Tíminn - 14.09.1989, Síða 19
Fimmtudagur 14. september 1989
Tíminn 19
ÍÞRÓTTIR
Lárus Guðmundsson, grimmdarlegur á svip, á hér I baráttu við einn vamarmanna Dynamo Berlin. Timamynd: Pjetur
Evrópukeppni bikarhafa:
Enn einn ósigurinn
gegn A-Þjóðverjum
Valsmenn máttu bíta í það súra
epli að tapa fyrir Dynamo Berlin er
liðin áttust við á Laugardalsvelli í
gærkveldi. Valsmenn sýndu einn
sinn besta leik í sumar og höfðu í
raun alla burði til að vinna leikinn.
Valsmenn voru yfir í hálfleik 1-0 en
fengu svo á sig tvö klaufaleg mörk í
seinni hálfleik og sigurinn varð því
Þjóðverja.
Valsmenn byrjuðu leikinn strax af
miklum krafti. Á þriðju mínútu kom
fyrsta færi leiksins, er Steinar
Adolfsson átti góðan skalla sem rétt
sleikti hægri marksúlu Berlinar
liðsins.
Leikmenn Dynamo Berlin áttu í
hinu mesta basli með fríska Vals-
menn og virtist hin mikla mótstaða
koma þeim í opna skjöldu. Fyrsta
umtalsverða marktækifæri þeirra
kom á tuttugustu mínutu. Þá tók
hinn eldfljóti Andreas Thom til
sinna ráða og geystist í gegnum vöm
Vals og átti hörkuskot sem Bjarni
Sigurðsson varði meistaralega.
Mínútu síðar átti hinn ungi og
efnilegi Baldur Bjarnason gott skot
sem hinn risastóri Bodo Rudwaleit
varði stórglæsilega í hom.
Baldur var ekki búinn að segja sitt
síðasta orð. Á þrítugustu og áttundu
mín. lék Baldur fallega upp vinstri
vænginn og sendi stórglæsiiega send-
ingu beint á höfuðið á Halldóri
Áskelssyni sem hamraði hann í mark
Þjóðverjanna. Staðan því 1-0 sem
verður að teljast mjög sanngjamt
miðað við gang leiksins.
Síðustu mínútur fyrri hálfleiks
hélst leikurinn í nokkm jafnvægi og
sóttu Valsmenn þó heldur meira ef
eitthvað var. Vörnin var sterk og
dekkun öll til fyrirmyndar. Sérstak-
lega ber þó að nefna Ingvar Guð-
mundsson sem gætti Rainer Ernst,
fyrirliða Dynamo Berlin, því hann
nánast sást ekki í fyrri hálfleik.
Er flautað var til leikhlés var
staðan sem sagt 1-0 fyrir Val, og
bjartsýnustu menn vom famir að
rifja upp leikinn frá í fyrra er
Valsmenn lögðu Monaco svo eftir-
minnilega að velli 1-0.
Seinni hálfleikur hófst mjög líkt
og sá fyrri. Valsmenn höfðu frum-
kvæðið og virtust hafa alla burði til
að bæta við marki.
En Helmut Jáschke, þjálfari Dy-
namo Berlin, hafði greinilega mess-
að vel yfir sínum mönnum í leikhlé-
inu því brátt fóm leikmenn Dynamo
Berlin að koma meira inn í leikinn.
Á tíundu mín. komst AndreasThom
einn inn fyrir og á síðustu stundu
tókst Magna Péturssyni að pota
boltanum til Bjarna í markinu.
Stuttu seinna var Thom aftur á
ferðinni. Eike Kuttner sendi góða
sendingu á Thom og hann komst inn
fyrir Valsvörnina en í þetta skiptið
tókst Sævari Jónssyni að koma bolt-
anum í horn.
Á tuttugustu mín fengu Valsmenn
ágætt færi. Magni renndi þá boltan-
um úr aukaspyrnu til Sævars sem átti
ágætt skot, en rétt framhjá. Stuttu
seinna átti Rainer Ernst góða send-
ingu á Eike Kuttner sem komst einn
inn fyrir, en Bjami varði glæsilega.
Næst dró til tíðinda á tuttugustu
og fimmtu mín.. Einn minnsti maður
vallarins Heiko Bonan jafnaði leik-
inn með skalla. Valsmenn bökkuðu
full mikið og Þjóðverjar gengu á
lagið og jöfnuðu 1-1.
Fimm mín. síðar komast leikmenn
Dynamo Berlin yfir. Markaskelfir-
inn Andreas Thom átti þá skot í einn
varnarmann Vals sem endaði neðst
í markhorninu, óverjandi fyrir
Bjarna sem lagður var af stað í hitt
hornið. Staðan því 1-2 og fimmtán
mín. til leiksloka.
