Tíminn - 14.09.1989, Blaðsíða 19

Tíminn - 14.09.1989, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 14. september 1989 Tíminn 19 ÍÞRÓTTIR Lárus Guðmundsson, grimmdarlegur á svip, á hér I baráttu við einn vamarmanna Dynamo Berlin. Timamynd: Pjetur Evrópukeppni bikarhafa: Enn einn ósigurinn gegn A-Þjóðverjum Valsmenn máttu bíta í það súra epli að tapa fyrir Dynamo Berlin er liðin áttust við á Laugardalsvelli í gærkveldi. Valsmenn sýndu einn sinn besta leik í sumar og höfðu í raun alla burði til að vinna leikinn. Valsmenn voru yfir í hálfleik 1-0 en fengu svo á sig tvö klaufaleg mörk í seinni hálfleik og sigurinn varð því Þjóðverja. Valsmenn byrjuðu leikinn strax af miklum krafti. Á þriðju mínútu kom fyrsta færi leiksins, er Steinar Adolfsson átti góðan skalla sem rétt sleikti hægri marksúlu Berlinar liðsins. Leikmenn Dynamo Berlin áttu í hinu mesta basli með fríska Vals- menn og virtist hin mikla mótstaða koma þeim í opna skjöldu. Fyrsta umtalsverða marktækifæri þeirra kom á tuttugustu mínutu. Þá tók hinn eldfljóti Andreas Thom til sinna ráða og geystist í gegnum vöm Vals og átti hörkuskot sem Bjarni Sigurðsson varði meistaralega. Mínútu síðar átti hinn ungi og efnilegi Baldur Bjarnason gott skot sem hinn risastóri Bodo Rudwaleit varði stórglæsilega í hom. Baldur var ekki búinn að segja sitt síðasta orð. Á þrítugustu og áttundu mín. lék Baldur fallega upp vinstri vænginn og sendi stórglæsiiega send- ingu beint á höfuðið á Halldóri Áskelssyni sem hamraði hann í mark Þjóðverjanna. Staðan því 1-0 sem verður að teljast mjög sanngjamt miðað við gang leiksins. Síðustu mínútur fyrri hálfleiks hélst leikurinn í nokkm jafnvægi og sóttu Valsmenn þó heldur meira ef eitthvað var. Vörnin var sterk og dekkun öll til fyrirmyndar. Sérstak- lega ber þó að nefna Ingvar Guð- mundsson sem gætti Rainer Ernst, fyrirliða Dynamo Berlin, því hann nánast sást ekki í fyrri hálfleik. Er flautað var til leikhlés var staðan sem sagt 1-0 fyrir Val, og bjartsýnustu menn vom famir að rifja upp leikinn frá í fyrra er Valsmenn lögðu Monaco svo eftir- minnilega að velli 1-0. Seinni hálfleikur hófst mjög líkt og sá fyrri. Valsmenn höfðu frum- kvæðið og virtust hafa alla burði til að bæta við marki. En Helmut Jáschke, þjálfari Dy- namo Berlin, hafði greinilega mess- að vel yfir sínum mönnum í leikhlé- inu því brátt fóm leikmenn Dynamo Berlin að koma meira inn í leikinn. Á tíundu mín. komst AndreasThom einn inn fyrir og á síðustu stundu tókst Magna Péturssyni að pota boltanum til Bjarna í markinu. Stuttu seinna var Thom aftur á ferðinni. Eike Kuttner sendi góða sendingu á Thom og hann komst inn fyrir Valsvörnina en í þetta skiptið tókst Sævari Jónssyni að koma bolt- anum í horn. Á tuttugustu mín fengu Valsmenn ágætt færi. Magni renndi þá boltan- um úr aukaspyrnu til Sævars sem átti ágætt skot, en rétt framhjá. Stuttu seinna átti Rainer Ernst góða send- ingu á Eike Kuttner sem komst einn inn fyrir, en Bjami varði glæsilega. Næst dró til tíðinda á tuttugustu og fimmtu mín.. Einn minnsti maður vallarins Heiko Bonan jafnaði leik- inn með skalla. Valsmenn bökkuðu full mikið og Þjóðverjar gengu á lagið og jöfnuðu 1-1. Fimm mín. síðar komast leikmenn Dynamo Berlin yfir. Markaskelfir- inn Andreas Thom átti þá skot í einn varnarmann Vals sem endaði neðst í markhorninu, óverjandi fyrir Bjarna sem lagður var af stað í hitt hornið. Staðan því 1-2 og fimmtán mín. til leiksloka. Leikmenn Dynamo höfðu pressað mikið fram að þessu samhliða því sem Valsmenn gáfu eftir og því varð rýmra á miðjunni og meira pláss til að byggja upp sókn. Það