Tíminn - 23.12.1989, Qupperneq 2
£861 ledmeseb .82 •ujgsbiðeusJ
Laugardagur 23. desember 1989
2 'fími
minn
Horfur eru á aö fasteignagjöld í dreifbýli muni hækka allt að 100% meö nýjum gjaldstofni um áramót:
Herðir hækkunin flótta suður?
Útlit er fyrir að skattar á fólk sem býr í dreifbýli muni
hækka meira en á öðrum landsmönnum. Sveitarfélögin
standa nú frammi fyrir þeirri spurningu hvort þau eigi að
hækka fasteignaskatta um allt að 100% eða hafa þá lægri og
missa þar með af tekjujöfnunarframlagi úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga.
Um áramót tekur gildi nýr gjald-
stofn fyrir fasteignaskatta. Þessi nýi
stofn þýðir að húsnæði verður metið
eins alls staðar á landinu. Einbýlis-
Veörið yfir jóiin:
AGÆTIS VEÐUR
UM LAND ALLT
Hæglætis veður verður um allt
land yfir hátíðina, samkvæmt spá
Veðurstofunnar. Gert er ráð fyrir
austlægum áttum í dag og á morgun,
en á jóladag fer kólnandi. Jólasnjór-
inn kemur til mcð að heiðra höfuð-
borgarbúa með nærveru sinni á að-
fangadag, ef spá Veðurstofnunnar
gengur eftir.
Spáin fyrir næstu daga er cftirfar-
andi: Á borláksmessu verður fremur
hæg austlæg átt á öllu landinu. Búist
er við éljum á víð og dreif einkum á
Suður- og Austurlandi, og einnig á
annesjum norðanlands. Hiti verður
um og yfir frostmarki við suður og
austurströndina, en 1 til 4 gráða
frost á Norður og Vesturlandi.
Austlæga áttin heldúr áfram á
aðfangadag jóla. Búist er við snjó-
komu eða slyddu um sunnan og
austanvert landiö. Ætti sú úrkoma
að ná einnig til suðvesturhornsins,
en úrkomulítið verður á Norður- og
Norövesturlandi. Hiti verður um og
yfir frostsmarki rneð suður og aust-
urströndinni, en vægt frost verður í
innsveitum norðanlands.
Á jóladag fer veður kólnandi,
með hægri suðlægri átt með élja-
gangi á víð og dreif um landið.
Hitinn verður um og undir frost-
marki. Annan í jólum verður vind-
áttin vestlægari og áfram heldur
kólnandi. Él verða þá einkum um
vestan og norðanvert landið.
- ABÓ
hús á Seltjarnarnesi sem er metið á
átta milljónir verður einnig metið á
átta milljónir þó að það sé staðsett á
Súðavík. Hingað til hefur fasteigna-
skattur verið reiknaður af fasteigna-
mati. Húsið á Seltjarnarnesi hefur
því verið metið á átta milljónir, en
sams konar hús á Súðavík ekki á
nema þrjár milljónir. Pessi munur
hefur þýtt að sveitarfélögin á lands-
byggðinni hafa orðið að hafa álagn-
ingarpróséntuna töluvert hærri en
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu. Það hefur síðan leitt til þess að
Reykjavík og fleiri sveitarfélög hafa
getað hampað því að þau leggi á
miklu lægri fasteignaskatta en önnur
sveitarfélög, sem þarf ekki endilega
að vera rétt því eins og flestir vita er
0,6% af 500 kr. lægri upphæð en
0,4% af 1000 kr.
Breytingin sem tekur gildi um
áramót getur þýtt að sveitarfélag
sem lagði áður á 0,625% fasteigna-
skatt verður nú að leggja á 0,3%
skatt, þ.e.a.s. ef sveitarfélagið ætlar
ekki að hækka fasteignaskatta um
marga tugi prósenta. Þetta er reynd-
ar mjög mismunandi milli sveitarfé-
laga en í sumum tilfellum hækkaði
skattstofninn langt yfir 100%.
Félagsmálaráðuneytið hefur með
bréfi frá 17. nóvember síðast liðnum
ákveðið að til þess að sveitarfélögin
geti fengið fullt tekjujöfnunarfram-
lag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélag-
anna megi álagningarprósentan ekki
fara niður fyrir 0,4% á íbúðarhús-
næði og aðstöðugjald ekki niður
fyrir 0,91%. Það er ljóst að í mjög
mörgum sveitarfélögum þýðir 0,4%
álagning mjög mikla hækkun á fast-
eignaskatti. Hækkunin verður mest
á íbúðarhúsnæði í dreifbýli.
