Tíminn - 03.11.1989, Side 14
14 Tíminn
Föstudagur3. nóvember 1989
Kolanámaverkamenn í Vorkula eru nú aftur komnir í verkfall, Gorbatsjof
til mikillar hrellingar.
FRETTAYFIRLIT
OSLO - Norskur togari fékk
sovéskan kafbát í trollið þar
sem togarinn var á veiðum í
Barentshafi, þar sem lítið ann-
að en kafbáta er nú að fá eftir
hrun í fiskistofnum þar. Er
þetta í annað sinn á þremur
mánuðum sem norskur togari
fær þann stóra í trollið. Varn-
armálaráðherra Noregs sagði
að togarinn hefði krækt í sov-
éskan Foxtrott kafbát, en slíkir
kafbátar eru ekki kjarnorku-
knúnir. Enginn slasaðist en
varpan er ónýt.
/
SÞ - Javier Perez de Cuellar
aðalritari Sameinuðu þjóðanna
sagði að fréttir um að skærulið-
ar SWAPO hefðu haldið í hóp-
um inn fyrir landamæri Nam-
ibíu væru falskar. Sagði hann
stjórnvöld í Suður-Afríku vita
það, en þau kvörtuðu við Ör-
yggisráðið vegna meintra ólög-
legra liðsflutninga skæruliða.
Martti Ahtisaari hinn finnski
yfirmaður friðargæslusveita
SÞ í Namibíu sagði að kvörtun
stjórnvalda í Suður-Afríku
hefði vakið gífurlegan ótta í
Namibíu.
JÓHANNESARBORG-
Nelson Mandlea blökku-
mannaleiðtogi sem verið hefur
í fangelsi í Suður-Afríku frá því
árið 1962 mun verða leystur úr
haldi í janúarmánuði. Frá
þessu skýrði háttsettur emb-
ættismaður ríkisstjórnar hvíta
minnihlutans.
DAMASKUS - Hafes al-
Assad forseti Sýrlands leitaði
stuðnings leiðtoga tveggja
vopnaðra samtaka múslíma f
Líbanon við friðaráætlun Ar-
ababandalagsins sem miðar
að því að binda endi á 14 ára
borgarastyrjöld í Líbanon.
JERÚSALEM - Banda-
ríkjamenn hafa boðið ísraelum
neitunarvald á vali fulltrúa Pal-
estínumanna í samninganefnd
Palestínumann, ef Israelarfall-
ast á friðaráætlun Bandaríkja-
manna. Með því má ætla að
Palestínumenn muni hafna
áætluninni.
LONDON - Ford bífreiða-
verksmiðjurnar hafa keypt hið
breska Jagúarbifreiðafyrirtæki
og vona Bretarnir að vegur
Jagúarbifreiða munu aukast
að nýju undir stjórn Ford.
Kolanámaverkamenn í Vor
komnir í verkfall þrátt fyrii
Verkföllin hófust á miðvikudi
fætur annarri vegna þess. í gæi
á svæðinu lokast og jafnvel bi
þremur sem opnar voru í gærkvt
kuta í Síberíu eru enn á ný
r verkfallsbann stjórnvalda.
ig og lokaðist hver náman á
r höfðu tíu af þrettán námum
iist við að verkamenn í þeim
:ldi mæti ekki til vinnu í dag.
Reyndar höfðu verkamenn í einni
kolanámunni, þeirri stærstu, verið í
verkfalli frá því á föstudag í síðustu
viku.
í Vorkuta vinna 26 þúsund náma-
verkamenn í hinum mikilvægu kola-
námum. Krefjast þeir þess aðstjórn-
völd sjái til að neysluvörur þær sem
námaverkamönnunum var lofað í
svipuðum verkföllum í sumar, yrðu
þegar sendar til Vorkutu, en lítið
hefur sést af vörunum þrátt fyrir
loforðin.
Verkföllin í sumar kostuðu sov-
éskt efnahagslíf 3,7 milljarða rúblna
og höfði því hrikaleg áhrif á efna-
hagslífið sem var mjög illa statt fyrir.
Þau verkföll voru meðal annars
kveikja þess að verkföll námaverka-
manna og verkamanna við sovésku
járnbrautirnar voru bönnuð.
Lev Voronin fyrsti varaforsætis-
ráðherra Sovétríkjanna kom fram í
sovéska sjónvarpinu á miðvikudags-
kvöld og hvatti námaverkamennina
til að hefja afturstörf. Sagði hann að
vcrkföllin myndu skaða verkamenn
og bændur vítt og breitt um Sovét-
ríkin. Upplýsti hann að stjórnvöld
hafi þegar cytt einum milljarði
rúblna til að uppfylla fyrri kröfu
verkamannanna.
Þrátt fyrir þess áskorun Voronins
Itéldu verkfallsmenn ótrauðir áfram
verkfalli sínu og bættust þúsundir
við í gær.
