Tíminn - 19.01.1991, Qupperneq 7

Tíminn - 19.01.1991, Qupperneq 7
Laugardagur 19. desember 1991 Tíminn 7 HEKLA við upphaf eldsumbrotanna 17. janúar 1991. (Ljósm.: Ami Bjama) Vegna fríverslunar með fjár- magn og fjárfestingar- og at- vinnurekstrarfrelsi á svæðinu fjárfestu stórfyrirtæki í Evrópu í íslenskum sjávarútvegi og fiski- rækt með því að kaupa smátt og smátt meirihluta í illa stöddum útgerðar-, fiskiræktar- og fisk- vinnslufyrirtækjum á Islandi. Loks næðu þau fullum eignaryf- irráðum yfir þeim. Þannig kæm- ust þau bakdyramegin inn í ís- lenska fiskveiðilögsögu með er- lenda togara sína og nýttu hana í þágu fiskmarkaðanna í Grims- by/Hull í Bretlandi og Bremerha- ven/Cuxhaven í Þýskalandi. Spænskir verksmiðjutogarar gerðust aðilar að fjölþjóðaútgerð- arfirmunum og kæmust þannig einnig bakdyramegin inn í fisk- veiðilögsöguna. Kvörtunum okk- ar til dómstólsins yrði svarað með því, að reglumar um EES leyfðu slíkar fjárfestingar og frelsi til atvinnurekstrar. Ábyrgðarlaus veiðisókn skaðaði fiskimiðin hér eins og gerst hefúr á EB-svæð- inu. Útlendingar allsráðandi Fiskfrystingin og fiskvinnsla yf- irleitt legðist smátt og smátt að mestu niður, flyttist frá íslandi yf- ir á meginland Evrópu og til Bretlandseyja. Gerðist þetta með tvennum hætti. Annars vegar með því, að æ stærri hluti sjávar- afurða yrðu fluttar frá íslandi óunnar á erlendu uppboðsmark- aðina, en hins vegar vegna þess að íslensk fiskvinnslufyrirtæki, að hluta eða öllu í eigu útlend- inga, flyttu til útlanda á 18-ríkja svæðinu. Við þessar aðstæður þætti arðbærara að senda fiskinn ferskan á ís beint á erlenda mark- aði. Þar fengist hærra verð fyrir hann en á íslandi til vinnslu og sköpuð yrðu atvinnutækifæri á láglaunasvæðunum. Vegna frelsis í þjónustuviðskiptum rækju er- lend firmu eigin vömflutninga- flota, sem væri í stöðugum flutn- ingum með afurðimar á milli ís- lands og erlenda markaðarins. Raforkuvirkjanir, stóriðjuupp- bygging og verktakastarfsemi kæmist fljótlega í hendur fjöl- þjóðafirma Evrópu, sem nytu fyllsta athafnafrelsis hér á landi. Vegna atvinnu- og búsetufrelsis, sameiginlegum vinnumarkaði alls svæðisins, flyttu erlendu fir- mun í sjávarútvegi og raforku- framleiðslu inn starfsfólk frá lág- launasvæðum Evrópu þar sem atvinnuleysi er mest, t.d. frá ír- landi, Spáni, Grikklandi og Portúgal. Hagkvæmnisrök leiddu til vaxandi verkaskiptingar og einhæfni atvinnulífs. Hlutverk fs- lands yrði fyrst og ffemst hrá- efnaframleiðsla, sjávarafurðir og raforka, í ffamleiðslusérgrein- ingu Evrópumarkaðarins. Smá- iðnaður legðist að mestu af hér á landi vegna samkeppni frá Evr- ópusvæðinu. Stóriðja yrði aðal- lega í höndum evrópskra fjöl- þjóðafirma, sem einnig sæju um raforkuvirkjanir og rekstur raf- stöðva. Mörg smærri iðnfyrirtæki í eigu íslendinga yrðu gjaldþrota í samkeppni við flæði iðnvara frá meginlandi Evrópu. Nokkur stærri íslensk firmu gætu fyrst í stað staðist samkeppnina með hagræðingu og samkeppnis- hæfni, einkum í samstarfi við er- lend