Tíminn - 14.09.1989, Síða 3

Tíminn - 14.09.1989, Síða 3
Tíminn 3 .'Ar !■ •vl'frt’ ;; | r 1 i V i'i ' • Fimmtudagur 14. september 1989 Umsóknir um prestaköll: FJÓRIR SÓTTU UM GRAFARVOG Umsóknarfrestur um þrjú prests- embætti rann út þann 10. september. Fjórir sóttu um Grafarvogspresta- kall í Reykjavíkurprófastsdæmi, en nöfn umsækjenda fengust ekki gefrn upp í gær. Tveir sóttu um stöðu deildarstjóra við fræðsludeild biskupsstofu. Nöfn þeirra verða ekki heldur gefin upp. Þriðja embættið sem auglýst var laust til umsóknar var Súgandafjarð- arprestakall. Þar sótti enginn um. Verður því sennilega einhver af prestunum í nágrenninu settur prest- ur yfir Súgandafirði. Aðalbjörg Guðgeirsdóttir býr í einu íbúðinni sem sérhönnuð er með þarfir þeirra sem bundnir eru við hjólastól í huga. Tímamynd Pjetur „Lifum heil - skemmtun gegn skelfingu“: skákþings lokið FJARSOFNUN TIL STYRKTAR SEM Áhugahópur um bætta umferðarmenningu, Samtök endurhæfðra mænuskadd- aðra eða SEM-hópurinn og Stöð 2 standa fyrir söfnun um komandi helgi til að afla fjár í húsbyggingarsjóð SEM. Sem kunnugt er er ekki liðin nema tæp vika síðan Sjálfs- björg lauk sínu söfnunarátaki meðal landsmanna. Þau sem standa að áhugahóp um bætta umferðarmenningu segja að tímasetning söfnun- arinnar skipti ekki máli, þeg- ar gott málefni er annars vegar, aðspurð hvort tíma- setningin væri ekki röng. Samtök endurhæfðra mænu- skaddaðra samanstanda að stærstum hluta af ungu fólki sem lent hefur í alvarlegum umferðarslysum og er bundið hjólastól um aldur og ævi. Eftir að af sjúkrastofnunum er kom- ið hefur þetta fólk hins vegar ekki möguleika á að komast í húsnæði sem hentar mænusköðuðu fólki, seg- ir í upplýsingabréfi vegna söfnunar- innar. Þar kemur fram að á landinu öllu er einungis ein íbúð hönnuð með þarfir fólks í hjólastólum í huga. SEM hefur sótt um lóð í Reykjavík fyrir fjölbýlishús, sem hannað er með þeirra þarfir í huga og er ætlunin að fyrrgreind söfnun komi til með að fjármagna fram- kvæmdirnar að hluta. Gert er ráð fyrir að byggja 20 íbúðir, þar af 12 kaupleiguíbúðir og 8 eignaríbúðir og hefur Húsnæðismálastofnun gefið vilyrði fyrir lánveitingu. Söfnunin sem hlotið hefur heitið „Lifum heil - skemmtun gegn skelf- ingu“ fer fram í beinni útsendingu á Stöð 2, sunnudagskvöldið 17. sept- ember nk. Um er að ræða þriggja tíma dagskrá sem hefst klukkan 21.00 á Hótel íslandi, þar sem margir af þekktustu listamönnum þjóðar- innar leggja sitt af mörkum án endurgjalds. Áhorfendur geta hringt í síma 680000 og gefið peninga eða lagt beint inn á reikning söfnunarinnar, 243000. Tekið verður við framlögum í ofangreindu símanúmeri frá föstu- degi, en á sunnudagskvöld munu 24 einstaklingar sitja í senn við símann á Hótel íslandi og taka við framlög- um. Fyrirtæki og félög eru einnig hvött til að safna peningum á föstu- dag og koma þeim síðan til skila á Hótel ísland á sunnudagskvöld, í beinni útsendingu. -ABÓ Önnur umferð í landsliðsflokki á skákþingi íslands var tefld í gær- kvöldi, í húsakynnum Útsýnar í Mjódd. Þá áttust við Rúnar Sigur- pálsson og Þröstur Árnason, Jón L. Ámason og Ágúst Karlsson, Þröstur Þórhallsson og Karl Þorsteins, Sig- urður Daði Sigfússon og Hannes Hlífar Stefánsson, Tómas Bjömsson og Björgvin Jónsson, og Guðmund- ur Gíslason og Jón Garðar Viðars- son. í fyrstu umferð, sem tefld var á þriðjudagskvöld urðu úrslit sem hér segir: Guðmundur Gíslason vann Rúnar Sigurpálsson, Jón L. Ámason vann Þröst Árnason, Þröstur Þór- hallsson vann Ágúst Karlsson, Karl Þorsteins vann Sigurð Daða Sigfús- son, Tómas Björnsson vann Hannes Hlífar Stefánsson og Björgvin Jóns- son vann Jón Garðar Viðarsson. Sem kunnugt er átti Helgi Ólafs- son að vera meðal keppenda, en hann forfallaðist á síðustu stundu og tók Tómas Bjömsson sæti hans á mótinu. Þriðja umferð verður tefld í kvöld og