Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 7
Föstudagur 15. september 1989 Tíminn 7 VETTVANGUR Úr skýrslu Áskels Einarssonar, framkvstj. Fjórðungssambands Norðlendinga, á ársþingi sambandsins fyrir skömmu: Kassapössunarstefna í stað félagshyggju? Fulltrúaráðsfundur Sambands ísl. sveitarfélaga Á fulltrúaráðsfundi Sambands ísl. sveitarfélaga, sem haldinn var á Akureyri í mars s.l., kom í ljós viðhorf ýmissa sveitarstjórnar- manna til samtaka sveitarfélaga, sem margur hefði ætlað að heyrði til liðinni tíð. Þegar kom til at- kvæða tillaga formannsins, um að Sambandi ísl. sveitarfélaga og landshlutasamtökunum verði tryggður sá hundraðshluti í tekjum jöfnunarsjóðs, sem að fullu hefði bætt skerðingu síðustu ára, brást víðsýni fundarins. Þetta varð til þess að ekki fékkst leiðrétting mála á Alþingi. Megin- rökin þessara manna voru þau að verið væri að skerða hlut sveitarfé- laganna varðandi tekjujöfnunar- framlögin. Á sama fundi^komu fram upplýsingar, sem sýndu að Samband ísl. sveitarfélaga væri of fjárvana til að sinna verkefnum sínum. Einnig var vitað að mörg landshlutasamtök væru nánast óstarfhæf til að sinna meiri háttar verkefnum. Sú stefna virðist eiga fylgi að fagna meðal sveitarstjórn- armanna, sem nefna má kassapöss- unarstefnu. Það er að leggja einfalt mat á hlutina, peningalega séð með yfirsýn innan marka eigin túngarða. í þessu verður hlutur landshlutasamtakanna lakari m.a. að þau verða að byggja megin- tekjuöflun sína á árgjöldum sveit- arfélaganna. Hlutur Sambands fsl. sveitarfélaga er betri, að því leyti að sambandið hefur notið mikils fjárhagslegs stuðnings með hlut- deildarrekstri með Lánasjóði sveit- arfélaga og við Bjargráðasjóði. Þar að auki hefur sambandið notið ríflegs framlags úr jöfnunarsjóði og þarf ekki að innheimta árgjöld hjá sveitarfélögum. Afstaðan á fulltrúaráðsfundinum í mars s.l. hlýtur að vekja forráðamenn sveit- arfélagasamtaka til umhugsunar um stöðu sína og gagnsemi þeirra starfa, sem samtök sveitarfélaga fást við. Er félagshyggjan innan sveitarstjórnargeirans að hverfa fyrir sjónarmiðum bröngsýnna sér- hyggjumanna? Áður byggðist starfið upp á hugsjónamönnum, sem báru ábyrgð til lengri tíma séð. Er Fjórðungssamband Norðlendinga dýrt í rekstri? Á fundum norðlenskra sveitar- stjómarmanna voru kynntar upp- lýsingar um rekstur landshlutasam- taka á Vestfjörðum og Austur- landi. Þar eru aðstæður líkar og hér og ekki er um að ræða að annar rekstur blandist inn í rekstur sam- takanna. Þessi samtök eru rekin af fyllstu sparsemi og starfsmanna- hald miðað við sinn hvorn fram- kvæmdastjórann. Niðurstaðan er sú, ef miðað er við árgjald á íbúa, að árgjöldin á Austurlandi eru 84% og á Vestfjörðum 105% hærri, en á Norðurlandi. Sé miðað við heildarkostnað, samkvæmt fjárhagsáætlun 1989 er samanlagð- ur reksturskostnaður á Vestfjörð- um og Austurlandi 53% hærri en á Norðurlandi. Launakostnaður er samanlagður 24% hærri á Austur- landi og Vestfjörðum, en á Norðurlandi. Ef gerður er saman- burður á árgjaldatekjum eru þær 36% hærri samanlagðar á Austur- landi og Vestfjörðum, en á Norðurlandi. Þetta sýnir þá miklu hagkvæmni að reka saman stærri og íbúafleiri svæði í einum samtök- um, en ef um tvenn samtök væri að ræða. Hitt er ekki síður veigamikið að með þessu starfsskipulagi fæst aukið afl til að sinna stærri verkefn- um. Það ánægjulegasta við þetta er lægri kostnaður á íbúa að meðaltali m.a. vegna hagkvæmari reksturs- einingar. Það eru ekki stóru sveit- arfélögin sem greiða hæstu árgjöld miðað við íbúa á Norðurlandi, þótt þau greiði hærri samanlagða fjár- hæð en þau minni. Tekjuskipting milli sveitarfélaga ræður hér öllu og því greiðir ekkert