Tíminn - 18.10.1989, Side 15
Tíminn 15
Miðvikudagur 18. október 1989
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Valur Ingimundarson hefur tekið við þjálfun Tindastóls af Kára Maríssyni
sem þjálfað hefur liðið í haust. Valur þjálfaði liðið í fyrra, og náði og undir
hans stjóm stóð liðið sig ágætlega í úrvalsdeildinni. I gærkvöld vann liðið
síðan góðan sigur á Valsmönnum í fyrsta leik liðsins í vetur undir stjórn Vals.
Valur gerði 11 stig í gærkvöldi, en varð að fara af leikvelli með 5 villur.
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Leikur 1 Coventry - Man. lltd.
Leikur 2 C. Palace Millwall
Leikur 3 Derby_______- Chelsea
Leikur 4 Everton - Arsenal
Leikur 5 Luton - Norwich
Leikur 6 Q.P.R. - Charlton
Leikur 7 Southampton - Liverpool
Leikur 8 Tottenham - Sheff. Wed.
Leikur 9 Wimbledon - Nott, For.
Leikur 10 Brighton - Newcastle
Leikur 11 Leeds- Wolves
Leikur 12 PortVale - West Ham
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN s. 991002
Munið hópleikinn li
Dómarar voru Jón Otti og Jón Bender,
þeir hafa dæmt betur.
Stigin UMFN: Patrik Releford 19, öll í
fyrri hálfleik, Teitur 18, Isak 17, Kristinn
14, Jóhannes 11, Ástþór 10 og Friðrik
Ragnars 2. UMFG: Guðmundur 32, Null
19, Hjálmar 12, Sveinbjörn 6, Rúnar 4 og
Steinþór 3. MS/BL
íslenskar getraunir:
Þrjár tólfur
Aðeins eitt jafntefli kom fram á
getraunaseðlinum um síðustu helgi
og að auki sex útisigrar. Þetta hefur
áreiðanlega haft sitt að segja því
aðeins vom 3 með 12 leiki rétta,
þrátt að úrslitin væra nokkuð eðli-
leg.
Einn seðillinn var keyptur í ískúl-
unni við Réttarholtsveg. Þar var um
að ræða hópinn GAPO sem styður
Fram og kostaði seðillinn 1.440 kr. f
vinning fær hópurinn 171.784 kr.
Önnur tólfan var keypt í Söluturn-
inum Fellaís í Breiðholti og kostaði
seðillinn 740 kr. Viðkomandi hlýtur
í vinning 168.295 kr. Er þetta í
þriðja sinn á stuttum tíma sem
seðlar með 12 réttum eru keyptir í
Fellaís.
Þriðja tólfan var síðan keypt í
Shellskálanum á Neskaupstað og
kostaði seðillinn 690 kr. Viðkom-
andi tippari, sem að sjálfsögðu
studdi Þrótt Neskaupstað, fær
164.806 kr í vinning.
Aukaseðill verður í getraunum í
tengslum við Evrópuleikina í knatt-
spyrnu sem leiknir verða 31. okt.-l.
nóv. n.k. seðillinn verður kynntur
síðar.
Körfuknattleikur:
Vergason hættur
John Vergason þjálfari og
leikmaður með Keflvíkingum í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik hefur
sagt starfl sínu lausu. Vergason
treysti sér ekki til þess að halda
áfram, fannst starfið ekki eiga við
sig, en hann hefur litla reynsla að
baki sem þjálfari. Þá hefur honum
ekki gengið sem best sem leikmanni,
skorað lítið og ávalt verið í villuvand-
ræðum.
fslandsmeisturum Keflvíkinga
hefur ekki gengið vel í deildinni til
þessa, hafa tapað tveimur af fjórum
fyrstu leikjum sínum. Þeir hafa unn-
ið Reyni með miklum mun og ÍR-
inga í framlengdum leik. Keflvfking-
ar munu þegar hefja leit að eftir-
manni Vergasons, en ætla þó að fara
sér hægt og finna rétta manninn.
BL
Laugardagur kl.13:55
m.. ..............
LEIKVIKA- 21. okt. 1989 1 XI
Frá Margréti Sandcrs íþróttafróttamanni Tímans
á Sudurnesjum:
Njarðvík sigraði Grindavík 91-76
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
Njarðvík í gærkvöldi. Staðan í hálf-
leik var 48-42.