hefst hún klukkan 18.00. -ABÓ Sérstakt viðtal við Rósu Ingólfsdóttur í Mannlífi: Anægjukurr og hlátur hafa verið viðbrögðin Rósa Ingólfsdóttir auglýsingateiknari, þula og „ímynda- smiður nútímans“, eins og hún er kölluð í Mannlífi, er í forsíðuviðtali tímaritsins að þessu sinni. Rósa úttalar sig á skeleggan hátt meðal annars um pólitík, hlutverk kynjanna og kvennapólitík. Varðandi síðastnefnda atriðið segir Rósa að konur eigi ekkert erindi inn á þing: „Konur hafa ekkert að gera þangað. Þær hafa ekki þessa köldu rökhyggju sem karlmenn hafa, þær brotna alltaf þegar á reynir,“ segir Rósa í viðtalinu. Viðtalið er ekki einungis sérstakt fyrir það hversu opinská Rósa er. Myndimar sem skreyta viðtalið hafa einnig vakið niikla athygli. Tíminn hafði samband við Rósu og spurði hana hvemig viðbrögð við- talið hafi fengið. „Ég hef einungis fengið mjög ánægjuleg viðbrögð. Ég get ekki kvartað yfir þeim og hef ekki fundið neina andúð, bara skellihlátur og ánægjukurr." Rósa vildi ekki taka undir það að í viðtalinu varpaði hún fram hugmyndum sem ekki ættu upp á pallborðið í dag. „Ég held að ég sé frekar að skerpa þær athugasemdir og niðurstöður sem em að koma í ljós. Ég held að það sé ekki nokkur vafi að fólk er að vakna til vitundar, um það að konur eigi fyrst og fremst að sjá um heimilið.“ - En nú ertu harðorð gagnvart Kvennalistanum? „Ég hef einungis fengið skelli- dúndrandi hlátur út á þetta alltsam- an, sérstaklega samlíkinguna við sauðkindina. Það er auðvitað stutt síðan blaðið kom út og það getur vel verið að harðari viðbrögð eigi eftir að koma í ljós. Fólk er sem betur fer misjafnt og ég er þá búin að skapa umræðuefni í þessu vonda veðri sem er að hrjá okkur.“ Varðandi myndimar sagðist Rósa ekki hafa fengið annað en aðdáun. „Fólk er mjög ánægt og finnst þetta mjög fallegt og glæsi- legt alltsaman.“ Til að gefa þeim lesendum Tím- ans sem ekki hafa fengið Mannlíf í hendumar innsýn í viðtalið fylgja hér með örstuttir kaflar úr því. Um kvenréttindabaráttuna og Kvennalistann segir Rósa meðal annars: „Kvenréttindakonur sem em alltaf að djöflast út í karlmenn em konur sem hafa beðið mikinn ósigur í svefnherbergi sínu. Það er dálítið gróft að segja þetta en ég stend fullkomlega við það. Þessar konur em haldnar einhverri minni- máttarkennd sem konur, vegna þess að þær em ekki nógu miklar konur. Konurnar í Alþýðubanda- laginu og Kvennalistanum nota ekki einu sinni snyrtivömr. Þetta em einhvers konar vaðmálskerl- ingar, með fullri virðingu fyrir íslensku sauðkindinni. Afhverju má ekki halda fram kvenlegri fegurð. í kvenlíkamanum samein- ast öll fegurstu form náttúmnnar." Á öðmm stað segir Rósa: „Ef eitthvað er mér minnisstætt úr kvenréttindabaráttunni þá er það hreinn og beinn bmssugangur þess- ara kvenna.“ Hér á Rósa við Kvennalistann. Karlmenn eiga ömggt skjól þar sem Rósa er: „Það hefur nú verið eitt af mínum baráttumálum að verja karlmanninn fyrir þessum minkum í hænsnabúinu; þessum rauðsokkum og konum sem hafa OG D, </ir n i . iis látið plata sig.“ Heimilisstörfin em konunnar og segir Rósa á einum stað: „Ef ég hefði gift mig hefði ég ekki farið að gera það sem mig langaði til að gera. Ég hefði viljað bjóða manninum mínum upp á sómasam- legt heimili og unnið heima við að hafa til matinn handa honum á réttum tíma og að strauja skyrturn- ar hans. Ég vil ekki sjá karlmenn HEIMSREISA A SKUTU BRE YTINGASKJEIÐ KARLA &&||| ^ v « FFrtlRRl ÖKUMAÐURINN vera að ryksuga eða vaska upp eins og einhver viðrini.“ Rósa segir að Sverrir Hermanns- son hafi gert mikil mistök með því að skera niður fjárveitingar til húsmæðraskólanna. „Það þarf að opna alla húsmæðraskólana með lúðraþyt og söng og hrópa húrra fyrir konum sem fara aftur inn á heimilin." SSH Skákþing íslands, landsliðsflokkur: Tveim umferðum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.