Tíminn - 03.11.1989, Síða 10
10 Tíminn
Föstudagur 3. nóvember 1989
DAGBÓK
Ein af myndum Gudbjarts á sýningunni í
Slunkaríki.
Guðbjartur Gunnarsson sýnir
grafík í Slunkaríki á ísafirði
Laugard. 4. nóvemberopnarGuðbjart-
ur Gunnarsson sýningu á grafískum
myndum í Slunkaríki á Isafirði. Sýningin
stendur til sunnudagskvölds 19. nóvent-
ber.
Myndirnar á sýningunni eru ýmis hrein-
ar grafíkmyndir, eða unnar með bland-
aðri tækni. Töluverður hluti ntyndannacr
af Vestfjörðum, en þar er Guðbjartur
fæddur og upp alinn.
Guðbjartur lauk almennu kennaraprófi
og prófi í myndmennt og stundaði
kennsluslörf um árabil. Hann tók há-
skólapróf í uppeldis- og fjölmiðlafræðum
í Bandaríkjunum og hefur fengist viö
kvikmyndagerð og fleira í tengslum viö
fjölmiðla í meira en tvo áratugi. Hann
hefur tekið þátt í samsýningu Félags
íslenskra myndlistamanna og haldið þrjár
einkasýningar, þá stærstu í Listasafni
alþýðu í fyrra, en þá seldust á annað
hundrað myndir.
Myndirnar á sýningunni í Slunkaríki
eru allar til sölu.
Guðbjartur Gunnarsson verður við-
staddur í Slunkaríki þessa fyrstu hclgi
sýningarinnar.
Myndlistarsýning
á Landspítalanum
Helgi Jónsson sýnir vatnslitamyndir á
göngum spítalans frá 14. október til 11.
nóvember nk.
Helgi er fæddur 1923 og byrjaði
snemma að fást við myndlist. Naut hann
um skeiö tilsagnar Kristins Péturssonar.
var í Myndlistaskóla Félags íslenskra
frístundamálara (síðar Myndlistaskóla
Reykjavíkur) á fyrstu árum skólans og
hcfir á síðari árum veriö þar nemandi í
ýmsum greinum.
Þingvallamyndir í
Safni Ásgríms Jónssonar
í Safni Ásgríms Jónssonar viö Berg-
staðastræti hefur veriö opnuö sýning á
myndum Ásgríms frá Pingvöllum. Á
sýningunni eru 25 verk, aðallega vatns-
litamyndir, en einnig nokkru oiíumál-
verk. Eru nær öll verkin úr listaverkagjöf
Ásgríms sem nú er sameinuð Listasafni
íslands.
Sýningin á Pingvallamyndum Ásgríms
stendur fram í febrúar á næsta ári og er
opin um helgar og á þriöjudögum og
fimmtudögum kl. 13:30- 16:00.
Hlutavelta og kaffihlaðborð
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík stend-
ur fyrir hlutaveltu og kaffihlaðboröi laug-
ardaginn 4. nóvember í Húnabúð, Skeif-
unni 17 og hefst kl. 14:30.
Tekið er á móti kökum og munum á
föstudagskvöld eftir kl. 20:00 og á laugar-
dagsmorgun frá kl. 10:00.
i~ a «nr
34. kjördæmisþing framsóknarmanna
í Norðurlandskjördæmi-eystra
Haldið á Hótel KEA, Akureyri 11. nóv. 1989
Dagskrá:
Kl. 9.00 Setning.
Skýrsla stjórnar og reikningar.
Kl. 10.00 Ræður þingmanna.
Lögð fram stjórnmálaályktun.
Almennar umræður.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.00 Kosningar.
Kl. 13.30 Sér mál þingsins: Umhverfismál og náttúruvernd.
Framsögumenn: Jón Sveinsson aðst.m. forsætisráðh.
Hermann Sveinbjörnsson aðst.m. sjávarútv.ráðh.
Kl. 16.00 Ávörp gesta.
Kl. 16.30 Afgreiðsla mála.
Úrslit kosninga.
önnur mál.
Kl. 18.30 Þingslit.
Kl. 20.00 Kvöldskemmtun á Hótel KEA.
Sveinsson
Hermann
Sveinbjörnsson
Guðmundur
Bjarnason
JóhannesGeir Sigurður Gissur
Sigurgeirsson Geirdal Pétursson
Sunniendingar
Almennur fundur um umhverfismál verður haldinn fimmtudaginn 9.
nóv. kl. 21.00 í Inghól, Selfossi.
Frummælandi verður Júlíus Sólnes, verðandi umhverfismálaráð-
herra. Hann mun m.a. kynna starf og umfang væntanlegs umhverfis-
ráðuneytis.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Árnessýslu.
