Tíminn - 26.04.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 26.04.1990, Blaðsíða 5
1 1 -■> * -r .« »I \ i r v'* i 4 rifiír;in :» Tíminn 5 rcc Fimmtudagur 26. apríl 1990 Reykjavikurborg hefur gert tilboð í Hótel Borg, sem rennur út a hádegi í dag: Davíð er að verða umsvifamikill í veitingabransanum Reykjavíkurborg hefur gert formlegt tilboð í Hótel Borg, en eins og kunnugt er, hefur Alþingi mikinn áhuga á að eignast húsið. Tilboðið stendur fram til hádegis í dag. Tilboð borgarinnar kom Guðrúnu Helgadóttur forseta Sameinaðs þings mjög á óvart Hún hefur beðið eigendur Hótel Borgar að fresta afgreiðslu málsins fram til sunnudags. Guðrún sagði í samtali við Tímann, að búið sé að draga eigendur hótelsins allt of lengi á svari um kaupin. Hún sagði borgarstjórann í Reykjavík ekki hafa látið sig vita af þvi, að hann hygð- ist ganga inn í tilboðið. Guðrún sagði mál þetta allt hið undarlegasta, sérstak- lega þegar tekið er tillit til þess, að í gær var Alþingi að ganga frá samningi við borgina um afnot á svæðinu í kringum Alþingishúsið. Síðustu daga hefúr verið rætt um að Alþingi kaupi Hótel Borg á 120 millj- ónir og verði þær greiddar á átta árum. Borgin býðst til að ganga inn í þetta til- boð. Þetta mál var rætt í boigarráði á þriðju- daginn, en engin ákvörðun tekin. Ekk- ert liggur fyrir um hvað boigin hyggst gera við húsið, en boigaryfirvöld hafa látið í ljós þá skoðun, að veitinga- og hótelrekstur eigi að vera í miðboig Reykjavíkur. Sigrún Magnúsdóttir boigarfulltrúi sagði nauðsynlegt, að reyna að halda lífi í miðboiginni. Hún sagði hins vegar slæmt, ef kaup boigarinnar á Hótel Borg verði til þess, að Alþingi neyðist til að flytja starfsemi sína úr miðboig- inni. Búið er að leigja undir bílastæði það svæði, sem rætt var um að byggja nýtt alþingishús á. Leigutiminn er til tíu ára. Sigrún sagði, að borgin væri nú þegar orðin mjög umfangsmikil í veitinga- Breiðholti og veitingahús í Viðey. Verið húsarekstri og væri því vafasamt, hvort er að reisa veitingahús á Öskjuhlíð og hún ætti að fara lengra út á þá braut. nú em sem sé uppi áform um að boigin Borgin á nú þegar veitingahúsið Glym í eignist veitingahúsið Hótel Boig. -EÓ Brjálaö veður á Norðurlandi Norðan áhlaup gerði uni norðan- og börn í leikskóla og barnaskóla vert landið 1 gser. Veðrinu oDi lægð, biðu uns veðrinu slotaói. Snjóflóð féil semfórnorðuryfiraustanvertland- á Ólafsfjarðariuúla um miðjan dug í ið. Björgunarsveitir voru kallaðar út gær. Ekki urðu slys á fóiki eða bflum til að aðstoða fólk við að komast til af þess vöklum, en bílL, sem átti leið síns faeima. Nokkrir bílar lentu í erf- um múlann hélt kyrru fyrir í múlan- iðleikum, m.a. bfli, sem átti leið um um á meöan veðrahamurinn var Ólafsljarðarmúla. Snjóflóð féllu á semmestur. múlann. Ekki er vitað til, að neitt tjón hafi Á Akureyrivarmjöghvasstogfuku orðið á bflum eða fóXkL, enda héfdu öskutunnur og fleira lauslegt á bila flestir sig heima eða hættu við ferða- og hús. Skyggni var slærat og áttu lög. Vegagerðin bjóst við, að ekki bflar í erfiðleikum vegna blindu. yrði komist hjá því, að ryðja fjaflvegi Björgunarsveitir aðstoðuðu 14 bíla í dag. Þeir tjámiunir, sem ætlaðir norðan við Akureyri. Lðgreglan vildi voru til snjómoksturs á Norðurlandi ekki flokka veðrið undir norðlenska eru löngu uppurnir. Ljóst er, að veita hríð, því að lilinn snjó festi á jörðu. þarf fé til snjómoksturs á aukafjár- Mikið snjóaði á Ölafsfirði í gær- lögum í haust. morgun, en hann fauk fljótt af stað, Búist var við slæmu veðri fyrir þegar hvessti ura hádegiö. Menn á norðan í allan dag. Á morgun er Ólafsfiröi höfðu á orði, að veðriö spáð hlýnandi veðri og suðlægum væri það versta, sem komið hefði í áttum. Reikna má með því, að vor- vetur. Fólk hætti sér ekki á mflli húsa vindar blási um helgina. -EÓ Aðalfundur Sambands fiskframleiðenda: Vilja vinnslukvóta inn í fmmvarpiö í ályktun, sem samþykkt var á aðal- fúndi Félags Sambandsfiskframleið- enda (SAFF), sem haldinn var í Reykja- vík í gær, er lýst yfir ánægju með, að samkomulag hafi náðst um fjölmarga veigamikla þætti í stjómun fiskveiða, eins og fram kemur í því frumvarpi um stjómun fiskveiða, sem nú liggur fyrir Alþingi. I ályktuninni segir orðrétt: „Þar má til nefna, að stjómað verði með einni aðferð, án undantekninga og að lögin verði ótímasett. Þetta er að okkar mati grundvöllur þess, að markmiðin um rekstarhagkvæmni fiskveiðiflotans náist, eins og að er stefnt.