Tíminn - 23.12.1989, Side 4

Tíminn - 23.12.1989, Side 4
4 Tíminn ypt'r -rtrirrppph F.r; 'iúosblfiDÚS J Föstudagur 22. desember 1989 CITY KAFFIHUSIÐ er orðið sá staður sem ungu atvinnufólki í skemmtanaiðnaðinum þykir helst henta til að sýna sig og sjá aðra. Það er algengt að sjá þar fræga leikara og valdamikla umboðsmenn og framleiðendur í hópi smástirna í framaleit. Viðskiptavinirnir leggja metnað sinn í að vera veraldarvanir. Ekkert kemur á óvart. fariö að dansa þá á skemmlistöðun- PAULA ABDUL Getur hún allt? Þaö er að segja ekki fyrr en kvöldið þegar svo virlist sem jap- anskur flugdreki héldi innreið sína á staöinn. Flugdrekinn er logagyllt- ur, þríhyrndur aö lögun og skreyltur undurfríðu andliti ungrar stúlku. A skriðinu standa niður úr honum tveir heimsfrægir fótleggir. Flug- drekinn talar: hárri, andstuttri rödd sem nánast breslur af æsingi. Hér er vilanlega kontin Paula Abdul - í sérhannaðri dragt með yfirþyrm- andi stórum axlapúðum. Abdul sendir viðstöddum brosið fræga og þögn fellur á salinn þegar samræður hljóðna og þeir sem skapa tískuna ydda athyglina, teygja laumulega frani álkuna til að sjá konuna sem rýkur upp vin- sældalistana í myndbandageröinni. Aóalgellan er mætl á aðalstaðinn. Spretthraðurframi Frami hennar hófst fyrir einu og hálfu ári þegar fyrsta stóra platan hennar, Forever Your Girl, kom á markaöinn. Fyrsti smellur Paulu, Straight Up, þeytli henni upp vin- sældalistana þar sent hún hefur haldið sig síðan. Seinasla lagiö frá henni, (lt“s Jusl) The Way Thal You Love Me, er það sjölla sem hún keniur á Topp 10. Slóra platan komst í lyrsla sæli lislanna og hefur selst í 4 milljónum eintaka. „Seinustu tíu dagana hef ég selt 750.000 plötur," segir Paula. Hún horfir lorlryggin á salat rneð kín- verskum pylsum sem eigandi slað- arins hefur láliö fyrir framan liana á koslnað hússins (hún skýrir frá því aö þar sem l'aöir hennar, sem er af brasilískum og sýrlenskum ættum, liafi verið í kjötbransanum Itafi hún borðað nóg kjöl lil að endasl lienni til æviloka eða lengur). „Þetta er alveg stórmerkilegl,“ Iteldur hún áfram. „Ég seldi 191.000 eintök á einum degi. Það fer alveg meö mann. Þegar maður fær frétlir af svona lölum gargar niaöur bara. Skilurðu þelta ekki? Þetla er ólrúlegt!" Það hefur engin söngkona slegið svona gjörsamlega í gegn frá því að Whitney Houston þaut fram í sviðs- ljósiö l'yrir fjórum árum - og Paula hefur verðlaunin sent sanna það: Fyrir nokkrum mánuðum labbaði luin út með fjóra verðlaunagripi af MTV verölaunafhendingunni fyrir tónlistarmyndbönd. Hún vann einnig Emniy sem besti dansahöf- undur fyrir sjónvarpsþátt Tracy Ullman. I þessunt mánuði verður gefið út myndband um feril hennar allt frá því hún var klappstýra og þar eru alriði frá hljómleikaferöa- lagi og af fimm myndböndum. Þessi 26 ára miðpunktur athygl- innar er hlédræg, næstum feimin, Kalíforníustúlka sem er hálfmiður sín yfir umfangi velgengni þeirrar er svo skyndilega hefur falliö henni í skaut. Eins og sjá má af mynd- böndum hennar er hún hlýleg og einstaklega aðlaðandi manneskja. „Þetta hefur verið hreint ótrúlegur tími,“ segir hún um velgengni sína. „Þetta hefur verið eins og að standa á öndinni. Það er ekki fyrr en sein- uslu tvo mánuðina sem ég hef virki- lega gert mér grein fyrir þessu öllu.“ Allir vilja dansa eins og Paula Eins og er er Paula ein af fáum dönsurum sem nýtur verulegra vin- sælda. Michael Jackson getur að vísu enn slegið henni við en dansar hans eru of flóknir til að krakkar getir leikið þá eftir. Dansar Paulu eru aógengilegri, persónulegri og skemmtilegra aö dansa þá. Eins og fyrsti danskennarinn hennar, Dean Barlow, bendir á: „Viku eftir að nýtt myndband með henni kemur út er um.