Talsmaður verkfallsmanna í Vor-
kuta sagði í gær að námaverka-
mennirnir hefðu ekki fengið þær
Ríkisstjórn Sandínista í Níkar-
agva var ekki að eyða tímanum í
aðgerðarleysi eftir að hún batt endi
á vopnahlé það sem ríkt hefur í
landinu í nítján mánuði. Nokkrum
klukkustundum eftir að Daniel Or-
tega forseti landsins hafði skýrt frá
því að Sandínistastjórnin myndi ekki
framlengja vopnahléð, þá skýrði
talsmaður varnarmálaráðuneytisins
að stjórnarherinn hefði hafið undir-
búning hernaðaraðgerða gegn
skæruliðum Kontra víðsvegar um
Níkaragva.
- Við munu hefja aðgerðir á nokkr-
um svæðum landsins. Við munum
leita uppi og uppræta hersveitir
Kontra sem ráðist hafa á okkur og
myrt bændur okkar, sagði Rosa
Paso talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins við fréttamenn í gær.
Samhliða þessu skýrðu Sandínist-
ar frá því að Kontrar hefðu myrt
fjóra bændur í gær og sjö þriðjudag.
Hefur ríkisstjórnin í Níkaragva sak-
auka matarsendingar sem lofað var
í sumar.
í Úkraínu lögðu námaverkamenn
niður vinnu um stundarsakir á mið-
vikudag til að vara stjórnvöld við.
Vinna var þar með eðlilegum hætti í
gær, en námaverkamennirnir hóta
vcrkfalli verði ekkert að gert og það
snarlega.
Kolaiðnaður í Sovétríkjunum hef-
ur langt í frá jafnað sig á verkföllun-
um í sumar og mistókst rúmlcga
helmingi kolanámafyrirtækja að
vinna upp í áætlaöan kolakvóta
fyrstu níu mánuði ársins. Má kola-
iðnaðurinn ekki við fleiri áföllum.
Mikhaíl Gorbatsjof forseti Sovét-
ríkjanna hefur að undanförnu varað
verkamenn við að skapa óróa þar
sem það geti stefnt umbótastefnu
hans í hættu. Því má búast við að
stjórnvöld grípi til örþrifaráða breið-
ist verkföll út.
Þó stjórnvöld í Sovétríkjunum
legi hart að verkamönnum að hætta
verkfalli þá var sjónarmiði náma-
verkamannanna í Vorkuta lýst í
að skæruliða Kontra um að hafa fellt
nærri sjötíu manns á hálfum mánuði
og eru árásir Kontra sagðar orskök
þess að vopnahléið var ekki
framlengt.
Viðbrögð helstu leiðtoga Kontra-
liða hafa verið sú að skipa mönnum
sínum að forðast átök við stjórnar-
herinn í lengstu lög, en verja sig þó
ef á þá verður ráðist. Fullyrða þeir
að Sandínistar hafi verið að vígbúast
undanfarna daga og að sveitir stjórn-
arhersins hafi þegar gert árás á
stöðvar Kontraliða.
-Sandínistar munu greiða mjög
háan toll stjórnmálalega með þessari
hernaðarsókn sinni og við munum
ekki bregðast hernaðarlega við. Hin-
ir 4000 vopnuðu Kontrar sem eru
innan landamæra Níkaragva munu
vera varkárir á næstunni, haldi til
fjalla og forðast vegina, sagði Luis
Fley talsmaður Kontraliða í gær.
-Við sem erum í Hondúras mun-
dagblaðinu Komsomolskaya Pravda
í gær.
„Af hverju eru námaverka-
mennirnir í verkfalli? Þeir eru í
verkfalli vegna þess að þeir lifðu við
óbærileg skilyrði sem enn hafa
versnað, vegna þess að þeir hafa
enga von. Vegna þess að þeir eru að
missa heilsuna án þess að fá nokkra
umbun, hvorki siðferðislega né efna-
hagslega. Vegna þess að vinnan er
launuð með auknum peningagreiðsl-
um sem ekki geta nýst þeim á
nokkurn hátt. Þeir geta ekki einu
sinn keypt sér þak yfir höfuðið"
sagði í grein blaðsins.
Þá bætti blaðið við að bærinn
Vorkuta væri enn nátengdur sögu
sinni, en bærinn var byggðist kring-
um eina af stærstu þrælkunarvinnu-
búðum sem í gangi voru á Stalíntím-
anum.
„Hugmyndafræði aðkilnaðar,
þeirra sem gætt er og þeirra sem
gæta, er enn á lífi hjá nær hverjum
einasta íbúa Vorkuta" var ritað í
Komsomolskaya Prava í gær.
um halda til í búðum okkar og bíða
þess hver þróunin á stjórnmálasvið-
inu verður, bætti hann við.
