Tíminn - 22.01.1991, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 22. janúar 1991
Skotbardagar f höfuöborg Lettlands:
4 drepnir og 10 særðir
Til skotbardaga kom milii sérsveita sovéska hersins og lettneskra
iögreglusveita í innanríkisráðuneytinu í Riga, höfuðborg Lett-
lands, á sunnudagskvöldið. Pjórir féUu og tíu særðust.
Sérsveitir sovéska hersins voru um 90 mínútur að yfirbuga lög-
reglusveitirnar. Á meðan safnaðist hópur Letta fyrir framan bygg-
inguna og hrópuðu beir; „Fasistar, fasistar!“ Sérsveitirnar yfir-
gáfu síðan ráðuneytið fimm klst. seinna eftir samningaviðræður
forsætisráðherra Lettlands, Ivars Godmanis, og innanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Boris Pugo, en hann ber ábyrgð á sérsveit-
unum.
Þetta er í annað sinn á átta dög-
um sem mannskæöir bardagar
milli sovésku sérsveitanna og íbúa
Eystrasaltslýðveldanna eiga sér
stað. Síðastliðinn sunnudag voru
þrettán manns drepnir í höfuð-
borg Litháens, Vilnius, þegar her-
inn tók aðalstöðvar útvarps og
sjónvarps í borginni.
Einn ofursti í sovéska hemum
skýrði atburðlna í Riga þannig að
sérsveitarmenn hefðu átt erindi í
ráðuneytið, en þegar þangað kom
hefðu þeir orðið fyrir skothríð.
Sérsveitarmennimir hefðu þá
ákveðið að hertaka bygginguna.
Innanríkisráðuneytið er staðsett
nokkuð fyrir utan miðborgina og
því höfðu borgarar ekki safnast
saman fyrir utan bygginguna.
Almenningur í Eystrasaltsríkj-
unum varð varari um síg í lcjölfar
atburðanna og herti öryggisgæslu
um helstu byggingar iýðveldanna.
Þing Lettlands ákvað í gær í kjöl-
far bióðbaðsins að stofna sérstak-
ar vamarsveitir, sem hefðu það
hlutverk að vemda líf og frelsi
íbúa lýðveldisins. Þing Rússlands
kom saman í gær, viku fyrr en
venjulega. Boris Jeltsin, forseti
Rússlands, sagði að það væri
vegna þeirrar spennu sem ríkti í
landinu. Hann taldi að enn væri
hægt að koma í veg fyrir þá pólit-
ísku þróun sem nú ætti sér stað í
Sovétríkjunum.
Atburðimir vðktu mikil viðbrögð
á Vesturlöndum, þrátt fyrir að at-
hygli manna beinist fyrst og
fremst að Persaflóastríðinu. Tals-
maður Hvíta hússins sagði að at-
burðimir í Lettlandi yllu stjóm-
völdum í Bandaríkjunum miklum
áhyggjum. Ekkert bendir hins
vegar til þess að fundi Gorbatsjovs
og Bush, sem á að fara fram í
Moskvu dagana 11.-13. febrúar,
verði aflýst. Douglas Hurd, utan-
ríkisráðherra Bretlands, sagði um
leið og hann fordæmdi atburðina
að Vesturlönd yrðu að fylgjast ná-
ið með framvindu mála í Sovéríkj-
unum. Hann sagði að það væri
mögulegt að vöidin í Sovétríkjun-
um kæmust í hendur hættulegra
rnanna. Þá mótmæltu fulltrúar
Evrópubandalagsins harðlega og
gáfu í skyn að EB mundi jafnvel
hætta efnahagsaðstoðinni við Sov-
étríkin. Reuter-SÞJ
IRAKAR BRJOTA GENFAR-
SÁTTMÁLA UM STRÍÐSFANGA
Útvarpið og sjónvaipið í Bagdad birti í gær viðtöl við fiugmenn
bandamanna, sem Irakar höfðu tekið til fanga eftir að fiugvélar
þeirra hröpuðu í írak og Kúvæt. Á myndum, sem sjónvarpið í Bagd-
ad sýndi, hafði föngunum augljóslega veríð misþyrmt. Fangarnir
voru marðir og rispaðir og töluðu með hikandi röddu eins og þeir
væru beittir þrýstingi til að tala. Fangamir fordæmdu árásir banda-
manna á fríðsama íbúa íraks. Sendiherra íraka í París sagði að fang-
arair fengju aðeins mannúðlega meðferð að því tilskildu að banda-
menn viðurkenndu að þeir væru fangar íraka.