“ Barlow, sem hefur kennt dans í Hollywood í 17 ár, segist iðulega fá upphringingar frá smástelpum sem vilji læra aö dansa eins og Paula Abdul. Það sem Paula er hrifnust af eru ekki sölumelin heldur þau áhrif sem verk hennar hafa haft á unglinga- menninguna. „Hver hefði trúað að poppstjarna kænti steppdansi á framfæri," gorlar hún. „Það er sko alveg meiriháttar. Nú er skortur á sleppkennurum um gervalla Amer- íku.“ „Dans er meginatriði hjá ung- lingum þessa dagana,“ heldur hún áfram. „Þeir stunda núna dans í staðinn fyrir leiki og íþróttir. Dans er ekki lengur bara sýningaratriði." Síðan slær hún sjálfri sér smágull- hamra. „Ekki það að ég vilji vera að grobba mig, en mér finnst ég vera hluti af þessu öllu.“ Undir [retta tekur vinur Paulu - og nteinlur kærasti - Arsenio Hall sem hún kynntist fyrir fjórum árum þegar hún var klappstýra hjá Lakers, (hún vann líka meö honum í fyrra þegar hún samdi dansa fyrir Coming to America). Hall segir að Paula sé fulllrúi nýrrar tegundar skemmtikrafla sem hann talar um sem „innrás hæfileikaskrímslanna." Þau geti sungiö, dansað, leikið á hljóðfæri, sagl brandara, fariö í við- töl, gert auglýsingar, kvikmyndir, leikið og selið fyrir á tískuljós- myndum. „Þetta er eins og í kvik- myndaverununt í gamla jtegar nienn uröu aö gela gert dálítið af öllu, eins og Fred Astaire eða Judy Garland," segir Hall, sem segir að Paula sé að vissu leyti „allar kon- ur.“ Hvítir unglingar horfa á hana og hún höfðar til þeirra á sama hátt og Madonna. Síðan höfða hreyfing- ar hennar til svartra unglinga. Olíkt Madonnu. Allt í lagi. Madonna get- ur svo sem látið til sín laka, en hún er engin Paula Abdul. Hún slettir úr klaufunum eins og viö gerum í gettóunum. Og það segir sína sögu.“ Abdul nýtur virðingar meðal samstarfsmanna sinna fyrir aö hafa ekki látið nýfengna frægð rugla sig í ríminu. „Ég hef gelaö haldið ró minni í öllunt þessum lálum með því að halda mig að fjölskyldu minni og því fólki sem þólti vænl um mig áður en ég varð sljarna," segir hún. Hún gerir þetta með því að heimsækja gamla vini og eyða tíma með eldri systur sinni, Wendy, sem hún hefur búið hjá í Los Ang- eles undanfarna þrjá mánuði. „Eg var með eigin íbúð,“ segir Paula, „en ég vann svo mikið og þegar maður kemur einn heim og bara til að sofa ... Ég saknaði fjölskyldu- Iífsins, ég var að missa af uppvexti litlu frænda rninna." (Paula keypti nýlega hús í Los Angeles sem hún ællar að flylja inn í - einhvern tíma.) Paula var alin upp í Los Angeles og San Fernando dalnum hjá móður sinni, Lorraine Abdul, sem er fyrr- verandi konsertpíanisti (foreldrar hennar skildu þegar hún var sjö ára) og sýndi snemma áhuga sinn á dansi. „Slrax sem smápeö," segir mamma hennar, „þá fylgdist hún með systrum sínum í dansskólan- um. Svo kom hún heim og endurtók allt sem hún sá. Hún greip það við fyrstu sýn.