Svanur Guðmundsson oddviti í
Eyjahreppi í Hnappadalssýslu sagði
í samtali við Tímann að þetta ákvæði
um að álagningin verði að vera
0,4%, til að ná tekjujöfnunarfram-
laginu, bindi hendur sveitarfélag-
anna og leiði til þess að sveitarfélög-
in neyðist til að hækka fasteigna-
skattana miklu meira en þau hefðu
annars gert.
Guðbrandur Brynjúlfsson oddviti
í Hraunhreppi í Mýrasýslu sagði að
þó að sitt sveitarféiag myndi lækka
álagningarprósentuna niður í 0,4
yrði hækkunin á sköttunum engu að
síður milli 80-100%. Guðbrandur
sagði að ekki hefði enn verið tekin
ákvörðun um hver prósentan yrði.
Hraunhreppur hefur undanfarin ár
fengið tekjujöfnunarframlag frá
Jöfnunarsjóðnum. Guðbrandur
sagði að það hefði munað verulega
miklu fyrir sveitarfélagið að fá þetta
framlag.
Guðbrandur sagðist vera mjög
andvígur þessari breytingu á skatt-
stofninum og þá sérstaklega þeim
röksemdum sem menn hefðu notað
til að koma henni á. „Menn gáfu sér
þær forsendur að fasteignaskattur-
inn væri ekki eignaskattur heldur
gjald fyrir veitta þjónustu. Á þeim
forsendum var þessi breyting gerð.
Sjálfum finnst mér fasteignaskattur
ekki vera neitt annað en eignaskatt-
ur. Það er ekkert gefið að það sé
eitthvert samhengi milli þjónustu-
stigs og fasteignagjalda.
Ég er dálítið hræddur við þessa
breytingu. Mér þætti ekki ótrúlegt
að þetta komi til með að herða enn
á flóttanum suður. Einnig má búast
við að þetta leiði til þess að fólk
verði enn meira hikandi við að
fjárfesta úti á landsbyggðinni.“
Guðbrandur nefndi sem dæmi um
hækkunina að bóndi sem í ár greiddi
60 þúsund í fasteignaskatt myndi á
næsta ári greiða 130 þúsund miðað
við 0,5% álagningu. - EÓ
Ferðir sérleyfishafa um jólin
Sérstök áætlun er lekin upp á
helstu leiðum sérleyfishafa um jól og
áramót. Rétt cr að taka fram að
sérleyfishafar aka ekki á jóladag og
nýársdag.
Sérleyfishafar vilja eindregið
hvetja fólk til að panta sér far, eða
kaupa farmiða tímanlega, svo auð-
veldara sé að koma því bæði fl jótt og
örugglega til vina og skyldmenna
sinna um þessi jól og áramót.
Loks vilja sérleyfishafar taka eftir-
farandi fram: „Síðustu dagar fyrir
jól eru ætíð geysilega annasamir
fyrir starfsfólk pakkaafgreiðslu BSÍ
í Umferðarmiðstöðinni. Fyrir síð-
ustu jól fóru yfir 50 þúsund pakkar í
gegnum afgreiðsluna og því vilja
sérleyfishafar eindregið hvetja fólk
til senda að pakka sína tímanlega,
svo þeir berist móttakendum örugg-
lega fyrir jól. Einnig er mjög áríð-
andi að merkja alla pakka vandlega
og geta um símanúmer móttak-
enda.“
Tíminn birtir í heild sinni áætlun
á helstu sérleiðum um hátíðirnar.
Ferðir sérleyfishafa
AKUREYRI
ÞORLÁKSHÖFN
23. des. laugard.
24. des. sunnud.
25. des. mánud.
26. des. þriðjud.
* Áætlunarferðir
Herjólfs.
Frá Rvík
kl. 12.30*
kl. 17.30
kl. 10.00*
kl. 13.00
Enginferð
kl. 16.30*
kl. 19.00
i tengslum
Frá l'urlh.
kl. 09.30
kl. 13.30
kl. 08.30
kl. 11.00*
Engin ferð
kl. 12.50
kl. 17.30*
við ferðir
Bílasalan Bílaskráin
óskar viðskiptavinum um land allt
gleðilegra jóla og
góðs nýs árs
með þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Um leið viljum við bjóða ykkur áfram þjónustu okkar á
komandi ári.
Við erum með fjölbreytt úrval notaðra bíla og vinnuvéla
á söluskrá okkar.
Ennfremur óskumvið eftir fleiri bílum og vinnuvélum á
söluskrá, einnig vélsleðum.