Árnesingar
Lokaumferð í 3ja kvölda félagsvist Framsóknarfélags Árnessýslu,
verður á Borg föstudaginn 10. nóv. kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Gallerí Borg:
Sýning Þórðar Hall
Póröur Hall sýnir teikningar í Gallerí
Borg, Pósthússtræti 9.
Sýningin er opin virka daga kl. 10:00-
18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00.
Henni lýkur þriðjudaginn 14. nóvembcr.
Sýningar á Kjarvalsstöðum
Nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum sýn-
ing í boði Listasafns Reykjavíkur á verk-
um norska málarans Arvid Pettersen í
austursal.
í vestursal Kjarvalsstaða sýnir Sveinn
Björnsson málverk og höggmyndir. í
vesturforsal sýnir Kristín Ksleifsdóttir ný
verk.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl.
11:00-18:00 og er veitingastofan opin á
sama tíma.
Árni Páll sýnir í
GALLERISÆVARS KARLS
Föstudaginn 27. október opnar Árni
Páll myndlistarsýningu í Gallerí Sævars
Karls, Bankastræti 9.'
Árni Páll er fæddur í Stykkishólmi
1950. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu
í SÚM 1976. Árni Páll hefursíðan haldið
eina eða fleiri sýningar á ári, einn og með
öðrum, heima og heiman.
Sýningin stendur til 24. nóvember og cr
opin á verslunartíma, kl. 09:00-18:00.
Málverkasýning
í HAFNARB0RG
( Hafnarborg, menningar-oglistastofn-
un Hafnarfjarðar stendur nú yfir sýning á
verkunt i eigu safnsins. Á sýningunni eru
olíumálvcrk og vatnslitamyndir eftir m.a.
Kjarval, Ásgrím Jónsson, Finn Jónsson,
Jón Stefánsson, Kristínu Jónsdóttur, Júlí-
önu Sveinsdóttur, Jón Engilberts og Svein
Þórarinsson.
Sýningin er opin kl. 14:00-19:00. Sýn-
ingunni lýkur mánudaginn 6. nóvember.
Sjailinn á Akureyri:
K0MDU í KVÖLD
Föstudaginn 3. nóvember verður dæg-
urlagahátíöin KOMDU í KVÖLD sýnd í
Sjallanum.
Sýning þessi er til heiðurs Jóni Sigurös-
syni bankamanni, sem verið hefur í
sviðsljósi íslenskrar dægurlagatónlistar í
fimmtíu ár. Par koma fram söngvarar svo
sem Ellý Vilhjálms, Puríður Sigurðar-
dóttir, Pálmi Gunnarsson, Porvaldur
Halldórsson, Hjördís Geirsdóttir og
Trausti Jónsson, en hann er sonur Jóns
Sigurðssonar.
Kynnir á sýningunni er útvarps- og
sjónvarpsmaðurinn Bjarni Dagur
Jónsson.
Hljómsveit Ingimars Eydal sér um
undirleik í sýningunni og leikur síðan
fyrir dansi.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýningin „Málmverk og aðföng“ í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, Laug-
arnestanga 70, er opin laugardaga og
sunnudaga kl. 14:00-17:00 og öll þriðju-
dagskvöld kl. 20:00-22:00.
Laugardagsganga Hana nú
Laugardagsganga Hana nú í Kópavogi
er á morgun. Lagt verður af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10:00. Nýlagaðmola-
kaffi.
Basar Kvenfélagsins Hringsins
Kvenfélagið Hringurinn í Reykjavík
heldur sinn árlega handavinnu- og köku-
basar sunnudaginn 5. nóv. kl. 14:00 í
Fóstbræðra-heimilinu við Langholtsveg.
Par verður til sölu mikið úrval af
ágætum jólagjöfum og alls konar kökum
á góðu verði. Ennfremur verða til sölu ný
og mjög falleg jólakort félagsins.
Svo sem jafnan áður rennur allur ágóði
til líknarmála barna. Félagskonur vilja
hvetja borgarbúa til að Ijá þessu málefni
lið, svo að enn megi bæta aðbúnað sjúkra
barna.
Fundur Ættfræðifélagsins
Almennur félagsfundur veröur haldinn
í Ættfræðifélaginu föstudaginn 3. nóv. kl.
20:30 að Hótel Lind. Rauðarárstíg 18 í
Reykjavík. Húsið opnað kl. 20:00.
Margareta „T0SCA“ Havarinen
og Collin Hansen halda tónleika
Laugardaginn 4. nóv. kl. 14:30 verða á
vegum Tónlistarfélagsins tónleikar í ís-
lensku óperunni. Þar mun hin finnsk-rúss-
neska sópransöngkona Margareta Haver-
inen og eiginmaður hennar, Collin Han-
sen píanóleikari, flytja lög eftlr Brahms.
