Tíminn - 23.12.1989, Blaðsíða 7
Föstúdagur 22,'desember 1989
Tíminn 7
sat á Sörla einum
Var flótti Tómasar Böðv-
arssonar af Alþingi fyrir-
mynd Gríms Thomsen
að kvæði hans „Skúla-
skeið“?
kemur í ljós að undankoma manns
þessa var ekki af Öxarárþingi, held-
ur Vallalaugarþingi (Seyluþingi) í
Skagafjarðarsýslu. Vel gat Grími
verið kunnugt um það þótt hann kysi
að skapa kvæðinu annan og sögu-
frægari vettvang, eins og áður er
sagt. Um atburð þennan eru allítar-
legar frásagnir í Alþingisbókum,
annálum og árbókum, og ennfremur
er nú nýlega að honum vikið í grein
Einars Arnórssonar um „Þórdísar-
málið“ fræga í ritum Sögufélagsins
og í bók Guðbr. Jónssonar „Sjö
dauðasyndir“.
Sá var aðdragandi þessara atburða
að bóndi nokkur í Skagafirði á
öndverðri 17. öld lenti í háskalegum
kvennamálum, að þeirra tíma lögum
og hugsunarhætti. Maður þessi var
sakaður um óleyfileg mök og barn-
eign með mágkonu sinni, en slíkt var
í skugga Stóradóms og þáverandi
réttarfars undankomulítið líflátssök.
Bæði virðast þau hafa verið
mannvænlegt fólk og vel látið, enda
er svo að sjá að almenningur hafi
ógjarnan vilja trúa „sekt“ þeirra eða
þá hitt að þau hafi fyrst lengi vel
notið frændsemi við fyrirmenn Skag-
firðinga, lögmanninn á Reynistað og
Hólabiskup, sem haldið hafi hlífi-
skildi yfir þeim meðan kostur var.
Segir E.A. að þau hafi bæði verið í
frændsemi við allt helsta stórmenni
landsins í þann tíð. Sjálf játuðu þau
aldrei brot sitt né samband það sem
á þau var borið. Er staðfesta stúlk-
unnar í því efni undraverð því þrátt
fyrir margra ára málarekstur og
harkalegustu yfirheyrslur, bæði á
Alþingi og í héraði, stóð hún á því
fastari fótunum allt fram í dauðann
að hún hefði ekki karlmann kennt.
Hefði henni þó væntanlega verið
innan handar að hagræða faðerninu
á meinlausari hátt og bjarga þannig
lífi sínu, ef hún hefði viljað frá þessu
hvika, og virðist þetta benda til þess
að hún hafi a.m.k. sjálf trúað því að
hún væri óspjölluð af karlmanns-
völdum. Eða þá hitt, sem sumir hafa
getið til, og sem bregða mundi
hugþekkari blæ yfir málið að hún
hafi með neitun sinni viljað bjarga
manninum og þannig lagt líf sitt í
sölurnar fyrir hann, enda þótt sú
skýring sé að vísu í langsóttara lagi.
En þau urðu hin raunalegu endalok
þessara mála að hinir dönsku um-
boðsdómarar svokölluðu létu að síð-
ustu drekkja stúlkunni á Þingvöllum
en maðurinn komst undan, svo sem
frá verður sagt hér á eftir.
Um mál Þórdísar Halldórsdóttur
verður að öðru leyti ekki rætt hér
frekar, enda þótt um það mætti
skrifa langt mál. Málið er að því leyti
einstakt að íslendingar fengust
aldrei síðan til að samþykkja eða
taka upp þær hrottalegu rannsóknar-
aðferðir sem viðhafðar voru gagn-
vart stúlkunni og hún var dæmd
eftir. Er málið og um margra hluta
sakir merkilegt og sumt í því mikil
ráðgáta, en þar sem það fellur utan
ramma þessarar greinar verður ekki
reynt hér frekar að ráða þær gátur
að sinni.