sem eftir lifði leiks lá heldur á Valsmönnum. Leiknum lauk 1-2. Það má segja að Valsmenn hafi verið óheppnir að vinna ekki leikinn. Þetta var trúlega þeirra besti leikur í sumar en það var einfaldlega ekki nóg. Bestu menn liðsins voru; Þor- grímur sem stóð fyllilega fyrir sínu og sýndi mikið öryggi, Bjarni var traustur og fékk ekkert að gert við mörkunum. En í raun var það sterk liðsheild sem eikenndi Valsliðið. Það er ljóst að róðurinn verður Valsmönnum erfiður þegar þeir halda í víking til A-Þýskalands að tveim vikum liðnum, nema ef svo færi að einhverjir leikmanna Dy- namo væru farnir til Ungverjalands! FH. Sagt eftir leikinn Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði Vals:“ Mér fannst fyrri hálf- Ieikurinn mjög góður af okkar hálfu. Við lékum skynsamlegan leik og höfðum í fullu tré við leikmenn Dynamo Berlin og upp- skárum þetta fallega mark sem Halldór skoraði. í seinni hálfleik bökkuðum við of mikið og gáfum þeim eftir á miðjunni sem varð til þess að þeir jöfnuðu. Við fórum þá aftur að sækja og við það opnaðist vöm okkar og þeir náðu að koma boltanum inn. Það er greinilegt að það má ekki líta af Andreas Thom, hann er ægilega snöggur og ef hann nær-að snúa sér við þá er hann þotinn." Guðmundur Þorbjörnsson, þjálfari Vals: „Við lékum vel í fyrri hálfleik og sú leikaðferð sem ég setti upp skilaði sér vel. Við byggðum upp á sterkri vöm og skyndisóknum sem tókst vel.-Við fengum á okkur ódýrt jöfnunar- mark þegar minnsti maðurinn á vellinum skoraði með skalla og eftir það má segja að munurinn á áhugamönnum og atvinnumönn- um hafi komið í ljós. Ég er samt sem áður mjög sáttur við leik minna manna. Utileikurinn verð- ur mjög erfiður, við þurfum að koma á þá minnst tveim mörkum og ef við leikum þá eins og við gerðum í fyrri hálfleik hér í dag gæti það tekist". Helmut Jásckhe, þjálfari Dynamo Berlin. „Ég er frekar óhress með leik minna manna í fyrri hálfleik. Þeir fóru rólega af stað og var þeim refsað fyrir það með marki. Mark Valsmanna var vel gert og fallega afgreitt hjá leikmanni nr: 7 (Halldóri Áskels- syni). Ég lét mína menn heyra það í hálfleik og það skilaði sér í betri baráttu í síðari hálfleik". FH. Evrópukeppni meistaraliöa: Stórtap Framara íslandsmeistarar Fram máttu þola stóran skell í gær- kvöld þegar þeir léku gegn rúmensku meisturunum Steaua Búkarest. Leiknum lauk með 4-0 sigri Rúmenanna. Dan Petrescu skoraði fyrsta mark leiksins á 30. mín. en rétt fyrir leikhlé bætti Gheorghe Hagi öðru marki við úr víta- spyrnu. Á síðustu 7 mín. leiks- ins skoruðu Rúmenarnir tví- vegis, fyrst Gavrila Balint á 83. mín. og síðan Istvan Mujnai á 85. mín. Um 10 þúsund áhorf- endur mættu á völlinn í höf- uðborg Rúmeníu. Róðurinn verður því erfiður hjá Fram í síðari leiknum, sem fram fer á Laugardalsvelli mið- vikudaginn 27. september. LESTUNARÁfmUNi Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: Árhus: Alla þriðjudaga Svendborg: Annan hvern þriðjudag Kaupmannahöfn: Alla miðvikudaga Varberg: Alla fimmtudaga Moss: Alla laugardaga Hull: Alla mánudaga Antwerpen: Alla þriðjudaga Rotterdam: Alla þriðjudaga Hamborg: Alla miðvikudaga Helsinki: Hvassafell........25/9 Gloucester/Boston: Alla þriðjudaga New York: Alla föstudaga Portsmouth/Norfolk: Alla sunnudaga Lestunarhafnir innanlands: Reykjavík: Alla miðvikudaga Vestmannaeyjar: Alla föstudaga Húsavík: Alla sunnudaga Akureyri: Alla mánudaga ísafjörður: Alla þriðjudaga SKIPADEILD r^kSAMBANDSINS Sambandshúsinu, Kirkjusandi 105, Reykjavfk, sfmi 698300 1111 11 11' IAKN fRAUSmA ILIJININGA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.