Tíminn - 14.09.1989, Qupperneq 18

Tíminn - 14.09.1989, Qupperneq 18
18 Tíminn Fimmtudagur 14. september 1989 lllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllll^ Margt smátt Liverpool. Bikarmeistarar Liverpool eru komnir í efsta sæti 1. deildar ensku knattspymunnar, eftir 9-0 sigur í Crystal Palace í fyrra- kvöld. John Aldridge lék sinn síð- asta leik fyrir Liverpool og kvaddi með marki úr vítaspyrnu. Aldridge heldur til Real Sociedad á Spáni. Steve Nicol var eini leikmaður Liver- pool sem skoraði 2 mörk í leiknum, en aðrir markaskorarar liðsins í þessum mikla markaleik voru: John Barnes, Ian Rush, Peter Beardsley, Steve McMahon, Gary Gillespie og Glenn Hysen. London. Fjórir leikir voru í 2. deild í fyrrakvöld, úrslit þeirra urðu sem hér segir: Portsmouth-Plymouth ..... 0-3 Port Vale-Hull .............1-1 Sheffield United-Swindon . . . 2-0 Wolves-Brighton.............2-4 París. Bandaríski hjólreiðagarp- urinn Greg Lemond, sem sigraði í Tour de France keppninni í sumar, hefur gengið til liðs við franska Z hjólreiðaliðið. Lemond, sem er heimsmeistari í íþrótt sinni gerði þriggja ára samning við franska liðið, sem rekið er af samnefndum barnafataframleiðanda. Greiðslurn- ar til handa Lemond fyrir samning- inn munu vera met í greininni, eða 5,5 milljónir dala, 1,8 milljóniráári. Hæstlaunaði hjólreiðamaður heims hingað til var írinn Sean Kelly, en hann fékk 740 þúsund dali fyrir árs samning við hollenska liðið PDM. Belgíska liðið ADR, sem hafði Le- mond innanborðs í ár, ætlar í mál við Bandaríkjamanninn, þar sem samningur hans við liðið er í gildi í eitt ár til viðbótar. Yeróna. Helstu úrslit á frjáls- íþróttamóti sem fram fór í Verónu á Italíu í fyrrakvöld urðu sem hér segir: 400 m grindahlaup karla: 1. Andre Phillips Bandar .... 48,70 sek. 2. Nat Page Bandaríkjun .... 48,75 sek. 3. Danny Harris Bandar .... 49,91 sek. 400 m hlaup karla: 1. Luis Martinez Kúbu....... 46,45 sek. 2. Rpberto Ribaud Ítalíu .... 46,79 sek. 3. Jorge Valentin Kúbu...... 46,79 sek. 100 m hlaup kvenna: 1. Merlene Ottey Jamaica . . . 11,06 sek. 2. Diane Williams Bandar . . . 11,25 sek. 3. Liliana Allen Kúbu........11,49 sek. 100 m hlaup karla: 1. Ray Stewart Jamaica......10,14 sek. 2. Francesco Pavoli ít.......10,32 sek. 3. Calvin Smith Bandar.......10,52 sek. 200 m hlaup karla: 1. Stefano Tilli Italíu..... 20,58 sek. 2. Henry Thomas Bandar. . . . 20,69 sek. 3. Thomas Jefferson Band. . . 20,93 sek. 800 m hlaup karla: 1. Wifred Kirochi Kenýa .... 1:46,17 m 2. Bibicar Nyang Senegal .. l:46,68m. 3. Moussa Fall Senegal .... 1:46,87 m. London. Úrslit í leikjum á Evrópumótunum í knattspymu, Þriðjudagur: Evrópukeppni bikarhafa: Belenenses Portúgal 1 Monako Frakklandi 1 Slovan Bratislava Tékkóslóvakíu 3 Grasshopper Sviss 0 Valetta FC Möltu 1 Foto Vet Vín Austurríki 4 Partizan Belgrad Júgóslavíu 2 Glasgow Celtic Skotlandi 1 US Luxembourg Lúxemborg 0 Djurgarden Svíþjóð 0" Ferencvaros Ungverjalandi 5 Valkeakosken Finnlandi 1 Real Valldolid Spáni 5 Humrun Spartans Möltu 0 UEFA-Evrópukeppni