“ Úrfjölmiðlafræði í klappstjórn Abdul var vinsæl í skóla og það góður námsmaður að hún fékk styrk til framhaldsnáms og lærði fjölmiðlafræði í tvö ár. Móðir henn- ar var niðurbrotin þegar hún hætli í skóla 19 ára og fór í fullt starf sem klappstýra. Eins og viö mátti búast varð Paula aðaldriffjöðrin í klappliði L.A. Lakers á nokkrum mánuðum. „Ég fór aldrei eftir reglunum þar,“ segir hún. „Ég vildi losna við skrautið og einbeila mér meira að dansinum. Þessar hefðbundnu klappstýrur fóru alltaf í laugarnar á mér - uppsett hár og sexý skrokkar. Það skipti engu máli hvernig þú dansaöir ef þú varsl falleg kyn- bomba. Ég var það aldrei og þurfti ofl að láta í minni pokann. Sljórn- endur liðsins létu mig oft heyra það. Þeir sögðu: Láttu ekki svona, Paula. Þú velur góðan dansara, en hvernig lítur hún út í búningnum?" Aðferð Paulu sló þó greinilega í gegn og færði henni fyrsla verkefn- ið sem dansahöfundur á myndbandi Jacksons Torture. „Dansagerðin bara kom upp í hendurnar á mér,“ viöurkennir hún. „Ég vissi ekkert unt hvort þetta yrði gróðavænleg at- vinna - mér fannst þelta bara skemmtilegt.“ En svo komu þátta- skilin: nýstárleg myndbandaröð fyrir Janet Jackson. „Þegar ég byrj- aði að vinna með Janel kom fram alveg ný lína,“ útskýrir Paula. „Það var sambland af því sem ég hafði verið að gera með Lakerstelpunum. Ég blandaði saman tæknilegri kunnáttu og götuhreyfingum. Allir héldu að ég væri biluð en þegar myndböndin komu fyrir almenn- ings sjónir small allt saman. Með myndbandinu hennar Janet sá ég virkilega þau áhrif sem dansa- gerð hefur á börn og fullorðna. Á skemmtislöðum sá ég fólk dansa sporin, eins og það hefði sett mynd- bandstækin í hægagang, fryst myndrammann: „Ég ælla aö ná þessu spori!" Það dansaði dansana nákvæmlega. Ég var í sjöunda hinini." Það skaut lleirum upp í sjöunda himin, svo sem George Michael, Dan Aykroyd, ZZ Top, Arethu Franklin og Dolly Parton, seni öll hafa notið handleiðslu Paulu. „Dansarnir mínir henta karlmönn- um mjög vel og konurnar sem ná þeim eru hörkudansarar," segir Paula. „Þeir reyna virkilega á lík- amann og í þeim er viss kvenleiki en líka „ég get það sama og strák- arnir.“ Þegar ég bjó til þessa dansa fyrir Janet hæföu þeir henni mjög vel og féllu að tónlistinni. Dansarn- ir sem ég sem fyrir sjálfa mig eru aðeins kvenlegri." Viðskiptavinur hjá sjalfri sér Paula var orðin hagvön í að skapa ímynd fyrir aðra þegar hún gerðist viðskiptavinur sjálfrar sín. Utgáfufyrirtækið Virgin réð hana eftir að hafa heyrt reynsluupptöku sem hún hafði gert og eftir það fór boltinn að rúlla. „Mér finnst mjög spennandi að vera fyrir framan myndavél því ég get ýmist verið djörf eða ófranifær- in,“ segir Abdul og lýsir göldrunum sem hún gerir á myndband. „Ég get verið hvað sem mér þóknast. Þegar kveikt er á myndavélunum líður manni annaðhvort vel eða illa. Þeg- ar þeim er beint að mér fer ég í gang.“ Núna þegar hún hefur heillað fólk um víða veröld upp úr skónum ætlar hún að snúa sér að öðrum dýrategundum. A myndbandinu sem kemur út núna í desember, Opposites Attract," dansar Paula við teiknaðan kött; hugmyndin er komin frá sígildu atriöi með Gene Kelly og teiknaðri mús í söngva- myndinni Anchors Aweigh. Eftir að hafa slegið í gegn sem dansari, dansahöfundur og söngvari beinist áhugi Paulu að því að láta reyna á leikhæfileikana. „Ég veit að hún getur leikið," segir Hall. „Ég hef séð hana þykjast reiðari en hún var bara til að ná sínu frant." Til- boðum hefur rignt yfir umboðs- menn Paulu um að gera kvikmynd um ævi Paulu. En hún kærir sig ekki um það í náinni framtíö. „Ég vil ekki kvikmynd sem gerir Paulu Abdul að goösögn," segir hún. „Ég vil svona mynd sem fólk starir og segir „O, gvuuuð... Abdul er í þess- ari mynd..