sveitarfélag hærri árgjöld en tekjustig þess segir til um. Þetta er kjarni málsins um skiptingu árgjalda á milli sveit- arfélaga. Hvað liggur eftir Fjórðungs* samband Norðlendinga? Það hefur gætt vaxandi þekking- arleysis um starfsemi sambandsins og aukinna sleggjudóma um gagn- semi þeirra fjármuna, sem sveitar- félögin greiða til sambandsins. Ég ætla hér að leyfa mér að rekja þau verkefni, sem staðið hefur verið að á vegum Fjórðungssambands Norðlendinga, og gefið hafa í aðra hönd fyrir sveitarfélögin og íbúa Norðurlands. Fyrst er að nefna baráttu sambandsins og annarra landshlutasamtaka um að hluti þéttbýlisvegafjár, þ.e. fjórðungur, væri varið til verkefna, þar sem gatnagerð og lagning bundins slit- lags hafði orðið útundan. í öðru lagi má nefna baráttu sambandsins fyrir áætlun um varanlega gatna- gerð og fyrir því að Byggðasjóður veitti lán til sveitarfélaga út á heimtaugagjöld. í þriðja lagi má nefna baráttu á vegum fjórðungs- sambandsins og annarra um að leiðrétta úthlutunarreglur á auka- framlögum úr jöfnunarsjóði og baráttu fyrir auknu fé í því skyni. f fjórða lagi forysta fjórðungssam- bandsins, og síðar annarra lands- hlutasamtaka, fyrir leiðréttingu símagjaldskrár, stystu skref hafa þrefaldast. í fjórða lagi leiðrétting- ar á útreikningi skólakostnaðar, sem þýddi verulega leiðréttingu m.a. fyrir Akureyrarbæ. í sjötta lagi barátta fyrir að færa framhalds- skólareksturinn yfir á ríkið. í sjö- unda lagi barátta fyrir hækkun dreifbýlisstyrkja, sem hafa verið hækkaðir um helming. f áttunda lagi barátta sambandsins fyrir því að skólaakstur og heimavistar- kostnaður væri að fullu greiddur af ríkissjóði, eða af sameiginlegu fé í Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. í ní- unda lagi barátta sambandsins um að kostnaður við heilsugæslu færist yfir á ríkið og að tekin verði upp framlög úr Jöfnunarsjóði vegna félagslegra verkefna sveitarfélaga. í tíunda lagi beitti sambandið sér fyrir lækkun hitakostnaðar í dreif- býli, sem'var upphaf mikils átaks í því efni. Allt þetta talar skýlausu máli um að Fjórðungssamband Norðlendinga hefur unnið sér rétt, sem málsvari sveitarfélaga á Norðurlandi. Er Fjórðungssambandið að vinna fyrir aðra? Sá áróður er rekinn að samband- ið sé að vinna verk sem aðrir skýli sér á bak við og önnur landshluta- samtök njóti góðs af án þátttöku í kostnaði. Hjá þéssu verður ekki komist, að þegar skrifstofa sam- bandsins vinnur að verkefnum í þágu sveitarfélaga á Norðurlandi, sem ná jafnt til annarra sveitarfé- laga. Spurningin er því hvort menn vilja láta þessi störf niður falla, vegna þess að aðrir kunna að hafa af þeim gagn. Það er tilgangslaust að segja sem svo að Samband ísl. sveitaiífélaga eigi að vinna að hinu og þessu verkefni og því eigi Fjórð- ungssambandið að láta þau kyrr liggja ef um er að ræða aðkallandi vericefni. Við höfum nýleg dæmi um þetta varðandi verkaskiptingu og tekjustofnamál. Átti að láta það mál kyrrt liggja, þar sem hvorki önnur landshlutasamtök eða Sam- band ísl. sveitarfélaga sinntu þess- um málum. Er högum norðlenskra sveitarfélaga best borgið með þeim vinnubrögðum? Það fer ekki á milli mála ef Fjórðungssamband Norðlendinga sinnir ekki stærri byggðaverkefnum sem krefjast töluverðrar vinnu, mundu mörg þeirra ekki verða leyst af hendi, til skaða fyrir alla landsbyggðina. Sumir benda á að ráða eigi sérfróða aðila til að vinna vissar úttektir í byggðamálum. Reynslan sýnir að menn þurfa að hafa sérstaka þjálf- un til að fást við slík verkefni og það fá menn aðeins með löngu starfi. Þar að auki eru slíkir ígripa- starfskraftar ótrúlega dýrir. Mikið hefur verið býsnast yfir kostnaði sambandsins vegna