Tíminn - 14.09.1989, Blaðsíða 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 14. september 1989
lllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllll^
Margt smátt
Liverpool. Bikarmeistarar
Liverpool eru komnir í efsta sæti 1.
deildar ensku knattspymunnar, eftir
9-0 sigur í Crystal Palace í fyrra-
kvöld. John Aldridge lék sinn síð-
asta leik fyrir Liverpool og kvaddi
með marki úr vítaspyrnu. Aldridge
heldur til Real Sociedad á Spáni.
Steve Nicol var eini leikmaður Liver-
pool sem skoraði 2 mörk í leiknum,
en aðrir markaskorarar liðsins í
þessum mikla markaleik voru: John
Barnes, Ian Rush, Peter Beardsley,
Steve McMahon, Gary Gillespie og
Glenn Hysen.
London. Fjórir leikir voru í 2.
deild í fyrrakvöld, úrslit þeirra urðu
sem hér segir:
Portsmouth-Plymouth ..... 0-3
Port Vale-Hull .............1-1
Sheffield United-Swindon . . . 2-0
Wolves-Brighton.............2-4
París. Bandaríski hjólreiðagarp-
urinn Greg Lemond, sem sigraði í
Tour de France keppninni í sumar,
hefur gengið til liðs við franska Z
hjólreiðaliðið. Lemond, sem er
heimsmeistari í íþrótt sinni gerði
þriggja ára samning við franska
liðið, sem rekið er af samnefndum
barnafataframleiðanda. Greiðslurn-
ar til handa Lemond fyrir samning-
inn munu vera met í greininni, eða
5,5 milljónir dala, 1,8 milljóniráári.
Hæstlaunaði hjólreiðamaður heims
hingað til var írinn Sean Kelly, en
hann fékk 740 þúsund dali fyrir árs
samning við hollenska liðið PDM.
Belgíska liðið ADR, sem hafði Le-
mond innanborðs í ár, ætlar í mál
við Bandaríkjamanninn, þar sem
samningur hans við liðið er í gildi í
eitt ár til viðbótar.
Yeróna. Helstu úrslit á frjáls-
íþróttamóti sem fram fór í Verónu á
Italíu í fyrrakvöld urðu sem hér
segir:
400 m grindahlaup karla:
1. Andre Phillips Bandar .... 48,70 sek.
2. Nat Page Bandaríkjun .... 48,75 sek.
3. Danny Harris Bandar .... 49,91 sek.
400 m hlaup karla:
1. Luis Martinez Kúbu....... 46,45 sek.
2. Rpberto Ribaud Ítalíu .... 46,79 sek.
3. Jorge Valentin Kúbu...... 46,79 sek.
100 m hlaup kvenna:
1. Merlene Ottey Jamaica . . . 11,06 sek.
2. Diane Williams Bandar . . . 11,25 sek.
3. Liliana Allen Kúbu........11,49 sek.
100 m hlaup karla:
1. Ray Stewart Jamaica......10,14 sek.
2. Francesco Pavoli ít.......10,32 sek.
3. Calvin Smith Bandar.......10,52 sek.
200 m hlaup karla:
1. Stefano Tilli Italíu..... 20,58 sek.
2. Henry Thomas Bandar. . . . 20,69 sek.
3. Thomas Jefferson Band. . . 20,93 sek.
800 m hlaup karla:
1. Wifred Kirochi Kenýa .... 1:46,17 m
2. Bibicar Nyang Senegal .. l:46,68m.
3. Moussa Fall Senegal .... 1:46,87 m.
London. Úrslit í leikjum á
Evrópumótunum í knattspymu,
Þriðjudagur:
Evrópukeppni bikarhafa:
Belenenses Portúgal 1
Monako Frakklandi 1
Slovan Bratislava Tékkóslóvakíu
3 Grasshopper Sviss 0
Valetta FC Möltu 1
Foto Vet Vín Austurríki 4
Partizan Belgrad Júgóslavíu 2
Glasgow Celtic Skotlandi 1
US Luxembourg Lúxemborg 0
Djurgarden Svíþjóð 0"
Ferencvaros Ungverjalandi 5
Valkeakosken Finnlandi 1
Real Valldolid Spáni 5
Humrun Spartans Möltu 0
UEFA-Evrópukeppni félagsliða:
Hibernians Skotlandi 1
Videoton Ungverjalandi 0
Akranes íslandi 0
FC Liege Belgíu 2
Handknattleikur:
V-Þjóðverjar fyrstu and-
stæðingar strákanna
- Heimsmeistarakeppni U-21 árs landsliða hefst í dag
íslenska landsliðið í handknattleik
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
er farið til Spánar til þátttöku í
úrslitakeppni heimsmeistarakeppn-
innar. íslenska liðið tryggði sér þátt-
tökurétt í úrslitunum með því að
sigra Svisslendinga í vor.
