Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 16

Tíminn - 15.09.1989, Blaðsíða 16
NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnarhúsinu v/Tryggvogötu, » 28822 SA L í BY SAMVINNUBANKINN I BYGGÐUM LANDSINS y,n~ -a~3t=:::x==- =x=3c=n= ÁTTHAGAFÉLÖG, FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGAR Glwailegur salur til lelgu fyrir lamkvœmi og fundarhöld á daginn som ö kvöldin. ÞRdSTUR 685060 VANIR MENN FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1989 Hugmyndir um sparnað í heilbrigðisráðuneytinu miðast við skipulagsbreytingar: „Einkapraxís" spítala- lækna verði úr sögunni Tíininn hefur upplýsingar um það að Guðmundur Bjarnason hafi lagt fram í ríkisstjórninni fyrir skömmu hugmyndir heilbrigðisráðuneytisins um það hvernig hægt væri að spara á sviði heilbrigðis- og tryggingamála. Sá hugmyndalisti er svar ráðherra við þeim tilmælum að ráðuneytin gerðu grein fyrir sparnaðarmöguleikum á sínu sviði. Meðal þess sem fram kemur á ráðuneytisins er að tekjutengja jiessum hugmyndalista heilbrigðis- ellilífeyri þannig að ef ellilífeyris- þegar hafa verulegar tekjur aðrar en ellilífeyrinn muni lífeyririnn lækka eða jafnvel falla alveg niður. Á þessum hugmyndalista er jafn- framt talað um að sérfræðingar vinni annað hvort á spítölum eða hafi sínar eigin lækningastofur, en sérfræðingar geti ekki verið hvoru tveggja í senn í vinnu á spítala jafnframt því að hafa eigin stofu eins og yfirleitt tíðkast í dag. T>etta á að lækka veruiega útgjöld vegna sérfræðiþjónustu. Búast má við að þessi hugmynd eigi eftir að mæta verulegri mótspyrnif’ meðal sér- fræðinga. Þá mun heilbrigðisráðuneytið hafa reiknað út að með aukinni hagræðingu í verkaskiptingu milii spítalanna, einkum á höfuðborgar- svæðinu, gætu sparast allt að 400 milljónir á ári. Af öðrum hugmyndum áþessum lista má nefna sparnað vegna lyfja- kostnaðar sem að hluta hefur áður verið fjallað um hér í blaðinu, en þessar hugmyndir eða tillögur eru enn á umræðustigi og koma ekki til framkvæmda nerna um þær náist pólitísk samstaða. Þær hafa ekki verið ræddar opinberlega ennþá. - BG Sprengju- gabb Lögreglan í Reykjavík var kvödd að Bandaríska sendiráðinu við Lauf- ásveg í Reykjavík um níuleytið í gærkvöldi vegna sprengjuhótunar. Einhver sem ekki Iét nafns síns getið hringdi í sendiráðið og tilkynnti að þar hefði verið komið fyrir sprengju sem myndi springa kl 22:00. Engin sprengja sprakk, en iögreglan hafði lokað öllum aðkomuleiðum að hús- inu og fólki var komið í örugga fjarlægð. Ekki hafði tekist að fá sprengju- sérfræðing frá Landhelgisgæslunni á vettvang kl. 22:00 en lögreglumenn leituðu að hugsanlegri sprengju. Lögreglan hafði síðast þegar frétt- ist engar vísbendingar um hver hringdi og hótaði sprengingunni, en ekki er talið ólíklegt að sprenging- arnar í gærkvöldi hafi gefið einhverj- um hugmyndina að þessu gabbi. Lögreglan á vettvangi í gærkvöldi. Tímamynd: Pjetur Flest bendir til þess að kjötvörur hækki um minna en 7%. BSRB bíður aðgerða ríkisstjórnarinnar: BSRB VÆNTIR ÞESS AD L0F0RDN VERÐIHALDIN Líkur benda tíl þess að kindakjöt hækki um minna en 7% , en vonast er til þess að hægt verði að ganga frá nýju verði á fundi sexmannanefndar í dag. BSRB ætlar að sjá hverju fram vindur í verðlagsmálum á næstu vikum. Ef ekki verður staðið við fyrirheitin frá því í vor má vænta aðgerða eftir mánaða- mót. Á stjómarfundi BSRB í gær var' tekin ákvörðun um að boða til i formannafundar BSRB fimmtudag- inn 5. október. Þá er ætlunin að ræða stöðuna í kjaramálum. Rtkis- stjórnin hefur lýst því yfir að hún sé að reyna að leita leiða til að standa j við skuldbindingar sínar síðan í vor. ! Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði að BSRB gæfi ríkj^- stjóminni tíma til að koma þeim áformum í verk. „Eins og margoft hefur komið fram er helsta vörn launafólks fólgin í þeim ákvæðum sem þar voru fest niður. Við ætlumst að sjálfsögðu til | að staðið verði við þau. Við viljum bíða og sjá hvort eitthvað er að marka yfirlýsingar ríkisstjómarinnar um að hún sé að reyna að standa við gefin fyrirheit. Við krefjumst þess að það verði staðið við samningana. Um síðustu mánaðamót hækkuðu Jaun um 1500 krónur sem þýðir um 3% launahækkun á lægstu töxtum. Menn geta haft þá viðmiðun til hliðsjónar þegar þær hækkanir sem nú hefur verið talað um koma fram.“ Hvað sættið þið ykkur við mikla hækkun á kjötvörum? „Ég get ekki svarað þessu á annan , hátt en að við sættum okkur ekki við annað en að það verði staðið við gerða samninga,“ sagði Ögmundur. Forystumenn bænda sátu á fund- um í allan gærdag og ræddu um væntanlega kindakjötshækkun. Sex- mannanefnd kom ekki saman en það mun hún gera í dag og þá standa vonir til að hægt verði að ganga frá nýju verði á kindakjöti. Tíminri hafði tal af Þórólfi Sveinssyni vara- formanni Stéttarsambands bænda en hann á sæti í sexmannanefnd. Þór- ólfur var spurður að því hvort hann teldi að kindakjötshækkunin yrði undir 7% líkt og forsætisráðherra hefur sagst vona að hún yrði. „Við vitum það báðir að Stein- grímur hefur oftast rétt fyrir sér. Eigum við ekki að segja að það eigi við í þessu tilfelli. Bændur gera sér auðvitað mjög vel ljóst að það er nauðsynlegt að reyna að halda hækk- uninni í lágmarki en við megum ekki gleyma því að verið er að tala um lifibrauð framleiðenda. Það verður væntanlega farið bil beggja.“ Þórólfur vildi ekki tjá sig að öðru leyti um þær viðræður sem bænda- samtökin hafa átt við stjórnvöld. - EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.