Tíminn - 26.04.1990, Blaðsíða 10

Tíminn - 26.04.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminp t » > ► r- r> i I » * ► • *• * » m i > j Fimmtudagur 26. apríl 1990 Fimmtudagur 26. apríl 1990 \vr< i . iTíminn 11 I . Flaggað var í hálfa stöng á öllum bensín- stöðvum Esso og víðar um borgina vegna ógnaratburðarins við Stóragerði snemma í gærmorgun. Tímamynd; Ami Bjama lllvirki eða illvirkjar létu til skarar skríða á bensínstöðinni við Stóragerði í gærmorgun með hræðilegum afleiðingum: Ránmorð í Reykjavík Fjörtíu og sjö ára gamall starfsmaður bensínstöðvar Olíufélagsins hf. við Stóra- gerði í Reykjavík fannst myrtur í gærmorg- un. Lögregla og samstarfsmenn mannsins komu að honum látnum neðst í stiga í aft- anverðu stöðvarhúsinu, sem liggur niður í kjallara hússins. Það var um klukkan hálf átta - líklega skömmu eftir að hinn myrti mætti til vinnu sinnar. Maðurinn var með mikla áverka á höfði og víðar um líkam- ann. Sá eða þeir er ífömdu verknaðinn komust undan á bíl hins myrta, sem er hvít- ur fólksbíll af gerðinni Mazda 323 árgerð 1987. Odæðismaðurinn var ófúndinn, þeg- ar Tíminn hafði síðast ffegnir af rannsókn málsins. Bíllinn fannst i gærmorgun á bílastæði á bak við Vesturgötu 3. Allt bendir til að um ránsmorð hafi verið að ræða og að sá er ffamdi verknaðinn hafi haft á brott með sér ránsfeng - fjárupphæðir, sem ekki er með góðu móti hægt að kalla skiptimynt. Um meiri fjármuni er að ræða en svo. Þegar starfsfélagar og lögregla komu á vettvang fúndust mynthólkar, sem dottið höfðu á stéttina fyrir utan bensínstöðina. Slíkir hólkar voru einnig á gólfum innan- dyra. Auk þess var mikið umrót þar. Hinn látni hét Þorsteinn Guðnason, fæddur 19.6 1942, til heimilis að Skaftahlíð 26 í Reykjavík. Hann lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin böm á aldrinum 17 til 22 ára. Lóð bensínstöðvarinnar var girt af í gærmorgun og stöðinni lokað fýrir öðrum en rannsóknarlögreglumönnum. Lögregla stóð vörð um staðinn, á meðan rannsóknar- lögreglan ffamkvæmdi vettvangsrann- sókn. Síðar komu starfsmenn Olíufélags- ins til að kanna, hvað horfíð hafði. Starfsmenn Olíufélagsins vom harmi slegnir vegna þessa atburðar svo og al- menningur. Flaggað var í hálfa stöng á bensínstöðvum Olíufélagsins í gær. Tilkynning um ódæðisverkið barst til lögreglunnar í Reykjavík klukkan 7.39. Var þá allt tiltækt lögreglulið í Reykjavík látið svipast um eftir bílnum. Lögreglan í Reykjavík gerði lögreglunni i Kópavogi og Hafnarfirði viðvart og leituðu lögreglu- menn þar einnig að bílnum. Var meðal annars fylgst með umferð um Kringlumýr- arbraut, Reykjanesbraut og Hafnarfjarðar- veg. Biffeiðin fannst skömmu síðar á bíla- stæði við Vesturgötu 3 í Reykjavík. Eftir því sem næst verður komist, var andvirði eldsneytis- og vömsölu bensín- stöðvarinnar ffá síðari hluta dags í fyrradag geymt i peningaskáp í stöðvarhúsinu. Hinn látni var vaktstjóri í bensínstöðinni og fyrsta verk vaktstjóra að morgni er að tæma peninga úr sjálfsölunum, taka þá úr sambandi og gera nætursöluna upp. Þorsteinn heitinn mun hafa komið í stöðina um kl. sjö í gærmorgun til að sinna þessum morgunverkum, áður en stöðin yrði opnuð kl. 7.30. Bensínstöðvar Olíufé- lagsins em vaktaðar af Securitas og í þeim er aðvörunarkerfí og skynjarar, sem skynja mannaferðir í stöðvarhúsunum. Svo virðist sem morðinginn/morðingj- amir hafí verið gagnkunnugur/ir starfshátt- um á bensínstöðinni, því að hann/þeir hafa að líkindum beðið með að láta til skarar skríða, fyrr en eftir að Þorsteinn heitinn hafði tekið aðvörunarkerfíð, sem tengt er stjómstöð Securitas, úr sambandi. Tíminn heyrði í gær, að kerfið hefði verið aftengt um kl 7.15. Það fékkst þó ekki staðfest. Þá var peningaskápur stöðvarinnar opinn, þegar að var komið í morgun og áður- nefúdir peningar, sem þar áttu að vera, horfnir. Það eina, sem eftir var, vom hólk- ar með skiptimynt, sem fúndust inni í hús- inu og á stéttinni fyrir framan það. Bensínstöðin við Stóragerði er með söluhærri bensínstöðvum í borginni, en á viku seljast að meðaltali um 50 þúsund lítr- ar af bensíni auk gasolíu og annars vam- ings. Illvirkinn hefúr því að líkindum kom- ist undan með talsverða fjárhæð í reiðufé og ávisunum. Starfsmenn Olíufélagsins töldu þó í gær, að um heldur lægri upphæð hefði tapast í greipar illvirkjans/illvirkj- anna, en búast hefði mátt við. Samstarfsmaður Þorsteins kom á vett- vang skömmu fyrir kl. 7.30 og sá hann þá, að bifreið Þorsteins, yfirmanns síns, var ekið i brott ffá stöðinni. Þegar hann ætlaði Efta'r Stefán Ásgrímsson .