Grindvíkingar leiddu á fyrstu mín-
útunum, en Njarðvíkingar komust
yfir 13-11. Jafnræði var með liðunum
í fyrri hálfleik en f seinni hluta
hálfleiksins kom slakur kafli hjá
Grindvíkingum og komust heima-
menn í 9 stiga forystu 44-35 og
staðan í hálfleik var eins og áður
sagði 48- 42. Á 5. mín. síðari
hálfleiks fékk Patrik Releford sína
5. villu og Teitur Örlygsson sína 4.
stuttu síðar og fór þá um margan
Njarðvíkinginn. Kom það ekki að
sök þar sem ágæt breidd virðist vera
í liði þeirra og þeir juku forskotið
jafnt og þétt og sigruðu 91-76.
Körfuknattleikurinn virðist komu
erlendra leikmanna, áhorfendur
fylltu húsið og voru vel með á
nótunum enda oft sýndir snilldar
taktar, góð troð og falleg blokk.
Gaman er líka að sjá framfarirnar
sem íslenskir leikmenn hafa tekið.
Bestur hjá Grindavík var Guð-
mundur Bragason, frábær leikmað-
ur. Einnig stóð Jeff Null sig vel. Hjá
Njarðvík var það fyrst og fremst
liðsheildin sem skóp sigurinn.
Bo með stórleik
Frá Erni Þórarinssyni fréttaritari Tímans í
Skagafírði:
Tindastóll vann sanngjarnan sigur
á Val 103-88 þegar liðin mættust í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki í
gærkvöld.
Það var allt annað að sjá til
Sauðkrækinga í þessum ieik eða
gegn Haukum tveimur dögum áður.
Tindastólsliðið fékk fljúgandi start í
leiknum fjögur þriggja stiga skot frá
Bo Heiden og Sverri hittu í körfu
andstæðinganna sem voru með ein-
dæmum óhittnir á körfuna fyrstu
mínúturnar. Tindastóll hafði 10-20
stiga forskot allan fyrri hálfleikinn
og var það mest að þakka frábærum
leik Bo, sem auk þess að skora 27
stig hirti aragrúa af fráköstum.
Munurinn hélst svipaður frameftir
síðari hálfleik þó söxuðu Valsmenn
á forskotið og komu muninum niður
í 9 stig, en þá sögðu Tindastólsmenn
stopp og settu Sturlu Örlygsson til
höfuð Chris Behrends sem var lang-
bestur Valsmanna. Lokamínúturnar
fóru síðan mest í vítaskot beggja
megin á vellinum og sigur heimaliðs-
ins var öruggur þrátt fyrir að Valur
og Sturla færu útaf með 5 villur.
Það var einkum slök hittni sem varð
Valsmönnum að falli í þessum leik, Chris
var þeirra atkvæðamestur skoraði 37 stig
Svali Björgvinsson átti einnig góðan leik
og skoraði 23. Stig annarra: Einar 11. Ari
8. Matthías 3 og Guðni, Björn og Arnar
2 hver. Fyrir Tindastól: Bo 44. Björn 16,
Sturla 16, Sverrir 14, Valur 11 og Pétur
Vopni 2. Ö.Þ.
ísland vann sín fyrstu gullverðlaun
á Norðurlandamóti í karate um helg-
ina, þegar Halldór Svavarsson vann
sigur í -65 kg flokki á Norðurlanda-
mótinu sem haldið var í Laugardals-
höll.
Halldór mætti Finnanum Ari Ras-
anen í úrslitabardaganum og náði að
sigri í framlengdri viðureign.
ísland vann einnig bronsverðlaun
í þessum flokki, en aðeins 3 kepp-
endur voru í flokknum. Sölvi Rafns-
son tapaði báðum viðureignum
sínum, en fékk bronsið.
Jónína Oleson vann silfurverð-
laun í kata kvenna, en í þeirri grein
eru sýndar staðlaðar karate hrey-
fingar.
f-75 kg flokki vann ísland bæði
silfur og bronsverðlaun. Helgi Jó-
hannesson komst í úrslit, þar sem
andstæðingur hans mætti ekki til
leiks, en úrslitaviðureigninni tapaði
Helgi, fyrir Hannu Hakala frá Finn-
landi. Konráð Stefánsson vann Jens
P. Jenssen frá Danmörku í glímu um
bronsið.
íslendingum gekk ekki sem best í
sveitakeppninni, urðu í neðsta sæti
bæði í karla og kvennaflokki, án
vinninga. BL
Breyting verður á afgreiðslutíma Alþýðubankans
hinn 2. nóvember næstkomandi.
Frá og með þeim degi verður hætt að hafa opið
á milli kl. 17:00 og 18:00 á fimmtudögum.
Afgreiðslutími Alþýðubankans verður því frá
klukkan 9:15 til 16:00, mánudaga til föstudaga.
Alþýðubankínn hf
Stórsigur UMFN
Norðurlandamótiö í karate:
Halldór Svavarsson
Norðurlandameistari
- Fyrsta NM gull íslands staðreynd