Bandaríkin sögðu í gær að tuttugu
og fimm flugmanna væri saknað, en
stjómvöld í Irak bjóða nú há verðlaun
fyrir stríðsfanga.
írakar sögðust hafa sent fangana til
hemaðarlega mikilvægra skotmarka
til að koma í veg fyrir árásir á þau.
Dick Cheney, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í sjónvarpsvið-
tali við CNN í gær að það væm stríðs-
glæpir að nota stríðsfanga sem vöm.
„Þeir sem gera það verða látnir sæta
ábyrgð," sagði Cheney. Þegar hann
var spurður um hvort þetta mundi
hafa áhrif á sprengjuárásir banda-
manna, sagði hann „Nei.“
Valdbeit-
m m jr
ingin i
Litháen
óafsak-
anleg
Verkalýðssamband Norðurlanda,
samtök launþegasamtaka á
NorðuriÖndum, hefur sent frá
sér samþykkt um ástandið í
Eystrasaltslöndunum. Þar er
lýst skelfingu og vonbrigðum
með framvindu deilumála ríkj-
anna við Eystrasalt og Sovét-
stjóniarinnar hins vegar.
I samþykktinni segir ennfrem-
ur að engin ieið sé að afsaka þá
svívirðilegu og grófu valdbeit-
ingu, sem rbúum í Lettlandi og
Litháen hafi verið sýnd. Það hafi
valdiö vonbrigðum hvernig Sov-
étstjómin hafi svikið áform sín
um umbætur og frið. Jafnframt
er sagt að miklar vonir séu
bundnar við hina lýðræöislegu
þróun, sem hafin sé í Sovétríkj-
unum, og allir aðilar hvattir Úl
að leysa deilur með samningum.
-sbs.
Níu Scud-eldflaugar
skotnar niður
írakar skutu tíu Scud-eldflaugum á
Saudi-Arabíu í gær og nú í fyrsta sinn
á Riyadh, höfuðborg landsins. Níu
voru skotnar niður með Patriot- eld-
flaugum, en ein var látin afskiptalaus,
því hún lenti í sjónum nálægt Dha-
hran. Að sögn talsmanns Bandaríkj-
anna varð ekkert tjón. Hins vegar sáu
fréttamenn gíg rétt hjá einum af
tveimur flugvöllum í Riyadh, en þeir
bjuggust við að hann væri eftir Patri-
ot-flaug sem hefði ekki sprungið í
loftinu eftir að hafa misst af óvina-
flaug.
írakar skutu ellefu Scud- eldflaug-
um á ísrael á föstudag og laugardag,
en þær ollu litlu tjóni, enda markmið
þeirra að sögn fréttaskýrenda fyrst og
fremst að reyna að draga fsraelsmenn
inn í átökin og kljúfa Araba úr liði
bandamanna. í kjölfar þessara árása á
ísrael fékk ísraelski herinn Patriot-
eldflaugar frá her Bandaríkjanna.
Tálið er að írakar eigi eftir 50- 150
eldflaugaskotpalla og nokkur hundr-
uð Scud-eldflaugar.
Landherinn býr sig
undir árás
Flugherinn varpar nú stöðugt
sprengjum á landher íraka til að
veikja hann fyrir komandi bardaga
landherjanna. Flugherinn beinir að-
allega sprengjum sínum að Lýðveld-
ishernum, en það eru úrvalsdeildir
innan írakshers sem í eru 100-150
þúsund hermenn og hafa bestu vopn-
in, m.a. sovéska T-72 skriðdreka.
Mjög mikilvægt er talið að draga úr
mætti Lýðveldishersins, því það er
talið draga úr baráttuþreki annarra
íraskra hermanna. Sprengjuárásimar
á Lýðveldisherinn hafa staðið yfir í tvo
daga.
Að sögn Normans Schwarzkopf,
hershöfðingja í Bandaríkjaher, þá eru
sveitirnar mjög vel varðar og erfitt að
skaða þær.