“” A þessum nólum er hún alvarlega að velta fyrir sér nokkrum kvikmyndatilboðum. En fyrst þarf hún að konia út annarri plötu sem ætti að halda henni við efnið næstu mánuðina. Paulu hefur snúið léttari hliðinni út á plötum sínuni til jiessa. Hún hefur ákveðið að gefa a.m.k. 50“ tekn- anna af næstu plötu og láta textana verða málefnalegri, fjalla t.d. um erfiðleika heimilislausra. Hún ætlar að seilast aðeins inn í héimspólitík- ina með lagi gegn aðskilnaðarstefn- unni sem heitir „Cape Town.“ Þótt allt gangi eins og í sögu er eilt orð sem getur varpað skugga yfir andlit Paulu: Evita. Fyrr á jressu ári valdi Oliver Slone (- Platoon) hana úr hópi danshöfunda til að semja dansana í væntanlega kvikmynd hans um Evu Peron þar sem Meryl Streep átti að fara með aðalhlutverkið. Það verk hel'ur nú verið lagl í sall um óákveðinn tíma en Stone er enn stórhrifinn af hæfi- leikum Paulu. „Ég fékk bara hug- boð varðandi Paulu,“ segir Stone jregar hann útskýrir hvers vegna hann valdi svo ungan höfund í svo stórt verkefni. „Það er sterkur nú- tímabragur á verkum Paulu og þeim svipar um sumt til Michaels Jackson. En hún ber líka mikla viröingu fyrir sígildum söngleikj- um eins og þeim sem Athur Freed gerði fyrir MGM með Fred Astaire." „Þetta var sex mánaða verk hjá mér,“ segir Paula niðurdregin. „Nú verður ekkert úr þessu af því Meryl Streep hætti við vegna ofþreytu. Nú er þessu frestað unt óákveðinn tíma. Mig langaði virkilega til að gera þelta. Það skipti mig meira máli en nokkurn grunar.“ Vinna og vinátta Vinnan er númer eitt í lífi Paulu og einkalíftð situr á hakanum. „Ég gel vel hugsað mér öruggt heimilis- líf,“ viðurkennir hún, „en minn tínii til þess er ekki kominn. Mér hefur lærst að það tekur heilmikinn tíma að vera í tygjum við karlmann og þann líma hef ég ekki. En þaö er ekki þar með sagt að ég vilji ekki verða ástfangin, giftast og eignast börn.“ Paula hlær að þeim orðrómi, sem Arsenio Hall kom af stað, að hún sé „móðir þriggja af börnunum hans.“ Hall virðist oftast nefndur þegar ástamál Paulu ber á góma. „- Arsenio er einn af mínum nánustu vinum og ég eyði tíma með honum þegar ég hef líma til að eyða,“ segir hún. „Við njótum þess að vera sam- an, ég gel talað um allt við hann. Hann er eina manneskjan sem ég gat sagl nákvæmlega hvernig ntér líður og hann skilur það því annað- hvort líður honum eins eða hefur einhvern tíma liðið þannig." Ætlarðu aö segja aö það sé engin rómantík hvað ykkur varðar? „Honum finnst gaman að segja blaðamönnum að viö séum gift og þar fram eftir götunum. Okkur þyk- ir mjög vænt unt hvort annað, en starfið er hans aöal. Hann er giftur því og það sama má raunar segja um mig. Frami minn skiptir mig mjög miklu máli, en það er ekki þar með sagt að ég vilji ekki einhvern líma ...“ Þó að rómantíkin kunni að verða fjarri Paulu á næslunni hefur hún upplifað þá fullnægju sem frægðin getur veitt. Á tónleikaferðalagi síð- aslliðið sumar kom hún við í heimabæ sínum og hélt tónleika á Forum þar sem hún hafði komið fram kvöld eflir kvöld í fjögur ár í klappliði Lakers. Hún lýsir þeirri reynslu: „Ég rifjaði upp öll kvöldin sem ég kom á Forum og hinar stelp- urnar voru að koma, ýmist úr skóla eða vinnu, og við fórum út á gólfið og dönsuðum við hin undarlegustu lög. Svo borðuðum viö í mötuneyt- inu. Éggleymi aldrei lyklinni íbún- ingsherbergjunum og hvað það var kalt jaarna. Tónleikakvöldið gekk ég eftir göngunum og það var ís- kalt. Ég sagði sjálfri mér aftur og aftur að ég væri ekki að fara út til að koma fram sem klappstýra, ég var að stíga á sviðið sent stjarnan." Það hlýtur að hafa verið notaleg tilfinn- ing? „Það var alveg meiriháttar.“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.