°g Agnar Oskarsson. inn, vom aðaldymar læstar og einnig bak- dyr. Hins vegar bentu ummerki innandyra og fyrir utan til þess, að ekki væri allt með felldu og að átök hefðu átt sér stað. Starfs- maðurinn náði síðan sambandi við leigu- bílstjóra skammt ffá, sem hringdi í lögregl- una um bílasíma. Þetta gerðist nokkrum mínútum eftir kl. 7.30 Helgi Daníelsson yfirlögregluþjónn hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins sagði í sam- tali við Tímann, að tilkynning um verknað- inn hafi borist til þeirra nokkm fyrir átta í gærmorgun ffá lögreglunni í Reykjavík. Aðspurður sagði hann, að þeir hefðu engan Rannsóknarlögreglumenn að störfum við bakdyr bensínstöðvarhússins við Stóragerði í gær. Fyrir innan þessar dyr er stigi niður í kjallara, þar sem vaktstjóri stöðvarinnar fannst myrtur í gærmorgun. Tímamynd; Pjetur gmnaðan um verknaðinn og sagðist hann ekkert geta sagt að svo komnu, um hvemig manninum var ráðinn bani. Bifreið hins látna, sem tekin var trausta- taki af ódæðismanninum, fannst á bíla- stæðinu við Vesturgötu 3 klukkan rúmlega 10. Bifreiðin er af gerðinni Mazda 323 ár- gerð 1987, fjögurra dyra, hvít að lit. Skrán- ingamúmerið er R 22528. Biffeiðin var tekin í vörslu RLR til rannsóknar. Hún var dregin af stæðinu, þar sem hún fannst laust fyrir kl. 11. Þá var lögreglan á ferli um gamla Vesturbæinn og víðar i gær með sporhunda til að ffeista þess að rekja ein- hveija slóð illvirkjans eða illvirkjanna ffá hinum stolna bíl fómarlambsins. Helgi Daníelsson sagði, að mikilvægt væri að allir þeir, sem eitthvað hafa séð til ferða þessa bíls á tímabilinu ffá hálf átta til um tíu í gærmorgun, láti rannsóknarlög- regluna vita. Jafnffamt em þeir, sem hugs- anlega hafa séð til manns eða manna fara inn í bílinn í Stóragerði eða út úr honum við Vesturgötuna, beðnir að láta lögregluna vita. - Gæti verið, að sá eða þeir, sem vom að ■verki, hafi þekkt til starfshátta í bensín- i stöðinni svo snemma morguns? Helgi Daníelsson sagði, að rannsóknarlögreglan 1 hlyti að verða að reikna með því, að „þeir i hugsi, sem em að stela og gera svona hluti. Við verðum að gera ráð fyrir því, að þegar menn gera svona lagað, að ekki sé alltaf til- viljun, sem rekur þá til verka,“ sagði Helgi. - Em einhveijir slíkir til, sem lagt hafa stund á rán af svipuðu tagi, þótt ekki sé með jafn alvarlegum afleiðingum og nú? „Menn þurfa ekki annað en að lesa blöðin eða fylgjast með fjölmiðlum, þá fá þeir svar við þeirri spumingu. Alla vega hefúr þetta skeð þannig, að slíkir menn em til,“ sagði Helgi. Engar greinilegar vísbendingar hafa komið ffam í þá átt, að sá er framdi verkn- aðinn hafi komið á biffeið og skilið hana eftir í nágrenninu. Enginn bíll stóð á lóð bensínstöðvarinnar við Stóragerði í morg- un eða í næsta nágrenni hennar, sem hugs- anlega gæti talist vera farartæki moringj- ans. Allur tiltækur mannafli Rannsóknarlög- reglu ríkisins og lögregluliðanna á höfúð- borgarsvæðinu vann í gær að rannsókn málsins. Tíminn ræddi aftur við Helga Daníelsson i gærkvöld og sagði hann, að talað hefði verið við fjölda manna, sem tengdust málinu með einum eða öðrum hætti. Hann vildi ekki skýra ffá einstökum atriðum rannsóknarinnar, né heldur hvort einhveijir lægju beinlínis undir gmn. Hann sagði, að nokkuð ljóst væri, að átök hefðu átt sér stað milli illvirkjans og Þorsteins heitins. Miklir áverkar hefðu ver- ið á líkinu. Hann vildi ekki greina ffá hugs- anlegu morðvopni á þessu stigi. Talsvert mikið hefði verið hringt til Rannsóknar- lögreglunnar í gær og unnið væri stöðugt úr þeim upplýsingum, sem bæmst. Hann ítrekaði, að allar upplýsingar væm vel þegnar ffá fólki, sem teldi sig hafa séð til mannaferða við bensínstöðina við Stóra- gerði upp úr kl. 7 i gærmorgun, séð til manns eða manna setjast upp í hvíta femra dyra Mazda 323 bifreið Þorsteins heitins og aka ffá stöðinni niður í bæ og stíga út úr henni á bílastæðinu á bak við Vesturgötu þijú. sá/ABÓ Morðingi eða morðingjar vaktstjórans á bensínstöðinni við Stóragerði tóku bíl hans traustataki eftir illvirki sitt Bíllinn fannst síðar um morguninn á bílastæðinu við Vesturgötu 3. Þetta er bíllinn. Þeir sem telja sig hafa séð til ferða bílsins og þess eða þeirra sem á honum vom milli kl. 7.30 og 10 í gærmorgun em beðnirað hafa samband við rannsókna- lögregluna í síma 44000.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.