Tíminn - 08.09.1990, Blaðsíða 9

Tíminn - 08.09.1990, Blaðsíða 9
Laugardagur 8. september 1990 Tíminn 17 „Á þaö aö verða okkar hlutskipti að byggja 50 þúsund manna borg á höfuðborgarsvæðinu á næsta áratug og horfa upp á yfirgefin mannvirki á landsbyggðinni?” spyr Jón Kristjánsson, alþingismaður. Jón Kristjánsson alþingismaður: IBUATALAN ÁRK> 2000 Er byggðastefna tæki stjórnmálamanna til að rýra lífskjörin í landinu? Nú færist i vöxt að miða við árið 2000 þegar menn eru að „spekúl- era“, eins og sagt er á vondu máli. Aldamótin eru ekki langt undan og ef litið er 10 ár aftur í tímann, eða til ársins 1980, finnst mörgum það furðu skammur tími. Fólksflutningar úr dreifbýli í þétt- býli eru ekki nýtt fyrirbrigði og hefur straumurinn verið stöðugur alla þessa öld. Höfuðborgin hefur breyst úr sjávarþorpi f borg með út- hverfum, sem enn eru sjálfstæð sveitarfélög. Þessi straumur hefur haldið áffam allan síðasta áratug. Með bættu vegakerfi hafa at- vinnusvæði stækkað. Það er ekki með öllu óþekkt að atvinna sé sótt til Reykjavíkur frá Suðumesjum og öfugt og jafhvel ffá Hveragerði og Selfossi þar sem þó er yfir fjallveg að fara. Tæknin gerir okkur kleift að gera alls konar „statistik" og nýlega hef- ur Byggðastofnun ffamreiknað þróun siðustu ára i fólksflutningum til aldamóta. Niðurstaðan er ugg- vænleg. Hún er i stuttu máli sú að á Reykjavikursvæðinu yrðu þá bú- settir 172 þúsund íslendingar en um 100 þúsund alls staðar annars staðar á landinu. Mjög stór land- svæði myndu vera komin niður fyr- ir þau mörk að þar væri hægt að halda uppi nútímaþjónustu, eða nánar tiltekið því samfélagi sem nútíminn krefst. Þessir útreikningar eru aðeins ffamreikningur á staðreyndum gærdagsins og engar ffamkvæmdir sem kynnu að flýta þessari þróun eru teknar með i reikninginn. Er byggöastefna skammaryröi? Hvemig skal við bregðast? Er byggðastefna skammaryrði eða tæki í höndum stjómmálamanna til þess að rýra lífskjörin? Stundum mætti ætla að svo væri, ef marka má umræðumar i fjölmiðlum sem oft bergmála meðal almennings. Ég hygg að nú séuþáttaskil varð- andi byggðamálin. A það að verða okkar hlutskipti að byggja 50 þús- und manna borg á höfuðborgar- svæðinu á næsta áratug og horfa upp á yfirgefin mannvirki á lands- byggðinni? Það er fullvíst að það bætir ekki lifskjörin i landinu. Tæknin gerir okkur kleift að gera alls konar „statistik" og nýlega hef- ur Byggðastofnun fram- reiknað þróun síðustu ára í fólksflutningum til aldamóta. Niðurstaðan er uggvænleg. Hún er í stuttu máli sú að á Reykjavíkursvæðinu yrðu þá búsettir 172 þúsund íslendingar en um 100 þúsund alls staðar annars staðar á landinu. Mjög stór land- svæði myndu vera kom- in niður fyrir þau mörk að þar væri hægt að halda uppi nútíma þjónustu, eða nánar til- tekið því samfélagi sem nútíminn krefst. Á sama tíma verður að draga úr framkvæmdum ríkis og sveitarfélaga ef þessi framkvæmd á ekki að setja efnahagslíf lands- manna úr skorðum sök- um stærðar og umfangs. Það mim leiða til þess að stærri hluti fjárfestingar þjóðarinnar verður f húsnæði, samgöngumann- virkjum og þjónustu á höfuðborg- arsvæðinu sem f mörgum tilfellum er fyrir hendi á landsbyggðinni. Fjármunir þjóðarinnar munu fara í þetta fremur en uppbyggingu at- vinnulífsins sem er undirstaða vel- megunar og velferðarþjóðfélags. Eftir situr borgarsamfélag með alla sfna ókosti, einhvers konar bastarð- ur milli smáborgar og stórborgar. Tæki til aö varö- veita lífskjörin og manneskjulegt sam- félag Mér er ekki ljúft að draga upp slíkar myndir og væri vissulega skemmtilegra að festa á blað ein- hveija