gjaldheimtu- mála. Staðreyndin var sú, að Sam- band ísl. sveitarfélaga vék sér und- an þessu brýna verkefni á sinni tíð. Það skal tekið fram að þetta er eina verkefnið sem önnur landshluta- samtök hafa tekið þátt í. Það stendur á forræði ríkisins í þessu máli. Margt bendir til að valin verði hin versta lausn í þessu máli, með samkomulagi Sambands ísl. sveitarfélaga og fjármálaráðherra. Einnig er haldið fram að með umsögn um hin ýmsu frumvörp sé Fjórðungssambandið að vinna verk, sem önnur landshlutasamtök skýli sér á bak við. Á Fjórðungs- samband Norðlendinga að bregð- ast því trausti sem Alþingi sýnir því með álitsgerðum um þingmál? Það er best að menn svari þessu. Hver er |>áttur Fjórðungs- sambands Norðlendinga? Miðað við fjárhagsáætlun 1989 mun það kosta sveitarfélögin kr. 250-260 á íbúa að taka þátt í starfi Fjórðungssambands Norðlend- inga. Hefur reynslan sýnt að þessu fé er kastað glæ eða að hér sé um bruðl að ræða? Reynslan sannar að norðlensk sveitarfélög fá meiri byggðalega þjónustu fyrir lægri árgjöld en önnur sveitarfélög í landinu og þau eiga landshlutasam- tök, sem eru forystuafl í byggða- málum. Þetta hefur oftlega sýnt sig. Það er ágætt að gagnrýna. Nafla- skoðanir og neikvæð sjálfsskoðun duga skammt. Það er hið jákvæða hugarfai, sem er sú félagshyggja sem starfið verður að byggjast á, og á því byggist öll framfarabar- átta. Áskell Einarsson ■ BÓKMENNTIR lllllllllllllll Hefðbundin nútímaljóð Kristján Þórður Hrafnsson: I öðrum skilningi, Ijóð, útg. höfundur, Rv. 1989. Þessi bók er töluvert óvanaleg frá hendi ungskálds að því leyti að hún er að umtalsverðum hluta ort undir hefðbundnu formi, með fastbund- inni hrynjandi, ljóðstöfum og enda- rími. Eins og menn vita hefur slíkt að heita má algjörlega verið aflagt hér af yngri skáldunum á síðustu árum, og er því óvanalegt að rekast á það hér aftur. Annars má segja að yrkisefni hér séu nokkuð hefðbundin, miðað við það sem oftast sést frá ungskáldum. Hér er ort um einveru, sorgir og bölsýni, ástir, ástleysi, víndrykkju og skemmtistaði og þar fram eftir götunum. Víða má þetta kallast þokkalega gert og jafnvel frumlega tekist á við líkingasmíði, svo sem í smáljóði sem þarna er og heitir Mjólkurstúlkan: / þeim draumum, er svefninn einn veitir athvarf, birtist hún okkur þorstlát nakin mjólkurstúlkan sú er líknsöm leyfir okkur að drekka sig. En annars eru það rímuðu og stuðluðu ljóðin sem hér vekja helst eftirtekt. Þau er nokkuð víða að finna í bókinni, og þarflaust er að reyna að draga fjöður yfir það að eigi að líta á þau eingöngu sem stælingu á því besta úr skáldskap til dæmis nítjándu aldar þá ná þau varla máli. Er þó ljóst að höfundur kann bragfræði sína, því að ekki verður annað séð en að hann fari þar rétt með reglur. En sé hins vegar litið á þessi ljóð sem tilraunir nútímaskálds til að beita gömlu formi á þann hátt að blásið sé í það nýju lífi eða því gefið nýtt hlutverk þá kann að gegna öðru máli. Á slíku virtist mér meiren örla í þeim hluta bókarinnar sem nefnist Fólk á förnum vegi. Þar eru nokkur ljóð, hefðbundin að formi, sem hafa hvert um sig að uppistöðu eina mannlýsingu, og eru þær teknar beint út úr samtíma okkar. Þau ljóð eru áhugaverð fyrir þá sök að þar má segja að nútímalegu efni sé búinn hefðbundinn búningur, sem á sinn hátt nær að skapa þama sérkennilega og heldur óvanalega togstreitu á milli efnis og forms. Slfkar tilraunir man ég ekki eftir að hafa séð gerðar hér í ljóðabókum í seinni tíð, og er því vissulega áhuga- vert nýjabragð að þessu og viss byltingarstarfsemi í því fólgin. Má vera að fleiri ungskáld eigi hér eftir að feta í sömu spor. -esig

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.