Tíminn - 22.01.1991, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.01.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Hatnorhusinu v Trvggvagotu, S 28822 Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga POSTFAX 91-68-76-91 IMI55AN Réttur bíll á réttum stað Ingvar Helgason Kf. Sœvarhöfða 2 Slmi 91-674000 -------------------------------------------------------------,-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------m Byrgt var fyrir alla sýn til Heklu í gær og óvíst hvort húr \ gaus enn: 'TLUI LLT ELDFJALL HEK LA Jarðfræðingar, sem voru á Heklu- svæðinu, gátu síðdegis í gær ekk- ert sagt til um hvort gos væri enn í fjallinu. „Héðan er ekkert að frétta, rigning og rok — slagveð- ur,“ sagði Eysteinn Tryggvason jarðeðlisfræðingur í samtali við Tímann þar sem hann var stadd- ur í Seisundi á Rangárvölium. Ekkert hafði þá sést til fjallsins frá því snemma um nóttina, en þá sást ennþá roði á himni. Þá var enn virk ein sprunga í norðaust- urhlíð þess. Eysteinn kvaðst ekki búast við að geta séð það á mælum hvort gos- virkni væri ennþá. „Ég held að veðrið hafi verið alltof mikið til þess og hafi alveg yfirgnæft áhrif gossins á þá.“ „Hekla er óútreiknanleg og ef einhver talar um að hún sé að hægja á sér, þá á hún til með að rjúka upp,“ sagði Drífa Hjartar- dóttir á Keldum á Rangárvöllum í samtali við Tímann. „Mér finnst þetta gos ná yfir stærra svæði en mörg hin fyrri hafa gert. Þetta gos nær alveg frá vesturhrygg og aust- ur yfir fjallið og þegar mest var taldi ég 17 gígaraðir. Það sem mér finnst merkilegt við þetta gos er að því fylgja engar drunur, en í gosinu 1980 nötruðu rúðurnar í húsinu hjá mér. Sjálf kann ég nábýlinu við Heklu vel og er mjög hreykin af mínu fjalli. Ég held að gosið sé að fjara út núna, en annars er þetta óútreiknan- legt,“ sagði Drífa Hjartardóttir. Asta Þorleifsdóttir jarðfræðingur var í skíðagönguferð með hóp frá ferðafélaginu Utivist þegar blaða- maður Tímans hitti hana í Langv- íuhrauni síðdegis á sunnudaginn. Þetta var þriðja ferð hennar á jafn- mörgum dögum með ferðamenn á þær slóðir. „Þetta er skemmti- legt gos að því leyti hvað það hef- ur verið fjölbreytt. Það er eins og það sé nýtt gos í hvert skipti sem maður kemur hingað. Gosið Fjöldi fólks lagði leið sína á Hekluslóðir um helgina. Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur. hreinlega flakkar um fjallshlíðina - þar sem voru virkar sprungur í gær er ekkert í dag og gosið kom- ið upp annarsstaðar, þannig að Tímamynd: Sigurður Bogi þetta er með skemmtilegri eld- gosum sem ég hef fylgst með.“ Ásta sagði að greinilegt væri að Hekla væri að breyta hegðan sinni Tímamynd: Sigurður Bogi frá því sem áður hefði verið. „Fyrsta Heklugosið, sem fylgst var með, var árið 1947 og fram að þeim tíma höfum við bara annála. En það er greinilegt að hegðan fjallsins er síbreytileg: Fyrst eftir ísöld gaus Hekla stórum gosum á 1000-2000 ára fresti allt fram til ársins 1104 sem er fyrsta gos á sögulegum tíma. Þá byrjar hún að gjósa tvisvar á öld allt fram til 1947. Það kom því öllum í opna skjöldu þegar hún gaus 1970. Menn höfðu talið að hún myndi gjósa næst í kringum 2000. Því kom það enn meir á óvart þegar hún gaus enn árið 1980 og 1981 og gosið núna kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Annað sem er breytt er gosefnið, því Hekla gaus einkum öskugosum fram á þessa öld, en núna aðallega hraungosum." -sbs. Hvanneyrarveiki: Ekki smitandi Rétt er að taka fram vegna frétt- ar um dauð folöld í Skarði í Landssveit að Hvanneyrarveiki er ekki smitandi og veldur hross- um, sem ekki komast í skemmt hey, engum skaða. Ekkert hefur borið á veikinni eftlr óhappið um daginn, enda hefur þess verið gætt að gefa hrossunum ekki annað en gott hey. Folöldin, sem drápust á Skarði, voru ekki frá bænum sjálfum og ekki tengd hinu kunna hestakyni frá Skarði. -EÓ Eyjafjörður: Fimm tonna plastbátur, Eyfell EA frá Grenivík, fannst um kl. 16.00 