Við erum tölvutengdir við Bifreiðaskoðun íslands þannig
að við sjáum samstundis hvort bílar eru rétt skráðir og
veðbandalausir.
Kappkostum að veita góða þjónustu og heiðarleg vinnu-
brögð.
22. des. föstud.
23. des.laugard.
26. des. þriðjud.
Frá Rvík
kl. 08.00
kl. 17.00
kl. 08.00
kl. 08.00
Að öðru leyti er óbreytt áætlun
FráAkure.
kl. 09.00
kl. 17.00
kl. 09.30
kl. 09.30
Að öðru leyti er óbreytt áætlun
BISKUPSTUNGUR
FráRvík FráGcjs
22. des. föstud. kl. 09.00 kl. 14.20
kl. 16.45
23. des. laugard. kl. 09.00 Enginferð
24. des. sunnud. Engin ferð Engin ferð
25. des.mánud. Enginferð Enginferð
26. des. þriðjud. kl. 15.00* kl. 16.50
* Aðeins ekið i Reykholt.
Að öðru leyti er óbreytt áætlun
GRINDAVÍK
BORGARNES/AKRANES
----- Frá Bnesi
23. des. laugard. kl. 08.00 kl. 10.00
kl. 15.30
24. des. sunnud.
25. des.mánud..
★ Farið I Reykholt
FráRvík
kl. 08.00
kl. 13.00*
kl. 18.00
kl. 08.00
kl. 13.00*
Engin ferð
kl. 10.00
kl. 13.00
Engin ferð
Að öðru leyti er óbreytt áætlun
HVERAGERÐI
FráRvik FráHverag.
23. des. laugard.
24. des. sunnud.
25. des. mánud.
26. des. þriðjud.
FráRvík
kl. 18.30
Engin ferð
Enginferð
kl. 10.30
kl. 18.30
FráGrindav.
kl. 13.00
kl. 13.00
Enginferð
kl. 13.00
24. des. sunnud.
25. des.mánud.
26. des. þriðjud.
kl. 09.00
kl. 13.00
kl. 15.00
Enginferð
kl. 09.00
kl. 13.00
kl. 15.00
kl. 18.00
kl. 09.50
kl. 13.20
Enginferð
kl. 09.50
kl. 13.20
kl. 16.20
kl. 18.50
kkl. 21.50
HVOLSVÖLLUR
kl. 20.00
kl. 23.00
Að öðru leyti er óbreytt áætlun
23. des. laugard.
24. des. sunnud.
25. des. mánud.
26. des. þriðjud.
FráRvfli
kl. 08.30
kl. 13.30
kl. 13.30
Engin ferð
kl. 08.30
kl. 20.30
FráHvolsv.
kl. 09.00
kl. 17.00
kl. 09.00
Enginferð
kl. 17.00
24. des.sunnud.
25. des. mánud.
26. des. þriðjud.
HÖFN í HORNAFIRÐI
Frá Rvík Frá Höfn
22. des. föstud. kl. 08.30 kl. 10.00
23. des. laugard. kl. 08.30 kl. 10.00
26. des. þriðjud. kl. 08.30 kl. 10.00
Að öðru leyti er óbreytt áætlun
KEFLAVIK
FráRvík
kl. 13.30
kl. 15.30
Enginferð
kl. 13.30
kl. 17.30
kl. 19.15
kl. 22.15
Frá Keflav.
kl. 11.45
kl. 13.30
Enginferð
kl. 11.45
kl. 13.30
kl. 18.00
kl. 21.00
Bílaskráin
Sími: 91-674311
Persónuleg þjónusta
24. des. sunnud.
25. des. mánud.
26. des. þriðjud.
MOSFELLSBÆR
FráRvík Frá Reykjal.
Sunnudagsáætlun
Síðasta Síðasta
ferð ferð
kl. 15.30 kl. 16.00
Engin ferð Engin ferð
Sunnudagsáætlun
Að öðru leyti er óbreytt áætlun
SELFOSS
FráRvík FráSelf.
kl. 09.00*
kl. 13.00* kl. 09.30
kl. 15.00 kl. 13.00
Enginferð Enginferð
kl. 09.00* kl. 09.30
kl. 13.00 kl. 13.00
kl. 15.00* kl. 16.00
kl. 18.00* kl. 18.30
kl. 20.00 kl. 21.30
kl. 23.00
* Eklð tll Stokkseyrar og Eyrarbakka.
Að öðru leyti er óbreytt áætlun
24.des.sunnud.
25. des. mánud.
26. des. þriðjud.