Tíminn - 22.01.1991, Qupperneq 2
Tíminn
Þriðjudagur 22. janúar 1991
Menntamálaráðuneytið biður dönskukennara að líta á gömlu
dönskubækurnar. Formaður Félags dönskukennara:
EKKI í OKKAR
VERKAHRING
Vegna þess að stöður námsstjóra í dönsku og ensku við mennta-
málaráðuneytið hafa verið aflagðar hafa ráðuneytið og Fræðsluskrif-
stofa Reykjavíkur nú leitað til Félags dönskukennara um hvað eigi
að gera við tonnin tvö af notuðum dönskubókum, sem gefin voru
hingað til lands og Tíminn greindi frá í síðustu viku.
„Það vantar bækur til dönsku-
kennslu, sem er auðvitað slæmt.
Hitt er svo annað mál að við vitum
ekkert um gæði þessara bóka og höf-
um ekki séð innihaldið í gámunum
sem kornu," sagði Michael Dal, for-
maður Félags dönskukennara, í
samtali við Tímann. Að mati Micha-
els er danska bókagjöfm hingað til
lands hið besta mál. En á hinn bóg-
inn telur hann vera maðka í mys-
unni af hálfu ráðuneytisins. Síðast-
liðið vor voru stöður námsstjóra í
dönsku og ensku við menntamála-
ráðuneytið því miður aflagðar.
„í nágrannalöndunum er stöðugt
lögð meiri áhersla á tungumála-
kennslu, en það er eins og ráðuneyt-
ið sé að fara í þveröfuga átt við alla
aðra. Svona mál eins og bókagjöfina
Fyrst var það heita vatnið, en nú:
Hafnarfjörður
kaldavatnslaus
Ekkert kalt vatn yar í húsum í
Hafnarfirði í gær. Ástæðan var sú
að í fyrrinótt sprakk 14 tommu að-
alæð, sem liggur niður Öidugötu.
Mikill vatnsflaumur var í götunni
og flæddi inn í nokkur hús. Viðgerð
stóð yfir í allan gærdag og var búist
við að henni lyki um sjöleytið í gær-
kvöld.
Bergsveinn Sigurðsson, verkstjóri
hjá Áhaldahúsi Hafnarfjarðar, sagði
að síriti, sem er á vatnsrennslinu,
hafi gefið til kynna að milli klukkan
þrjú og fjögur í fyrrinótt hafi æðin
sprungið, en þeir fengu ekki fregnir
af þessu fyrr en um fimmleytið í
gærmorgun og eftir það var unnið
að því að finna bilunina og gera við
hana.
„Viðgerðin hefur gengið vel og það
er unnið að því að setja nýjar pípur í
gagnið," sagði Bergsveinn.
Bergsveinn sagði einnig að þeir
hefðu þurft að skrúfa fyrir vatns-
rennslið af öllum bænum, því að
vatn kæmi sífellt inn á þessa æð ef
vatninu væri hleypt á aðrar æðar.
.Ástæða þessa er líklega sú að þessi
æö er yfir 40 ára gömul og á sínum
tíma hefur hún verið lögð í sand eða
mjúkan jarðveg og sennilega hefur
eitthvað verið farið að skolast undan
þessari pípu eftir þessi ár og þá
leggst hún kannski á harða klöpp
eða grjótknippi og þá þarf ekki ann-
að en titring frá bíl til að sprengja
steypujárnspípuna," sagði Berg-
sveinn einnig í samtali við Tímann í
gær.
Svo virðist sem ekki eigi af Hafn-
firðingum að ganga þennan vetur-
inn, með heitavatnsleysi, rafmagns-
leysi og nú kaldavatnsleysi og eru
Hafnfirðingar margir hverjir orðnir
langþreyttir á þessu ástandi.
Einn íbúi í Hafnarfirði, sem Tíminn
talaði við í gær, sagðist hafa þurft að
fara til vinafólks í Breiðholti til þess
að komast í sturtu í gærmorgun.