Leikmenn Dynamo höfðu pressað
mikið fram að þessu samhliða því
sem Valsmenn gáfu eftir og því varð
rýmra á miðjunni og meira pláss til
að byggja upp sókn.
Það sem eftir lifði leiks lá heldur
á Valsmönnum. Leiknum lauk 1-2.
Það má segja að Valsmenn hafi
verið óheppnir að vinna ekki leikinn.
Þetta var trúlega þeirra besti leikur
í sumar en það var einfaldlega ekki
nóg. Bestu menn liðsins voru; Þor-
grímur sem stóð fyllilega fyrir sínu
og sýndi mikið öryggi, Bjarni var
traustur og fékk ekkert að gert við
mörkunum. En í raun var það sterk
liðsheild sem eikenndi Valsliðið.
Það er ljóst að róðurinn verður
Valsmönnum erfiður þegar þeir
halda í víking til A-Þýskalands að
tveim vikum liðnum, nema ef svo
færi að einhverjir leikmanna Dy-
namo væru farnir til Ungverjalands!
FH.
Sagt eftir leikinn
Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði
Vals:“ Mér fannst fyrri hálf-
Ieikurinn mjög góður af okkar
hálfu. Við lékum skynsamlegan
leik og höfðum í fullu tré við
leikmenn Dynamo Berlin og upp-
skárum þetta fallega mark sem
Halldór skoraði. í seinni hálfleik
bökkuðum við of mikið og gáfum
þeim eftir á miðjunni sem varð til
þess að þeir jöfnuðu. Við fórum
þá aftur að sækja og við það
opnaðist vöm okkar og þeir náðu
að koma boltanum inn. Það er
greinilegt að það má ekki líta af
Andreas Thom, hann er ægilega
snöggur og ef hann nær-að snúa
sér við þá er hann þotinn."
Guðmundur Þorbjörnsson,
þjálfari Vals: „Við lékum vel í
fyrri hálfleik og sú leikaðferð sem
ég setti upp skilaði sér vel. Við
byggðum upp á sterkri vöm og
skyndisóknum sem tókst vel.-Við
fengum á okkur ódýrt jöfnunar-
mark þegar minnsti maðurinn á
vellinum skoraði með skalla og
eftir það má segja að munurinn á
áhugamönnum og atvinnumönn-
um hafi komið í ljós. Ég er samt
sem áður mjög sáttur við leik
minna manna. Utileikurinn verð-
ur mjög erfiður, við þurfum að
koma á þá minnst tveim mörkum
og ef við leikum þá eins og við
gerðum í fyrri hálfleik hér í dag
gæti það tekist".
Helmut Jásckhe, þjálfari
Dynamo Berlin. „Ég er frekar
óhress með leik minna manna í
fyrri hálfleik. Þeir fóru rólega af
stað og var þeim refsað fyrir það
með marki. Mark Valsmanna var
vel gert og fallega afgreitt hjá
leikmanni nr: 7 (Halldóri Áskels-
syni). Ég lét mína menn heyra
það í hálfleik og það skilaði sér í
betri baráttu í síðari hálfleik".
FH.
Evrópukeppni
meistaraliöa:
Stórtap
Framara
íslandsmeistarar Fram
máttu þola stóran skell í gær-
kvöld þegar þeir léku gegn
rúmensku meisturunum
Steaua Búkarest. Leiknum
lauk með 4-0 sigri Rúmenanna.
Dan Petrescu skoraði fyrsta
mark leiksins á 30. mín. en rétt
fyrir leikhlé bætti Gheorghe
Hagi öðru marki við úr víta-
spyrnu. Á síðustu 7 mín. leiks-
ins skoruðu Rúmenarnir tví-
vegis, fyrst Gavrila Balint á 83.
mín. og síðan Istvan Mujnai á
85. mín. Um 10 þúsund áhorf-
endur mættu á völlinn í höf-
uðborg Rúmeníu.
Róðurinn verður því erfiður
hjá Fram í síðari leiknum, sem
fram fer á Laugardalsvelli mið-
vikudaginn 27. september.
LESTUNARÁfmUNi
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Árhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell........25/9
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
Lestunarhafnir innanlands:
Reykjavík:
Alla miðvikudaga
Vestmannaeyjar:
Alla föstudaga
Húsavík:
Alla sunnudaga
Akureyri:
Alla mánudaga
ísafjörður:
Alla þriðjudaga
SKIPADEILD
r^kSAMBANDSINS
Sambandshúsinu, Kirkjusandi
105, Reykjavfk, sfmi 698300
1111 11 11'
IAKN fRAUSmA ILIJININGA