Á meðan flugherinn stendur í
ströngu, búa landgönguliðar sig und-
ir að sækja inn í Kúvæt, að sögn
bandaríska hersins. Þúsundir her-
manna og hertækja em flutt í
fremstu víglínu að næturlagi til að
hyljast írökum, að sögn fréttamanns
Reuters. Landherinn er í stöðugri
viðbragðsstöðu vegna hugsanlegrar
skyndisóknar íraska landhersins.
Reuter-SÞJ
Flugmóðurskipið Theodore Roosevelt á Persaflóa.
Hvað gerist ef Saddam fellur?
Ef Saddam Hussein tapar Persafióastríðinu og missir völdin í Kú-
væt, þá mun bijótast út borgarastyijöld í frak, sem verður svo ofsa-
fengin að borgarastyijöldin í Líbanon verður eins og baraaleikur í
samanburði við hana, að sögn stjómmálafræðinga.
„Svo virðist sem Bandaríkjamenn
hafi ekki velt fyrir sér einni augljósri
spurningu: Ef Saddam verður hrak-
inn frá völdum hvað tekur þá við?“
sagði arabískur stjórnarerindreki
þegar hann yfirgaf Bagdad stuttu áð-
ur en stríðið braust út.
Saddam hefur nú rfkt í írak í tvo
áratugi. Hann hefur rutt öllum and-
stæðingum sínum úr vegi, allt frá
íröskum kommúnistum til kúrd-
ískra þjóðernissinna. Hann hefur
treyst mjög stöðu stjórnmálaflokks
síns, Baathflokksins, sem nær nú
inn í hvern krók og kima í þjóðfélag-
inu. Hann hefur byggt upp mikið
öryggiskerfi. Margir Irakar eru viss-
ir um að hijóðnemar, sem faldir séu
í umferðarljósum og ýmsum öðrum
stöðum, jafnvel á almenningssalern-
um, fylgist með þeim. Baathflokkur-
inn hefur komið á stöðugleika í
landinu, en áður voru tímar óró-
leika. Nuri Said, einn af fyrrverandi
forsætisráðherrum þessa óróatíma-
bils, var rifinn í tætlur af brjáluðum
múg. „Þjóðfélag okkar er ofbeldis-
kennt,“ sagði íraskur stjórnmála-
maður sem vildi ekki láta nafns síns
getið. „Mig hryllir við þeirri tilhugs-
un hvað muni gerast ef stjórnarfyr-
irkomulagið (Saddam Husseins)
hrynur."
Jafnvel fréttaskýrendur, sem eru
óvinveittir Saddam, viðurkenna að
fráhvarf hans mundi leysa upp þjóð-
félagsskipan þessa 18 milljóna
manna ríkis. „Otti er það sem hefur
haldið því sarnan," sagði Samir al-
Khalil í viðtali við Reuter í New
York, en hann er höfundur mikils
metinnar bókar um írak, „Lýðveldi
óttans". Khalil er dulnefni sem höf-
undur notar til þess að vernda fjöl-
skyldu sína, sem enn er í írak, en
hann sjálfur er í útlegð. „írak mundi
klofna í þúsund mola.... Það mundi
verða til þess að litið yrði á Líbanon
sem barnaleik," sagði Khalil.
Margir stjórnmálafræðingar og
fréttaskýrendur telja að endalok
Persaflóastríðsins muni hafa í för
með sér átök milli sjíta og súnníta,
múslíma og kristna minnihlutans,
Kúrda og Araba og allir þessir hópar
muni svo herja á stuðningsmenn
Saddams Husseins. „Það, sem gerir
málið flóknara, er að það er í raun-
inni engin skipulögð andstaða inn-
an íraks eða utan. En stór hluti ír-
aka hefur byssur," sagði vestrænn
stjórnarerindreki í Amman í Jórdan-
íu..
Þeir þrír hópar, sem taldir eru lík-
legir til að komast til valda eftir
stríðið, bera allir djúpt hatur í garð
Bandaríkjanna. Kúrdar segja að
Bandaríkjamenn hafi svikið þá þeg-
ar þeir hættu að styðja þá á miðjum
áttunda áratugnum í baráttu þeirra
gegn stjórn Baathflokksins og fyrir
sjálfstæði. Kommúnistar fyrirlíta
Bandaríkin vegna ólíkrar hug-
myndafræði og sjítar líta á alla
Bandaríkjamenn sem heiðingja sem
eigi ekkert erindi í arabískum lönd-
um.
Reuter-SÞJ