-GEÓ
Allt tiltækt lið slökkviliðsins
kallað að Árbæjarskóla:
KVEIKT í
RUSLAFOTU
Allt tiltækt lið slökkviliðsins í
Reykjavík var kallað að Árbæjar-
skóla um hádegisbilið í gær. Þar
hafði verið kveikt í ruslafötu, sem
staðsett var á gangi fyrir framan
kennslustofur, og logaði glatt í föt-
unni. Slökkviliðið náði að slökkva
eldinn áður en hann breiddist út og
engum varð meint af.
Banaslys
Banaslys varð í Njarðvíkurhöfn í
gærmorgun um borð í Ágústi Guð-
mundssyni GK 95.
Rúmlega fertugur maður lést þegar
lestarlúga féll á hann. Maðurinn
klemmdist undir lúgunni og var lát-
inn þegar komið var með hann á
sjúkrahús. —SE
ætti námsstjóri í raun og veru að sjá
um. Það er vegna þess sem mennta-
málaráðuneytið og fræðsluskrifstof-
urnar eru að ætlast til þess að við
tökum þetta að okkur við litla hrifn-
ingu okkar. Ráðuneytið ætti raun-
verulega að annast þetta sjálft,"
sagði Michael.
Aðspurður sagði hann að það væri
mjög misjafnt hver kunnátta skóla-
nema væri þegar þeir kæmu úr
grunnskólanum upp á framhalds-
skólastigið.
Sífellt fleiri virðist eiga erfitt með
að stunda nám almennt „Ég get
nefnt sem dæmi að í svokölluðum
núlláfanga í dönsku fyrir þá sem
ekki hafa náð tilskildum áfanga í
grunnskóla, hefur stórfjölgað síð-
ustu annir. í þessu felst kannski að
búið er að leggja niður samræmd
próf í dönsku og ensku og áhrif þess
að sýna sig.“
Michael sagði það vera hreina bá-
bilju að danska þyki leiðinlegt fag í
skólum, einkum meðal eldri nem-
enda. „Sem betur fer er þetta ekki
rétt. Eg get nefnt sem dæmi að í
efstu áföngunum, sem boðið er uppá
í dönsku, er hrein barátta um að
komast að. Þetta finnst mér sýna að
áhugi fyrir dönsku er til staðar."
-sbs.
Kristján Karisson veitir verðlaununum viðtöku úr hendi Sveins Sæ-
mundssonar, formanns FÍR.
Bókmenntaverðlaun Félags ísl. rithöfunda:
Kristján Karlsson
fékk Davíðspennann
Bókmenntaverðlaun Félags ís-
lenskra rithöfunda, Davíðspenninn,
voru veitt fyrsta sinni í gær og hlaut
þau Kristján Karlsson, skáld og
bókmenntafræðingur, fyrir ljóðabók
sína „Kvæði 90“. Verðlaunaveiting-
in fór fram að Hótel Sögu að við-
stöddum gestum og fulltrúum fjöl-
miðla.
Sveinn Sæmundsson, formaður Fé-
lags íslenskra rithöfunda, afhenti
Kristjáni verðlaunin, sem eru auk
Davíðspennans eitt hundrað þúsund
krónur. Verðlaunin draga nafn sitt af
Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi, en
í gær voru 96 ár liðin frá fæðingu
hans. Kristján Karlsson er fæddur
26. janúar 1922 í Eyvík á Tjörnesi.
Hann stundaði tungumála- og bók-
menntanám við Kaliforníuháskóla
frá 1942 og lauk þar M.A.-prófi í
samanburðarbókmenntum 1946.
Bækur hans, auk verðlaunabókar-
innar „Kvæði 90“, eru þessar: Kvæði
(1976), Kvæði 81 (1981), New York
(1983), Kvæði 84 (1984), Komið til
meginlandsins frá nokkrum úteyj-
um. Sögur (1985), Hús sem hreyfist.
Sjö ljóðskáld (1986), Kvæði 87
(1987).