firmu, sem smátt og smátt gætu með hlutabréfakaupum náð eignarhaldi á þeim. Atvinnuleysi færi vaxandi vegna samkeppni frá ódýru erlendu vinnuafli og gjald- þroti margra íslenskra firma. Vegna fríverslunar í þjónustu- greinum létu erlend firmu æ meira til sín taka í ferðaþjónustu, bankastarfsemi, tryggingum, verktakastarfsemi, jafnvel út- varps- og sjónvarpsrekstri. Gróin íslensk firmu í þessum greinum lentu í erfiðleikum. Sum þeirra yrðu keypt upp fyrir lítið af er- lendum samkeppnisaðilum. Vaxandi framleiðslusérgreining leiddi af sér aukna einhæfni at- vinnulífsins. Atgervisflótti úr landi færi vaxandi, af því að sér- menntað fólk fengi betur launuð störf við hæfi erlendis en hér á landi. Láglaunastétt daglauna- manna myndi vaxa hlutfallslega, og hún myndi þurfa að keppa um atvinnu í eigin landi við innflutt verkafólk frá láglaunasvæðum Evrópu. Dreifbýlið ætti í vök að verjast vegna fiársveltis og þess, að at- vinnustarfsemin þjappaðist af hagkvæmnisástæðum í þéttbýlis- kjarna landsins. Sveitimar yrðu ekki svipur hjá sjón. Smábýlin og miðlungsstóm býlin hyrfu að mestu, en stórbýli með eignar- hlutdeild erlendra aðila sæju um þá landbúnaðarframleiðslu, sem talið væri að mætti reka á íslandi á hagkvæman hátt. Flestar land- búnaðarvömr yrðu þó fluttar inn til landsins, einkum unnar land- búnaðarvömr, fyrst og fremst frá EB-ríkjunum í S-Evrópu. Hinn sjálfstæði sjálfseignarbóndi til- heyrði fortíðinni en landbúnað- arverkamenn störfuðu á sér- greindum stórbýlunum. Minni peningar verða til að framkvæma byggðastefnu og styðja sjálfseign- arbúskap, sem verður að laga sig æ meir að samkeppnisstöðlum evrópska efnahagssvæðisins og GATT. Fullveldisafsal Full fríverslun með fisk fæst ekki nema á móti komi fiskveiði- réttindi, auk þess sem erlendu útgerðarfélögin, sem keyptu upp íslensku útgerðarfélögin, kæm- ust bakdyramegin inn í land- helgina. Græðgisleg ofveiði, sem hefur verið eitt af einkennum fiskveiðistefnu EB, myndi smátt og smátt setja fiskistofnana við ísland í hættu og með tíð og tíma eyðileggja þessa helstu auðlind þjóðarinnar. Aðaltungumál í samskiptum stjórnenda hinna erlendu stór- fyrirtækja, sem störfuðu á ís- landi eða hefðu útibú hér, yrði enska eða þýska. íslenskan ætti í vök að verjast m.a. vegna hins innflutta erlenda vinnuafls. Erfið og kostnaðarsöm félagsleg vandamál hrannast upp vegna samskipta íslendinga og hins er- lenda vinnuafls og sem afleiðing erlendrar yfirstjórnar á miklum hluta atvinnurekstrarins. Allt hefúr þetta neikvæð áhrif á ís- lenskt menningar-, efnahags- og félagslíf. Lífskjör almennings lækka, atvinnuleysi vex, hag- kvæmni í rekstri og ábati er- lendu stórfyrirtækjanna ráða þróun mála. Þjóðin blandast æ meir innflytjendum frá láglauna- svæðum Evrópu. ísland verður vesæll útkjálki Evrópusvæðisins. Viðskiptin við Bandaríkin, Jap- an og t.d. Sovétríkin dragast saman vegna sameiginlega toll- múrsins og sameiginlegu við- skiptastefnu EES. Veruleg hætta verður á, að þjóðin glati smátt og smátt