Uppnám á Alþingi
Hinn ævintýralega flótta Tómasar
Böðvarssonar bar að með þeim hætti
að þegar fógeta Bessastaðavalds
hafði tekist á þinginu að fá stúlkuna
með ógnunum og líkamlegum pynt-
ingum („jómfrú", þ.e. þumalskrúfu)
til þess að gefa tvíræða yfirlýsingu
sem (ranglega þó) var túlkuð sem
„játning" var ljóst að böndin bárust
að manninum þann veg að skammt
yrði meiri tíðinda. Guggnaði hann
þó ekki að heldur, þótt hann hafi
mátt sjá fram á pyntingar og líflát -
„hand sagde hart neij“ segir í þing-
bókinni - og krafðist að mega sverja
sakleysi sitt. Hafði fógeti þá kröfu
að engu og beiddist umsagnar
dómsmanna um það hvort ekki
skyldi setja manninn þegar í „Kong-
ens jern“ og „hand saa uell som hun
at lide for sagen“, þar eð hún hefði
þegar játað. Lýsti þá stúlkan því að
hún hefði ekkert játað eða hún tæki
þá játningu aftur. Skarst Hólabiskup
nú í málið, sem sennilega hefur sem
fleirum þótt nóg um aðfarir fógeta,
og lagði til að ekki yrði frekar
aðhafst að sinni, væri best að fela
Guði mál þetta, þar sem „det gick
offuer hans forstand". Hafa þessi
ummæli biskups verið ýmsum ráð-
gáta, enda má margan skilning í þau
leggja. Kallaði biskup nú fógeta á
eintal út úr dómnum og skipti engum
togum, er sakborningur varð þess
var, að hann stekkur upp eldsnöggt
og snarast út úr þrönginni og á hest
sinn samstundis er þá hefir staðið
tygjaður við þingveginn (undirbú-
ið?), og þeysti burt sem mest hann
mátti. Varð nú uppnám á þingi og
virðist mönnum hafa orðið ráðafátt
í svip, sem vonlegt var. Kallaði
fógeti á eftir manninum að nema
staðar, en sú skipun var að sjálf-
sögðu ekki virt. Kvaddi þá fógeti
samstundis til bændur þá, sem helst
þótti lið í og vel voru hestaðir, að
ríða eftir manninum allt hvað af tæki
og grípa hann. Brugðu þeir þegar
við, en þing leystist upp og varð
stúlkan því ekki dæmd að sinni. Og
hófst nú eftirreiðin.
sem á ísi væru“
Nú sem sakborningur hafði komist
á hest sinn, þeysti hann burt af
þingstaðnum beint af augum, enda
enginn tími til að velja veg eða
leiðir. Urðu brátt fyrir honum fen og
keldusvakkar og þótti þá sýnt að
hann myndi fljótlega liggja í og
verða gripinn. En hér fór á annan
veg, og reyndar með þeim ólíkindum
að varla var einleikið talið. Segir í
þingbókinni að hann hafi runnið yfir
fenin sem á ísi væru, „reed offuer
som paa en jis“. Af eftirreiðarmönn-
um var aftur aðra sögu að segja, því
er þeir hugðust ríða fenin lágu
hestar þeirra á kafi og féllu og lágu
menn og hestar í bendu og brutust
um í kviksyndinu, meðan flótta-
manninn bar yfir sem fugl flygi. Þótti
þetta slík undur þeim er á horfðu að
ástæða þótti að færa það í réttarbæk-
ur og segir þar að þetta hafi verið
„alle Erlige mend vitterligt som saa
thingest vaare“. Tekur það af tví-
mæli um að hér getur ekki verið um
neina þjóðsögu eða ýkjur að ræða.
Hins vegar mun því almennt hafa
verið trúað að hér væri göldrum til
að dreifa, því verjendur Þórdísar
færa það einmitt henni til varnar, er
mál hennar var fyrir Alþingi síðar,
að maðurinn muni hafa komist yfir
hana með fjölkynngi og án hennar
vitundar, enda hefði honum ekki
verið síður til slíks trúandi en þess
er gerðist á Vallalaugarþingi, er
hann rann yfir fen og kviksyndi sem
á hjarni væru.
Auðvitað er ekki skýringa að leita
í slíkum hindurvitnum. Vitaskuld
hefur hestur Tómasar hlotið að vera
hið mesta afbragð að hraða, fótfimi
og traustleik. Auk þess hefur því
lengi verið trúað hér á landi að „milli
hests og manns hangi leyniþráður"
og að góður reiðhestur skynji með
nokkrum hætti þegar líf liggur við;
kemur þetta t.d. fram hjá Grími í
„Skúlaskeiði" og í „Kópi“ Sveins
Pálssonar. („Af eðli göfgu fákur
fann“ etc.), og víðar í sögnum. En
hvað um það, þá er hitt ekki síður
ætlandi að eftirreiðarmenn hafi einn-
ig haft hestakost mikinn og góðan,
svo sem Skagfirðinga er háttur allt
frá tímum „Flugu“, enda kom þar
senn að þeir brytust úr fenjum og
þreyttu eftirreiðina á nýjan leik og
var nú ekki á liði legið. Gat þess
vegna ekki hjá því farið, er frá leið,
að saman drægi með þeim, enda var
maðurinn einhesta en hinir höfðu
sjálfsagt hesta til skipta fleiri eða
færri. Þótti nú sýnt hvað verða vildi
og yrði skammt leiksloka að bíða.
En sem þeir fremstu í eftirreiðinni
höfðu nær því dregið manninn uppi,
tóku hestar þeirra að bilast sumir og
því brátt að „þynnast fjanda
flokkur" og tvístrast, en maðurinn
þreytti undanhaldið upp á líf og
dauða og bar enn undan. Verða nú
óljósar fregnir um eftirreiðina er
lengra kom frá þingstað, en víst er
að henni lauk svo að þeir náðu
flóttamanninum aldrei. Var ýmsu
um kennt, dimmviðri eða göldrum
eins og fyrr segir, þar sem allir þóttu
þessir atburðir með þeim ólíkindum.