Skíðaskálinn í Hveradölum brann til grunna sl.
sunnudagskvöld. Bergsveinn Alfonsson varðstjórí:
Orrustan töpuö þegar
við komum á staðmn
Skfðaskálinn í Hveradölum brann
til kaldra kola sl. sunnudags-
kvöld. Tilkynning um eld í skál-
anum barst til slökkviliðslns í
Reykjavík klukkan rúmlega ellefu
á sunnudagskvöidið. Bflar frá
slökkviliöinu í Reykjavík, slökkvi-
liðinu á Reykjavíkurflugvelli, í
Hveragerði og á Selfossi fóru á
staðinn en gátu ekkert gert, enda
skálinn orðinn alelda þegar fyrsti
bfllinn kom á staðinn, tæpum
hálftíma eftir að tilkynnt var um
brunann.
„Þaö var reynt að tjalda því sem
til var, en því miður var orrustan
töpuð þegar við komum á stað-
inn,“ sagði Bergsveinn Alfons-
son, varðstjóri hjá slökkviliöinu í
Reykjavík. Maöur, sem leið átti
um Hveradalina, varð fyrstur
manna var við eldinn og hringdi
hann úr farsíma á slökkviliðið.
Eins og áður sagði náði slökkvi-
liðið með engu móti að bjarga
skálanum. Söluskúr, sem var fyr-
ir utan skálann, var kældur og
hindrað að eldur kæmist í hann.
Einnig fjarlægðu slökkviliðs-
menn gaskúta úr kjallara skíða-
skálans. Slökkviliðið í Hveragerði
vaktaði skálann fram eftir nóttu
og annast lögreglan á Selfossi
rannsókn á upptökum eldsins. f
gær var ekkert búið að finna út
sem skýrt gæti eldsupptök.
Skíðaskálinn í Hveradölum var
reistur árið 1934 af Skíðafélagi
Reykjavíkur. Reykjavíkurborg
keypti hann árið 1971 og seldi
hann síðan fyrir nokkrum árum.
—SE
Skagafjörður:
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
rauk kolsvartur reykur út um
glugga á efri hæð. Fjórir reykkafarar
fóru strax inn og slökktu eldinn og
athuguðu hvort einhverjir hefðu
orðið eftir á efri hæðinni, en nem-
endur og kennarar flúðu út strax og
varð vart við eldinn.
Að sögn slökkviliösins mættu þeim
mörg svört andlit þegar þeir komu
að skólanum, enda þurftu þeir sem
voru staddir á efri hæðinni að
hlaupa í gegnum reykinn til að kom-
ast út.
Tálið er að kveikt hafi verið í rusla-
fötunni og er það mál litið mjög al-
varlegum augum af skiljanlegum
ástæðum. Að sögn lögreglunnar í
Árbæ verður málið að öllum líkind-
um sent Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins til rannsóknar.
—SE
Þjónustumiðstöð
tókst á loft og
fauk langa leið
Óveðrið, sem gekk yfir landið norð-
anvert í gær, olli talsverðu tjóni á
nokkrum stöðum. Lítið hús, sem
ætlað er sem þjónustumiðstöð fyrir
ferðafólk við ferðamiðstöðina
Bakkaflöt í Skagafirði, fauk á loft,
upp brekku og upp á veg í gær-
morgun, og er mikið skemmt.
Sigurður Friðriksson, sem rekur
ferðamiðstöðina, sagði í samtali við
Tímann að hann hefði líklega aldrei
orðið vitni að öðru eins veðri. Að-
spurður sagði Sigurður að ekkert
annað hefði skemmst, enda væri
þetta alveg nóg. Þjónustumiðstöðin
er með eldunar- og mataraðstöðu
fyrir 20 manns og er aðallega ætluð
fýrir þá sem gista í tjöldum við
Bakkaflöt. Sigurður sagðist búast
við því að þurfa að byggja húsið nær
alveg frá grunni. Húsið var ótryggt
og ber hann allan skaðann. —SE
Lýst eftir manni
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir
Hauki Matthíassyni, 73 ára vist-
manni í Gunnarsholti í Rangár-
vallasýsiu.
Haukur er hærri meðalmaður,
sköllóttur. Hann er líklega klæddur
jakkafötum, ljósum rykfrakka og
með hatt á höfði.
Þeir, sem hafa séð til ferða Hauks
eftir föstudaginn 4. janúar sl. eða
vita hvar hann er nú, vinsamlegast
láti lögregluna vita.