Hilmar Björnsson þjálfari liðsins
Héðinn Gilsson verður í eldlínunni með 21 árs landsliðinu gegn V-Þjóðverj-
um í kvöld.
vaidi eftirtalda leikmenn til fararinn-
ar:
Markverðir:
Páll Guðnason Val
Bergsveinn Bergsveinsson FH
Sigtryggur Albertsson Gróttu
Aðrir leikmenn:
Héðinn Gilsson FH
Páll Ólafsson KR
Þorsteinn Guðjónsson KR
Konráð Olavson KR
Sigurður Sveinsson KR
Ámi Friðleifsson Víkingi
Hilmar Hjaltason Stjömunni
Sigurður Bjamason Stjömunni
Halldór Ingólfsson Gróttu
Júlíus Gunnarsson Val
Finnur Jóhannsson Val
Einar Gunnar Sigurðsson Selfossi
Islensku strákarnir leika í riðli
með V-Þjóðverjum, Spánverjum og
Tékkum. Fyrsti leikur liðsins er í
dag gegn V-Þjóðverjum, á föstudag
verður leikið gegn Spánverjum og á
sunnudag verða Tékkar andstæðing-
ar íslenska liðsins.
I næstu viku verður síðan leikið í
milliriðlum keppninnar og loks til
úrslita um sæti.
Ljóst er að róðurinn hjá okkar
mönnum verður erfiður þar sem
andstæðingamir eru ekki af lakari
endanum. Hins vegar hefur íslenska
liðið á að skipa mörgum snjöllum
leikmönnum, sem áreiðanlega eiga
eftir að standa sig. BL
Mark Spitz:
Ætlar að vinna
10. ÓLgulliðí
Barcelona 1992
En þá verður hann 42 ára gamall
I viðtali við breska tímaritið
Parade, segist sundkappinn frægi
Mark Spitz stefna að þvi að keppa
á Ólympíuleikunum í Barcelona
1992 og vinna þar sín 10. gullverð-
laun.
Mark Spitz varð heimsfrægur á
Ólympíuleikunum í Múnchen
1972, en þar varð hann fyrstur
manna tU þess að vinna tU 7
gullverðlauna á sömu leikunum. í
Mexíkó 1968, hafði Spitz unnið
tvenn guUverðlaun í boðsunds-
greinum. Sigurtímar hans í
Múnchen voru allir heimsmet.
„Ég get unnið mín 10. guUverð-
laun í 100 m flugsundinu í Barce-
Iona,“ segir Spitz. „Ég verð 20
árum eldri en flestir hinna kepp-
endanna og að keppa í úrslitunum
með ungu mönnunum væri stór-
kostlcgur árangur. Þar að auki tel
ég að ef það sem ég er stefna að
geti sannfært fólk um að það er enn
líf og kraftur í fertugum inanni, þá
geri ég íþróttinni meira gagn en 7
gullverðlaun í Múnchen.“
Spitz segist vcra í góðri æflngu
og sigurtími sinn í 100 m flugsundi
í Múnchen hafí aðeins verið 1,27
sek. lakari en sigurtíminn i Seoul.
Rowdi Gaines, frægur sundkappi,
segir að ef einhver geti unnið það Mark Spitz með gullverðlaunin 7 sem hann vann á ÓL í Múnchen 1972.
afrek sem Spitz ætlar sér, þá sé Nú ætlar hann sér að vinna eitt guU tU viðbótar, 20 árum eftir airekið í
hann rétti maðurinn._______BL Múnchen. Skyldi maðurinn hafa synt á bakkann?