einkennum sínum, menn- ingarerfð, efnahagslegu sjálf- stæði og fullveldi, sem þegar hefði verið höggvið stórt skarð í við inngönguna í EES vegna full- veldisafsalsins, sem yrði grund- völlur bandalagsins. Er þetta sú framtíð, sem við vilj- um skapa börnum okkar, barna- börnum og öðrum afkomendum á íslandi framtíðarinnar? Er þetta kerfi og afleiðingar út- færslu þess, það sem við viljum sækjast eftir að skipta fyrir það hagstæða milliríkjaviðskipta- kerfi, sem við búum nú við? Ég segi nei takk og mér dettur ekki í hug, að nokkur hugsandi íslendingur, sem fær tækifæri til að kynna sér málið frá öllum hliðum, taki öðruvísi afstöðu. Með tilliti til þeirrar framtíðar, sem ríkjandi hugmyndir um EES myndu skapa Islandi, er greinilegt að það eru bestu hags- munir Islands í sambandi við samningaviðræðurnar, sem nú standa yfir, að ísland hætti sem allra fyrst þátttöku í þeim og snúi sér að öðrum og betri valkost- um.“ Sérsamningar við EB Hér lýkur lýsingu dr. Hannesar Jónssonar á því „evrópska efna- hagssvæði", sem ætla má að verði til ef áfram er haldið í samningum EB og EFTA eins og til hefur verið stofnað og viðræð- ur hafa þróast. Samningaviðræð- ur þessar hafa í engu nálgast það mark, sem megináhersla hefur verið lögð á af Islendinga hálfu, að sérstaða íslands í fiskveiði- málum verði viðurkennd í víðri merkingu þess orðs, þ.á m. að sjálfsögðu fríverslun með fisk firam yfir það sem þegar er fyrir hendi. Önnur atriði íslenskrar fyrirvarastefnu gagnvart eðli og skipulagi hugsaðs evrópsks efna- hagssvæðis eiga heldur ekki upp á pallborðið í þessum viðræðum, en þar skiptir höfúðmáli að ís- lendingar ætla ekki að skerða fullveldi sitt með því að gangast undir yfirþjóðlegt vald í þeim mikla mæli sem evrópska efna- hagssvæðið mun fela í sér á flest- um sviðum. Full ástæða er til að taka alvar- lega þá skoðun margra, að evr- ópska efnahagssvæðið sé alls ekki til frambúðar sem ríkjasam- tök, heldur muni það fljótlega hverfa, ef það kemst yfirleitt nokkurn tímann á laggimar, því að gagngerar breytingar hafa orðið á viðhorfum áhrifamestu EFTA-þjóðanna, fyrst og fremst Svía, sem nú stefna að því að ganga í sjálft Evrópubandalagið, feta þannig í slóð Austurríkis- manna. Margt bendir til að í Nor- egi vaxi fylgi við inngöngu í EB og ekki fyrir það að synja að svip- að gerist í Finnlandi. Þegar svo er komið er ekki einasta verið að leysa Fríverslunarsamtökin upp, heldur er verið að dæma evr- ópska efnahagssvæðið til dauða nema það öðlist skammvinnt líf sem biðsalur að Evrópubanda- laginu. í þann biðsal ætla íslend- ingar ekki að ganga. Ekkert af þessu hentar íslend- ingum. Ríkisstjórnin gæti þess vegna dregið sig út úr samninga- þófinu milli EB og EFTA. Ef tryggja á hagsmuni Islands sam- kvæmt þeirri grundvallarstefnu sem ríkisstjórnin hefur í Evrópu- málum, sýnist einboðið að í al- vöru verði farið að huga að sér- samningum við Evrópubanda- lagið um íslenska aðlögun að þróun þeirra mála.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.