Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 4
Föstudagur 15. september 1989 4 Tíminn í VERZLUNARMANNAFELAG REYKJAVÍKUR Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða- greiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um kjör fulltrúa á 17. þing Landssambands íslenskra verslunarmanna. Kjörnir verða 70 fulltrúar og jafn margir til vara. Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Húsi verslun- arinnar, fyrir kl. 12,00 mánudaginn 18. september næstkomandi. Kjörstjórnin CARRON ELDHÚSVASKAR úr stáli og hvítu sili qvartz K AUDUNSSON GRENSASVEGI 8 S: 68 67 75 & 68 60 88 TÖLVU- NOTENDUR Við í Prentsmiðjunni Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu Smiðjuvegi 3,^- 200 Kópayogur. Sírpi 45000 / mjóu slitlagi (einbreiðu) þurfa báðir bílstjórarnir að hafa hægri hjól fyrir utan slitlagið við UMFERÐAR RÁÐ t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa Finns Klemenssonar Hóli, Norðurárdal Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sjúkrahúss Akraness fyrir frábæra umönnun. Herdís Guðmundsdóttir ÞórirFinnsson Rósa Árelíusardóttir Sigrún Finnsdóttir Guðmundur Sæmundsson GuðmundurFinnsson Anna Hjálmarsdóttir og barnabörn. Byggðaáætlun fyrir Vestfirði leggur til ráðningu iðnráðgjafa fyrir fjórðunginn er vinni að hagnýtum rannsóknum í sjávarútvegsgreinum: Þróunarfélag í sjávarútvegi? Byggðastofnun hefur sent frá sér byggðaáætlun fyrir Vestfirði, þar sem varpað er fram áætlunum um hvernig megi hugsanlega stöðva þá óæskilegu byggðaþróun sem verið hefur á Vestfjörðum hin síðari ár. Hér er um að ræða samstarfsverkefni heimamanna á Vestfjörðum, Fjórðungs- sambands Vestfirðinga og Byggðastofnunnar. í niðurstöðum og tillögum áætlun- arinnar er bent á að atvinnutækifær- um í fiskveiðum og úrvinnslu afla muni ekki fjölga á næstunni, nema til komi breyting á fiskveiðistefnu. Lagt er til að strax verði ráðinn iðnráðgjafi fyrir Vestfirði og starfi hann sérstaklega að þeim viðfangs- efnum sem fyrir eru í eflingu hvers konar hagnýtra rannsókna í sjávar- útvegsgreinum og fyrirtækjum í tengslum við þær. Þeirri hugmynd er varpað fram að sjávarútvegsfyrir- tæki á Vestfjörðum stofnuðu með sér þróunarfélag í sjávarútvegi, hugsanlega með þátttöku ríkisins. Jafnframt sé mikilvægt að þess verði gætt við endurskipulagningu náms- brauta fyrir framhaldsskólastigið að það tengist atvinnulífi Vestfjarða og ný og áhugaverð verkefni komi inn í skólakerfið, eftir því sem kostur er á. Samtökum sveitarfélaga heima í héraði verði falið að gera ítarlega athugun á því hvaða þjónustu opin- berra stofnana mætti tryggja viðun- andi aðstöðu í fjórðungnum og setja fram rökstuðning fyrir því að við- komandi stofnun flytji þjónustu sína til Vestfjarða. Meðal tillagna í landbúnaðarmál- um er að framleiðsluréttur sauð- fjárafurða verði eigi minni á Vest- fjörðum, en sem nam heildarfram- leiðslu haustið 1986 og verði færan- legur milli framleiðenda eftir því sem þeim fækkar innan kjördæmis- ins, enda sé sá flutningur studdur byggðarlegum rökum og samþykkt- ur af samtökum bænda. Það sama er lagt til varðandi