Ekki er vitað hvaða leið manninn
bar undan hinni sögulegu eftirreið,
sennilega niður Skagafjörðinn, aust-
ur yfir vötn og til fjalla, og fréttist
það af honum síðar að hann kæmist
til Austfjarða og þaðan í skip til
Englands. Löngu síðar er mælt að
hann kæmi aftur hingað til lands og
leitaði þá samvista við konu sína,
systur Þórdísar, en að hún hafi þá
ekki viljað við honum taka.
Hesturinn ókunni
Þessi frásögn verður ekki lengri
að sinni. Það skyggir auðvitað nokk-
uð á í þessari sögu að ekki skyldi
takast að bjarga hinni ungu skag-
firsku stúlku úr grimmilegum klóm
„réttvísinnar". Hafa sumir áfellst
manninn fyrir að hugsa um það eitt
að bjarga sjálfum sér, en skeyta
engu um afdrif stúlkunnar. Það hefði
auðvitað gert meiri rómantík í sög-
una ef hann hefði svipt henni á
hestinn með sér. En þess var vitan-
lega ekki kostur eins og á stóð og
hefði reyndar ekki komið í neinn
stað niður. Enda virðist flótti manns-
ins út af fyrir sig ekki hafa neinu
breytt um örlög hennar. Vafalaust'
er að fyrirmenn Skagfirðinga hafa
haft fullan huga að bjarga stúlkunni.
En hið erlenda kúgunarvald hafði þá
þegar náð þeim kverkatökum á
þjóðinni, í réttarfars- og refsimálum
sem öðrum, að innlend yfirvöld
fengu ekki lengur rönd við reist, og
átti þó eftir að síga enn meir á þá
ógæfuhlið.
En að hinu leytinu varð það þó,
að því er manninn sncrtir, hinn
óþekkti skagfirski hestur sem bar
sigurorð af leppum útlends kúgunar-
og refsivalds og veitti hinum nauð-
stadda manni þá réttarvernd og
lífgjöf sem innlend yfirvöld voru
ekki lengur umkomin að veita
honum. Atburðir sem þessir eru
jafnan langlífir í vitund og sögnum
með þjóðinni. Þeir snerta næman
streng í brjóstum íslendinga, áreið-
anlega ekki síst manna eins og
Gríms Thomsen, enda er kvæði það
sem hér hefur verið gert að umtals-
efni beinlínis byggt á einhverjum
slíkum atburði eins og fyrr segir. Má
láta sér detta í hug að samband
kunni að vera hér á milli.“
Skúlaskeið
Þeir eltu hann á átta hófahreinum
og aðra tvenna höfðu þeir til reiðar,
en Skúli gamli sat á Sörla einum,
svo að heldur þótti gott til veiðar.
Meðan allar voru götur greiðar,
gekk ei sundurmeð þeim og ei saman,
en er tóku holtin við og heiðar,
heldur fór að kárna reiðargaman.
Henti Sörli sig á harða stökki,
hvergi sinnti‘hann gjótum, hvergigrjóti,
óð svo fram í þykkum moldarmekki,
mylsnu hrauns og dökku sandaróti.
Þynnast bráðum gjörði fjanda flokkur,
fimm á Tröllahálsi klárar sprungu,
• og í Víðikerum var ei nokkur
vel fær, nema Jarpur Sveins í Tungu.
Ei var áð og ekkert strá þeir fengu,
orðnir svangir jóar voru og mjóir,
en - þótt miðlað væri mörum engu,
móðurinn þó og kraftar voru nógir.
Leiddist Skúla, leikinn vildi hann skakka,
ljóp við Ok úr söðli‘ og fastar girti;
strauk hann Sörla um brjóst og
stinnan makka,
sté á bak og svo á klárinn yrti:
„Sörli minn! þig hef ég ungan alið
„og aldrei valið nema bezta fóður;
„nú er líf mitt þínum fótum falið,
„forðaðu mérnú undan, klárinn góður!“
Það var eins og blessuð skepnan skildi
Skúla bænþvíhálsogeyru‘hann reisti,
frísaði hart - og þar með gammurinn
gildi
glennti sig og fram á hraunið þeysti.
Á kostum Sörli fór í fyrsta sinni, —
furðar dverga h ve í klungum syngur, -
aldrei hefur enn í manna minni
meira riðið nokkur íslendingur.
Tíðara Sörli‘ en selningur á leiru,
sinastælta bar í gljúfrum leggi,
glumruðu Skúla skeifurnar um eyru,
skóf af klettunum í hófa hreggi.
Rann hann yfir urðir eins og örin,
eða skjótur hvirfilbylur þjóti,
enn þá sjást í hellum hófaförin,
harðir fætur ruddu braut í grjóti.
Örðug fór að verða eftirreiðin,
allir hinir brátt úr sögu detta; -
en ekki urðu fleiri Skúla skeiðin,
skeið hans fyrsta og síðasta var þetta.
Hann forðaði Skúla undan fári þungu,
fjöri sjálfs síns hlífði klárinn miður; -
og svo með blóðga leggi, brostin lungu
á bökkum Hvítár féll hann dauður
niður.
Sörli er heygður Helgafells í túni,
hneggjarþar við stall með öllum tygjum,
krapsarhrauna salla blakkurinn brúni-
bíður eftir vegum fjalla nýjum.