Duparc, Liszt og Tshaikovsky.
Fyrir fimm árum söng Margareta fyrir
fullu húsi áheyrenda í Austurbæjarbíói
og heillaöi áhcyrendur. Sl. vetur var
sýndur þáltur um söngkonuna, sem vakti
athygli og hrifningu.
Margareta mun dvelja hér á landi
næstu vikur, því hún mun syngja titilhlut-
verkið í „Tosca" eftir Puccini, sem ís-
lenska óperan og Norska óperan vinna
saman að og verður sett upp um miðjan
mánuðinn.
Miðasala á tónlcikana er í íslensku
óperunni.
„Opið hús“ í MÍR laugard. 4.nóv.
í tilefni þjóðhátíðardags Sovétríkjanna
og 72 ára afmælis Októberbyltingarinnar
í Rússlandi verður „OPIÐ HÚS“ í félags-
heimili MlR, Menningartengsla (slands
og Ráðstjórnarríkjanna, Vatnsstíg 10,
laugard. 4. nóvember.
Húsið verður opnað kl. 14:00 og síðan
verða fjölbreytt dagskráratriði fram eftir
degi, M.a. flytur Leoníd Vakhtin, fulltrúi
í sovéska sendiráðinu, spjall og situr fyrir
svörum um perestrojku og nýjustu við-
horf í Sovétríkjunum. Sýndarverðastutt-
ar kvikmyndir, efnt tii hlutaveltu, haldinn
basar og að sjálfsögðu verður kaffi á
boðstólum og nýbakaðar vöfflur.
Aðgangur er öllum heimill.
111111111111 ÁRNAÐ HEILLA ÍlllllllllllllllllllU
Sjötugur:
Jón Guðmundsson
Sjötugur er í dag vinur og frændi,
Jón Guðmundsson bóndi í Fjalli á
Skeiðum. Þar er hann fæddur og
uppalinn, þangað kom hann aftur til
búskapar að loknu árangursríku
námi og þann garð hefur hann gert
víðkunnan fyrir góð verk sín. For-
eldrar Jóns voru þau Guðmundur
Lýðsson frá Hlíð í Gnúpverja-
hreppi, sonur þeirra Lýðs hrepp-
stjóra þar Guðmundssonar og Aldís-
ar Pálsdóttur frá Brúnastöðum, og
Ingibjörg Jónsdóttir oddvita í Holti
í Stokkseyrarhreppi Jónssonar. Var
Ingibjörg af Bergsætt en Guðmund-
ur af Víkingslækjarætt og rek ég
ekki ættir þessar lengra; þær er
báðar að finna í góðum bókum,
Foreldrar Jóns bjuggu stóru búi í
Fjalli. Börnin voru mörg og var þar
alltaf fjölmennt í heimili. Guðmund-
ur var mjög framfarasinnaður maður
og er mælt að mest hafi um hann
munað er lántökur hófust vegna
gerðar Skeiðaáveitunnar. Að áliti
okkar Jóns hefur þeirri framkvæmd
verið úthúðað að mikilli ósekju.
Engan veginn sýndist hún gróðaveg-
ur í upphafi. En Skeiðamenn lærðu
þaðan í frá að vinna saman að
mörgum öðrum framfaramálum:
ræktun, öflun kalda vatnsins og
virkjun þess heita. Og Guðmundur
í Fjalli hafði fleiri járn í eldinum.
Hann rak fyrsta sauðfjárkynbótabú-
ið í Árnessýslu í upphafi aldarinnar
og komst langt í hrossarækt og átti
afburða reiðhesta.
Ekki veit ég hvort hugur Jóns
hefur nokkurn tímann hvarflað í
alvöru frá Fjalli. En í skóla fór hann
og sat fyrst í yngri og eldri deild
Laugarvatnsskóla 1937-1939 og lauk
þaðan héraðsskólaprófi vorið 1939.
Dreif hann sig síðan beint á Sam-
vinnuskólann og lauk samvinnu-
skólaprófi 1941. Bóndi hefur hann
verið í Fjalli frá 1944, lengi í félags-
búi með systkinum sínum. Var Lýð-
ur bróðir hans alltaf í búskap með
honum uns hann lést fyrir um áratug.
Á móti þeim systkinum bjuggu mág-
ur þeirra, Valdimar Bjarnason frá
Hlemmiskeiði, og Guðfinna systir
þeirra og nú sonur þeirra, Bjarni
Ófeigur Valdimarsson. Er búskapur
þar með miklum myndarbrag svo
tryggt er að þessi vildisjörð verður
ennþá lengi vel setin.