Stjórnarandstaðan í Níkaragva
segir að hernaðaraðgerðir Sandín-
istastjórnarinnar séu einungis til þess
ætlaðar að eyðileggja þær frjálsu
kosningar sem fram eiga að fara í
landinu í febrúarmánuði í samræmi
við friðarsamkomulag forseta Mið-
Ameríkuríkja. Segja þeir að þar
sem Sandínistar hafi komið illa út í
skoðanakönnunum að undanförnu
hyggist þeir ætla að halda völdum á
þennan máta.
Reyndar hefur Daniel Ortefa for-
seti Níkaragva varað Bandaríkja-
menn við því að ef þeir ykju á
stuðning sinn við Kontraliða, þá
myndi það stefna friðarsamkomu-
laginu og kosningunum í febrúar í
hættu. Reyndar sagði hann einnig að
Sandínistar væru reiðubúnir til
vopnahlés ef Kontrar hættu hernaði
A-Þýskaland:
Ör gerjun
Það er ör gerjun í austurþýskum
stjórnmálum þessa stundina. Þrír
menn sem verið hafa áberandi í
austurþýskum stjórnmálum sögðu
af sér í gær á sama tíma og hin
opinberu verkalýðssamtök landsins
kusu sér nýjan formann. Þá voru
landamærin að Tékkóslóvakíu opn-
uð að nýju og notuðu átta þúsund
manns tækifærið til að yfirgefa
Austur-Þýskalands. Höfðu þrettán
hundruð þeirra knúið dyra sendi-
ráðs Vestur-Þýskalands í Prag og
æskt þess að fá vesturþýskt vega-
bréf til að komast til Vesturlanda.
Á meðan þessu stóð hélt Egon
Krenz hinn nýi leiðtogi Austur-
Þýskalands í eins dags heimsókn til
Póllands þar sem hann hugðist
ræða umbótastefnu við Samstöðu-
manninn Tadeuz Mazowiecki for-
sætisráðherra Póllands, en hann er
fyrsti forsætisráðherrann í austan-
tjaldsíkjunum í 40 ár sem ekki er
kommúnisti.
Egon Krenz var reyndar í
Moskvu á þriðjudaginn þar sem
hann hitti Mikhaíl Gorbatsjof að
máli og ræddi við hann um um-
bótastefnuna í Sovétríkjunum.
Hrósaði Krenz Gorbatsjof og
stefnu hans mjög við það tækifæri
og sagðist aldrei hafa verið harð-
línumaður.
Þá vakti það athygli að í austur-
þýsku tímariti birtist grein þar sem
fjallað var jákvæðum orðum um
Vorið í Prag og innrás Varsjár-
bandalagsins sem kramdi þá lýð-
ræðishreyfingu var fordæmd. Er
þetta í fyrsta sinn sem slíkt er gert
í austurþýskum fjölmiðlum.
Eins og fyrr sagði sögðu þrír
áberandi stjórnmálamenn af sér í
gær. Heinrich Homann sem verið
hefur leiðtogi Þjóðlega lýðræðis-
flokksins frá því árið 1972 sagði af
sér embætti formanns vegna þrýst-
ings flokksmanna, en flokkurinn
hefur stutt kommúnista með ráð og
dáð um áratuga skeið. Þá sögðu
leiðtogar kommúnistaflokksins í
Gera og í Suhl af sér embætti.
f verkalýðshreyfingunni var
Annelis Kimmel kjörin formaður í
stað Harry Tisch sem neyddist til að
segja af sér vegna þrýstings verka-
manna sem sögðu forystu hinnar
opinberu verkalýðshreyfingar ekki
hafa staðið vörð um hagsmuni
verkamanna.
Annelis Kimmel sem er 55 ára
gömul hefur leitt Berlínardeild
verkalýðshreyfingarinnar frá því
árið 1979. Hún er fyrsta konan sem
gegnir formennsku í hinni opinberu
verkalýðshreyfingu sem hefur níu
og hálfa milljón manns innan sinna
vébanda. Hún er ekki meðlimur í
miðstjórn kommúnistaflokksins.
í Níkaragva og sveitir þeirra yrðu
afvopnaðar.
Bandaríkjamenn hafa harðlega
fordæmt ríkisstjórn Níkaragva fyrir
að framlengja ekki vopnahléinu eins
og gert hefur verið mánaðarlega frá
því vopnahlé komst á í mars á
síðasta ári.
George Bush forseti Bandaríkj-
anna vék sér undan þvt' viðtali við
útvarpstöð í Bandaríkjunum í gær
að svara því hvort hann hygðist fara
fram á það við þingið að hefja
hernaðarlega aðstoð við Kontra að
nýju. Bandaríkjamenn hafa ekki
stutt Kontra hernaðarlega frá því í
janúarmánuði á síðasta ári, en sent
þeim mat og aðrar vistir.
Reyndar telja margir að sú
ákvörðun Bandaríkjaþings hafi orð-
ið til þess að Kontraliðar neyddust
að samningaborðinu nokkrum mán-
uðum síðar til að semja um vopna-"
hlé.
Níkaragva:
SANNNISTAR UNDIRBÚA
HERNAD GEGN KONTRUM