félagsliða: Hibernians Skotlandi 1 Videoton Ungverjalandi 0 Akranes íslandi 0 FC Liege Belgíu 2 Handknattleikur: V-Þjóðverjar fyrstu and- stæðingar strákanna - Heimsmeistarakeppni U-21 árs landsliða hefst í dag íslenska landsliðið í handknattleik skipað leikmönnum 21 árs og yngri er farið til Spánar til þátttöku í úrslitakeppni heimsmeistarakeppn- innar. íslenska liðið tryggði sér þátt- tökurétt í úrslitunum með því að sigra Svisslendinga í vor. Hilmar Björnsson þjálfari liðsins Héðinn Gilsson verður í eldlínunni með 21 árs landsliðinu gegn V-Þjóðverj- um í kvöld. vaidi eftirtalda leikmenn til fararinn- ar: Markverðir: Páll Guðnason Val Bergsveinn Bergsveinsson FH Sigtryggur Albertsson Gróttu Aðrir leikmenn: Héðinn Gilsson FH Páll Ólafsson KR Þorsteinn Guðjónsson KR Konráð Olavson KR Sigurður Sveinsson KR Ámi Friðleifsson Víkingi Hilmar Hjaltason Stjömunni Sigurður Bjamason Stjömunni Halldór Ingólfsson Gróttu Júlíus Gunnarsson Val Finnur Jóhannsson Val Einar Gunnar Sigurðsson Selfossi Islensku strákarnir leika í riðli með V-Þjóðverjum, Spánverjum og Tékkum. Fyrsti leikur liðsins er í dag gegn V-Þjóðverjum, á föstudag verður leikið gegn Spánverjum og á sunnudag verða Tékkar andstæðing- ar íslenska liðsins. I næstu viku verður síðan leikið í milliriðlum keppninnar og loks til úrslita um sæti. Ljóst er að róðurinn hjá okkar mönnum verður erfiður þar sem andstæðingamir eru ekki af lakari endanum. Hins vegar hefur íslenska liðið á að skipa mörgum snjöllum leikmönnum, sem áreiðanlega eiga eftir að standa sig. BL Mark Spitz: Ætlar að vinna 10. ÓLgulliðí Barcelona 1992 En þá verður hann 42 ára gamall I viðtali við breska tímaritið Parade, segist sundkappinn frægi Mark Spitz stefna að þvi að keppa á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992 og vinna þar sín 10. gullverð- laun. Mark Spitz varð heimsfrægur á Ólympíuleikunum í Múnchen 1972, en þar varð hann fyrstur manna tU þess að vinna tU 7 gullverðlauna á sömu leikunum. í Mexíkó 1968, hafði Spitz unnið tvenn guUverðlaun í boðsunds- greinum. Sigurtímar hans í Múnchen voru allir heimsmet. „Ég get unnið mín 10. guUverð- laun í 100 m flugsundinu í Barce- Iona,“ segir Spitz. „Ég verð 20 árum eldri en flestir hinna kepp- endanna og að keppa í úrslitunum með ungu mönnunum væri stór- kostlcgur árangur. Þar að auki tel ég að ef það sem ég er stefna að geti sannfært fólk um að það er enn líf og kraftur í fertugum inanni, þá geri ég íþróttinni meira gagn en 7 gullverðlaun í Múnchen.“ Spitz segist vcra í góðri æflngu og sigurtími sinn í 100 m flugsundi í Múnchen hafí aðeins verið 1,27 sek. lakari en sigurtíminn i Seoul. Rowdi Gaines, frægur sundkappi, segir að ef einhver geti unnið það Mark Spitz með gullverðlaunin 7 sem hann vann á ÓL í Múnchen 1972. afrek sem Spitz ætlar sér, þá sé Nú ætlar hann sér að vinna eitt guU tU viðbótar, 20 árum eftir airekið í hann rétti maðurinn._______BL Múnchen. Skyldi maðurinn hafa synt á bakkann? Knattspyrnu- punktar frá ^Evrópu- * Napólí. Fastlega er búist við því