betri framtíðarsýn en hér er að framan. Hins vegar er nauðsyn- legt einmitt nú að vekja athygli á þessum staðreyndum. Svo virðist nú sem margir ræði um það eins og sjálfsagðan hlut að byggja upp á mjög skömmum tíma á atvinnu- svæði höfuðborgarsvæðisins fyrir- tæki sem kostar 1 milljarð dollara að byggja og veitir 700 manns at- vinnu í fyrsta áfanga. Ti) fyrirtæk- isins á að flytja orku frá fjarlægum landshlutum og nota til þess bestu virkjunarmöguleika í landinu, þar með talið i væntanlega stækkun. Á sama tíma verður að draga úr ffam- kvæmdum rfkis og sveitarfélaga ef þessi framkvæmd á ekki að setja efnahagslíf landsmanna úr skorð- um sökum stærðar og umfangs. Þetta mundi skapa nýtt og áður óþekkt ástand í byggðamálum og hraða um allan helming þeirri þró- un sem ég gat um i upphafi. Ég er að sjálfsögðu að tala um byggingu álvers. Allar tölur um kostnaðarmun á þvi að reisa álver- ið á Reykjanesi eða á Reyðarfirði eða við Eyjafjörð eru stórýktar. Það mun koma fram í dagsljósið innan tíðar. Byggðastefna er ekki skammar- yrði né heldur tæki stjómmála- manna til þess að rýra lífskjörin. Byggðastefiia er tæki til þess að varðveita Hfskjörin og halda mann- eskjulegu umhverfi í landinu. SAMr- KRAFT VERKFÆRI ^ - ÞESSI STERKU B0RVÉLAR I ) ALHLIÐA HÖQQBORVÉL með elglnlelka lofthðggvéla Gerö - 6850EMH 500 vatta mótor 13 mm patróna einstaklega létt að bora í stein allt að þreföld ending á steinborum stiglaus hraðarofi fra 0- 1500 sn7mín. höggtíðni frá 0 - 5000 högg/mín. báöar snúningsáttir EIGUM ÁVALLT FJÖLBREYTT ÚRVAL SKIL RAFMAGNS- HANDVERKFÆRA OG FYLGIHLUTA JAFNT TIL IÐNAÐAR- SEM HEIMILISNOTA ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA Þekking Reynsla Þjónusta HÖGGBORVÉL Gerð - 6434H 520 vatta mótor 13mmpatróna stillanlegur, stiglaus hraðarofi frá 0 - 2900 snJmín A höggtíöni frá 0 - 49000 högg/min. I báöar snúningsáttir f fæst einnig í tösku I I I I FALKINN r i SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI84670 MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Iðnfulltrúar Laust er til umsóknar hlutastarf iðnfulltrúa til næstu fjög- urra ára, samkvæmt 12. gr. reglugerðar nr. 105/1990 um framhaldsskóla, fyrir eftirtalin landsvæði: Vesturland Norðurfand vestra Norðurland eystra Austurland Suðurland Vestmannaeyjar Reykjanes sunnan Hafnarfjarðar og Hafnarfjörð Iðnfulltrúa er ætlað að leiðbeina um gerð iðnnámssamn- inga, staðfesta þá og sjá um að þeir séu skráðir hjá menntamálaráðuneytinu. Þeir skulu einnig veita hlutað- eigandi upplýsingar um framkvæmd samninganna og vera tengiliður milli skóla og atvinnulífs. Umsækjendur þurfa að hafa haldgóða starfsreynslu á sviði iðnaðar og yfirsýn yfir störf (iðnaði ásamt þekkingu á námsleiðum í skólakerfmu. Æskilegt er því að iðnfulltrúi sé iðnmenntaður og hafi reynslu af fræðslu í iðnfræðslu- skóla. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 29. sept. nk. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Menningarsjóður íslands Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finn- lands og íslands. í því skyni mun sjóðurinn veita ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum, stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur á. Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir árið 1991 skulu sendar stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands fýrir 30. september nk. Áritun á íslandi: Mennta- málaráðuneytið, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku. Stjóm Menningarsjóðs íslands og Finnlands 5. september 1990

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.