á sunnudag, mannlaus og marandi í hálfu kafi við Gjögurtá, nyrst við austanverðan Eyjafjörð. Skammt frá fannst björgunarbátur Eyfells- ins uppblásinn uppi í fjöru. Grenvíkingur á fertugsaldri reri einn á Eyfellinu, og er hans enn saknað. Hann hafði síðast samband við Siglufjarðarradíó um kl. 7.00 á mánudagsmorgun. Hann sinnti ekki tilkynningar- skyldu um hádegisbilið, og skömmu síðar var leit hafin. Að sögn Ásgeirs Kristinssonar hjá Björgunarsveitinni á Grenivík er fjaran næst slysstaðnum mjög erfið yfirferðar, og vart hægt að leita þar nema af sjó eða úr lofti. Þyrla Land- helgisgæslunnar leitaði á mánudag frá slysstaðnum og inn að Látrum, auk þess sem bátar frá Dalvík, Grenivík og Hrísey leituðu á sjó. Einnig flutti þyrlan 4 menn frá Grenivík út í svonefnda Keflavík á mánudagskvöld, og gistu þeir í ríniinn ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991 Sjóslys við Gjögur ■■ ■ X ■ ■ ■ * r I hvassviðri norðanlands Aðfaranótt mánudags gekk á mikið hvassviðri norðanlands. Mestur var vindhraðinn á Akur- eyri um kl. 8.00 í gærmorgun. Þá mældist hann 68 hnútar, sem jafngiidir 12 vindstigum. Tálsvert tjón varð á Akureyri, þakplötur fuku af húsum, bflar fuku saman og ýmsir lausir hlutir fuku og ollu tjóni. Mikil hálka var á götum Akureyrar, svo og vatnselgur, svo ökumenn og gangandi vegfarendur áttu erfltt með að komast leiðar sinnar. Þá var vart ferðafært á vegum í Eyjafírði vegna hvass- viðris og hálku. Grunnskólum var víða aflýst og menn áttu víða erfitt með að komast til vinnu. Samkvæmt upplýsingum varð- stjóra í lögreglunni á Akureyri var mikið um upphringingar og annríki hjá lögreglu í gærmorg- un. Þakplötur fuku af íjölbýlis- húsi við Skarðshlíð, og varð að loka nærliggjandi götum meðan verið var að hreinsa tll. Þá fuku þakplötur af a.m.k. þremur ein- býlishúsum. Skorsteinn fauk af húsi við Hafnarstræti, lenti ofan á bfl og stórskemmdi hann. Gervihnattardiskur fauk af húsi, og er talinn ónýtur. Þá var eitt- hvað um tillómningar vegna kyrrstæðra bfla sem fuku saman á bílastæðum. Lögregluþjónn á Dalvík sagði að þar hefði verið hávaðarok og mikil hálka. Hins vegar var hon- um ekki kunnugt um neitt tjón eða árekstra af völdum hvass- viðrisins. hiá-akureyri. Björgunarsveitarskýli sem þar er. Ætlunin var að þeir gengju fjörur í gær, en vegna hvassviðris og erfiðra skilyrða gekk leit erfiðlega. Um há- degisbil í gær komust þeir um borð í Frey frá Ólafsfirði, sem leitaði með ströndinni austur fýrir Gjögur og allt austur í Þorgeirsfjörð. Skilyrði til leitar voru mjög erfið í gær vegna hvassviðris, en Ásgeir sagði að ráð- gert væri að leit yrði efld um leið og veðrið gengi niður og skilyrði bötn- uðu. hiá-akureyri Akureyri: Snjósleðaslys á Glerárdal Um miðjan dag á sunnudag varð snjósleðaslys við Lamba á Glerárdal ofan Akureyrar. Hópur vélsleða- manna var á ferð um Glerárdal, og samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Akureyri voru tildrög slyss- ins þau að einn vélsleðamaðurinn hægði snögglega á sleða sínum, með þeim afleiðingum að félagi hans, sem var rétt á eftir honum, lenti aftan á sleðanum. Hjálparsveit skáta var send á stað- inn ásamt lækni, en síðan var þyrla Landhelgisgæslunnar fengin til að flytja mennina tvo á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Upphaflega átti að flytja mennina til Reykjavík- ur, en vegna sjóslyssins við Gjögur var horfið frá því, mennirnir fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og þyrlan síðan send til að aðstoða við íeitarstörf. Lögreglan taldi að vélsleðamenn- irnir, sem báðir eru um tvítugt, hafi sloppið mjög vel. Annar kjálkabrotn- aði, og var talsvert marinn og skrámaður. Hann var lagður inn til nánari skoðunar. Hinn kenndi til í hálsi og marðist talsvert, og var hann sendur heim að iokinni skoð- un. Hann var hins vegar fluttur aftur á Sjúkrahúsið í gær vegna háls- áverkanna. hiá-akureyri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.