að Diego Maradona leiki í 20-30 mínútur með Napólí-liðinu, í fyrri leik liðsins gegn Sporting Lissabon í UEFA Evrópukeppni félagsliða í Lissabon. Félagar hans frá S-Amer- íku í liði Napólí, þeir Carega og Alemao verða einnig með. * AC Mílan. Hollensku stjömumar Marco van Basten og Ruud Gullid léku ekki með liði sínu AC Mílan í gærkvöld, gegn finnska liðinu HJK Helsinki í Evrópukeppn- inni. Basten, sem er að jafna sig eftir uppskurð vegna brjóskloss, er þó kominn til Ítalíu og hann reiknar með að geta farið að leika með liðinu eftir mánuð. * Real Madríd. Aðalmálið í knattspyrnunni á Spáni þessa dag- ana er fótur Madridar-Ieikmannsins Michel Gonzalez. Forseti Real Madrid segir Michel þurfa á upp- skurði að halda til þess að fá bata, en leikmaðurinn sjálfur er á allt öðm máli og kveðst vera á batavegi. * Real Sociedad. Fyrir samning þann sem í burðarliðnum er milli Real Sociedad og Liverpool, er búist við að spænska liðið þurfi að greiða enska liðinu 1,4 milljónir dala. Aldridge mun sjálfur fá í sinn hlut um 240 þúsund dali á ári í þau 3 ár sem hann verður hjá spænska liðinu. * Southampton. Southam- pton vill fá 1,25 milljónir punda fyrir Danny Wallace. Manchester Unit- ed, Arsenal og Tottenham hafa öll sýnt Wallace áhuga og að auki ónafngreint erlent lið. ★ Eintrakt Frankfurt. Helsta stjarna Frankfurt-liðsins, Uwe Bein braut á sér vinstri ökklann f leik síðastliðinn laugardag. Bein hefur lagst gegn læknisaðgerð, þar sem þá yrði hann frá keppni í 3 mánuði. Hann ætlar sér að ná skjót- um bata og leika á ný með liðinu fyrir næstu mánaðamót. ★ PSV Eindhoven. Hollenski stórliðið PSV íhugar nú að gera samninga við tvo leikmenn sem ieikið hafa með liðinu að undan- förnu. Þeir em tékkneski landsliðs- maðurinn Jozef Chavanec, sem átti að fylla það skarð sem Ronald Koeman skildi eftir sig hjá liðinu, þegar hann gekk til liðs við Barce- lona. Tékkinn hefur átt erfitt upp- dráttar hjá PSV og ekki náð að vinna sér fast sæti í liðinu. Þjálfari PSV, Guus Hiddink segir að Tékkinn sé ekki nógu harður af sér fyrir v-evrópska knattspymu. Hinn leik- maðurinn er Hollendingurinn Hans Gillhaus, sem á tvo landsleiki að baki. Gillhaus, sem er miðherji, hefur heldur ekki tekist að vinna sér fast sæti f liði PSV. ★ Ajax. Nítján ára gamall Holl- endingur, Brian Roy vakti mikla athygli í síðustu viku, þegar hann lék sinn fyrsta landsleik. Andstæð- ingarnir voru Danir og augu manna opnuðust fyrir piltinum eftir þann leik. Terry Venables flaug til Hollands til þess að fylgjast með pilti leika um síðustu helgi, en lið hans Ajax, hefur sagt að Roy sé ekki falur, sama hvaða upphæð í boði sé. ★ Roda JC. Annar Hollend- ingur lék sinn fyrsta landsleik gegn Dönum í síðustu viku. Það var vamarmaðurinn Henk Fraeser frá Roda JC. Hann er samningsbundinn liði sínu þar til 1991, en neitar að skrifa undir tveggja ára framleng- ingu á samningnum. Sagt er að stórlið á borð við PSV, Montpellier og Borussia Dortmund hafi augastað á Fraeser. BL

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.