Jón í Fjalli menntaðist í Banda-
ríkjunum á þann hátt að hann fór
Fjalli á Skeiðum
þangað árið 1951 til landbúnaðar-
náms á vegum Efnahagssamvinnu-
stofnunar Bandaríkjanna. Hann
kom heim með ágæta enskukunnáttu
og hefur haldið henni vel við með
utanferðum til Bandaríkjanna og
Kanada. í íslendingabyggðir þar
vestra hefur hann komið þrisvar til
fjórum sinnum og rækt þar frænd-
semi við ættingja sína af Víkings-
lækjarætt. Hann hefur í ættarfylgju
að unna sagnfræði og fróðleik um
íslendinga og á ágætt bókasafn um
þau efni. Margt liggur nú þegar eftir
hann í ritstörfum og má fyrst nefna
þátt um ferjur og vöð á stórám á
Suðurlandi er hann birti í safnriti
Bjarna Bjarnasonar á Laugarvatni,
Suðra I. Þá ritaði Jón merkan þátt
um Skeiðahrepp í bókina Sunn-
lenskar byggðir I og má einnig segja
að kjölinn hafi hann lagt að því
ritverki því hann sat í ritnefnd
Sunnlenskra byggða, tilnefndur af
Búnaðarsambandi Suðurlands úr
hópi Árnesinga.
Þessar vikurnar er verið að leggja
síðustu hönd á þriðja ritverkið sem
Jón stendur að, bókina „Flóabúið",
sögu Mjólkurbús Flóamanna í 60 ár,
sem út kemur þegar Flóabúið verður
sextugt í desember. Reyndar lagði
Jón grunninn að því verki fyrir um
aldarfjórðungi er hann rifjaði upp
forsöguna og fyrstu árin ásamt
frænda sínum, Sigurgrími Jónssyni í
Holti. í þessari prentuðu bók á Jón
drjúgan þátt í fyrri hlutanum og
mestalla stofnsöguna. Hann hefur
og setið í ritnefnd bókarinnar og lagt
þessu ritverki allt lið sitt. Hann er
tengdur Mjólkurbúi Flóamanna á
þann veg að hann hefur endurskoð-
að reikninga þess í rúman áratug og
fylgst með búinu alla ævi sína. En
Guðmundur í Fjalli hafði einmitt
forustu um það að Skeiðamenn
gengu í búið á fyrsta starfsári þess.
Veiðimál hafa Jóni í Fjalii verið
hugleikin lengi. í Fjalli má veiða vel
á úthallandi sumri og gekk Jón vel
fram í því frá unga aldri. Hann hefur
verið formaður Veiðiréttareigenda-
félags Suðurlands frá stofnun þess
1969 og frá 1972 hefur hann setið í
stjórn Veiðifélags Árnesinga. Eitt er
nú ótalið: Jón hefur setið á Kirkju-
þingi um skeið sem fulltrúi leik-
manna og er ritari Kirkjuþings. Veit
ég ekki nóg um þau störf til að fjalla
um hér, enda er það þinghald fyrir
vestan Heiði. En hitt veit ég að Jón
hefur verið öruggur liðsmaður Skál-
holtsskóla og stutt uppbyggingu
staðarins þar. Og rennur þar honum
blóðið til skyldunnar, sóknarbarn
Skálholtskirkju fyrrum, og eins hafði
Fjall sjálft fyrr á öldum verið eign
Skálholtsstóls.
Jón í Fjalli hefur næmt skopskyn
en flíkar því lítt. Hann vill engan
mann særa. En samt á hann mikið
safn góðra sagna og fékk ég eitt
sumar að yfirlíta þessar sögur þar
sem þær voru hist og her í dagbókum
hans til margra ára. Sumt af þessu er
of gott til að vera nokkru sinni birt.
Þær sögur urðu þó eftir hér í
Sandvík, þannig er gangur lífsins á
öllum öldum. Bændur nöppuðu sög-
ur hver frá öðrum og afrituðu og hér
á heimili liggur eftir Fjallsbók. Par í
er nærfærnasta lýsingin á olnboga-
presti Skeiðamanna, séra Brynjólfi
á Ólafsvöllum, en hann var í vinskap
við Fjallsheimilið öðrum fremur. Þá
sögu kemst Jón ekki hjá að birta um
síðir.
Þessi orð verða ekki fleiri og
finnst Jóni nú nóg komið. Oft hafa
fundir okkar legið saman en það
verður ekki í dag. Jón verður þá
líklega í Reykjavík hjá vinum sínum
en ég austur á Höfn í Hornafirði.
Það verður þá Vík mitt á milli vina.
En Jóni þakka ég langa vináttu og
mikla frændsemi er hann hefur rækt
við mitt heimili.
Páll Lýðsson