Tíminn - 14.09.1989, Side 3
Tíminn 3
.'Ar !■ •vl'frt’ ;; | r 1 i V i'i ' •
Fimmtudagur 14. september 1989
Umsóknir um prestaköll:
FJÓRIR SÓTTU
UM GRAFARVOG
Umsóknarfrestur um þrjú prests-
embætti rann út þann 10. september.
Fjórir sóttu um Grafarvogspresta-
kall í Reykjavíkurprófastsdæmi, en
nöfn umsækjenda fengust ekki gefrn
upp í gær.
Tveir sóttu um stöðu deildarstjóra
við fræðsludeild biskupsstofu. Nöfn
þeirra verða ekki heldur gefin upp.
Þriðja embættið sem auglýst var
laust til umsóknar var Súgandafjarð-
arprestakall. Þar sótti enginn um.
Verður því sennilega einhver af
prestunum í nágrenninu settur prest-
ur yfir Súgandafirði.
Aðalbjörg Guðgeirsdóttir býr í einu íbúðinni sem sérhönnuð er með þarfir þeirra sem bundnir eru við hjólastól í huga.
Tímamynd Pjetur
„Lifum heil - skemmtun gegn skelfingu“:
skákþings lokið
FJARSOFNUN TIL
STYRKTAR SEM
Áhugahópur um bætta
umferðarmenningu, Samtök
endurhæfðra mænuskadd-
aðra eða SEM-hópurinn og
Stöð 2 standa fyrir söfnun
um komandi helgi til að afla
fjár í húsbyggingarsjóð SEM.
Sem kunnugt er er ekki liðin
nema tæp vika síðan Sjálfs-
björg lauk sínu söfnunarátaki
meðal landsmanna. Þau sem
standa að áhugahóp um
bætta umferðarmenningu
segja að tímasetning söfnun-
arinnar skipti ekki máli, þeg-
ar gott málefni er annars
vegar, aðspurð hvort tíma-
setningin væri ekki röng.
Samtök endurhæfðra mænu-
skaddaðra samanstanda að stærstum
hluta af ungu fólki sem lent hefur í
alvarlegum umferðarslysum og er
bundið hjólastól um aldur og ævi.
Eftir að af sjúkrastofnunum er kom-
ið hefur þetta fólk hins vegar ekki
möguleika á að komast í húsnæði
sem hentar mænusköðuðu fólki, seg-
ir í upplýsingabréfi vegna söfnunar-
innar. Þar kemur fram að á landinu
öllu er einungis ein íbúð hönnuð
með þarfir fólks í hjólastólum í
huga. SEM hefur sótt um lóð í
Reykjavík fyrir fjölbýlishús, sem
hannað er með þeirra þarfir í huga
og er ætlunin að fyrrgreind söfnun
komi til með að fjármagna fram-
kvæmdirnar að hluta. Gert er ráð
fyrir að byggja 20 íbúðir, þar af 12
kaupleiguíbúðir og 8 eignaríbúðir
og hefur Húsnæðismálastofnun gefið
vilyrði fyrir lánveitingu.
Söfnunin sem hlotið hefur heitið
„Lifum heil - skemmtun gegn skelf-
ingu“ fer fram í beinni útsendingu á
Stöð 2, sunnudagskvöldið 17. sept-
ember nk. Um er að ræða þriggja
tíma dagskrá sem hefst klukkan
21.00 á Hótel íslandi, þar sem margir
af þekktustu listamönnum þjóðar-
innar leggja sitt af mörkum án
endurgjalds.
Áhorfendur geta hringt í síma
680000 og gefið peninga eða lagt
beint inn á reikning söfnunarinnar,
243000. Tekið verður við framlögum
í ofangreindu símanúmeri frá föstu-
degi, en á sunnudagskvöld munu 24
einstaklingar sitja í senn við símann
á Hótel íslandi og taka við framlög-
um. Fyrirtæki og félög eru einnig
hvött til að safna peningum á föstu-
dag og koma þeim síðan til skila á
Hótel ísland á sunnudagskvöld, í
beinni útsendingu. -ABÓ
Önnur umferð í landsliðsflokki á
skákþingi íslands var tefld í gær-
kvöldi, í húsakynnum Útsýnar í
Mjódd. Þá áttust við Rúnar Sigur-
pálsson og Þröstur Árnason, Jón L.
Ámason og Ágúst Karlsson, Þröstur
Þórhallsson og Karl Þorsteins, Sig-
urður Daði Sigfússon og Hannes
Hlífar Stefánsson, Tómas Bjömsson
og Björgvin Jónsson, og Guðmund-
ur Gíslason og Jón Garðar Viðars-
son.
í fyrstu umferð, sem tefld var á
þriðjudagskvöld urðu úrslit sem hér
segir: Guðmundur Gíslason vann
Rúnar Sigurpálsson, Jón L. Ámason
vann Þröst Árnason, Þröstur Þór-
hallsson vann Ágúst Karlsson, Karl
Þorsteins vann Sigurð Daða Sigfús-
son, Tómas Björnsson vann Hannes
Hlífar Stefánsson og Björgvin Jóns-
son vann Jón Garðar Viðarsson.
Sem kunnugt er átti Helgi Ólafs-
son að vera meðal keppenda, en
hann forfallaðist á síðustu stundu og
tók Tómas Bjömsson sæti hans á
mótinu.
