrir aukna þjónustu. Meðal annars hefur verið gerð umfangs- mikil markaðskönnun meðal fyrir- tækja í Lúxemborg og löndunum þar í kring sem bcndir til þess að fólk í viðskiptaerindum sé í vaxandi mæli reiðubúið til viðskipta við félagið að gefnum ákveðnum forsendum. Jafn- framt munu Flugleiðir áfram taka þátt í samkeppni með lág fargjöld yfir hafið. Fyrirtækið telur að ný tæki og breyttar áherslur í markáðsmálum í Bandaríkjunum og Evrópu geri kleift að reka flug til Baltimore með hagnaði. Um leið og flug til Banda- ríkjanna er aukið styrkist Evrópu- flugreksturinn. Verulegur hluti far- þega í Norður-Atlantshafsflugi kem- ur frá öðrum ákvörðunarstöðum í Evrópu en Lúxemborg. Aukið Ameríkuflug styrkir því flug á mörg- um Evrópuleiðum og gefur færi á aukinni tíðni og þar með betri þjón- ustu. Til dæmis er gert ráð fyrir að allt að fjórðungur farþega til Balti- more komi frá Skandinavíu. Baltimore-flugvöllur er mjög þægilegur fyrir farþega. Hann þjón- ar Washington, höfuðborg Banda- ríkjanna, en opnar auk þess leið til tengiflugs til 60-70 borga víðsvegar um Bandaríkin sama dag og Flug- leiðavélarnar koma þangað. Til samanburðar má geta þess að frá Kennedyflugvelli við New York er mögulegt tengiflug til 19 borga sama dag og Flugleiðavélar lenda þar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.