Knattspyrnu-
punktar frá
^Evrópu-
* Napólí. Fastlega er búist við
því að Diego Maradona leiki í 20-30
mínútur með Napólí-liðinu, í fyrri
leik liðsins gegn Sporting Lissabon í
UEFA Evrópukeppni félagsliða í
Lissabon. Félagar hans frá S-Amer-
íku í liði Napólí, þeir Carega og
Alemao verða einnig með.
* AC Mílan. Hollensku
stjömumar Marco van Basten og
Ruud Gullid léku ekki með liði sínu
AC Mílan í gærkvöld, gegn finnska
liðinu HJK Helsinki í Evrópukeppn-
inni. Basten, sem er að jafna sig eftir
uppskurð vegna brjóskloss, er þó
kominn til Ítalíu og hann reiknar
með að geta farið að leika með
liðinu eftir mánuð.
* Real Madríd. Aðalmálið
í knattspyrnunni á Spáni þessa dag-
ana er fótur Madridar-Ieikmannsins
Michel Gonzalez. Forseti Real
Madrid segir Michel þurfa á upp-
skurði að halda til þess að fá bata,
en leikmaðurinn sjálfur er á allt öðm
máli og kveðst vera á batavegi.
* Real Sociedad. Fyrir
samning þann sem í burðarliðnum
er milli Real Sociedad og Liverpool,
er búist við að spænska liðið þurfi að
greiða enska liðinu 1,4 milljónir
dala. Aldridge mun sjálfur fá í sinn
hlut um 240 þúsund dali á ári í þau
3 ár sem hann verður hjá spænska
liðinu.
* Southampton. Southam-
pton vill fá 1,25 milljónir punda fyrir
Danny Wallace. Manchester Unit-
ed, Arsenal og Tottenham hafa öll
sýnt Wallace áhuga og að auki
ónafngreint erlent lið.
★ Eintrakt Frankfurt.
Helsta stjarna Frankfurt-liðsins,
Uwe Bein braut á sér vinstri ökklann
f leik síðastliðinn laugardag. Bein
hefur lagst gegn læknisaðgerð, þar
sem þá yrði hann frá keppni í 3
mánuði. Hann ætlar sér að ná skjót-
um bata og leika á ný með liðinu
fyrir næstu mánaðamót.
★ PSV Eindhoven.
Hollenski stórliðið PSV íhugar nú
að gera samninga við tvo leikmenn
sem ieikið hafa með liðinu að undan-
förnu. Þeir em tékkneski landsliðs-
maðurinn Jozef Chavanec, sem átti
að fylla það skarð sem Ronald
Koeman skildi eftir sig hjá liðinu,
þegar hann gekk til liðs við Barce-
lona. Tékkinn hefur átt erfitt upp-
dráttar hjá PSV og ekki náð að vinna
sér fast sæti í liðinu. Þjálfari PSV,
Guus Hiddink segir að Tékkinn sé
ekki nógu harður af sér fyrir
v-evrópska knattspymu. Hinn leik-
maðurinn er Hollendingurinn Hans
Gillhaus, sem á tvo landsleiki að
baki. Gillhaus, sem er miðherji,
hefur heldur ekki tekist að vinna sér
fast sæti f liði PSV.
★ Ajax. Nítján ára gamall Holl-
endingur, Brian Roy vakti mikla
athygli í síðustu viku, þegar hann
lék sinn fyrsta landsleik. Andstæð-
ingarnir voru Danir og augu manna
opnuðust fyrir piltinum eftir þann
leik. Terry Venables flaug til
Hollands til þess að fylgjast með pilti
leika um síðustu helgi, en lið hans
Ajax, hefur sagt að Roy sé ekki
falur, sama hvaða upphæð í boði sé.
★ Roda JC. Annar Hollend-
ingur lék sinn fyrsta landsleik gegn
Dönum í síðustu viku. Það var
vamarmaðurinn Henk Fraeser frá
Roda JC. Hann er samningsbundinn
liði sínu þar til 1991, en neitar að
skrifa undir tveggja ára framleng-
ingu á samningnum. Sagt er að
stórlið á borð við PSV, Montpellier
og Borussia Dortmund hafi augastað
á Fraeser. BL