Þriðja umferð verður tefld í kvöld
og hefst hún klukkan 18.00.
-ABÓ
Sérstakt viðtal við Rósu Ingólfsdóttur í Mannlífi:
Anægjukurr og hlátur
hafa verið viðbrögðin
Rósa Ingólfsdóttir auglýsingateiknari, þula og „ímynda-
smiður nútímans“, eins og hún er kölluð í Mannlífi, er í
forsíðuviðtali tímaritsins að þessu sinni. Rósa úttalar sig á
skeleggan hátt meðal annars um pólitík, hlutverk kynjanna
og kvennapólitík. Varðandi síðastnefnda atriðið segir
Rósa að konur eigi ekkert erindi inn á þing: „Konur hafa
ekkert að gera þangað. Þær hafa ekki þessa köldu
rökhyggju sem karlmenn hafa, þær brotna alltaf þegar á
reynir,“ segir Rósa í viðtalinu.
Viðtalið er ekki einungis sérstakt
fyrir það hversu opinská Rósa er.
Myndimar sem skreyta viðtalið
hafa einnig vakið niikla athygli.
Tíminn hafði samband við Rósu og
spurði hana hvemig viðbrögð við-
talið hafi fengið. „Ég hef einungis
fengið mjög ánægjuleg viðbrögð.
Ég get ekki kvartað yfir þeim og
hef ekki fundið neina andúð, bara
skellihlátur og ánægjukurr."
Rósa vildi ekki taka undir það
að í viðtalinu varpaði hún fram
hugmyndum sem ekki ættu upp á
pallborðið í dag. „Ég held að ég sé
frekar að skerpa þær athugasemdir
og niðurstöður sem em að koma í
ljós. Ég held að það sé ekki nokkur
vafi að fólk er að vakna til vitundar,
um það að konur eigi fyrst og
fremst að sjá um heimilið.“
- En nú ertu harðorð gagnvart
Kvennalistanum?
„Ég hef einungis fengið skelli-
dúndrandi hlátur út á þetta alltsam-
an, sérstaklega samlíkinguna við
sauðkindina. Það er auðvitað stutt
síðan blaðið kom út og það getur
vel verið að harðari viðbrögð eigi
eftir að koma í ljós. Fólk er sem
betur fer misjafnt og ég er þá búin
að skapa umræðuefni í þessu vonda
veðri sem er að hrjá okkur.“
Varðandi myndimar sagðist
Rósa ekki hafa fengið annað en
aðdáun. „Fólk er mjög ánægt og
finnst þetta mjög fallegt og glæsi-
legt alltsaman.“
Til að gefa þeim lesendum Tím-
ans sem ekki hafa fengið Mannlíf í
hendumar innsýn í viðtalið fylgja
hér með örstuttir kaflar úr því.
Um kvenréttindabaráttuna og
Kvennalistann segir Rósa meðal
annars: „Kvenréttindakonur sem
em alltaf að djöflast út í karlmenn
em konur sem hafa beðið mikinn
ósigur í svefnherbergi sínu. Það er
dálítið gróft að segja þetta en ég
stend fullkomlega við það. Þessar
konur em haldnar einhverri minni-
máttarkennd sem konur, vegna
þess að þær em ekki nógu miklar
konur. Konurnar í Alþýðubanda-
laginu og Kvennalistanum nota
ekki einu sinni snyrtivömr. Þetta
em einhvers konar vaðmálskerl-
ingar, með fullri virðingu fyrir
íslensku sauðkindinni. Afhverju
má ekki halda fram kvenlegri
fegurð. í kvenlíkamanum samein-
ast öll fegurstu form náttúmnnar."
Á öðmm stað segir Rósa: „Ef
eitthvað er mér minnisstætt úr
kvenréttindabaráttunni þá er það
hreinn og beinn bmssugangur þess-
ara kvenna.“ Hér á Rósa við
Kvennalistann.
Karlmenn eiga ömggt skjól þar
sem Rósa er: „Það hefur nú verið
eitt af mínum baráttumálum að
verja karlmanninn fyrir þessum
minkum í hænsnabúinu; þessum
rauðsokkum og konum sem hafa
OG D,
</ir n i . iis
látið plata sig.“
Heimilisstörfin em konunnar og
segir Rósa á einum stað: „Ef ég
hefði gift mig hefði ég ekki farið að
gera það sem mig langaði til að
gera. Ég hefði viljað bjóða
manninum mínum upp á sómasam-
legt heimili og unnið heima við að
hafa til matinn handa honum á
réttum tíma og að strauja skyrturn-
ar hans. Ég vil ekki sjá karlmenn
HEIMSREISA A SKUTU
BRE YTINGASKJEIÐ KARLA
&&||| ^ v
« FFrtlRRl ÖKUMAÐURINN
vera að ryksuga eða vaska upp eins
og einhver viðrini.“
Rósa segir að Sverrir Hermanns-
son hafi gert mikil mistök með því
að skera niður fjárveitingar til
húsmæðraskólanna. „Það þarf að
opna alla húsmæðraskólana með
lúðraþyt og söng og hrópa húrra
fyrir konum sem fara aftur inn á
heimilin." SSH
Skákþing íslands, landsliðsflokkur:
Tveim umferðum