“ SAFF er þó ekki alls kostar ánægt með hlut fiskvinnslunnar í fiumvarpi um fiskveiðistjómunina og í ályktuninni segir, að í frumvarpið skorti ákvæði, sem tryggi rekstrarhagsmuni íisk- vinnslunnar. Einnig telur SAFF, að í frumvarpið skorti „öll ákvæði um jafii- rasði innan sjávarútvegsins, en það get- ur leitt til ótyrirsjáanlegrar röskunar á byggð í landinu og atvinnuöryggi. Þess vegna skorar íimdurinn á háttvirt Al- þingi að samþykkja fiskvinnslukvóta í Flytja þurfti þrennt á sjúkrahús eft- ir harðan árekstur tveggja bíla skammt frá flugvellinum í Aðaldal skömmu fyrir klukkan þrjú í gær- dag. Fólkið var fiutt á sjúkrahúsið á samræmi við þær hugmyndir, sem lagð- ar vom fram í ráðgjafaneíndinni um fiskveiðistjóm,“ segir í ályktuninni. Aðalfúndurinn stóð í allan gærdag, en í dag verða aðalfúndir hjá sölufyrir- tækjum Sambandsins erlendis, Iceland Seafood corp. og Iceland Seafood Ltd. Húsavík og var einn hinna slösuðu talsvert slasaður. Að sögn lögreglu á Húsavík var blindbylur á þessum slóðum i gær. —ABÓ Húsavík: Þrennt á sjúkrahús Samkomulag á milli formanna stjórnarflokkanna um frumvörp sjávarútvegs- ráðherra, en einstakir stjórnarþingmenn eru enn þverir í málinu: Frumvörpin um stjórnun fiskveiða komin í höfn? Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra segir, að samkomulag sé á milli stjómarflokkanna um afgneiðslu frumvarpa um stjóm fiskveiða og úreldingarsjóð sjávarútvegsins. Formenn sljómar- flokkanna og sjávarútvegsráðherra gengu frá samkomulagi í gær, en andstaða mun vera við samkomulagið meðal einstakra þingmanna Alþýðubandalags og Borgaraflokks. Þingflokkar stjómarflokkanna fúnd- uðu um málið í gær og lögðu þingmenn Framsóknarflokks og Alþýðuflokks blessun sínayfir samkomulagið. Karvel Pálmason var ekki viðstaddur þing- flokksfúnd Alþýðuflokksins. Alþýðu- bandalagsmenn gerðu athugasemdir við frumvaipið um stjóm fiskveiða, en þingflokkur Boigaraflokksins afgreiddi samþykktina með fýrirvara um nokkur atriði, þ.á.m. vilja borgarar afiiema for- kaupsrétt byggðarlaga á fisldskipum á sínu svasði, en það er þveröfúgt við álit alþýðubandalagsmanna. „Við héldum fúnd í gærkveldi, þar sem menn náðu saman í megin atriðum um að leggja ákveðnar tillögur fyrir þing- flokkanna, síðan hefúr það verið rætt aftur í dag og það er komin samstaða meðal stjómarflokkanna, hvemig staðið skuli að málinu,“ sagði sjávarútvegs- ráðherra í samtali við Tímann í gær. Halldór sagði, að það samkomulag, sem hefði náðst, væri basrilega ásasttan- legt fyrir alla aðila. „Það er mikilvægast af öllu fyrir sjávanitveginn í landinu að þurfa ekki að búa við það óvissuástand, sem annars myndi rikja," sagði ráðherr- ann.“Ég hef enga ástæðu til annars en að ætla, að þetta samkomulag haldi og ég vænti þess, að frumvarpið fái nú þeg- ar umfjöllun í efri deild, þannig að unnt verði að faka það fýrir í neðri deild." Samkomulagið felur í sér nokkrar breytingar á frumvarpinu um stjóm fiskveiða, sem verið hefúr fast f nefitd í efri deild Alþingis. Þar er m.a. gert ráð fýrir, að sveitarfélög á hveiju svæði hafi tímabundið foikaupsrétt á slripum, sem þaðaneru. Þá er einnig kveðið á um í samkomu- laginu, að frumvarp um úreldingarsjóð fiskiskipa skuli fara samhliða kvóta- fiumvarpinu í gegn um þingið. Nafúi úreldingarsjóðs mun samkvæmt frum- varpinu verða breytt í hagneðingarsjóð sjávarútvegsins samhliða því, sem hlut- verk hans verður viðtækara. Gert er ráð fýrir, að hinn nýi hagræðingarsjóður fai til umráða á bilinu 1,5 - 2% af heildar- magni veiðiheimilda. Að sögn sjávanit- vugsráðherra mun þessi breyting greiða vendega fýrir fækkun fiskiskipa á næstu árum og þar með gagnast í ríkum mæli útgeiðinni í landinu. -ÁG

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.