mjólkurframleiðsl- una, þ.e. að heimilt verði að flytja framieiðslurétt milli einstakra fram- leiðenda innan hvers samlagssvæðis, enda liggi fyrir samþykki búmarks- nefnda. Markmið þess tilflutnings verði að flytja framleiðsluna nær vinslustöðvunum. Þá er bent á í tillögukafla áætlunarinnar að heppi- legt sé að heildarframleiðsluréttur bænda í mjólk verði sem næst því sem daglegar þarfir markaðar eru á svæðinu. Vestfirðingar binda nokkrar vonir við þjónustu við ferðamenn í fram- tíðinni og mælst er til að ferða- mannaþjónusta og aðrar nýbúgrein- ar verði efldar þar sem að skilyrði eru fyrir hendi. Efling ferðamanna- þjónustu sé langtímaverkefni, en ætia megi að hún geti orðið nokkur búbót er fram líða stundir. -ÁG Alþýöuleikhúsiö: ÍSAÐAR GELLUR í kvöld, föstudag, frumsýnir Al- þýðuleikhúsið leikritið ísaðar gellur eftir breska rithöfundinn og hag- fræðinginn Frederick Harrison. Leikritið heitir á frummálinu „Northern Lights“. í verkinu segir frá dvöl þriggja stúlkna frá Hull á Englandi í sjávar- þorpi á norðanverðum Vestfjörðum. Þær hafa flúið bágt atvinnuástand heima fyrir í von um betri lífsafkomu og bjartari framtíð á íslandi. Leikrit- ið snýst síðan um þann raunveru- leika sem við þeim blasir í fiskvinnu í íslensku sjávarþorpi og kynni þeirra af íslendingum. Verkið er óspart kryddað hispurslausri gaman- semi og fá íslendingar sinn skammt ekki síður en aðrir sem koma við sögu. Leikritið var frumsýnt í Hull fyrr á þessu ári og vakti það mikla athygli. Sýningin hefur farið víða um England og notið mikilla vin- sælda, nú síðast á listahátíðinni í Edinborg. ísaðar gellur er 42. verkefni Al- þýðuleikhússins og er leikritið sýnt í Iðnó við Vonarstræti. SSH. Aðalleikarar í „tsuðum gellum“: Ása Hlín Svavarsdóttir, Ingrid Jónsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. ARNARFLUG Á FERD OG FLUGI Arnarflug hf. leggur upp í kynn- ingarferð um landsbyggðina sunnudaginn 17. september nk. og verða sjö staðir heimsóttir í fyrsta áfanga, sem stendur til 30. sept- ember. Þeir staðir sem heimsóttir verða í fyrstu atrennu eru Akur- eyri, Sauðárkrókur, Húsavík, ísa- fjörður, Egilsstaðir, Höfn og Vest- mannaeyjar. Á ofangreindum stöðum verða kynntar þær borgir sem félagið flýgur til í Evrópu og vetraráætlan- ir þess. Staðimir verða heimsóttir á Domier flugvél frá Amarflugi Innanlands hf. Á hverjum stað verður gestum gert sérstakt ferða- tilboð sem gildir aðeins þann dag. Auk þess verður ferðagetraun og vinningar verða farmiðar til Evr- ópu. Auk starfsfólks Arnarflugs verða með í förinni Frúin frá Hamborg og ung aðstoðarkona hennar, sem skemmta munu gest- um með söng og glensi. -ABÓ Ný bók um sagnorð Hjá Námsgagnastofnun er kom- Áður hafa komið út hjá Náms- in út bókin Sagnorð eftir Magnús gagnastofnun verkefnabækurnar Jón Árnason. Bókin er cinnota Fallorð og Orðhákur 1. og 2. eftir verkefnabók í íslensku ætluð 7.-9. Sama höfund. Fjöldi teikninga og bekk gmnnskólans til glöggvunar orðtakaþrauta eftir Kolbein Árna- og greiningar sagnorða í íslensku. son eru í bókinni. -EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.